Þjóðviljinn - 16.11.1965, Page 3

Þjóðviljinn - 16.11.1965, Page 3
Þriðjudagur 16. nóvemfcer 1995 — MÖÐVTLJINN — Sf»A J ORYGGISRAÐIÐ FRESTAR FUNDINUM UM RÓDESÍU SALISBURY 15/11 — lan Smith forsætisráðherra í uppreisnarstjóm hvíta minnihlutans í Ródesíu skoraði í útvarpsræðu í kvöld á her og lögreglu að sýna stjórninni hollustu. Smith kom í útvarp. ið skömmu eftir að fyrstu merki um alvarlega óró meðal blökkumanna í Ródesíu höfðu komið í Ijós. Salisbury. Lögreglan skýrði frá því, að 300 lögregluþjónar hefðu ráðizt inní blökkumannahverfið High- fieild í Salisbury í dag, en þar hafði komið til óeirða, strætis- vagnar grýttir og kveikt í ein- um. Þá hefur talsmaður lögregl- unnar skýrt frá því, að farþega- og póstlest frá Salisbury til Bulawayio hafi verið grýtt um 160 km frá Salisbury, voru margar rúður í lestinni brotnar, en enginn farþegi meiddur. 1 útvarpsávarpi sínu lagði Smith áherziu á það, að ríkis- stjóm hans vseri eina löglega stjómin í landinu og bað Ród- esíumenn skella skollaeyrum við dylgjum um að • landið hefði önnur yfirvöld. Fyrr í dag haf' Smith tvis- var gengið á funa landstjórans og þykir víst að hann hafi reynt að fá hann til að flytja burt úr embættisbústaðnum. stjóri lýsti því yfir i gær, að hann væri starfsmaður drottn- ingarinnar og mundi halda starfi sínu áfram þar til Henn- ar hátign bæði hann að draga sig í hlé. Jafnframt lét hann þær von- ir í Ijós, að lögleg stjóm verði sett í landinu sem skjótast. Hann lagði áherzlu á það, að hann hefði vikið Ian Smith og öllum ráðherrum hans úr embætti og mundi hann hvorki viðurkenna uppreisnarstjórnina né hina nýju stjórnarskrá, sem var sett um leið og sjálfstæði landsins var lýst yfir. _ Öryggisráðið. Fundi öryggisráðsins um Ródesíu var frestað til morguns. Talið er að fundinum hafi verið frestað til þess að fulltrúunum gæfist tækifæri til að miðla málum, en tvær ályktunartil- lögur liggja fyrir ráðinu, önnur frá Bretum og þykir hún ganga skammt, hin er frá Asíu- og Afríkuríkjum og er þar enn ít- rekuð krafan xun að Bretar beiti vopnavaldi. í yfirlýsingu sem ríkisstjórn Sovétríkjanna gaf út í dag, seg- ir að hún muni aldrei viður- kenna stjóm Smith og muni Sovétstjórnin í einu og öllu fara eftir ákvörðun Öryggisráðsins og allsherjarþingsins. I gær sendi pekingstjómin frá sér yfirlýsingu og er stjóm Ian Smith þar fordæmd og jafn- framt er lögð áherzla á það, að gagnráðstafanir Breta séii vita tilgangslausar og einber hræsni, enda muni þær ekki skaða upp- reisnarstjórnina í Ródesíu. 1 dag er lagafrumvarp um heimild til brezku stjórnarinnar að beita öllum tiltækum ráð- stöfunum gegn uppreisnarmönn- um til umræðu í báðum deild- um brezka þingsins, og er mikil áherzla lögð á að hraða af- greiðslu málsins. Afríka. Leiðtogar fjögurra landa í Austur-Afríku hófu viðræður í Nairobi höfuðborg Kenya í dag. Þeir éru forseti Tanzaníu Julíus Nyere, forsætisráðherra Uganda, Milton Obote, varafor- seti Zambíu, Kamanga og ut- anríkisráðherra landsins Kapw- epwe og loks gestgjafinn, for- seti Kenya, Jomo Kenyatta. Þeir munu ræða hvaða afleið- ingar sjálfstæði Ródesíu hafi í löndum þeirra og sérstaklega hvemig hægt verði að aðstoða Zambíu. Viðskipti. Fréttamaður AFP átti í gær viðtal við eínn af helztu stuðn- ingsmönnum Smiths í Ródesíu, landeigandann Lilford. Hann- sagði m.a. að auðvitað byggjust Ródesiumenn við stuðn- ingi frá Suöur-Afríku og Portúgal. Viðskfpti eru sterkari en stjórnmál, sagði hann, og víð erum vissir um að viðskipta- banni verður aldrei framfylgt algjörlega. Landstjórinn. Sir Humphrey Gibbs land- Johnson í vafa WASHINGTON 15/11 — Emb- ættismenn í Bandaríkjunum skýrðu frá því í gær, að John- son forseti væri mjög beggja blands í hinu umdeilda máli um þátt einstakra Nato-landa í kjarnorkuvömum. 1 síðastliðinni viku ræddi for- setinn þessi mál gaumgæfilega við helztu ráðgjafa sína og nið- urstaðan varð sú, að forsetinn vill ekki ákveða neina eindregna bandaríska afstöðu í málinu að sinni. En innan skamms verður þetta mál mjög rætt á alþjóðavett vangi. í annarri viku desember kemur Ludwig Erhard forsætis- ráðherra til Bandarikjanna og 27. nóvember eiga varnarmála ráðherrar Natoríkja að ræða þetta mál á fundi í París. Bætt uð í Sovétríkjunum Bandarískir komm- únistar sýknaðir WASHINGTON 15/11 — Hæstiréttur Bandaríkj- anna komst að þeirri niðurstöðu í dag, að lög sem kveða svo á, að félagar í Kommúnistaflokki Banda- ríkjanna séu skyldugir til að láta skrá sig hjá yf- irvöldunum, brjóti í bága við stjórnarskrána. Úrskurður var kveðinn upp 1 máli tveggja manna, William Albertson og Roscoe Quiny Proct- or, en þeim var fyrirskipað fyrir tveim árum að láta skrá sig og voru fyrirmælin í samræmi við lög sem samþykkt voru 1950 um neðanjarðarstarf- semi. Eftir að bandarískur áfrýjunardómstóll hafði fall- izt á réttmæti laganna skutu þeir máli sínu til Hæstaréttar. Úrskurður réttarins mun hafa áhrif á um 40 svipuð mál, en það er ekki ljóst, hvort þessi úrskurður muni hafa þýðingu í málaferlum, sem nú eru rekin fyrir sambandsdómstóli í Wash- ington, þar sem Kommúnistaflokkur landsins er ákærður fyrir að hafa ekki látið skrá sig sem er- indreka Sovétríkjanna. nskur fiskifræðinpur flytur erindi m laxeldi MOSKVU 15/11 — Borgurum Sovétríkjanna er heitið -betra og fjölbreyttara klæðaúrvali á næsta ári, fleiri heimilistækjum og meiri neyzluvöru. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi fyrir 1966, sem er rætt í yfirlýsingu í Prövdu, málgagni Kommúnistaflokksins í dag. Ríkisstjórnin og miðstjóm Kommúnistaflokksins undirrita yfirlýsinguna í Prövdu. í greininni segir að meira verði framleitt af neyzluvam- ingi og talað um fjölbreyttari fataefni, ullarvöru, þvottavélar, sjónvarps- og útvarpstæki. 1 fjárlagafmmvarpinu er einn- Franska lögregian viðriðin mannrán Ben Barka. PARÍS 14/11 — Tveir háttsettir foringjar í eiturlyfjadeild frönsku lögreglunnar voru opin- berlega ákærðir í dag fyrir rán- ið á Ben Barka, hinum vinstri- sinnaða leiðtoga stjórnarand- stöðunnar í Marokko, sem var rænt um hábjartan dag á götu í Farís fyrir hálfum mánuði. Ákæran hefur vakið mikla at- hygli og þykir víst, að enn muni samband Marokko og Frakk- lands versna við þessa síðustu viðburði. Áður hefur oft verið látið að því liggja ag mannránig hafi verið framkvæmt að undirlagi innanríkisráðherra Marokkó;, Mohamed Oufkir og hefur franska lögreglan náfrænda hans og aðstoðarmann, E1 Mahi, í haldi svo og starfsmann Air France flugfélagsins. Antoine Lopez, og eru þeir báðir ákærð- ir fyrir hlutdeild í mannráninu. ig gert ráð fyrir mikilli aukn- ingu íbúðabygginga, skóla- og sjúkrahúsa og auknu fé verður varið til heilsugæzlu og annarra félagslegra þarfa. 1 greininni segir að aukin framleiðsla neyzluvöru standi í sambandi við nýjar aðferðir í stjórn iðnaðarins, sem m.a. nýti betur ágóðahvata en verið hafi. Bændur fá þau tíðindi, að meiri fjárfesting verði gerð í landbúnaðarvélum svo og kjöt- og mjólkurframleiðslu. Hinar nýju aðferðir í stjórn iðnfyrirtækja, sem Æðsta ráðið hefur ákveðið, leiða m.a. til þess að einstakar verksmiðjur og fyrirtæki hafa óbundnari hendur við framleiðslu sína og sölu hennar, segir í greininni. Fjárfesting mun einkum miða að því, að færa núverandi fyrir- 1 tæki í nýtízkuhorf og ljúka þeim byggingum sem eru í smíðum. Æðsta ráðið tekur fjárlaga- frumvarpið til meðferðar 7. des- ember. * I fréttaskeyti frá NTB segir að þessi tíðindi í Prövdu í morgun hafi gert Moskvubúum glatt í geði. er þeir fóru á fætur á kald- asta nóvembermorgni í ár. 1 Moskvu er 20 stiga frost. Um þessar mundir er staddur hér á landi sænski fiskifræð- ingurinn dr. Erik Montén, en hann er yfirmaður laxeldis- stöðva sænsku Paforkumála- stjórnarinnar. Dr. Montén er kominn til landsins að til- hluta landbúnaðarmálaráðu- neytisins til þess að kynna sér laxeldismál. Svíar eru mjög framarlega í laxeldf, og hafa byggt upp margar fullkomnar laxeldisstöðvar nú síðustu árin. Gönguseiðaframleiðslan er þegar orðin mjög mikil. Vorið 1965 slepptu þeir 1,5 miljón göngu- seiða í ár í Svíþjóð, Hefur nál. þriðjf hver lax, sem veiðist í Svíþjóð, hlotið uppeldi sitt í sænsku eldisstöðvunum. Dr. Montén hefur í starfi sínu tckið veigamikinn þátt í upp- byggingu laxeldismála í Svíþjóð. Er hann manna kunnugastur Iaxeldismálum. I kvöld kl. 8,30 mun hann flytja erfndi í 1. kennslustofu Háskólans um lax- Ahyggjur Breta af hsrnaðarútgjöldum Hafnir í þróunarlöndum GENF 15/11 — Fulltrúi Sovét- ríkjanna í kaupskipanefnd SÞ Goldobenko lýsti því yfir á fundi í Genf í dag, að Sovétrík- in byggðu kaupskipaflota sinn til þess að létta utanríkisverzl- unina við önnur lönd, en ekki til ag einoka alla flutninga á varningi til og frá Sovétríkjun- um. Hann lagði áherzlu á að styðja beri þróunarlöndin til að eign- ast sinn eigin kaupskipaflota, Og verði iðnþróuð ríki. að að- stoða þau við að gera margar hafnir j þróunarlöndum. LONDON 15/11 — Brezki for- sætisráðherrann Harold Wilson kallaði í gær saman helztu ráð- gjafa sína og æðstu yfirmenn brezka hersins til ráðstefnu um hernaðarútgjöld Bretlands og hernaðarskuldbindingar ríkisins. Ráðstefnan er lokaþáttur um- fangsmestu og gagngerðustu at- hugunar sem gerð hefur verið á hermálum frá stríðslokum. Ríkisstjórn Verkamannaflokks- ins hefur í heilt ár látið rann- saka hvað hægt sé að gera til að stöðva stöðuga útgjaldaaukn- ingu vegna varnarmála og jafn- framt ákveða hve her landsins eigi að vera stór í sniðum og hvaða stefnu hann eigi að til- einka sér í herlist. Ríkisstjórnin ' hefur skuld- bundið sig til að skera niður útgjöld til vamarmála. en þau nema nú 2.100 miljónum punda á ári, en sú upphæð er næstum tveir þriðju hlutar af fjárlög- um Breta. Bróðurparturinn af þeirri upp- hæð sem rennur til herstöðva Breta í öðrum löndum, 301 milj- ón pund í fyrra, fer í hersveit- irnar sem eru staðsettar aust- ur af, Súez. í Vestur-Þýzkalandi og við Miðjarðarhaf. Á ráðstefnunni var einnig rætt um fyrirhuguð kaup Breta á bandarísku sprengjuþotunni f- 111. en stjórnin hefur frest til 31, desember til að ákveða hvort hún muni kaupa þessa vél, sem á að koma í staðinn fyrir áætlanir um brezka sprengjuþotu, sem hætt var við vegna kostnaðar. eldi í Svíþjóð, og ennfremur mun hann sýna kvikmynd frá sænskum eldisstöðvum. Kvik- myndin heitir: „Laxens barn- kammare", og hefur hún hlotið viðurkenningu sem ágæt f ræðslu- mynd. Mun dr. Montén tala á sænsku. Erindið er fyrir al- menning. Guðmundur vann Gunnar Á sunnudaginn var tefld önn- ur umferð í úrslitakeppni Haust- móts Taflfélags Reykjavíkur. Guðmundur Sigurjónsson vann Gunnar Gunnarsson, en Jón Kristinsson og Björgrvin Víg- iundsson gerðu jafntefli. Þriðja umferð var tefld í gærkvöld og áttust þá við Jón og Guðmund- ur, Gunnar og Björgvin. Furðufyrirbæri eða bara þota Skömmu fyrir kl. 7 í gær- morgun sáust einkennileg ljós á lofti hér í Reykjavík og víðar í nágrenninu og var skýrt frá þessu fyrirbrigði í fréttum út- varpsins í gær. Ekki mun liggja fyrir nein óyggjandi vissa um það hvaða fyrirbæri hefur þarna verið á ferðinni, gizkuðu sumir á að þetta hefði verið vígahnött- ur eða hnettir, en aðrir hallast helzt að því að þetta hafi verið þota. Síldveiðiu um helgina 84 þúsuud mái Framhald af 12. síðu. I Oddgeir ÞH 1050 Sunnutindur SU, m. og t. 1100 Lómur KE 1200 Bjarmi II EA 1300 Náttfari ÞH 1000 Fróðaklettur GK 1550 Vigri GK 1200 Vonin KE 1100 Faxi GK 1300 Helgi Flóventsson ÞH 1300 Akraborg EA 1500 Snæfell EA 1600 Dagfari ÞH 1500 Höfrungur III AK 1450' Ól. Magnússon EA 1200 Grótta RE 1300 Jörundur III RE 1500 Guðrún GK 1150 Arnar RE 1250 Þórður Jónasson EA 1500 Halkion VE 150(1 Helga RE 1300 Sunnudagur Fákur GK 1000 Gullfaxi NK 1200 Ásþór RE 1100 Hannes Hafstein EA 1200 Sigurborg SI 1150 Viðey RE 1100 Ingiber Ólafsson II GK 1300 Sigurpáll GK (tn.) 1500 Ól. Friðbertsson ÍS 1100 Lómur KE 1300 SKIPAUTGCRÐ KIKISINS E S J A fer vestur um land í hringferð 18. þ.m. Vörumóttaka í dag til Patreksf j arðar, Sveinseyrar, Bíldudals,, Þingeyrar Flateyrar, Suðureyrar, Isafjarðar, Siglufj., Akureyrar, Húsavíkur. Raufar- hafnar og Þórshafnar, Farseðlar seldir á miðvikudag.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.