Þjóðviljinn - 16.04.1966, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 16.04.1966, Qupperneq 3
Laugardagur 16. apríl 1966 — ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 3 Búddistar — þó ekki allir — semja um vopnahlé að vissum skilyrðum SAIGON 15/4 — Leiðtogar Búddista í Suður-Vietnam hafa gert hlé á baráttunni gegn herforingjastjórn landsins, en um leið lýst því yfir, að þeir muni hefjast handa á ný um leið og stjórnin geri sig líklega til að rjúfa gefin lof- orð um kosningar og borgaralega stjórn. Borgarstjórinn í Danang, þar sem andstaðan gegn stjórninni hefur verið hörðust, stendur enn fast á þeirri kröfu, að herforing'ja- stjórnin fari frá áður en efnt verður til kosninga. í dag var undirskrifuð sam- þykkt ráðstefnu þeirrar sem efnt hafði verig til í Saigon um kosn- ingar og borgaralega . stjórn. þess efnis. að kosningar skyldu haldnar innan fimm mánaða. Leiðtogar Búddista sátu í sex klukkustundir á fundum í dag. og lýstu síðan yfir þvi að helzta takmarkj þeirra — kosningar sem fyrst — væri náð og því skyldi mótmælaaðgerðum gegn stjórninnj hætt. Jafnframt lýstu þeir þvi yfir, að baráttan gegn stjórninni yrði tekin upp að nýju ef yfirvöld- in refsuðu pólitískum áróðurs- mönnum eða ef kosningarnar yrðu ekkj frjálsgr og réttlátar. Viðbrögð í borgunum Hue og Danang. þar sem andstaðan gegn stjórninnj hefur verið hvað sterkust benda til þess, að Búddistar bar séu ekki allskost- ar ánægðir með vopnahléð milli skoðanabræðra þeirra i Saigon og stjómarinnar. Borgarstjórinn í Danang, Nguyen Van Man. sagði í viðtali við blaðamenn í dag, að baráttunn; yrði haldið áfram bar lil herforingjaklíkan fær; frá Og bráðabirgðastjóm yrði setf á laggimar til að und- irbúa kosningar. Leiðtogar stúd- enta í háskólaborginni Hue tóku mjög í sama streng. Loftárásir Bandarískar flugvélar hafa nú hert loftárásir á Norður-Viet- nam og voru í allt 58 árásar- ferðir í dag. Landvarnaráðherra Bandarikjanna. Mcnamara, lýsti því yfir í gær að enginn skort- Ui< værj nú á sprengjum — og er nú áætlað að nota 600 þús- und smálestir af sprengjum í styrjöldinni á þessu ári. Talsmaður bandarisku her- stjómarinnar í Saigon hefur lýst því ýfir að Bandaríkja- menn hafi misst 308 flugvélar í Vietnamstyrjöldinni hafi 205 verið skotnar niður yfir Norð- ur-Vietnam og 103 yfir Suður- Vietnam. Herstjórn Norður-Viet- nam telur, að fjórum sinnum fleiri bandarískar flugvélar hafi verið skotnar niður yfir sínu *laftdi. í dag fóru 3000 manns í kröfu- göngu í Sidney í Ástralíu í mót- mælaskyni við að verið er að senda nýja ástralska herflokka til Vietnam. Hermannsson um vinstri hreyfingu Ráðist á sendiráð Kínverja í Djakarta DJAKARTA 15/4 — Um 2000 manns, flestir af kínverskum uppruna, brutust inn í sendiráð Kína í Djakarta í dag, brutu hurðir og rúður og eyðilögðu flest lauslegt. Komu þeir frá f jöldafundi í borginni þar sem þess var krafizt að Indónesía sliti stjórnmálasambandi við Pekingst’jórnina. 1 tvo tíma herjaði fólk þettsa á bygginguna. mölvaði húsgögn, j kveiktu í öllu lauslegu svo og ! skjölum og henti út á götu, eyði- ! lögðu þrjá bíla og drógu kín- j verska fánann niður af bygging- ! unni. Hermenn, sem voru á verði Ræia Eðvarðs Sigurhssoar Framhald af 1. síðu. stöðva vöxt dýrtíðarinnar. Það hefur verið réttlætt með því að verið sé að bæta úr misréttinu sem sparifjáreigendur verði fyrir vegna verðbólgunnar, rdeð því að verðtryggja sparifé. En þegar verðbólgan eykst eins ört og hun gerir nú er sá vandi ekki leyst- ur varanlega með öðru en því -að ráðast gegn verðbólguwnt' sjálfri. Sparifjáreigendur eru margir. En húsbyggjendur og eigendur í- búða eru líka margir. Þeir. og alveg sérstaklega unga fólkið sem er að reyna að eignast þak yfir höfuðið. væri verr statt eftir samþykkt þessa frumvarps. ★ Gerbreyta verður lának.jörum Ein allra stærsta orsök dýr- tíðarinnar er . hinn mikli vandi í húsnæðismálunum. Húsnæði er orðið ofsalega dýrt. Byggingar- kostnaður er orðinn gífurlegur. Þar viðgengst alls konar brask. Menn ve-ða að sæta afarkostum í lánamálum greiða hús sín upp á skörr.mum tíma. Það hefur undanfarið vcrið stærsti þátturinn varðandi kröfu- gerð verkalýðsfélaganna hve húsnæðiskostnaðurinn knýr þar á. Ungt fólk sem ætiar sér að byggja hefur ekki getað unað við hið lága kaupe.iald. Menn hafa orðið að fá hærri tekjur. Það hefur leitt til óhæfilega iangs vinnutima og til nýrrar kröfngerðar um kaup. Það verður að gera rækilegar ráðstafanir ef vel á að fara. Hækka húsnæðislánin, iengja Iánatímann, flytja íbiiðarhúsa- byggingar á félagslegan grund- völl mikiu meir en nú er. Það gæti komið í vefe fvrir hið mikla brask sem nú er með fbúðarhús- næði. En með samþykkt þessa frum- varps mun þjóðfélagslegt rang- læti ekki minnka heldur aukast. Hinir efnaðri munu hafa marg- vísleg ráð til að velta af sér kostnaðaraukanum vegna kvaða þassa frumvarps, en hinir efna- minni hljóta að finna fyrir þess- um ráðstöfunum. ★ Forsendan ekki Iengur til. Eðvarð minnti á að með júní- samkomulaginu 1964 hafi verka- lýðshreyfingin samiþykkt í sam- komulagi við ríkisstjórnina að vísitölubinda húsnæðislánin. En það samkomulag hafi verið gert í trausti þess að verulegar ráð- stafanir yrðu gerðar af ríkis- valdinu til að hefta vöxt dýr- tíðarinnar. Verkalýðshrcyfing- in bauð fram samstarf sitt til þess að svo gæti orðið. Þetta hefur ríkisstjórnin ekki gert. Og þar með er fallin for- scnda þess samkomulags sem j gert var 1964. Það samkomulag | um verðtryggingu hefur orðið til þess að aúka á óréttlætið. Op vísitölubinding á húsnæðismál" lán getur ekki haldizt áfram. Það er alveg útilokað. Því hefur verið haldið fram að með samkomulaginu. 1964 hafi verkalýðshreyfingin samið af sér. Það fólst að vísu fleira í þessu samkomulagi en vísitölubinding- in. líka atriði sem voru dýrmæt fyrir húsbyggjendur. En um þetta atriði má segja að við höf- um samið af okkur. vegna þess að ekki var staðið við það sem Iofað var á móti. Þess vegna hef- ur þess báttur samkomulagsins ekki orðið húsbyggjendum til góðs heldur til að gera lánin dýrari. ★ Gagnráðstafanir.. Nú liggur fyrir þinginu frum- varp um að fella þessa vísitölu- bindingu úr gildi. Ég vildi mega vona það fastlega að tekið verði á því máli af fullri alvöru. Eigi að viðhalda þessum iána- kjörum hlýtur það að Ieiða til gagnráðstafana af hálfu verka- lýðssamtakanna. með auknum kaupkröfum. Menn skyldu muna að vonlaust er með öllu að standa undir þessum lánum með þeirri kaupgetu sem nú er hjá fólki. Með samþykkt þessa frum- varps sýnist mér enginn vandi leystur, sagði Eðvarð Sigurðsson að lokum, hér er verið að káka við afleiðingarnar af vandanum. Ráðstafanir frumvarpsins eru röng skref fyrir þjóðfélagið í heild, hinir máttarminni í þjóð- félaginu sem á lánum þurfa að halda verða verr settir, og rang- lætið verður sízt minna en fyrr. Sjálft verðbólguvandamálið verð- ur torleystara, og er því tví- mælalaust réttara að afgreiða írumvarpið ekki að svo stöddu og athuga það miklu betur. um sendiráðið, skutu aðvörunar- skotum en þeim var ekki sinnt. Starfsfólk sendiráðsins bjó um sig í nokkrum herbergjum og var þaðan skotið á innrásarmenn og þrír þeirra særðust. Er þeir héldu á brott, höfðu þeir með sér vörubíl, hlaðinn matvælum, sem þeir höfðu safnað í geymsl- um sendiráðsins. Áhlaupsmenn komu af fjölda- fundi. þar sem ræðumenn voru flestir kínverskrar ættar. Sóru þeir Indónesíustjóm hollustu, og ásökuðu Pekingstjórnina fyrir að blanda sér í málefni Indó- nesíu og fyrir að hafa stað’ið að baki stjómbyltingartilraun sem gerð var í fyrra. Báru þeir lof á hina nýju valdamenn fyrir að loka kínverskum ~ skólum og stofnunum í landinu og hvöttu til þess, að stjómmálasambandi yrði slitið við Kínverska Al- þýðulýðveldið. Súkarno forseti hefur að sögn Djarkartaútvarpsins fallizt á að kosningar fari fram í landinu, en það þing sem nú situr var útnefnt af forsetanum. Kosning- ar fóru síðast fram f Indónesíu árið 1955. BERGEN 15/4 — Formaður j sænskra kommúnista Hermanns- , son hélt í dag fyrirlestur um \ „Nýjar leiðir sósíalismans" fyxir . stúdentasamtökin í Bergen. Hann sagði að nýjar pólitískar aðstæðúr væru að skapast á J Norðurlöndum. Enginn tryði því, i að borgaraflokkarnir gætú oi^ðið' við. þeim kröfum sem þjóðirnar gerðu til lýðræðis á vinnustöð- um, framieiðslu í þágu manns- ins en ekki gróðans, til þess að bundinn verði endir á einangrun . mannsins í nútíma þjöðfélagi. né heldur gætu þessir flokkar tryggt sigur hugsjóna húmanismans. Hann sagði einnig, að sósíal- demókratískar ríkisstjórnir hefðu ekki gotað umbreytt þjóðfélag- inu í samræmi við hugsjónir sósíalismans en innan verkalýðs- hreyfingarinnar bæri nú æ meir á vinstri öflum, sem krefðust 'sósíalistískrar stefnu. Hann ræddi og sérkenni hinnar nýju vinstri- hreyfingar, að hún legði sérstakg áherzlu á samúð og samstöðu með þjóðum, sem berðust fyrir sjálfstæði og félagslegu réttlæti. Handtökur AMMAN 15/4 — Hundrað Jórd- aníumenn úr ýmsum bönnuðum pólitískum flokkum hafa verið handteknjr í vikunni sakaðir um undirróðursstarfsemi. Þeirra á meðal eru kommúnistar, Baath- sósíalistar og arabískir þjóðem- issinnar. Swfakíf ffá Fíaf MOSKVA 15/4 — Bifreiðaiðnað- arm'álaráðherra Sovétríkianna. Tarasof er farinn til Torino til að Ijúka samningsgerð við Fiat. hinar ríkisreknu bílaverksmiðj- ur ftalíu um að Fjat byggi í Sovétríikjunum verksmjðju er framleiði smábíla o« bíla af með- alstærð Fiatverksmiðjumar hafa áður sert svipaða samninga við Júgóslavíu og ýms lönd önnur. Éyðurnar vil ég þakka þér STOKKHÓLMI 15/4 — Einhver mestur furðufugl yngri kynsióðar sænskra iistamanna, Carl Frederik Reutersværd, hefur enn einu sinni orðið til að vekja athygli sænsks bók- menntafólks. REUTERSVÆRD hefur gefið út bók, 95 bis. að stærð, þar sem ekki koma fyrir orð eða bókstafir, einungis tákn og þá einkum greinarmerki: spurningarmerki, upphrópunar- -merki, tiivísunarmerki, svigar, kommur, semíkommur og annað af því tagi. Bókin heitir „Prix Nobel“ (Nóbelsverð- Iaun) og höfundurinn segir þessa bók tilvalda til gjafa, þar eð menn geti sjálfir skrifað viðeigand’ texta á mllli merkjanna. DÝRGRIPUR þessi kostar tuttugu. og fimm krónur sænskar. Skrifstofustarf Skrifstofumaður, karl eða kona, óskast til starfa nú þegar eða síðar. Upplýsingar í síma 21560. Vatnsþétt Höggvarið Óbrjótanleg gangfjöður Dagatal Sendum gegn póstkröfu. Magnús Benjamínsson & Co. Ú r s m i ð u r Veltusundi 3. Sími 13014. Auglýsing frá yfirkjörstjórn Keflavíkurkaupstaðar. Frestur til að skila framboðslistum við bæ'jar- stjórnarkosningar í Keflavíkurkaupstað, sem fram eiga að fara sunnudaginn 22. maí 1966 er útrunn- inn þann 20. apríl n.k. kl 12 á miðnætti. \ Yfirkjörstjórn tekur við framboðslistum í skrif- stofu Keflavíkurbæjar þann 20. apríl n.k. frá klukkan 21—24. Keflavík 15. apríl 1966. Yfirkjörstjóm Ólafur Þorsteinsson. Sveinn Jónsson. Þórarinn Ólafsson.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.