Þjóðviljinn - 08.09.1965, Síða 6
r
Miðvikudagur 8. eeptermber 1985
• Á sunnudagskvold hofðu rúmlega 500 manns skoðað mál-
verkasýningru Freymóðs Jóhannssonar i Listamannaskálanum og
8 málverk selzt, — þeirra á meðal málverkið af Dettifossi á
25.000,00 krónur. — Myndin hér að ofan er af einu verk-
anna á sýningunni og nefnist „Sumarkvöld í Borgarfirði"
Því heimska gikki hemja má
höfðingja í ranni.
Þó höfðingssaeti höndli, á
hann í þjóðar banni.
En höfðings sæti höndla má
hrokafullur glanni.
N.N.
En hánn sé glöggur húsin á
hef ég frétt með sanni.
En víst hefur mönnum flokk
hans frá
fénazt vel með sanni.
Torfi Olafsson.
Ef uppeldi hann á að fá
íhaldsins T ranni.
Eða Alþýðuflokksins auraþrá
ennþá betur sanni.
Viðsjáll.
Þetta mun hann sjálfur sjá
seinna í öðrum ranni.
B.
Við hlökkum til að heyra og
sjá,
hvort aukasporslur banni.
X.
Vísdóm tíl þess vantaT á
svo verði ei allt í gamni.
Kona í Austurbænum.
En margt í koti karls eg sá,
sem kóngs finnst ekki í ranni.
Jón.
Bezt er þó að bíða og sjá
bara svona að gamni.
P.B.
Eflaust má hann að sér gá
að fást við neitt í banni.
Ekki má hann eyru Ijá
öllu fjárans banni.
Sófus Berthelsen.
En aðeins vænta ills þó má
íhaldsins úr ranni.
E.
• Nýr fyrripartur
• Allmikill styrr stendur nú
um brunavarniT þeirra Garða-
hreppsbúa og notkun slökkvi-
Iiðsbíla Hafnarfjarðar. Af því
tilefni var þessi fyrripartur
ortur og eruð þið beðnir að
botna lesendur góðir:
Hver á að slökkva hverjum
hjá
og hvað á að láta brenna?
Jónas á afmæli í dag!
• í tilefni þess, að Jónas E. Svafár er fertugu: í dag birtum við hár kvæði haas GtiMVQG
ásamt mynd af skáldinu, sem Ragnar Lár hefu: teiknað. tta leið óekum víð honum auðwtoð
tii hamingju með daginn!
• GUÐAVEIG
andi minn glimdi við gatð
og það var gasalegt puð
en eftir dúk og disk
dró ég úr honum fh*
minnið hef ég misst
mælti drottinn sem var að pissa
hvernig höfum við hitzt
hvenær var það fyrst
mildð er ég hissa
ég strauk hendinni um hnakkann
og hneppti frá mér frakkann
það varð helvíti heitt
hjartað var farið úr skorðum
það hneig niður himínbrattann
og hikstaði framan f skrattann
þessum þrettán orðum
þyrstur af trega ég teyga
tæmi flöskur og fleyga
friðlausa guðaveiga
Botnar
• Fjölmargir botnar bárust við
fyrripartinn sem birtur var
hér á siðunni á laugardaginn,
og fara þeir hér á eftir.
Fyrriparturinn var á þessa
Iei'ð:
Engru skal eg um það spá
hvort Eggert verði að manni.
og botnamir:
Ög sfzt af öllu segja frá
svona í heimaranni.
En húsnæðinu er horfinn frá
heimarikur glanni.
© Útvarpið
miðvikudag
• I dag er útvarpað í sextán
og hálfan tíma samfleytt. Á
dagskránni eru „fastir liðir eins
og venjulega", dagurinn ein-
kennist af formfestu. Þó er
í kvölddagskránni að finna
nýja liði. Arnór Sigurjónsson
ritstjóri flytur erindi um
Orkneyjajarla, og Guðjón Guð-
jónsson les og þýðir smásög-
una „Laugardagsmanninn“ eft-
ir Douglas Railton.
Næst fyrir kvöldfréttir fáum
við fróðleik um ormaveiki í
sauðfé í þröngum högum og
eftir fréttir lýkur Lárus Hall-
dórsson lestri sögunnar um
klárinn „Greip“.
• Miðvikudagur 8. september.
13.00 Við vinnuna.
15.00 Miðdegisútvarp: Dr. Páll
ísólfsson leikur Fantasiu í
a-moll fyrir orgel eftir Jón
Nordal. Atriði úr fyrsta þættí
óperunnar Rósariddarinn eft-
ir Rich. Strauss, K. Böhm stj.
V. eiíburn og sinfóníuhljóm-
sveitin í Chicago leika Píanó-
konsert nr. 2 eftir Brahms.
K. Böhm stjómar.
16.30 Síðdegisútvarp: Laga-
syrpur. Meðal flytjenda:
Clebanoff og hljómsveit,
Zarzuelahljómsveitin, Alex-
androw kórinn, Ray Martin,
Sígaunahljómsveit B. Bakos
og Reg Owen og hljómsveit
hans o.fl.
18.30 Lög úr kvikmyndum.
20.00 Kolbeinn Tumason: Ólaf-
ur Haukur Árnason skóla-
stjóri flytur erindi.
20.15 Fingalshellir, forleikur
eftir Mendelssohn. Fílharmo-
níusveitin í Berlín leikur von
Karajan stjómar.
20.30 Um Orkneyjajarlaí tyera
erindi, Amór Sigurjónsson
flytur.
20.50 íslenzk ljóð og tög:
Kvæðin eftir Benedikt Þ.
Gröndal skáld.
21.05 „Laugardagsmaðurinn'S
smásaga eftir Douglas Rail-
ton. Guðjón Guðjónsson l«s
eigin þýðingu.
21.25 Segovia leikur íög eftir
Couperin, Weiss og Haydn.
21.40 Búnaöarþáttur: Guð-
mundur Gíslason talar utw
ormaveiki í sauðfé í þröng-
um högum.
22.10 Kvöldsagan: „Greipur“.
— Sögulok.
22.30 Lög unga fólksinsí Berg-
ur Guðnason kynnir.
23.20 Dagskrárlok.
nauðungarflutninga til Madag-
ascar. Heydrich gerði áætlanir
um nýtizku þrælavinnu, sem
hefði átt að gera það kleift ad
nytja þennan vinnukraft í £á-
mennum héruðum austurlanda,
eða þá að flytja Gyðinganna
til svo harðbýlla héraða, að
þeir hefðu smám saman dáið
þar út.
En jafnframt þessu trúði
Heydrich nokkrum undirmanna
sinna, svo sem fjöldamorðingj-
anum Globocnik, fyrir því að
íinna og reyna aðferðir til
fjöldamorða. Þetta hafði það í
för með sér, að komið var á
fót fyrstu útrýmingarfanga-
búðunum, Treblonka, en til-
gangurinn með stofnun þeirra
búða var sá einn að drepa.
„Útrýmingaraðferðin" — sem
í þá daga hefur verið með
frumstæðara móti — var í því
fólgin að útblástursrör frá bíl-
mótorum voru sett í samband
við slöngur, sem aftur lágu
inn i einangraða dauðaklefa.
Heydrich sendi Eichmann í
„náms£erðalag“ til Globocnic
til þess að kynna sér útrým-
ingaraðferðina og skipuleggja
aukin afköst.
Og svo komu hugsuðir naz-
ismans sér saman um megin-
aðferðirnar, sem nota skyldi.
Fjöldamorðin sem á eftir fóru,
í Auschwitz og annarsstaðar,
voru framin við fullkomnari
aðstæður og „endurbætt“ skjl-
yrði.
Þegar Hitler, Göring og aðr-
ir nazistabroddar höfðu dreg-
ið þá ályktun, að nauðungar-
flutningar væru ekki æskileg-
ir, gátu þeir Himmler og Hey-
drich strax komið fram í dags-
ljósið með tillögur sínar. Þrátt
fyrir það, að þessar morðað-
ferðir væru eins voðalegar og
raun bar vitni, var jarðveg-
urinn þegar undirbúinn og
allt var þetta þaulhugsað. Það
voðalegasta við þetta allt var
það, að það skyldi vera fylli-
lega framkvæmanlegt.
Og leiðtogar Þriðja ríkisins
féllust heilshugar á að fram-
kvæma morðin.
„Náttúruval".
Heydrich útskýrði nánar
hugmyndir sínar á ráðstefnu
þeirri, er haldin var um þessi
mál f Berlín við Grosser Wann-
see þann 20. jan. 1942. I ráð-
stefnunni tóku þátt aðeins út-
valdir, áreiðanlegir menn, sem
fengið höfðu sérstök verkefni
við „endanlega lausn Gyðinga-
vandamálsins". Umræðunum á
ráðstefnunni skyldi haldið al-
gjörlega leyndum, og það var
ekki fyrr en við réttarhöldin
í Númberg, sem fyrstu smá-
atriðin tóku að síast út.
Eins og vandi hans var,
forðaðist Heydrich allar fræði-
legar útskýringar og tók þegar
til við það svið, sem hann
þekkti bezt. Það var að hans
dómi nauðsynlegt að afgreiða
„gyðingavandamálið" í eitt
skipti fyrir öll. Margar stjórn-
arstofnanir, sem oft höfðu gef-
ið andstæðar fyrirskipanir,
höfðu áður farið með þessi
mál. Þeir dagar voru nú liðnir.
Án tillits til þjóðernislegra,
stjórnfræðilegra eða annarra
sjónarmiða, skyldi hin „endan-
lega lausn Gyðingavandamáls-
ins“ héðan f frá vera falin
þeim Himmler og Heydrich.
1 öðru lagi — brottflutning-
ur Gyðinga úr landi varð að
skoðast sem bráðabirgðalausn.
„Fyrst um sinn hefur SS-for-
inginn (þ.e. Himmler) vegna
yfirvofandi stríðshættu, en
einnig með tilliti til þeirra
möguleika, sem í ljós koma
austurfrá, bannað það, að
Gyðingar séu fluttir úr landi
. . . Þegar tekið verður til við
endanlega lausn Gyðinga-
vandamálsins í Evrópu, telja
menn brottflutning ca. 11 milj-
ón evrópskra Gyðinga mögu-
legan. Gyðingar verða látnir
vinna við vegargerð og fleira
austurfrá. Þeir múnu vinna
undir stjórn og í stórum hóp-
um, karlar skildir frá konum.
Mikill hluti mun án efa falla
í valinn samkvæmt náttúru-
vali.“
Utskýringar Heydrichs stóðu
ekki lengi, þær voru stuttar
og brotakenndar. Enda þótt
það væru svo sem engir engl-
ar, sem í kringum hann sátu,
setti kuldahroll að þeim öll-
um, en þeir gerðu sér ljóst,
hvað hver setning hafði í för
með sér. Þeir þekktu dugnað-
inn í Heydrich og vissu vel,
að hann gat annað margra
ráðherra vinnu. „Er hin end-
anlega lausn verður tekin í
not, verður leitað um alla Evr-
ópu, frá austri til vesturs með
logandi Ijósl. Þeir, er fluttir
hafa verið frá heimilum sín-
um, verða sendir í tímabund-
in Gyðingahverfi og síðan
fluttir lengra austur eftlr.“
Og þar austur frá?
Reinhard Heydrich (Icngst til hægri á myndinni) býður Herm-
rich Himmler velkoniinn í heimsókn j Hradzin-höllina í Prag.
„Foringinn hefur fyrirskipað
algjöra útrýmingu Gyðinga",
sagði Heydrieh við Eichmann,
áður en ráðstefnan hófst.
„Ausfcurfrá“ hópuðust Hkin
upp. Þau voru sett í sérstakar
graflr með innbyggðum ristar-
teinumj til þess að betur log-
aði og benzínið sparaðist. Þar
austurfrá voru gasklefar og
líkbrennslustofur. Þar var
Auschwitz.
Aðeins fyrsta skrefið.
Nokkrum mánuðum eftír
Berlínarráðstefnuna við Qroes-
er Wannsee, lauk lífi Heydr-
ichs. Maðurinn átti ekki eftir
‘ t