Þjóðviljinn - 08.09.1965, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 8. september 1965 — ÞJÓÐVILJINN — SIÐA J
Kínverjar lýsa yfir algeriri Sovétstjórnin hvetur báða
samstöðu með Pakistönum til að slíðra sverðin strax
Kínastjórn segir innrás Indverja í Pakistan vera
augljósa ofbeldisárás; landvarnir Kína treystar
„Nýja Kína“
PEKING 7/9 — Kínverska stjórnin birti í dag yfirlýsingu
þar sem innrás Indverja í Pakistan er kölluð augljós
ofbeldisárás og lýst er yfir fullri samstöðu með Pakist-
önum.
— Vopnuð árás indversku
stjórnarinnar á Pakistan er ó-
svikin ofbeldisárás, segir í yfir-
lýsingu kinversku stjórnarinnar
Malínovskí boðs-
gestur Finna
HELSINKI 7/9 — Landvarna-
ráðherra Sovétríkjanna, Malin-
ovskí marskálkur, kom í dag til
Helsinki í einkaerindum. Hann
mun dveljast j viku í Finnlandi,
fara á veiðar og skoða sig um,
sem gestur finnska embættisfé-
laga síns, Penttj landvarnaráð-
herra.
StálverkfalSinu
forðað í USA
PITTSBURGH 6/9 — Banda-
ríska stáliðnaðarmannasamband-
ið samþykkti í' gær nýjan kjara-
samning og hefur þá verið forð-
að yfirvofandi hættu á verk-
falli í stáliðnaðinum.
sem fréttastofan
birti í dag.
Hún segir ennfremur að enn
hafi komið í ljós að Sameinuðu
þjóðirnar séu ekki nein óháð
samtök, heldur verkfæri fyrir
hina bandarísku heimsvalda-
stefnu.
Sovétríkin eru ekki nefnd a
nafn en ráða má af orðalaginu að
við þau er átt þar sem segir í
yrirlýsingunni að indverska
stjómin trúi því sennilega að
henni sé hvaðeina leyfilegt vegna
þess að hún njóti stuðnings
Bandaríkjanna og seinni tíma
endurskoðunarmanna.
Lýst er yfir fullri samstöðu
með Pakistönum og sagt að kín-
verska stjórnin hafi gert rað-
stafanir til að treysta varnir iín-
ar á indversku landamærunum.
Pakistönum er ekki heitið
neinum beinum stuðningi í yfir-
lýsingunni, en sagt er að árás
Indverja feli í sér mikla hættu
fyrir friðinn í þessum hluta As-
íu.
— Indverjar hafa alltaf komið
fram af flærð í Kasmír-málinu. j
— ásamt með Pakistönum — að
virða sjálfsákvörðunarrétt Kas-
mírbúa. En þeir hafa gengið i
berhögg við það loforð með þvi
að lýsa yfir að Kasmír sé óað-
skiljanlegur hluti Indlands. Ind-
verjar hafa beitt íbúa Kasmírs
ofbeldi og kúgun, segir kínverska
stjómin.
Segir að bæði Indverjar og Pakistanar geti reitt
sig á málamiðlun Sovétríkjanna ef þeir vilji það
MOSKVU 7/9 — Sovétstjórnin hefur eindregið hvatt bæði
Indverja og Pakistana til að leggja strax niður vopn og
hverfa með herlið sitt aftur til stöðva þeirra sem þau
höfðu við vopnahlésmörkin í Kasmír sem ákveðin voru
með samningnum 1949.
Frá þessu er sagt í langri yf-
irlvgingu sovétstjórnarinnar sem
Tass-fréttastofan birti í kvöld.
Málamiðlun tekst
ekki í Grikklandi
Kanellopoulos ófús að standa við
loforð sitt um nýjar kosningar
AÞENU 7/9 — Allar horfur eru nú taldar á að ekkert
verði úr þeirri málamiðlun sem til greina kom til lausn-
ar grísku stjórnarkreppunni, að mynduð yrði bráða-
birgðastjóm íhaldsflokksins ERE og kosningar síðan látn-
ar fara fram innan 45 daga.
Samkomulag á fundi Rapacki
og Per Hækkerups i Varsjá
VARSJÁ 6/9 — Þeir Per Hækk-
erup, utanríkisráðherra Dana, og
Adapn Kapacki, utanríkisráðherra
Póllands, urðu sammála um ýms
veigamikil atriði alþjóðamála á
fundum sínum í Varsjá um helg-
ina.
1 tilkynningu sem gefin var út
eftir viðræður þeirra segir að
þeir hafi rætt um hina endur-
skoðuðu Rapacki-áætlun um
kjarnavopnalaust svæði í Mið-
Evrópu og hafi orðið sammála
að gagnlegt væri að halda af-
vopnunarráðstefnu Evrópuþjóða,
ef horfur væru á jákvæðum nið-
Málað yfir /istaverk
Framhald af 1. síðu.
skólar væru notaðir sem gistihús
'vrir ferðamenn á sumrin. Hefði
formaður nefndarinnar, Aðal-
steinn Eiríksson, fjármálaeftirlits-
maður skóla, talið nauðsynlegt að
mála skólann í þágu ferðamanna
— og þá talið einfaldast og ódýr-
ast að mála yfir listaverkin (!)
vegna þess að þau voru eitthvað
farin að láta á sjá, í stað þess
að semja við listamanninn um
viðgerð, ef á þurfti að halda.
Höfundarréttur ekki vcrndaður
Benedikt Gunnarsson sneri sér
til lögfræðinga sem sérstaklega
hafa kynnt sér höfundarrétt. Sig-
urðar Reynis Péturssonar hæsta-
réttarlögmanns og Þórðar Eyj-
ólfssonar hæstaréttardómara, og
spurðist fyrir um rétt sinn i
þessu máli. Komust þeir að þeirri
niðurstöðu að höfundarréttur
listamanna væri öldungis ekki
vemdaður á þessu sviði, engin
ákvæði væri að finna til vemd-
ar listamönnum og verkum
beirra þegar svona stæði á. Sam-
kvæmt lögum er ekkert því til
fyrirstöðu að einhver athafna-
samur maður léti t.d. næst mála
yfir verk Kjarvals í Landsbank-
anum, eða að hin nýju listaverk
Gunnlaugs Schevings og Valtýs
Péturssonar f Kennaraskólanum
verði síðar hulin húsamálningu
f^rir tilstilli einhvers fjármála-
eftirlitsmanns.
Kanellopoulos, leiðtogi ERE,
hafði á ríkisráðsfundi í síðustu
viku látið þau orð falla að hann
Á sínum tíma lofuðu Indverjar | væri fús að mynda stjóm sem
færi með völd til bráðabirgða eða
þar til nýjar þingkosningar hefðu
farið fram á næstunni. Papand-
reou tók hann á orðinu og kvaðst
fyrir helgina fús til samninga um
slíka stjórnarmyndun ERE, en
sá flokkur hefur 99 menn á þingi.
Þeir Papandreou og Kanello-
poulos ræddust síðan við á sunnu-
daginn og sá síðarnefndi gaf
flokksstjórn sinni skýrslu um
viðræðurnar í gær. Á fundi
flokksstjórnarinnar kom á daginn
að mikill hluti þingmanna flokks
ins er því algerlega andvígur að
Kanellopoulos myndi stjórn með
þeim skilmálum sem hann hafði
lofað að gangast undir. Ihalds-
flokkurinn er eins og konung-
ur hræddur um að úrslit kosn-
inga sem haldnar yrðu nú myndu
færa Papandreou og vinstriöfl-
unum mikinn sigur. Sagt er að
meirihluti þingflokks ERE sé
sannfærður um að hann hafi
misst mikið fylgi og margir þing-
manna hans myndu missa bing-
sæti sín ef lagt yrði út í kosn-
ingar nú.
Eftir þessi endalok hefur enn
aukizt hættan á valdaráni hægri-
urstöðum. Þeir voru á einu. máli
um að ekki megi dragast að
stöðva kjamavígbúnaðinn.
Báðir lýstu áhyggjum sínum
vegna ástandsins í Vietnam og
þeir voru einnig sammála jm
rétt víetnömsku þjóðarinnar til
að ráða sjálf sínum málum.
Hækkerup sagði blaðamönnum
að viðræður hans við pólska
ráðamenn myndu stuðla að aukn-
um viðskiptum milli landanna.
Hann kom til Póllands frá
Tékkóslóvakíu, en fór þaðan i
dag til Júgóslavíu.
aflanna og konungs með aðstoð
hersins.
Sovétstjórnin segir að bæði
löndin geti reitt sig á að hún
sé fús til að miðla málum milli
þeirra, ef þau telji ástæðu til
þess.
— Enginn vafi er á því að
hernaðarátökin í Kasmír-héraði
eru hvorugum í hag, hvorki
Indlandi né Pakistan. Það sem
nú gerist býr aðeins í haginn
fyrir þá framandi aðila, sem
reyna að koma af stað misklíð
milli þj.óða sem losað hafa sig
við nýlenduokið, segir sovét-
stjórnin.
— Þessir sömu aðilar hafa oft-
ar en einu sinni áður reynt að
nota Kasmír-deiluna til að
spilla sambúð Indlands og Pak-
istans. Enginn vafi er á að þetr
reyna að æsa Indverja og Pak-
istana til að magna blóðbaðið,
sínum eigin hagsmunum til
framdráttar, en gegn hagsmun-
um þjóða Indlands og Pakist-
ans sem þurfa á friði að halda
til að leysa af hendi mörg erf-
ið verkefni.
Stríð Indverja og Pakistana
Framhald af 1. síðu. I Bretland, Tyrkland og Iran, en
verið stöðvuð við brú eina að- Bandaríkin hafa óbeina aðild að
Lágmarbskrafa
Augljóst er að hér er mjög
hættuleg gloppa í lögum, en
raunar réttlætir það á engan
hátt skemmdarverkið í Skóga-
skóla. Listskreyting í skólum er
almenningseign, á sama hátt og
t.d. verkin á Listasafni ríkisins,
og enginn embættismaður hefur
vald til þess upp á sitt eindæmi
að láta tortima þeim. Sé um það
að ræða að eyðileggja listaverk
— vegna þess að torvelt sé að
gera við að eða af einhverjum
öðrum ástæðum — er' það lág-
markskrafa að ákvörðun um það
sé tekin af dómbærum og ábyrg-
um aðilum eftir einhverjum föst-
um reglum. Er þess að vænta að
menntamálaráðuneytið geri þegar
ráðstafanir sem tryggja að slík
ir atburðir sem gerzt hafa í
Skógaskóla endurtaki sig ekki.
Kvikmynd
Framhald af 10. síðu.
ismynda og sagði skipaskoðunar-
stjóri að Þorgeiri bæri fyrst og
fremst að þakka upptöku og
klippingu myndarinnar. En fleir-
um bæri einnig að þakka. Gunn-
ar Hermannsson skipstjóri á ms.
Eldborg og áhöfn hans hefðu
gerzt kvikmyndaleikarar einn
dag. Sömuleiðis kæmu fram í
myndinni skipaeftirlitsmenn,
starlsmenn landhelgisgæzlunnar
og tveir sundmenn úr lögreglu-
liði Reykjavíkur. Hljóðupptöku á
tali myndarinnar annaðist tækni-
deild Ríkisútvarpsins, en kópier-
ing og hljóðsetning á filmuna
var gerð í Svíþjóð.
eins um ótta km frá landamær-
unum. Pakistanar höfðu sprengt
brúna. Áður höfðu Indverjar
talað um að brú þessi væri um
25 km frá landamærunum.
Annars staðar á víglínunni,
við Sulemanki, sitja Indverjar
fastir og er sá staður einnig um
8 km frá landamærunum. Eng-
ar fréttir eru sagðar í Nýju
Delhi af gangi stríðsins á syðsta
hluta vígstöðvanna.
Indverjar segja að þrjár flug-
vélar Pakistana hafi reynt að
ráðast á Srinagar, höfuðborg
Kasmírs, en þær hafi verið rekn-
ar á flótta. 1 annarri frétt er
sagt að þeim héfði tekizt að
eyðileggja indverska flugvél á
jörðu niðri.
Þrjór flugvélar Pakistana eru
-agðar hafa verið skotnar niður
begar þær réðust á flugvöllinn
Kalaikunda í nákrenni Calcutta.
Tvær herdeildir
Haft er eftir heimildarmönn-
um í Nýju Delhi að enn hafi
ekki nema tvær herdeildir tek-
ið þátt í viðureignunum, tæp-
lega ein pakistönsk og rúmlega
ein indversk. Á það er bent að
báðir aðilar hafi miklu meira
herlið undir vopnum. I ind-
verska hernum mun vera upp
undir miljón manna, en allmiklu
færri í þeim pakistanska, en
hann er mun betur vopnum bú-
inn.
Biðja CENTO um aðstoð.
Pakistanstjóm fór í dag fram
á það við CENTO-bandalagið að
það veitti henni aðstoð í bar-
áttu hennar gegn innrás Ind-
verja og brautargengi á alþjóða-
vettvangi. Aðildarríki bandalags-
ins sem vesturveldin kcmu upp
á sínum tíma eru auk Pakistans,
því.
Paki&tanstjórn hefur hins
vegar ekki leitað' aðstoðar hjá
hinu hernaðarbandalaglnu sem
hún er aðili að ásamt vestur-
veldunum, SEATO.
Ú Þant af stað.
tJ Þant, framkvæmdastjóri
SÞ, bjóst í dag til að fara lil
Pakistans og Indlands og átti
hann að leggja af stað seint i
kvöld. Hann fer í erindum ör-
yggisráðsins sem tvívegis hefur
einróma skorað á stríðsaðila að
setja niður deilur sínar með
friðsamlegum hætti. Hann fer
um London til Karachi og Nýju
Delhi. Undirtektir stjórna Ind-
lands og Pakistans undir áskor-
anir öryggisráðsins hafa ekki
verið slíkar að menn geri sér
miklar vonir um að hann geti
komið mikly til leiðar.
— Frekari útfærsla hemaðar-
átakanna milli Indlands og
Pakistans, tveggja stórvelda
Asíu, magnar enn þær viðsjár
í Asíu, sem stafa af hemaðará-
rás Bandaríkjanna gegn víet-
nömsku þjóðinni, segir í yfir-
lýsingu sovétstjómarinnar.
Eifurgas
Framhald af 1. síðu.
samræmdum hernaðaraðgerðum
Bandaríkjamanna og hersveita
Saigonstjórnarinnar á Batangan-
skaga, rétt fyrir norðan Quang
Ngai og skammt fyrir sunnan
Chu Lai, þar sem þeir töldu
sig hafa unnið mikinn sigiir á
skæruliðum í fyrri viku.
Fyrst voru gerðar miklar loft-
árásir á skagann með öflugum
sprengjum. I birtingu lokuðu
svo bandarískir og Saigonher-
menn öllum undankcmuleiðum á
landi frá skaganum og síðan
voru landgönguliðar settir á
land. Þrátt fyrir þennan mikla
undirbúning eru flestir skæru-
liða sagðir hafa komizt undan
í tæka tíð.
Harðar loftárásir
Enn er haldið áfram loftárás-
unum á Norður-Víetnam og
virðist sem þær hafi verið hert-
ar. Á síðasta sólarhring er sagt
að bandarískar flugvélar hafi
farið meira en 100 árásarferðir
á skotmörk í Norður-Vietnam.
Pravda“ varar.
viS svSineahatri
í Sovétríkjunum
MOSKVU 6/9 — „Pravda“, mál-
gagn Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna, hvatti í gær sovézka
borgara til að vera á verði gegn
gyðingahatrinu.
Blaðið segir að „heimsvalda-
sinnar" reyni að blása að glæð-
um ágreinings milli kynþátta í
Sovétríkjunum, en segir að all-
ar slíka- tilraunir muni mistak-
ast. Engu að síður beri öllum
sovézkum borgurum að vera vel
á verði gegn hvers konar kyn-
þáttafordómum.
Bótagreiðslur almanna-
trygginga í Reykjavík
Útborgun ellilífeyris hefst að þessu sinni
miðvikudar^nn 8. september.
Afgreiðslan er opin mánudaga kl. 9,30—16,
þriðjudaga til föstudags kl. 9.30—15. Lok-
að á laugardögum mánuðina júní — sept-
ember.
TRY GGIN G ASTOFNUN
RÍKISINS.
Happadrætti Háskóla íslands
Á föstudag verður dregið í 9. flokki. —
2.300 vinningar að fjárhæð 4.120.000
krónur.
Á morgun eru seinustu forvöð að end-
urnýja.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS.
9. FLOKKUR:
2 á 200.000 kr.
2 á 100.000 kr.
52 á 10.000 kr.
180 á 5.000 kr.
2.060 á 1.000 kr.
AUKAVINNINGAR:
4 á 10.000 kr- 40.000 kr.
400.000 kr.
200.000 kr.
520.000 kr.
900.000 kr.
2.060.000 kr.
2.300
4.120.000 kr.
»