Þjóðviljinn - 16.04.1966, Page 5
Laugardagur 16. april 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Sagan um bréfið sem aldrei
Herra forseti!
Við skulum ímynda okkur, að
í fyrramálið bærist ríkisstjóm-
inni bréf frá Ameríku, þykkt
og mikið bréf. Og við skulum
ímynda okkur, að þetta bréf
væri ritað af bandarískum
miljónamæringi, sem ekki vissi
aura sinna tal, og í þcssu bréfi
færi hann fram á að fá hjá
valdhöfum landsins nauðsynleg
leyfi til að mega gera eftirfar-
andi:
1 fyrsta lagi óskaði hann
eftir að mcga reisa hér 'á landi
svo sem 100 skóla af ýmsum
tegundum, barnaskóla, gagn-
fræða-, verknáms-, mennta-
skóla og háskóla og reka þá
a.m.k. næstu 10 árin.
1 öðm lagi óskaði hann eftir
að mega gefa út dagblað hér á
landi, fjölbreytt að efni og 100
síður að stærð á hverjum degi
og senda það ókeypis inn á
hvert heimili í landinu.
Bréfritari léti þess getið, að
efni dagblaðsins yrði bæði úr
íslenzku og erlendu þjóðlífi, en
blaðið yrði þó aðeins gefið út
á enskri tungu. Um skólastarf-
semina væri það að segja, að
þar yrði veitt fullkomnasta
fræðsla sem völ væri á í banda-
rískum skólum, en öll kennsla
færi fram á ensku og meginá-
herzla í fræðslunni allt frá 7
ára aldri yrði lögð á að veita
nemendum innsýn í bandaríska
menningu og andans afrek
meðal engilsaxneskra þjóða.
Væri því gert ráð fyrir, að
500—600 bandarískir kennarar
störfuðu við skólana fyrstu ár-
in.
Tilgangur miljónamæringsins
skiptir auðvitað ekki máli. Við
getum t.d. ímyndaö okkur þann
tilgang, að auðmaðurinn vildi
eyða svo sem 1500 miljónum
af eignum sínum til að styrkja
gott málefni, áður en hann
hrykki upp af, — hann hefði t.d.
komið í heimsókn til Islands og
honum hefði þótt ömurlegt að
sjá, hve íslendingar væru ein-
angraðir frá heimsmenningunni.
Sem bissnessmaður hafði þann
strax séð, hvað það væri fjár-
hagslega óhagkvæmt fyrir 200
þús. einstaklinga að notast við
sérstakt tungumál og halda
uppi sjálfstæðu menningarlífi.
Hann óskaði sem sagt eítir að
hjáipa íslendingum til aðflytja
anda sinn á nýtt menningar-
svæði, svo að íslenzka þjóðin
gæti með auðveldum hætti
ausið af nægtabnjnni banda-
rískrar hámenningar.
Sem sagt ríkisstjórnin fær
þetta ímyndaða bréf og þegar
í stað hefjast rökræður milli
ráðandi manna um, hvað gera
skuli í þessu máli.
Og hvernig yrðu nú þær rök-
ræður?
Röksemdir
með
og móti
mun berast
Og eins þætti vafalaust ekki
lakara, að nýju lífi yrði hleypt
í dagblaðaútgáfu á Islandi.
Stórt og glœsilcgt dagblað á
ensku, sem væri efnismeira en
öll íslenzk dagblöð samanlagt
og sent væri inn á hvert heim-
ili í landinu á hverjum degi,
hver gæti staðið ú móti því? Er
ekki líka sama hvaðan gott
kemur? Og atvinnurekendur
mundu segja: Ldfsins fáum við
blað, sem borgar sig að aug-
lýsa í. Ilver er ekki orðinn
leiður á þessum litlu, ómerki-
legu íslenzku dagblöðum, sem
þar að auki eru rándýr?
Vafalaust myndu nú margir
verða til þess að benda á, að
hér á landi hefur lengi verið
mikill skortur á skólahúsnæöi
og víða um land cr hreint
neyðarástand í þeim efnum, að
ekki sé talað um kennaraskort-
inn. Eitt hundrað nýir amerísk-
ir skólar mundu gerbreyta á-
standinu, hundruð ungmenna,
sem nú fá hvergi fræðslu vegna
skorts á hcimavistarskólum
fengju tækifæri til að mennta
sig og ríkisstjórnin þyrfti ekki
framar að gefa út bráðabirgða-
lög til að stöðva skólabygging-
ar. Jafnvel mætti nota skóla-
byggingar ríkisins til annarra
þarfa. Auk þess myndu nokkur
hundruð bandariskra uppalenda
bæta úr brýnustu kennaraþörf-
inni og jafnvel leysa íslenzkt
vinnuafl af hólmi, sem gæti
auðvitað komið sér vel við
byggingu alúmínverksmiðjunn-
ar.
— þeir munu benda á, að ekki
yrðu börnin í amerískum skóla
nema bara nokkra klukkutíma
á dag.
Þcir segjast geta fullyrt að
dátasjónvarpið hafi engin veru-
leg áhrif á uppvaxandi æsku-
lýð. Eins myndu þeir segja:
Mitt barn var í skóla í Amer-
íku og ekki var það minni Is-
lendingur, þegar það kom hcim.
Hvers vegna ættu börnin okk-
ar að verða minni Islendingar,
þótt þau séu í bandarískum
skólum á Islandi?
Þeir hafa fullyrt að í banda-
ríska sjónvarpinu sé margt
inn kæmi sem sagt færandi
hendi til Islendinga, og auð-
vitað yrðu allar dyr opnar.
Hitt er svo allt annað mál,
að eftir nokkur ár, þegar Banda-
ríkjamaðurinn væri búinn að
yfirtaka fræðslustarfsemi á
íslandi og ísienzk dagblöðhefðu
gefizt upp í samkeppninni við
erlent stórblað, myndi ríkis-
stjórnin váfalaust vakna upp
við vondan draum allt í einu.
Þá færu sumir hinna ráðandi
manna að fá bakþanka og ein-
hverjir þeirra, t.d. ritstjóri Al-
þýðublaðsins, Benedikt Gröndal
myndu kannski fást til að 'lýsa
því yfir, að málið væri komið
í „andslyggilega sjálfheldu“,
eftir að hafa sjálfir átt veru-
legan þátt í framgangi málsins.
En þegar til skarar ætti að
skríða, þegar minnzt yrði á, að
loka ætti bandarískum skólum a
Islandi og stöðva markvissa
Ræða Ragnars Arnalds á Alþingi
í umræðum um tillögu Alþýðu-
bandalagsins og Framsóknar að
takmarka dátasjónvarpið við
herstöðina eina
En þannig myndu ekki allir
tala. Sumir myndu rísa upp og
mótmæla, jafnvel mjög margir
og þar myndu menntamenn
einkum hafa forustuna, t.d.
stúdentar og kennarar. Þessir
menn mundu segja:
Það er vansæmandi fyrir Is-
lendinga sem sjálfstæða menn-
ingarþjóð að veita erlendum að-
jla heimild til að keppa við
íslenzka ríkið um menntun
barna og unglinga. Slíkt getur
engin sjálfstæð þjóð leyft í
landi sínu.
íslenzk dagblaðaútgáfa væri
í mikilli hættu, ef erlendur
auðmaður fengi tækifæri til að
yfirbjóða íslenzk dagblöð, bæði
með ókeypis útgáfu og marg-
falt fjölbreyttara efni.
Og þeir myndu segja, að slík
áform myndu kalla stórkost-
lega hættu yfir tungu Islend-
inga, þjóðerni þeirra og menn-
ingu.
Samanburður á
röksemdum
Þegar hér væri komið sögu,
myndu auðvitað flestir sjá, að
röksemdirnar gegn áformum
Bandaríkjamannsins væru í
meginatriðum liinar sömu og
bornar hafa verið .fram gegn
tilvist bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar. Þá kemur sér
einmitt vél, nö fylgjcndur dáta-
sjónvarpsins hafa komið sér
upp íburðarmiklu vopnabúri
með hinum fjölbreyttustu
röksemdum.
Þeir hafa haldið því fram,
að áhrif sjónvarpsins ú íslcnzka
mennjngu væru mjög litil og
bent á, að mikið er keypt til
landsins af erlcndum bókum
og blöðum og erlcndar kvik-
myndasýningar víða um land
á hverju kvöldi. Eins munu
þeir segja, að 100 síðna dag-
blað inn á hvert heimili í land-
inu muni engu breyta.
Varðandi æskulýðinn hafa
þeir bent á, að börnin sitji
ekki nema nokkra klukkutíma
á dag framan við sjónvarpið,
fróðlegt og menntandi að sjá,
hlutir, sem þeir ella hefðu ekki
útt kost á að kynnast. Og þeir
munu segja: Islenzk skólayfir-
völd eru fátæk af íjármunum
og nýtízku tækjum. Börnin
okkar munu læra í hinum
bandarísku skólum á Islandi
fjölda margt, sem þau annars
hefðu farið á mis við.
Loks hafa þeir stöðugt undir-
strikað: Islenzk menning er
máttug og sterk og hefur
kannski aldrei staðið traustari
fótum. En ef hún í raun og
veru er svo máttlítil, að hún
þolir ekki, að um hana leiki
vindar heimsmenningarinnar, er
hún ekki þess virði, að í hana
sé haldið.
Þessi röksemd er ævinlega
höfð á lofti í umræðum um
sjónvarpsmál og henni má auð-
vitað beita á marga vegu.
Ef íslenzk dagblöð eru svo
' illa úr garði gerð, að þau gef-
ast upp í samkeppninni við er-
lent stórblað, eiga þau ekki
skilið að fá að lifa. Þá ercins
gott, að þau drepist strax.
„Andstyggileg sjálf-
helda“
Ég hef nú gert grein fyrir
röksemdum beggja aðila í þess-
ari ímynduöu deilu. Nú er
spurningin, hvað mundi ríkis-
stjórnin gera? (I-Iún er nú öll
farin úr þingsalnum, svo þaö
er erfitt að segja um það!)
Kannski væri réttast að ég
hætti hér þessari sögu, sem
enn hefur ekki gerzt. Og
sjálfsagt mun aldrei gerast. Og
kannski væri varlegast að svara
ekki þeirri spurningu, hver
verða mundu viðbrögð ríkis-
stjórnarinnar. Samt ætla ég
mcr að geta mér til um svarjð.
Þv; að í raun og veru liggur
svarið ú borðinu! Ríkisstjórnin
féllst á málflutning þeirra, sem
börðust fyrir bandarísku dáta-
sjónvarpi og veitti Bandaríkja-
mönnum' leyfið. Hún myndi
sjálfsagt taka sömu afstöðu í
annað sinn. Bandaríkjamaður-
viðleitni til að breyta Islend-
ingum í Ameríkana, þurfum
við ekki að efast um, að marg-
ir hugumstórir írelsisvinir og
lýðræðisvinir mundu stíga
fram á sjónarsviðið.
Til þess að átta okkur á
hugsanlegum málflutningi þeirra
skulum við líta á það, sem nú
er sagt um sjónvarpsmálið.
Til hvers að pína
blessuð börnin?
Einn af forustumönnum ungra
Sjálfstæðismanna segir í Lesbók
Morgunblaðsins fyrir einum
mánuði síðan með leyfi forseta:
„Hvað er það annað en ein-
angrun, þegar útiloka á sjón-
varpseigendur frá því að horfa
á það, sem þeim bezt þykir?
I-Ivað er það annað en einokun.
þegar sjálfskipiaðir menningar-
verndarar ætla að ráða því fyr-
ir okkur hina, á hvað við meg-
um horfa?“
Og einn æstasti aðdáandi
bandaríska sjónvarpsins, Guð-
laugur Gíslason hv. 3. þm. Sunn-
lendinga, hann segir í Morgun-
blaðinu 15. febrúar sl.:
.,Mundu ekki þær tugþúsundir
ir sjónvarpsnotenda, sem þegar
eru til í landinu, telja það
skerðingu á frelsi sínu og at-
höfnum, ef þcir vœru allt í
einu sviptir rétti til að nota
þessi tæki? Hvað er það í dag-
skrá Keflavíkursjónvarpsins,
sem miðar að því að grafa
undan tilveru íslenzku þjóðar-
innar?“
Þarna er dramatískt til orða
tekið! Af þessum orðum ætti
að vera auðvelt að geta sér til
um málflutning þeirra við hin-
ar nýju aðstæður. Þeir mundu
segja:
Ja, það má vel vera, að er-
lenda stórblaðið hafi stuðlaðað
uppgjöf íslenzku dagblaðanna,
eins og sjónvarpið hefur
kannski einhver áhrif á áhuga
fólks fyrir íslenzkri menningu.
En hvað er það í þessu blaði,
sem miðar að því að grafa
undan tilveru íslenzku þjóðar-
innar? Hvaða námsgrein er það
í þessum bandarísku skólum?
Hvaða kennslubók getið þið
nefnt, sem miðar að því að
eyðileggja íslenzka menningu?
Og viist ættu margir býsna
erfitt með að • svarn svo há-
spekjlegri spurningu.
Og enn munu þeir segja:
Hvers eiga þau börn að gjalda,
sem nú sitja í bandariskum
skólum á Islandi? Myndu þau
ekki telja það skerðingu á frelsi
sínu og athöfnum, ef þau væru
svipt rétti til að sækja banda-
ríska skóla á Islandi?
Hvað á þessi einokun og ó-
frelsi að þýða? Ef íslenzk börn
vilja ekki læra íslenzku, á þá
að þröngva henni upp á vesa-
lings börnin?
Þeir munu segja; vifl lifum
í lýðfrjálsu landi. EC íslenzk
börn vilja verða amerísk í hugs-
un, eiga þau að ráða l>v; sjálf!
Miljónamæringur á
Miðnesheiði
Herra forseti.
Nú mun e.t.v. einhver segja,
að þessi dæmisaga eða samlík-
ing, sem ég hef hér borið fram
sé ekki raunhæf eða í samræmi
við raunveruleikann. Það muni
engum detta í hug að veita ís-
lenzkum unglingum kennslu í
dýrum, erlendum skólum, sem
byggðir yrðu á Islandi og eng-
um myndi detta í hug að fara
að gefa erlent dagblað inn á
hvert heimili í landinu. Og ég
skal fúslega viðurkenna, að
dæmisögur eða samlíkingar eru
sjaldnast í samræmi við raun-
veruleikann. En það vill svo
til, að þessi samlíking á sér
raunverulega fyrirmynd.
Saga hermannasjónvarpsins
er saga um bandarískan milj-
ónamæring, sem fékk leyfi ís- -
lenzkra stjórnarvalda til að
brjótast ú eigin kostnað inn í
íslenzkt menningarlíf meðvold-
ugasta áróðurstæki nútímans.
Hann reisti stöð í landinu sjálfu
og eyðir nú til þess tugum milj-
óna kr. að komast með dagskrá
sína inn á íslenzk heimili, sjö
klukkutíma á dag. Á hverjum
degi gefur hann Islendingum
ókeypis fréttablað með mynd-
um og hefur þegar skákað
keppinaut sínum, islenzka rík-
isútvarpinu, út af þúsundum
heimila.
Þessi miljónamæringur fær
ekkert í aðra hönd fyrir erfiði
sitt og umstang, en hann veit,
hvað hann er að gera.
Hann er hugmyndaríkur upp-
alandi og kennsla hans er
myndræn. Á hverjum degi sitja
þúsundir íslenzkra barna við
fótskör hans. Daglega veitir
hann tugþúsundum Islendinga
nákvæma innsýn í bandarískt
þjóðlíf og menningarlíf, meðan
athygli þeirra og áhugi á ís-
lenzkum viðfangsefnum og þjóð-
máium sljóvgast að sama skapi.
Hvar er markalínan?
Ég hef nefnt hér dæmi um
hugsanlega einokun Banda-
ríkjamanna á íslenzkri dag-
blaðaútgáfu eða fræðslustarf-
semi í Iandin-,1; og ef ekki ein-
okun, þá a.m.k. erfiða sam-
keppni íslenzkra aðila við er-
lend úhrifaöfl, sem veitt væri
aðstaða til hömlulausra áhrifa á
íslenzka menningu. Ég hef
nefnt þcssi dæmi til að minna
á, að hér er um algerlega sam-
bærileg mál að ræða.
Spurningin er aðeins, hvar
vilja þessir menn draga marka-
línuna? Hvað geta þeir hugs-
að sér að ganga langt í að af-
henda útlendingum einstakar
greinar hins menningarlega full-
veldis Islendinga?
1 þessu sambandi er vissulega
fátt hlægilegra og heimskulegra
en tala um það í fullri alvöru,
eins og hv. þm. Sunnl., Guð-
laugur Gíslason, að verið sé
að svipta sjónvarpsnotendur
frelsi sínu til að nota sjónvarpa-
tæki. Spurningin er ekki um
frelsi sjónvarpsnotenda, heldur
um hitt, hvort erlent stórveldi
skuli íá leyfi og frelsi til að
ryðjast til áhrifa í íslenzku
menningarlífi í krafti mikils
fjármagns og einstæðrar að-
stöðu.
í íslenzkum lögum eru auð-
vitað margs konar ákvæði sem
takmarka rétt erlendra ríkis-
borgara til athafna hér á landi.
Ég vil minna á það, að nýlega
voru sett lög, sem takmarka
réttindi til atvinnurekstrar við
íslenzkan ríkisborgararétt. —
Með þessum lögum er auð-
vitað verið nð svipta erlenda
ríkisborgara ákveðnu frelsi. En
engum hefur hingað til dottið í
hug, að með því væri í raun og
veru verið að svipta íslenzka
viðskiptavini þessara manna,
væntanlega viðskiptavini, neirru
frelsi, þótt þeir muni ekki fá
að gera viðskipti sín við þessa
erlendu ríkisborgara.
Ég trúi því tæpast, að nokk-
ur alþingismaður geri sér ekki
Ijóst, að ef Islendingar vilja
heita sjálfstæð þjóð, hljóta þeir
að verða að takmarka athafna-
rétt útlendinga og erlendra
ríkja hér á landi með ýmsum
hætti. Meðal annars verður yf-
irstjórn og rekstur helztu
menningartækja að vera í
höndum íslenzkra manna.
Sjónvarp frá gervi-
tungli?
I umræðum um dátasjónvarp-
ið er því oft haldið fram, að
innan tíðar muni verða stofn-
að til alheimssjónvarps frá
gervitungli, sem hver og einn
geti notið í stofunni heima hjá
sér og því sé fáránlegt og til-
gangslaust að ætla að tákmarka
sjónvarpsstarfsemi Bandaríkja-
manna hér á landi.
I fyrsta lagi er auðvitað rétt
að benda á, að fullyrðingar um
sjónvarpssendingar frá gervi-
tungli beint jnn í viðtökutækx á
heimjlum manna, — fullyrðing-
‘ ar um slíka tækni að fáeinum
árum liðnum eru algerlega úr
lausu lofti gripnar. Það veit
enginn, hvort tæknin kems,t á
slíkt stig á næstu áratugum og
meðan það er ekki, verður sér-
hvert land að hafa móttöku-
stöðvar og senda dagskrána um
endurvarpsstöð til sjónvarpsnot-
enda í hverju landi. Gefst þá
auðvitað tækifæri til þess að
fella slíkar sendingar inn í
íslenzkt dagskrárefni; semsagt,
það verður tækifæri til að hafna
og velja.
En við skulum samt ræðaum
hinn möguleikann og bera hann
saman við núverandi ástand.
Auðvitað þarf ekki mikla
skarpskyggni til að sjá, aðsjón-
varpssendingar frá alheimssjón-
varpi væru allt annars eðlis en
bandaríska dátasjónvarpið og
hefðu allt önnur og skaplegri
áhrif á íslenzka menningu en
núverandi sjónvarpseinokun
Bandaríkjamanna.
Kjarni sjónvarpsmálsins / er
fyrst og fremst sá, að íslenzkri
menningu stafar hætta af dáta-
sjónvarpinu í Keflavík, vegna
þess að áhrifin berast úr einni
átt, áhrifin á tunguna eru frá
einu tungumáli, áhrifin eru
þau sömu á sérhvem sjón-
varpsnotanda og sjónvarpsnot-
endur hlusta allir á sömu stöð-
ina, en verða ekki fyrir áhrif-
um úr ýmsum áttum eins og
þeir sem hlusta mikið á erlent
útvarp. Áhriíin á íslenzkt þjóð-
líf, á lífsviðhorf Islendinga
berast öll frá sama erlenda
menningarsvæðinu. Það er að-
eins ofurþungi bandarískrar
menningar og ómenningaráhrifa,
sem hvílir á íslenzku menning-
arlífi.
íslendjngurinn getur þar
með ekki lengur taljzt einbúj í
Atlanzhafi, sem lifir sjálfstæðu
þjóðlífi og skyggnist um ver-
öld víða, kynnir sér menning-
arstrauma margra þjóða, lærir
eitt af þessum nágranna sín-
um, annað af hinum, án þess
Framhald á 7 síðu.