Þjóðviljinn - 20.12.1964, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 20.12.1964, Blaðsíða 7
Sunnudagur 20. desember 1964 HÓÐVIUINN StÐA 7 Þorsteinn Hann- esson kjörinn form. í Anglíu Aðalfundur brezk-íslenzka félagsins Angliu var haldinn í Sjálfstæðishúsinu 26. nóvember síðastliðinn. Formaður félags- ins, Gunnar G. Schram rit- stjóri, flutti skýrslu stjómar- innar um; Æélagsstarfið á árinu. Haldnir voru m.a. þrir fjöl- sóttir félagsfundir í Sjálfstæð- ishúsinu og tekið upp það ný- mæli að veita íslenzkum náms- manni styrk til sumarnáms við brezkan háskóla. Félagar Ang- liu eru nú hátt á fjórða hundr- að talsins, auk styrktarfélaga. Við stjórnarkjör baðst for- maður félagsins Gunnar G. Schram undan endurkjöri og einnig þeír Hallgrímur Hall- grímsson forstjóri og Anthony Comfort sendiráðsritari. Þakk- aði formaður Hallgrími Fr. Hallgrímssyni sérstaklega mik- il og góð störf i þágu félags- ins. Þorsteinn Hannesson var kjörinn foiTnaður félagsins fyr- ir næsta ár. Með honum í stjórninni eru: frú Doris Bri- em, Haraldur Á. Sigurðsson, Hjalti Þórarinsson, Donald Brander, Már Elísson, Ralph Hannam og Guðni Guðmunds- son. Anglia mun gangast fyrir jóla- trésfagnaði bama félagsmanna bann 6. janúar Bækur frá Snæfelli Bókaútgáfan Snæfell , í Hafn- arfirði gefur út f jórar bamabæk- ur fyrir þessi jól. Ein þeirra er frumsamin ís- lenzk bók, Svenni i Ási eftir Jón Kr. Isfeld, en hann hefur áður samið drengjabókina Bakka-Knútur sem lesin var í útvarp. Svenni í Ási, Sumaræv- intýri, er 139 bls. Bókin Valur fer á veiðar er eftir erienda höfunda, Jo og Ernest Noriing, en Vilbergur Júlíusson hefur endursagt bók- ina. Þetta er kölluð saga úr at- vinnulífinu; bókin er full af teikningum og útgefandi hefur látið teikna fyrir islenzku út- gáfuna skýringamyndir af veið- 'i.rfærum fslenzkra fiskiskipa. Bókin er prentuð með stóru letri og sjálfsagt ætluð yngri siómönnum okkar, en nokkum veginn víst að þeir hafa gam- m af henni. Styrktarfélag lamaðra Aðalfundúr Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 1964 var haldínn að Sjafnargötu 14 13. þ.rp. Formaður félagsins, Svav- ar4 * Páísson, endurskoðandi, (flutti. skýrslu stjórnar. ] ‘Félagið rak æfingastöð að Sjafnargötu 14, eins og undan- farin ár. Þangað komu 376 sjúklingar og fengu rúmlega ÍjýÓQp. æfingameðferðir. Þá rak félagið sumardvalarheim- ili fyrir 40 fötluð börn f Reykjádal í Mosfellssveit, í 21/? mánuð. Á árinu fóru rúm- ar 1.00.000,00 kr. til fjárfest- ingar í Reykjadal. Þar var byggð sundlaug og lokið smíði svefnskála. .Tekjur félagsins voru alls 2 milj. 174 þúsund kr. og var þeim varið til að greiða halla á rekstri æfinga- stöðvar og sjumardvalarheimil- is alls kr. 1 rmiljón 180 þús., en til eignaaukningar fóru 994 þúsund kr. Hrein eign fé- lagsins i lok reikningsárs 30 september s. 1. er rúmar 6 miljónir króna og eru þá 3 fasteignir fétagsins taldar á brunabótaverðl. í stjórn vdru endurkjörnir: Svavar Pálsson, endurskoð- andi, Andrés Þormar, aðal- gjaldkeri, Baldur Sveinsson. fulltrúi, og Friðfinnur Ólafsson. NÝJAR DODDA BÆKUR Fjórar nýjar Doddabækur eru komnar í bókaverzlanir. ^ GÆTTU ÞÍN DODDI *£ DODDI í GALDRABORG ^ DODDI OG BÍLSTJÓRINN & DODDI FER TIL SJÓS. Doddabækurnar eru bráðfallegar og skín- andi skemmtilegar með litmynd á hverri blaðsíðu. Eldri Doddabækur eru uppseldar hjá útgáfunni og vafalaust verða þessar nýju Doddabækur ekki síður vinsælar hjá börnunum. MYNDABOKAUTGÁFAN.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.