Þjóðviljinn - 16.11.1965, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 16. nóvember 1065.
Otgeíandi: Sameíningarílolcfcur alþýðu — Sósiallstafloick-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Siguröur Guðmundsson.
Ritstjóri Simnudags: Jón Bjarnason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust 18.
Síml 17-500 (5 llnur). Askriftarverð kr. 90.00 á mánuði.
Hvað gerist?
gmbættisveitingin í Hafnarfirði hefur vakið víð-
tækari mótmæli en annað hliðstætt ranglæti
um langt skeið, ekki aðeins í orði heldur og í
verki. Allt starfsfólkið á skrifstofu bæjarfógeta-
embættisins hefur sagt upp störfum, að einum
undanskildum. Allir hreppstjórar í Gullbringu-
sýslu hafa mótmælt veitingúnni og meirihluti
þeirra sagt af sér. Fólki ber saman um það án
tillits til stjómmálaágreinings að hér hafi verið
framið blygðunarlaust ranglæti. Hina vesælu
málsvörn stjómarvaldanna má marka af því, að í
fyrradag sá Morgunblaðið ekki önnur úrræði en
að tvíprenta læknisfræðilegar fúkyrðaklausur eft-
ir Pál V. G. Kolka.
gn hvað svo meira? Á baráttan fyrir réttlæti í
embættaveitingum að bitna á þeim einum sem
heyja hana; á árangurinn að verða sá einn að
starfsfólkið við sýslumannsembættið verði að leita
sér annarra starfa og að suðumesjamenn missi
góða hreppstjóra? Ekki er að undra þót't menn
beri upp vonleysisspurningar af slíku tagi. Fyrir
skömmu fréttist um annað hneykslismál sem- einn_
ig var tengt sýslumannsembættinu í Hafnarfirði.
í Ijós kom að ríkisstjórnin hafði keypt íbúðarhús
Guðmundar í. Guðmundssonar fyrrverandi utan-
ríkisráðherra í frássi við ákvæði laga, með vilhöllu
mati og á tvöföldu verði. Þessum óheiðarlegu við-
skiptum var hvarvetna mótmælt og málsvömin
varð engin; meira að segja fjármálaráðherrann
lýsti yfir í útvarpinu óánægju með sínar eigin
gerðir. En þrátt fyrir hina augljósu málavex'ti og
hin víðtækustu mótmæli stendur ranglætið engu
að síður óhaggað.
J£n það hafa einnig gerzt aðrir atburðir á ís-
landi. í sumar ætlaði ríkisstjórnin að skipa
högum síldveiðisjómanna og útvegsmanna með
bráðabirgðalögum. Viðbrögðin urðu skjót og ein-
dregin, flotinn hélt allur til hafna og sjómenn
kváðust ekki hreyfa sig fyrr en rangsleitninní
hefði verið hnekkt. Og þá gerðust þau tíðindi á
svipstundu að ríkisstjórnin gafst upp skilyrðis-
laust og skipaði málum að vilja sjómanna. Á
hliðstæðan hátt er unnt að tryggja leiðréttingu
á Hafnarfjarðarhneykslinu, ef menn finna leiðir
til þess að sanna stjórnarvöldunum í verki að þeim
sé full alvara, ef valdhafarnir komast að þeirri
niðurstöðu að rangsleitnin verði of kostnaðarsöm.
Réttsýnir menn þurfa að leggjast á eitt til þess
að finna þær leiðir, ekki aðeins vegna þess- máls
sem nú er í brennidepli heldur og vegna framtíð-
arinnar. Komi stjórnarvöldin sínu fram mun spill-
ingin í embættaveitingum enn halda áfram að
magnast eins og hún hefur gert að undanförnu
og sýkja þjóðlífið út frá sér. En takist að hnekkja
ósómanum munu stjórnarherrarnir hugsa sig um
áður en þeir ganga í berhögg við réttlætiskennd
almennings í næsta skipti. — m.
Myndir frá Reykjavík 1789 eru til
sýnis í Minjasafni Reykjavíkur
Árbæjar kirkja.
Minjasafn Rcykjavíkur vcrð-
ur með ári hverju vinsælli og
umfangsmelri stofnun í lífi
borgarfnnar, eins og glöggt
kemur fram á efiirfarandi
fréttum af starfsemi safnsins.
Um miðjan, september sl. var
Árbæjarsafni lokað og verður
svo sem venjulega yfir vetrar-
mánuðina. Sumargestir urðu
um 19.200 talsins. Á starfsliði
safnsins hefur orðið sú breyt-
ing, að Skúli Helgason hefur
látið af umsjónarmannsstarfi
en við tekið Ingvar Axelsson.
Tilkynningar um hópferðir í
safnið eða um notkun kirkj-
unnar vegna brúðkaupa eða
annarra kirkjulegra athafna
má tilkynna beint til umsjón-
armanns í síma 60094. Á árinu
tók sérstök stjómamefnd við
yfirstjórn safnsins, en hana
skipa: Hafliði Jónsson garð-
yrkjustjóri, formaður, Sigurjón
Sveinsson byggingarfulltrúi og
Hörður Ágústsson listmálari.
Framkvæmdastjóri safnsins er
sem áður Lárus Sigurbjörns-
son skjala- og minjavörður
borgarinnar.
.*>
Minjasafn borgarinnar er að
Skúlatúni 2 og opið daglega kl.
2—4 nema mánudaga. Þar hef-
ur nú tekið við daglegri vörzlu
Þórvaldur Ólafsson. Safninu
bætast einatt nýir munir og
em þrengsli f hinum litla sýn-
ingarsal orðin mjög til baga.
Við betri aðstæður mætti þó
fá þar á skammri stund góða
svipmynd af mörgum þáttum
úr sögu borgarinnar af Ijós-
myndum, málverkum, líkönum
og munum úr eigu margra
mætra Reykvíkinga fyrr og
síðar. Hér skal aðeins getið
fárra' einna nýlegra gjafa til
safnsins svo sem silfurbúins
göngustafs Einars Markússonar,
ríkisbókara, gefinn af. Maríu
Markan, óperusöngkonu, dótt-<
ur hans í 100 ára minningu,
silfurbikara og heiðursskjala
Guðbjarts Ólafssonar, hafnsögu-
manns, gefið af Einari syni
hans, þakklætis og heiðursgjafa
frá nemendum til Axels Andr-
éssonar knattspyrnukennara,
þ.á.m. þrennar silfurdósir, af-
hent af systur Axels frú Guð-
rúnu Komerup-Hansen. Þá má
geta þess, að hinn nýlátni
safnari Andrés Johnson í Hafn-
arfirði hafði lagt grundvöll að
merkja- og myntsafni, sem nú
hefur verið komið fyrir, og
dregur ávallt að sér athygli
yngri safngesta, þar í einka-
bréfmerki, jólamerki og síld-
armerki, en Jón Pálsson tóm-
stundakennari gaf stofninn að
ísl. myntsafninu. 1 þessu sam-
bandi er þess líka að geta, að
lokið er uppsetningu og skrá-
setningu verðlaunagripa og í-
þróttapeninga Magnúsar Guð-
bjömssonar hlaupara, afhent af
syni hans Björgvin skólastjóra
að Jaðri. I einum sýningar-
skáp 145 peningar, en alils um
400 munir nú skrásettir, ánafn-
aðir Minjasafni og Árbæjar-
safni af hinum látna. Verðmæt-
ust muna, sem safninu hafa
áskotnazt í seinni tíð, verða
talin tvö málverk eftir Nicolas
Pocoock, hinn fræga enska sjó-
myndamálara, keypt í London,
og sýna Reykjavík 1789. Mynd-
irnar eru málaðar eftir frum-
teikningum frá Stanley-leið-
angrinum það ár. Þetta eru
elztu myndir af Reykjavíkur-
bæ ef frá eru taldar vatns-
litamyndir Sæmundar Hólms
1781 og einu heimildir sjón-
arvotts um útlit Hólavallar-
skóla og kirkjunnar við Aðai-
stræti. Eftirmyndir af mynd-
um Sæmundar, sem varðveitt-
ar eru í Landsbókasafni, hef-
ur Aage Nielsen-Edwin mynd-
höggvari gert ^vrir safnið á-
samt yfirlitsmynd yfir bæinn
1801.
Eins og frá hefur verið skýrt
fannst eldstó í húsinu Aust-
urstræti 22 við breytirigu á
verzluninni Herrabúðinni. Þor-
grímur Tómasson verzlunar-
stjóri Herrabúðarinnar gerði
minjaverði aðvart um fundinn
og í samráði við dr. Kristján
Eldjárn þjóðminjávörð var af-
ráðið að Mínjasafn borgarinnar
tæki mannvirki þetta í um-
sjón sína, þannig að það fengi
að standa óhreyft í. húsinu.
Viðgerð á eldstónni annaðist
Hans Blomsterberg múrara-
meistari, en þar hefur verið
komið fyrir gömlum eldfærum,
katli, þrífót og pottur hangir
Framhald á ' 9. síðu.-
u
Ll>
<
£
‘O
<
z
z
Ui
FELAGSMENN
í
1. þurfa engin fólagsgjöld eða
innritunargjald aö greiöa.
2. fá allar AB-bækur minnst 20^0
ódýrari en utanfélagsmenn.
3. fá Félagsbréf AB ókeypis.
4. þeir, sem kaupa einhverjarsex
AB-bækur eða fleiri á árinu, fá
sérstaka bók í gjöf frá félaginu.
Þessar gjafabækur AB eru
ekki til sölu og fást aðeins á
þennan hátt.
5. Félagsmenn geta valið úr öllum
bókum AB gömlum jafnt sem
nýjum, og mega kaupa jafn
mörg eintök af hverri bók og
þeir vilja.
Ef þér eruð ekki í Almenna bókafélaginu, ættuð þér að gerast félagsmaður strax^ í dag,
mm • mm • mm • wmm • wmm • mm • wmw • mm • mwm • ■■ * o* * ■■ • di •
Ég undirritaður óska hér með að gerast félagi í Almenna bókafélaginu. klippl^ hér
Nafn_____________________________________________________________
Heimiiisfang-----------------------------------------------------
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ Austurstræti 18 Símar 19707 - 16997