Þjóðviljinn - 08.09.1965, Blaðsíða 5
Vf'ÍSWSÍSSlÉS!
>:<]* ?MHÍp|-j1lMOr'' i* ftin
\
T
BCTfellBÍIaeuÍ g gapferrfei!* t96S ~ BJlteVXLJTNTJ — SlÐA
Stephen Kolbinson leikur á 241 ára gamla Stradivariusar-fiölu,
Seldi væna spildu af lan
eign sinni og keypti sér fiðlu
B Sumarhefti tímarits Íslenzk-kanadíska félagsins í
Winnipeg, The Icelandic Canadian, er nýkomið út og flyt-
ur margvíslegt efni. Þar er m.a. sagt frá bónda einum,
sem rekur ættir sínar til íslendinga, en hann hefur sér-
stakt yndi af fiðluleik og á fágætt safn dýrmætra
strengjahljóðfæra. Nokkur hluti greinarinnar um bónd-
ann og hljóðfærasafn hans fer hér á eftir í lauslegri
þýðingu.
Stradivariusar-fiðla, árgerð
1721, hefur bætzt í safn úr-
vals strengjahljóðfæra í Saska.
toon. "
Stephen Kolbinson,' sem um
margra ára skeið hefur verið
eftirlátur beirri ástríðu sinni
að eignast sjaldgæfar fiðlur,
hafði hinn fáséða grip með sér
frá New York til þess að hann
mætti njóta félagsskapar
tveggja fiðla, Amati-fiðlu og
Guarneri, sem voru fyrir í
eigu hans.
í Saskaton er líka önnur
Stradivariusar-fiðla í einka-
eign, svo og strengjahljóðfæra-
kvartett af Amati-gerð, en
þessi hljóðfæri hafði Kolbin-
son selt Saskatchewan-háskóla
fyrir nokkrum árum.
Einsdæmi má telja — eins-
konar met — að jafn mörg úr-<S>
valshljóðfæri skuli vera sam-
ankomin í borg á stærð við
Saskatoon, þar sem íbúar eru
um 113.000 talsins.
Murray Adaskin, prófessor,
forseti tónlistardeildar Sask-
atchewan-háskóla, sagði að
hann teldi að fiðlan sem áður
var getið • væri í hóp(i sex
beztu þeirra 500 Stradivarius-
ar-fiðla, sem vitað er að not-
aðar eru í heiminum.
Kolbinson sagði að það væri
vitað að Stradivarius hefði
smíðað alls um 1200 fiðlur,
hnéfiðlur og víólur, og enn
væru 500 þeirra notaðar.
Fiðlan hefur gengið undir
nafninu „Archinto", kennd við
greifann Giuseppe Archinto í
Mílanó sem eitt sinn átti hana,
og saga hennar hefur verið
rakin af virtu firma í Lundún-
um sem smíðar fiðlur og selur,
William E. Hill and Sons.
í byrjun 19. aldar var fiðla
þessi eitt af fjórum Stradivar-
iusar-hljóðfærum í eigu Arch-
into greifa. Að honum látnum
komust hljóðfærin í hendur
Passalaqua í Mílanó, en hann
seldi þau síðar J. B. Vuillaume
í París um 1860—1865.
Árið 1865 eignaðist fiðluleik-
ari í Manchester, W. Bauer-
heller, „Archinto“ af Vuill-
aume.
Þegar Bauerheller bauð fiðl-
una til sölu árið 1907, þá á
gamals aldri, komst hún í um-
ráð Hill & Sons, en firmað
seldi hana aftur áhugamanni,
sem átti hljóðfærið til 1924. Þá
hafnaði fiðlan aftur hjá verzl-
un Hill & Sons.
Fyrir skömmu keypti Kol-
binson svo hið dýrmæta hljóð-
færi fyrir milligöngu kaup-
manns eins í New York og
hafði það heim til sín.
Kolbinson er bóndi að at-
vinnu og hann segir að hann
hafi lengi verið haldinn þeirri
ástríðu að eignast fáeinar
beztu fiðlur heims.
Forráðamenn Hill & Sons
höfðu sagt honum að þeir
hefðu alltaf talið „Archinto"
eina traustustu Stradivariusar-
fiðlu sem til væri, hún væri
tvímælalaust verðugt hljóð-
færi hins mesta fiðluleikara.
„Ég ásetti mér að eignast
hana,“ segir Kolbinson og það
er glampi í augum hans. „Ég
varð að selja allmikinn hluta
af landareign minni til þess að
geta keypt fiðluna", segir hann
ennfremur, og virðist landið
hafa verið talið lítilsvirði í
samanburði við fegurð og tón-
gæði Stradivariusar-fiðlunnar.
Kolbinson gerir sannarlega
ekki mikið úr hæfileikum sín-
um sem fiðluleikara. Hann
segist hafa stundað fiðluleik í
frístundum sínum allt frá
barnæsku, en það var þó ekki
fyrr en hann fluttist búferlum
til Saskatoon árið 1950, að
hann gat fyrst sótt kennslu-
stundir í fiðluleik.
Síðan hefur hann eignazt
víólu og leikur á hana með
Sinfóníuhijómsveit Saskatoon,
en einnig hefur hann náð í
safn sitt Amati og Guarneri-
fiðlum, Cassavant-orgeli og
Steinway-píanói.
„Ég miða alltaf við það
bezta,“ segir hann.
Hann fæddist í Branton og
foreldrar hans af íslenzku
bergi brotnir, en bernskudag-
ar hans liðu nálægt Trantall-
on í Saskatchewan.
Þegar frístundir gáfust frá
sveitastörfunum, lék hann á
ýmis hljóðfæri, munnhörpu og
fiðlu.
Sk|b13>eItÍ — landgræásla — Þórsmerkurferðir
Alyktanir aðalfundár Skóg-
ræktarfélags íslands 1965
■ Þjóðviljinn hefur áð-
ur getið í fréttum aðalfund-
ar Skógræktarfélags ís-
lands 1965 og birt sam-
þykkt þá, sem fund-
urinn gerði að tillögu
Skógræktarfélags Austur-
lands um upphaf skipulegr-
ar skógræktar í búrekstri í
Fljótsdal. Til viðbótar sam-
þykkt þessari verða nú
birtar fleiri ályktanir fund-
arins:
Cm skógrækt á Vestf.jörðum
„Aðalfundur Skógræktarfé-
lags Islands fagnar góðum ár-
angri í ræktunarstarfi skóg-
ræktarfélaga á Vestfjörðum og
beinir því til Skógræktar rik-
isins, að athugaðir séu til hlít-
ar möguleikar á skógrækt þar
í stærri stíl m.a. friðun alls®*
skóglendis Brjánslækjar í
Vatnsfirði. Telur fundurinn,
með hliðsjón af vaxandi verk-
efnum, að nauðsynlegt sé að
skipaður verði skógarvörður
fyrir Vestfjarðaumdæmi".
llm landgræðslu
„Aðalfundur Skógræktarfé-
lags Islands fagnar setningu
nýrra laga um landgræðslu
og gróðurvernd og hvetur alla
landsmenn til virkrar sam-
stöðu til viðnáms þeirri eyð-
ingu lands, er enn á sér stað.
Telur fundurinn nauðsynlegt,
að lokið verði, svo fljótt sem
auðið er rannsókn á beitarþoii
lands í byggðum og afréttum,
en niðurstöður hennar hljóta
að verða sá grundvöllur, sem
Landgraaðsla ríkisins miðar
við, er ákvæði landgræðslulag-
anna um gróðurvernd koma til
framkvæmda“.
erm á ný áskorun sína til fjár-
veitingavaldsins að skjólbelta-
ræktun verði studd með ríf-
legum fjárframlögum.
Jafnframt styður fundurinn
eipdregið þingsályktunartillögu
þá, er samþykkt var á sama
alþingi, um ræktun ierkis til
að fullnægja innlendri' þörf
fyrir girðingarstaura, en tekur
hinsvegar að slík framleiðsla
sé eðlilegur hluti af sjálfsagðri
ræktun lerkiskóga hér á landí,
sem leggja beri sérstaka á-
herzlu á með tilliti til þess
ágæta árangurs, sem þegar er
fenginn i ræktun lerkis á Hall-
ormsstað og víðar".
Dm Þórsmerkurferðir
„Aðalffundur Skógræktarfé-
lags Islands beinir því til
stjómar félagsins, að hún vinni
að því, að fólki því, sem ár-
lega leggur leið sína til Þórs-
merkur um verzlunarmanna-
helgina, verði séð fyrir
skemmtanahaldi þar með þeim
hætti, að svipmót samkomu-
halds þar fái þann eðlikega
menningar- og velsæmisblæ,
sem tekizt hefur að skapa f
öðrum skóglendum landsins
um nefnda helgi.
Jafnframt skoraf fundurinn
á yfirvöld þau, er veita sér-
leyfi til fólksflutninga, að þess
sé gætt, að þeir aðiljar, sem
leyfi fá til fólksflutninga til
Þórsmerkur, fullnægi sjálf-
sögðum kröfum um öryggi og
útbúnað þeirra bifreiða, er
notaðar eru á torfærri leið til
Þórsmerkur, og að þeir sömu
aðiljar skipuleggi þá mann-
flutninga svo vel, að farþegar
geti komizt heimleiðis án ó-
hæfilegra tafa“.
Um skjólbelti —
og ræktun lerkis
„Aðalfúndur Skógræktarfé-
lags íslands lýsir ánægju
sinni yfir þingsályktun þeirri,
er samþykkt var á síðasta al-
þingi varðandi löggjöf um
kerfisbundna rækfcun skjól-
belta hér á landi og áréttar
Norrænir stórkaupmenn
halda mót í Reykjavík
í fyrramorgun liófst á Hótel um árið ’ 1962. Verðlagsáfevæði
Sögu ráðstefna norrænna stór- og opinbert verðlagseftirlit hafa
kaupmanna og lýkur henni á verið afnumin að mestu í hinum
morgun. Á ráðstefnnnni verfta Norðurlöndunum og mun Island
rædd ýms mál, sem varfta hags- vera eina norræna landið, sem
muni stórkaupmanna og við- býr við ströng verðlagsáfevæði.
komandi landa t.d. afstaða land- Þó mun þróunin vera sú hér á
anna til markaðsbandalagsins landi að sífellt er verið að gefa
og EFTA, þróun í vörudreifingu meira og meira af innflutnmgi
og síðast en ekki sízt verftlags- landsins frjálsan og mtm nú
eftirlit og verðlagsákvæfti. um 80% af öllum' innflutningi
landsmanna orðinn frjáls. Þetta
Þetta er fjórða ráðstefna nor- telja stórkaupmenn að gerf inn-
rænna stórkaupmanna og sú 1. flytjendum fært að hafa meira
sem haldin er hér á landi, en J56** .vöruvai og þar með
. , ,, , bætta pjomistu við neytendtrr.
Félag islenzkra storkaupmanna Ráðstefnunni lýkur sem fyrr
gerðist aðili að samtöfeum iþess- segir á morgun.
Fulbrígth t - stofnunin
býður námsstyrki
Náttúruskoðun og fornminja:
Náttúrufræðífélagið í fræðslu-
ferð um Hreppa og Þjórsárdal
Um helgina 27.—29. ágúst,
efndi Hið íslenzka náttúru-
fræðifclag til hinnar árlegu
þri.ggja daga fræðsluferðar
sinnar. Að þessu sinni var far-
ift um Hreppa og Þjórsárdal til
náttúruskoðunar og skoðunar
fornminja. Fararstjóri var
Eyþór Einarsson og leiðbein-
endur auk hans Guðmundur
Kjartansson jarðfræðingur og
Gísli Gestsson safnvörður.
Bækistöð leiðangursins var á
Hjálp í Þjórsárdal.
Á leiðinni austur var skoð-
að Þjórsárhraun og einkenni-
legir gervigígar, sem þar eru.
Fyrsta daginn voru einkum
skoðaðar jarðmyndanir í
Hreppum. Berglög, sem þar
sjást, s.n. Hrcppamyndun, er
séstakur þáttur í jarðfræðilegri
Nýtt sænskt met
★ Bo Forssander hefur sett
nýtt sænskt met í 110 m
grindahlaupi 13.8 sek. Hann
átti sjálfur eldra metið 13.9
sek.
byggingu íslands. Þar má og
víða sjá fom sjávarmörk frá
þeim tfma, er Suðurlandsund-
irlendið lá undir sjó. Við Búða-
foss í Þjórsá var skoðaður hluti
af Búðaröðinni, en það eru um
50 km langir jökulgarðar frá
ísaldarlokum. Þá voru skoðuð
verksummerki við Skáldabúða-
lón, stóra vatnsuppistöðu á £s-
öld, er varð til við það að
skriðjökull lokaði dalnum, þar
sem bærinn Skáldabúðir í
Gnúpverjahreppi stendur nú.
Loks voru skoðuð jarðlög við
suðurhluta Búrfells, Þjófafoss
í Þjórsá og gróður í Búrfells-
hólmum.
Annan daginn var farið um
Þjórsárdal. Fyrst að Reykholti
og skoðaðar fornar bæjarrúst-
ir og Reykholtshver (vatns-
hver) sunnan í Rauðukömbum.
Þá voru skoðaðir gervigígir í
yngsta - Tungnárhrauninu, er
runnið hefur gegnum Gjána og
breiðzt út um Þjórsárdal. En
það hraun er talið komið alla
leið úr gigaröð við Tungná,
þar sem Hófsvað er nú. Næst
voru skoðaðar fomminjar að
Stöng og jarðlög í Gjánni. Þá
var gengið að Háafossi og
Granna og gróður skoðaður og
jarðmyndanir. Síðan var farið
um virkjunarsvæðið við Þjórsá
og að Tröllkonuhlaupi að vest-
anverðu. Loks voru skoðaðar
rústir að Skeljastöðum, hinum
foma kirkjustað, líklega bæ
Hjalta Skeggjasonar.
Þriðja daginn voru skoðuð
jarðlög og gróður við Hjálpar-
foss og í fosshólmanum, en síð-
an ekið upp Hi-unamannahrepp
og skoðað landslag og jarð-
myndanir, m.a. við Galtafell,
Hnuna, Hörgsholt og í Hvítár-
gljúfri viö Brúárhlöð og Gull-
foss. Á leiöinni til Reykjavík-
ur vom skoðaðar jökulrákir
við Tungufljót, endi Búðarað-
arinnar, þar sem hún liggur
að Efstadalsfjalli, gróður við
Laugarvatn, móbergshellirinn á
Laugardalsvöllum og landsig á
Þingvöllum.
Þátttakendur vom 66 í þess-
ari fræðsluferð, þ.á.m. 10 fær-
eyskir kennaraskólanemendur.
Menntastofnun Bandaríkj-
anna hér á landi, Fulbright-
stofnunin, tilkynnir, að hún
muni veita náms- og ferða-
styrki íslendingum, sem þegar
hafa lokið háskólaprófi og
hyggja á frekara nám við
bandariska háskóla á skólaár-
inu 1966—1967.
Umsækjendur um styrki
þessa verða að vera íslenzkir
ríkisborgarar og hafa lokið há-
skólaprófi, annaðhvort hér á
landi eða annars staðar utan
Bandaríkjanna. Þeir, sem em
ekki eldri en 35 ára að aldri,
verða að öðru jöfnu látnir
ganga fyrir um styrkveitingar.
Nauðsynlegt er, að umsæfej-
endur hafi gott vald á esnskri
tungu.
Þeir, sem sjálfir kunna að
hafa aflað sér námsvistar við
bandarískan háskóla, geta sótt
um sérstaka ferðastyrki, sem
stofnunm mun auglýsa til um-
sóknar í aprílmánuði næsta ár.
Umsóknareyðublöð ern af-
hent á skrifstofu Menntastofn-
unarinnar, Kirkjutorgi 6, 3.
hæð, sem opin er frá 1—6 e.h.
alla virka daga nema laugar-
daga. Umsóknirnar skulu síðan
sendar í pósthólf Menntastofn-
unar Bandaríkjapna nr. 1059,
Reykjavik, fyrir 8. októbern.k.
Vinningari 5. fíokki
Happdrættis DAS
f fyrrad. var dregið í 5. fl.
Happdrættis D.A.S. um 200
vinninga og féllu vinningar
þannig;
íbúð eftir eigin vali kr.
500.000,00 kom á nr. 31046, um-
boð Aðalumboð.
Bifreið eftir eigin vali kr.
200.000,00 kom á nr. 5423, um-
boð Þingeyri.
Bifreið eftir eigin vali kr.
150.000,00 kom á nr. 59997,
umboð Sjóbúðin.
Bifreið eftir eigin vali kr.
130.000,00 kom á nr. 6781, um-
boð Hrísey.
Bifreið eftir eigin vali kr.
130.000,00 kom á nr. 44883,
umboð Aðalumboð.
Húsbúnaður eftir eigin vali
fyrir kr. 25.000,00 kom á nr.
45356, umboð Aðalumboð.
Húsbúnaður eftir eigin vali
fyrir kr. 20.000,00 kom á nr.
36216, umboð Seyðisfjörður og
52780, umboð Aðalumboð.
Húsbúnaður eftir eigin vali
fyrir kr. 15.000,00 kom á nr.
34797, og 52250, umboð Aðal-
umboð og 57350, umboð Borg-
arbúðin.
Eftirtalin númer hlutu hús-
búnað fyrir kr. 10.000,00 hvert
2568, 3813, 8674. 11414, 12326,
19628, 40248, 4(1298, 54031.
64114. (Birt án ábyrgðar.),