Þjóðviljinn - 18.05.1965, Side 12
,,Blikfaxi“ á Akureyrarflugrvelli 1 sólskinmu a sunnudagrinn.
Blikfaxi hóf áætlunarflug
innanlands á sunnudaginn
Þriðjudagur 18. mai 1965 — 30. árgangur — 110. tölublað.
MikiII hlutí spari-
skírteinanna seldur
Varð urnfír
dráttarvél
og beið bana
S. 1. föstudag beið Jóhann
Jónsson bóndi á Daðastöðum á
Reykjaströnd bana er dráttar-
vél sem hann ók hvolfdi niður
í vegarskurð.
Jóhann heitinn var að koma
frá Gili í Svartárdal ásamt
bóndanum þar og voru þeir á
leið að beitarhúsunum frá Gili.
Er þeir áttu skammt eftir þang-
að gekk bóndinn frá Gili til
þess að huga að fé en Jóhann
hélt áfram á dráttarvélinni
heim að beitarhúsunum en rétt
eftir að þeir skildu valt vélin
út af veginum niður í djúpan
skurð og varð Jóhann undir
henni og beið þegar bana. Jó-
hann lætur eftir sig konu og
fjögur uppkomin böm.
Gróðursetningar-
ferð FÍ í Heiðmörk
Fyrsta gróðursetningarferð
Ferðafélags íslands í Heiðmörk
á þessu vori verður farin í
kvöld og hin næsta á fimmtu-
dagskvöld. Bæði kvöldin verður
farið frá Austurvelli kl. 8. Far-
arstjóri er Jóhannes Kolbeins-
son. Fjölmennið.
Sala verfftryggðra spariskir-
teina ríkissjóðs hófst 13. þ. m.
Hefur hún gengiff mjög vel og
verið engu síðri en í nóvember
og desember s.I., þegar verð-
tryggð spariskírteini ríkissjóffs,
voru seld í fyrsta sinn. Mikill
hluti skírteinanna er þegar
seldur og er viðbúið að þau
seljist upp fijótlega,
Spariskírteinin eru í tveimur
stærðum 1.000 og 10.000 krónum.
Þau eru gefin út til handhafa,
en fást nafnskráð, ef þess er
óskað. Þau em lengst til 12 ára,
en frá 10 september 1968 er
eiganda í sjálfsvald sett, hve-
nær hann fær skírteinin inn-
leyst. Meðaltalsvextir fyrir all-
an lánstímann em 6% á ári, og
höfuðstóll tvöfaldazt á 12 ámm
með vöxtum, en auk þess greið-
ast verðbætur á höfuðstól, vexti
og vaxtavexti í hlutfalli við
hækkun byggingarvísitölu frá
útgáfudegi skírteinis til gjald-
daga þess. Skírteinin em skatt-
frjáls á sama hátt og sparifé.
Verður að telja skírteinin
mjög hagstætt spariform fyrir
allan almenning. Bæði vegna
verðtryggingarinnar, svo og að
þau em innleysanleg eftir þrjú
ár, en það var nýjung með til-
komu spariskírteina ríkissjóðs
síðast liðið ár.
Spariskírteinin verða til sölu
í viðskiptabönkum, bankaútibú-
um, stærri sparisjóðum og hjá
nokkram verðbréfasölum í R-
vík. Vakin er athygli á því, að
spariskírteinin era einnig seld í
afgreiðslu Seðlabankans, Ing-
ólfshvoli, Hafnarstræti 14. Á
það skal bent, að flestir bankar
og sparisjóðir taka að sér
geymslu verðbréfa fyrir vægt
gjald. (Frá Seðlabankanum).
■ „Blikfaxi", hin nýja Fokker-flugvél Flugfélags íslands,
hefur nú hafið áætlunarflug. Fór hún í fyrstu áætlunar-
ferðina til Akureyrar á sunnudagsmorguninn og til Vest-
mannaeyja hélt hún síðdegis þann sama dag.
Margt manna var á Akureyr-
arflugvelli, er „Blikfaxi“ lenti
þar klukkan rúmlega 10 að
morgni sunnudagsins, eftir 50
mínútna flug frá Reykjavík.
Nokkrir boðsgestir voru í þess-
ari fyrstu ferð, m.a. Magnús
Jónsson fjármálaráðherra og
stjórnarmenn Flugfélags íslands.
Þegar farþegar höfðu stigið út
úr „Blikfaxa“ fyrir norðan sté
Magnús E. Guðjónsson bæjar-
stjóri í ræðustól og bauð flug-
vél, áhöfn og gesti velkomna til
höfuðstaðar Norðurlands. Örn
O. Johnson. forstjóri Flugfélags
íslands, þakkaði með nokkrum
orðum hlýjar móttökur á Akur-
eyri og ítrekaði enn þau um-
mæli, sem hann viðhafði er nýja
flugvélin kom til landsins á
föstudaginn, að nauðsynlegt væri
að hluthafar stæðu vörð um fé-
lagið nú, er sótt væri að því af
aðilum sem næg fjárráð hefðu
og ósparir væru á gylliboðin. Ef
menn vilja eða þurfa af
fjárhagsástæðum að losa sig
við hlutabréf í Flugfélaginu,
sagði forstjórinn, eiga þeir að
IT ferðir í sumar á veguum
Fél. ísl. ferðaskrifstofa
Félag íslenzkra ferffaskrif-
stofa býffur í sumar upp á mjög
ódýrar einstaklingsferffir til
annarra landa. Ferðir þessar eru
15 talsins og er þeim öllum lýst
í litprentuffum bæklingi sem fé-
lagiff hefur gefiff út og hægt er
aff kaupa hjá Iata ferffaskrif-
stofum hér.
Ferðaskrifstofur þessar eru
Ferðaskrifst. Akureyri, Ferða-
skrifstofa ríkisins. Ferðaskrif-
stofa Zoega h.f., Ferðaskrifstof-
an Lönd og Leiðir, Ferðaskrif-
stofan Saga, Ferðaskrifstofan
Sunna og Útsýn.
Þær ferðir er ferðaskrifstof-
urnar bjóða eru svokallaðar IT
ferðir, en það eru skipulagðar
skemmtiferðir með áætlunar-
flugvélum á lækkuðum fargjöld-
um. Kóstnaður ferðarinnar er
allur greiddur fyrir ferðina. I
verðinu eru innifaldar flugferðir,
gisting, skemmtiferðir og önnur
þjónusta.
Skemmtiferðir þessar ná til
flestra landa Vestur-Evrópu.
Sem dæmi um verð einnar
slíkrar ferðar má nefna 7 daga
ferð til Skotlands, þar sem inni-
falið eru flugferðir, gisting og
morgunverður, — kostar hún kr.
6.550.
Þessi nýja ferðatilhögun er
framkvæmd í samvinnu við
flugfélögin, en ferðirnar er að-
eins hægt að kaupa hjá ferða-
skrifstofunum. Forráðamenn
ferðaskrifstofanna gera sér von-
ir um að þessar ferðir með inni-
földum tilkostnaði nái miklum
vinsældum, þegar fólk fer að
kynnast því, hvað hér er um að
ræða og hve mikinn sparnað og
hagræði þessi tilhögun hefur í
för með sér.
m
erki gefin út
33. júní n,k. verða gefin út þrjú ný frímerki með myndum af
Surtsey og Surtseyjargosinu og er verðgildi merkjanna kr. 1,50,
kr. 2.00 og kr. 3,50. Sjást merkin á myndinni hér fyrir ofan. Pant-
anir á merkjum tii afgreiðslu á útgáfudegi þurfa að hafa borizt
Frimerkjasölunni í Reykjavík fyrir 2. júní n.k.
leita fyrst til félagsins eða
stjórnar þess. Gat hann þess í
þessu sambandi, að vemlegur á-
hugi væri meðal starfsfólks fé-
lagsins að eignast hluti í því og
ekkert væri eðlilegra en það
hefði forgangsrétt þegar eig-
endaskipti yrðu að hlutabréfun-
um.
Blikfaxa mjög
vel fagnað á
ísofirði í gœr
ísafirffi, 17/5. — Hin nýja
flugvél Flugfélags íslands, Blik-
faxi, lenti á flugvellinum hér
kl. 9 mínútur yfir 12 í dag. Var
flugvélin full af farþegum, m.a.
voru með henni flestir þing-
menn Vestfjarðakjördæmis og
stjórn Flugfélagsins. Margt
manna hafði safnazt saman til
að fagna komu vélarinnar, bæði
héðan frá ísafirði og einnig frá
Flateyri, Suðureyri, Þingeyri og
Bolungarvík.
Bjarni Guðbjörnsson forseti
bæjarstjórnar ísafjarðar bauð
flugvélina velkomna með ræðu
og fagnaði þeirri samgöngubót
sem að komu hennar væri en
framkvæmdastjóri Flugfélagsins
Örn Johnson þakkaði. Þá var
bæjarfulltrúum, blaðamönnum
og fulltrúum þeirra staða sem
áður voru nefndir boðið í hálf-
tíma flugferð með vélinni og
var flogið norður yfir Húnaflóa.
Leizt mönnum mjög vel á flug-
vélina. Blikfaxi hélt héðan aft-
ur um kl. 3 síðdegis. — H. Ó.
Ferð „út í bláinn,,
Hinar vinsælu ferðir „út í blá-
inn“ hefjast aftur í þessari viku.
Sú fyrsta verður farin á morg-
un, miðvikudag og er lagt af
stað frá Tjarnargötu 20 kl. 8.
Öllum er heimil þátttaka. Fjöl-
mennið. ÆFR — ÆFH.
Valur og KR
stigabæst
Síðasti leikur Reykjavíkur-
mótsins fór fram á Melavellinum
í gær milli Fram og KR. Lauk
þeirri viðureign 1:0 fyrir KR og
var markið skorað úr vítaspyrnu.
Valur og KR eru stigahæst og
jöfn að mótinu loknu og verða
að leika til úrslita síðar.
Nánar frá leiknum á morgun.
Togarinn Þorkei' Máni seidi
afla sinn í Grimsby í gær, 200
lestir fyrir 12.263 sterlingspund.
Tveir vörubílar í mjög hörðum órekstri
Um kl. 10,45 í gærmorgun varð mjög harður árekstur milli tveggja vömbifreiða á mótum Miklu-
brautar og Grensásvegar og urðu miklar skemmdir á báöum bílunum. Á myndinni sést hvernig
þeir voru útleiknir eftir áreksturinn. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
„Norðfirðingin fagnað í Neskaupstað:
Farsæl samvinna bæjar-
stjórnar og Flugsýnar
■ Norðfirðingi, hinni nýju flugvél Flugsýnar h.f., var
vel fagnað á Norðfirði í gær er vélin kom þangað í fyrsta
skipti. Bæjarstjórinn á Neskaupstað, Bjami Þórðarson,
flutti ræðu á flugvellinum og bauð vélina velkomna. Hann
fagnaði þeirri samvinnu sem tekizt hefur milli bæjarstjórn-
ar Neskaupstaðar og Flugsýnar um bættar samgöngur,
sem væri brýnasta hagsmunamál bæjarbúa allra.
Stjórn Flugsýnar h.f. bauð
fréttamönnum að fljúga með í
fyrstu ferð Norðfirðings, hinnar
nýju flugvélar félagsins til Norð-
fjarðar. Með í förinni var Ing-
ólfur Jónsson, flugmálaráðherra,
Lúðvík Jósefsson, fyrrverandi
ráðherra og stjórnarmenn Flug-
sýnar.
Flogið var í hinu bezta veðri
og komið til Norðfjarðar um kl.
3. Mannfjöldi hafði safnazt sam-
an á flugvellinum til að fagna
vélinni. Bjarni Þórffarson, bæj-
arstjóri í Neskaupstað, flutti
ræðu á flugvellinum og bauð
vélina velkomna. Bjarni minnti
á að Norðfirðingar hefðu átt við
mikla erfiðleika að stríða í sam-
göngumálum, eins og aðrar af-
skekktar og einangraðar byggð-
ir. Með gerð flugvallarins, sem
lokið var fyrir 3 árum, hefðu
þeir getað orðið aðnjótandi flúg-
samgangna til jafns við önnur
byggðarlög sem bezt eru sett í
þessum efnum. En Flugfélag ís-
lands hætti við að halda uppi á-
ætlunarferðum og ékki var ann-
að sýnt en flugvöllurinn mundi
standa ónotaður. En forráða-
menn bæjarins vildu ekki una
þessu og samvinna tókst við
Flugsýn um að taka upp ferðir
Framhald á 3. síðu.
Tvö ný frí-
merki í gœr
Póst- og símamálastjórnin
gaf í gær út tvö ný frímerki í
tilefni 100 ára afmælis alþjóða-
fjarskiptastofnunarinnar á þessu
ári. Sama myndin er á báðum
frímerkjunum, en verðgildi
þeirra er kr. 4,50 (grænt að lit)
og kr. 7,50 (blátt). Frímerkin
eru prentuð í Sviss.