Þjóðviljinn - 21.01.1966, Side 10

Þjóðviljinn - 21.01.1966, Side 10
■ 111 Svo nukill fjöldi cr n,ú í Söngsveitinni Fílharmóníu aö ómögu legt reyndist að ná öllum saman á mynd á æfingunni í Mela- skólanum sl. miðvikudag. Hér sér á bakið á Dr. Róbert Abraham við stjóm kórsins og hluti söngfólksins. (Ljósm. A. K.). | Fjölmennqsti kór sem hér hefur sungiú | Keppzt irið eð æfa j / 9. sinféniu Beethovens i ! 1 næsta mánuði verður flutt hér á landi í fyrsta sinn það verk Beethovens, sem margir telja mesta meistaraverk, sem mannlegt hugvit hefur skap- að, fyrr og síðar, níunda sin- fónia tónskáldsins. Verður flutt af Sinfóníuhljómsveit Islands og Söngsveitinni Fil- harmóníu undir stjóm Dr. Róberts Abrahams Ottósson- ar. Einsöngvarar verða þau Svala Nielsen, Sigurveig Hjaltested, Guðmundur Jóns- son og Sigurður Björnsson. Sem vænta má er æft af kappi þessa dagana undir hljómleikana og fékk Þjóð- viljinn leyfi stjómandans til að hlusta á eina æfingu hjá kómum og taka myndir af söngfólikinu. Óhætt mun að fullyrða, að aldrei áður hafa jafnmargir söngvarar tekið þátt í flutningi verks hér- l.endis, en þeir verða nú rúm- lega 130 manns. Æfingar hófust þegar í október og voru þá raddæf- ingar einu sinni i viku, en æfingum fjölgar því nær sem dregur hljómleilounum og eru nú tvær samæfingar allra radda vikulega. Æft er í sam- komusal Melaskólans og und- irleikari er Halldór Haralds- son, sem tók við af Atla Heimi Sveinssyni er lék und- ir til skamms tíma, en er far- inn til útlanda. ... Formaður Söngsveitarinnar Fílharmoníu er Jakob Möller og sagði hann í viðtali við blaðið, að kórinn væri þannig til orðinn, að upphaflega hefði verið stofnað félag nokkurra áhugamanna og framómanna í tónlistarlífi borgarinnar með Ragnar Jónsson í fararbroddi. Hét fé- ' íagið Fílharmoníufélagið og Föstudagur 21. janúar 1966 — árgangur 16. tölublað. Hér sést hluti kórsins á æfingu, sópran og bassi. Dr. Róbcrt A. Ottósson hafði að markmiði að koma á fót kór, sem tékið gæti að sér flutning mikilla kórverka. Uppúr þessu félagi varð svo til Söngsveitin Fílharmonía, sem hefur nú starfað í fimm ár. Fyrsta verkefni söngsveitar- innar var Carmina Burana eftir Karl Orff, sem hún flutti ásamt Þjóðleikhúskóm- um með Sinfóníuhljómsveit- inni. Síðan hefur Söngsveitin Fíl’harmonía haft eina hljóm- leika á ári með Sinfóníu- hljómsveitinni og flutt Þýzka sálumessu eftir Brahms, Messías eftir Hándel, Reqiem Mozarts og á síðustu tónleik- um Magnificat Bachs og Sálmasinfóníu eftir Stravin- sky. Þá hefur kórinn einnig sungið með hljómsveitinni Polovétsadansa úr óperunni Framhald á 6. síðu. Ráðstefna haídin um umferðaróryggi Karlakér Reykjavlkur fjörutíu ára • Karlakór Reykjavíkur á fjörutíu ára afmæli um þessar mundir, en hann var stofnaður 3. janú- ar 1926, og hefur kórinn í hyggju að minnast þess- ara tímamóta með hófi að Hótel Borg og útgáfu myndskreyttrar minningabókar um kórinn og starf- semi hans frá upphafi. Sem kunnugt er var Karlakór I leykjavíkur stofnaður að til- ítuðlan Sigurðar Þórðarsonar ónskálds, sem var söngstjóri córsins frá upphafi og nær óslit- ð í 36 ár. Sigurður var forystu- \ naður um flest sem kórinn tók; ör fyrir ’hendur og undir hans eiðsögn hefur kórinn ferðazt um jrjár heimsálfur og haldið tals- /ert á annað hundrað hljóm- eika i sautján löndum. Inn á hljómplötur hefur kór- inn sungið um 100 lög og hljóm- leikar innanlands eru orðnir mörg hundruð. Árlega eru haldnir margir konsertar fyrir styrktarmeðlimi, sem eru um 1600, þ.e. 3200 fastir áheyrendur og segir stjóm kórsins, að hann eigi þessum hópi mikið að þafeka. Verður minningabókin í tilefni fertugsafmælis kórsins og sjötugsafmælis Siguröar Þórðar- sonar á sl. ári tileinkuð styrkt- arfélögum og velunnurum kórs- ins. Bókin verður gefin út í þús- und tölusettum eintökum og .verður á annað hundrað síður að stærð, að mestu myndir úr sögu lcórsins, prentuð á vandað- an myndapappír og kápuforsíðan í fjórum litum. Utanlandsferð Karlakór Reykjavfkur hefur að undanförnu unnið að undir- búningi að utanlandsferð með skipi, en ferðir sem hann hefur staðið fyrir hafa orðið mjög vinsælar. Er nú í ráði að leigja til fararinnar útlent skip, sem tekur á 5. hundrað farþega og verður förin gerð í septcmber n. k. ef næg þátttaka fæst. Er í ráði- að sigla til Miðjarðarhafs- ins og heimsækja löndin fyrir botni þess, svo sem Egyptaland og Israel, einnig Grikkland, og jafnvel að sigla upp f Svarta- hafið til Vama í Búlgaríu. Á heimleið verður svo komið við á Italíu. Laugardaginn 29. janúar n.k. heldur kórinn upp á fertugsaf- mælið með hóf'i að Hótel Borg, sem verður fjölsótt. Hafa gaml- ir félagar kórsins sýnt afmælinu mikinn áhuga, m.a. æft nokkur lög undir stjórn Sigurðar fyrr- verandi söngstjóra, sem þeír ætla að syngja í hófinu. Karlakórinn æfir nú að vanda fyrir vorkonserta : tvrktf,rPél«i<’ anna og er söngstíóri Páll Pam pichler Pálsson. Söngmenn eru Framhald á 6. síðu. Á Iaugardaginn hefst á Hótel Sögu tveggja daga ráðstcfna um umferðaröryggf) sem átta trygg- ingafélög hafa boðað til. Á ráð- stefnunni verður lagt fram frum- varp til - stofnunar Iandssam- taka gegn umferðarslysum. — Ráðstefnan hefst kl. 2.00 e.h. og setur hana Jón Rafn Guðmunds- son, en eftir að fundarstjóri o.g ritarar hafa verið kosnir mun Jóhann Hafstein, dómsmálaráð- herra flytja ávarp. Um 30 aðilar voru boðaðir til ráðstefnunnar, auk fjölmargra áheymarfulltrúa frá ýmsum op- inberum aðilum og hafa þegar yfir 60 fulltrúar tilkynnt um þátttöku. Fyrri dag ráðstefnunnar mun Egill Gestsson flytja framsögú- ræðu undirbúningsnefndar og leggja fram frumvarp til stofn- unar landssamtaka gegn um- ferðarslysum. Gert er ráð fyr- ir að fundi ljúki um kl. 18.00 á laugardag, en áður verður kos- ið í skipulagsnefnd, fjárhags- nefnd og framkvéemdanefnd, er starfa á sunnudagsmorgun. Fundur hefst aftur kl. 13.20 á sunnudag með afgreiðslu nefndarálita. — Á ráðstefnunni verða tvö erindi flutt. Pétur Sveinbjarnarson flytur erindi um uppbyggingu umferðarfræðslu- kerfisins, en Sigurjón Sigurðsson lögreglustjóri, erindi um bráða- birgðatillögur rannsóknamefndar umferðarslysa. Ráðgert er að ráðstefnunni verði slitið um kl. 18.00 á sunnudag. Eldsvoði í Smá- íbúðahverfinu 1 gærdag run fimm leytið varð eldur laus í einlyftu timb- urhúsi við Melgerði 23 í Smá- íbúðahverfi hér í bæ. Eldurinn kom upp í viðbyggingu við hús- ið- í olíukyndiklefa og varð við- byggingin alelda og brann að mestu. Eldurinn komst líka í eldhúsið í aðalhúsinu og varð að rjúfa gat á þak hússins til þess að ráða niðurlögum eldsins. Miklar skemmdir urðu á hús- inu og var meðal annars geymd i viðbyggingunni gömul búslóð, staflað upp í loft í einu her- bergi þar, — brann það allt að mestu. Þam^ býr Valdemar Sig- urðsson ásamt sex manna fjöl- skyldu og er fyrirvinnan á sjúkrahúsi. í gærdag var víða mikið frost og mældist þannig sautján stiga frost á Akureyri, átján stig á Sauðárkróki og tiu stiga frost hér í Reykjavík. Bjart veður var um allt land. I dag er búizt við áframhaldandi kuldakasti og bjartviðri. Rithöfundasambandið samþykkti Mótmæli gegn dátasjónvarpi og handtöku sovézkra skálda Á funclf Rithöfundasambands Islands á þriðjudagskvöld voru samþykktar tvær tillgöur, önn- ur við þá hugmynd að dátasjón- varpið verðí takmarkað við bandarísku hcrstöðina eklci síð- ar en þegar íslcnzka sjónvarp- ið tekur til starfa, og orðsend- ing til sovczka sendiherrans á Islandi, þar sem lýst er ánægju yfi'r veitfngu Nóbclsverðlauna til Sjolokhofs og mótmælt frelsis- sviptingu tveggja sovéthöfunda. Sigurður A. Magnússon bar fram fyrri tillöguna og fylgdi henni úr hlaði og var hún sam- þykkt mótatkvæðalaust. Björn Th. Björnsson, formaður sam- bandsins bar fram seinni til- löguna. Þar segir, að fundir ís- lenzkra rithöfunda lýsi ánægju jrfir verðskulduðum heiðri, veitt- um Sjolokhof með Nóbelsverð- launum. 1 síðari hluta tillög- unnar segir ennfremur, að ísl. rithöfundar hljóti iafnframt að harma þær fregnir, ef réttar reynist, að sovétrithöfundarnir tveir, sem ritað hafa undir skáldheitunum Arzak og Abram Tertz, hafi sætt frelsissviptingu vegna þjóðfélagsádeilu í bókum sínum. Sé það álit höfundanna, að ádeila í bókmenntum hafi um aldir verið afl menningar- legrar framvindu, en öll viður- lög við því frelsi listamanna spilli fyrir umburðarlyndi og friði milli þjóða. Ýmsir fundarmenn urðu til að mótmæla — hver á sínum forsendum — báðum hlutum tillögunnar og var hún sam- þykkt í'tveim atkvæðagreiðslum. kjörin í gær Á fundi borgarstjórnar Reykja- víkur í gær var kosið í fram- talsnefnd til næsta árs. Þessir menn voru kjömir aðalmenn: Guttormur Erlendsson, Björn Snæbjörnsson, Bjöm Þórhalls- son, Haraldur Pétursson og Zóp- honías Jónsson. Varamenn: Jón Guðmundsson, Þorvaldur J. Júl- fusson, Helgi V. Jónsson, Eyj- ólfur Jónsson og Sigurður Guð-! Skemmtikvöld Isl-þýzka menn- ingarfélagsins Næstkomandi þriðjudags- kvöld 25. janúar, kl. 20.30 heldur Islenzk-þýzka menn- ingarfélagið skemmtikvöld 1 Lindarbæ niðri. Sýeid verður stutt kvik- mynd frá Kaupstefnunni : Leipzig. Sigurður Baldursson hrl flytur stutt yfirlit um tíðn: afbrota í báðum þýzku ríkj- unum frá stríðslokum. Knútur Reynir Magnússoll leikari skemmtir. Tekið verður móti nýjum félagsmönnum. , Félagar eru hvattir til að | fjölmenna og taka með séi gesti. Kaffiveitingar verða á staðnum. geirsson.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.