Þjóðviljinn - 20.12.1964, Síða 3
Sunmidagur 20. deeember 1064
MÖSVIUINN
SfÐA 3
Hvað er að gerast á sviðinu? Eitt andartak virðast börnin í niu ára bckkjum Austurbæjarskólans
hafa gleymt því, en það var ekki lengi. Innan stundar giumdi hláturinn aftur um salinn og gleðin
skein út úr hverju andliti.
Með Rauðhettu, úlfinum
og fleiru góíu fólki
Vissuð þið að amma hennar Rauðhettu ætti vinkonur? Hvað,
vissuð þið það ekki? Hér sjáið þið þær klæddar sínu fínasta pússi
á leið til hennar í litla húsið.
■ Bráðum koma blessuð þreyjufull bíða þau þess að
jólin er sungið fullum hálsi næsta atriði hefjist. Og þess
og af mikilli innlifun. — er ekki langt að bíða. Tjald-
Við erum stödd í kvik- ið er dregið frá og við er-
myndasal Austurbæjarskól- um stödd í „Ævintýraland-
ans þar sem 9 ára bekkir inu“. Litlu leikararnir
skólans halda „litlu jólin“. standa sig með mestu prýði,
Börnin eru prúðbúin og ó- en einstaka sinnum tapa
Hvar er sú með gullspöngina?
þau þó þræðinum þar til
hjálplegur meðleikari kem-
ur þeim aftur á rétt spor.
Áhorfendum sézt yfir slíka
smámuni og lifa sig inn í
það sem gerist á leiksvið-
inu.
1 hléi milli atriða bregðum
við okkur að tjaldabaki og þar
gebur að lita margar furðu-
legar persónur. Uppi á borði úti
í homi situr ógurlegur úlfur
og hvessir á okkur augun. Við
verðum að sjálfsögðu skelfingu
lostin og höldum að úlfurinn
ætli að rífa okkur í sig, en
sá ótti er ástæðulaus því hann
ætlar sér að gleypa ömmu
hennar Rauðhettu í næsta þætti
og tekur ekki einu sinni eftir
okkur fyrir umhugsuninni um
hve gamla konan verði ljúf-
fengur biti. Svo stendur líka
þarna vígalegur veiðimaður
með gljáfægða öxi og hefur
hann góð orð um að verja
okkur fyrir úlfinum ef hann
gerist of nærgöngull. Þama
eru Hauðhetta, mamma henn-
ar og amma og í kring um
ömmuna er heill hópur af
vinkonum. Satt að segja höfð-
um við ekki hugmynd um
að amma hennar Rauðhettu
væri svo vinmörg en litlu tát-
urnar, svolítið valtar á gömlu
háhæluðu skónum hennar
mömmu, í síðum kjólum með
ullarsjöl, fullyrða að amman
sé vlnkona þeirra. — Og hvað
getum við sagt, margt getur
. , og hér er Rauðhetta litla á milli mömmu sinnar, ömmu og
einnar vinkonunnar.
hafa skeð á þeim árum sem
liðin eru síðan við vorum 9
ára. En nú fer að drífa að
fleira fólk og búningsherberg-
ið rúmar ekki mjög marga,
við forðum okkur því • aftur
fram í salinn.
Og gleðin heldur áfram. —
Rauðhetta bjargast frá úlfin-
um og vinkonurnar fá sér
kaffisopa með.. ömmu hennar.
til þess að halda upp á þenn-
an gleðiatburð. — Svo kemur
fram á sviðið vasklegur hópur
ungra sveina, Lúðrasveit
drengja, og leikur nokkur lög
undir stjóm Páls P. Pálssonar.
— Drengir á bekknum fyrir
aftan okkur reyna að koma
auga á hann Edda, hann ku
leika á trommur og vera í
skólanum, þeir þekkja hann
mjög vel — og þessvegna verða
þeir að sjá hann Edda. En
drengirnir á bekknum fyrir
aftgn okkur eru alveg búnir
að gleyma honum Edda nokkru
síðar, þegar einn bekkurinn
leikur á blokkflautur undir
stjórn Sigursveins D. Krist-
inssonar. Því þá lenda þeir f
hörku rifrildi um hvort þau
spili falskt eða ekki, og sá
sem segir að þau spili falskt, ,
er alveg viss um aö hinn sem 1
Framhald á 13. síðu.
HIN NÝJA BÓK EINARS FREYS:
Skdldavillurnar
í Skdldatlma
•jj
Gagnrýni á þjóðleg og alþjóðleg menningarviðhorf Halldórs
Laxness, er hóflega dýr gjöf — 125 KRÓNUR.
BÓKIN ER SKRIFUÐ SEM SVAR GEGN ÞJÓÐFÉLAGSLEG-
UM OG SÁLFRÆÐILEGUM S JÓNARMIÐUM H. K. L.
Við sögu koma einnig Steinn Steinarr, Griniur Thomsen, Ezra Pound, Sher-
wood Anderson, Sergei Eisenstein, Upton Sinclair, J. M. Keynes, Marx, Freud,
Einstein, Gorki, Sartre og Arthur Miller.
Kaflar eins og Hugmyndafræði og Háskóli íslands, Mannkynssaga í línuriti.
Hagvöxtur heimsins, Styrkleikahlutföll í heimsstjórnmálum, Alþjóðleg hag-
fræði og alþjóðlegir hagfræðingar, Brútalismi í listum, Bókmenntir og lista-
stefnur, Morðinu á J. F. Kennedy fagnað af Keflavíkurhermönnum, Halldór
Laxness og þýzk heimspeki og fleiri kaflar er varða hin nýju viðhorf og nýj-
ar hugmyndir á sviði bókmennta og heimsmála.
BÖKAVERZLUN STEFANS STEFANSSONAR
Laugavegi 8. EPlSKA ÚTGÁFAN.
I