Þjóðviljinn - 21.04.1966, Qupperneq 1
Fimmtudagur 21. apríl 1966 — 31. árgangur — 89. tölublað.
Tvö blöð i dag — átta og
tálf síður — Blaðl
Neitað var um þjóðaratkvœði
Þingmenn SjálfsfœcSisflokksins og
AlþýSuflokksins jborSu ekki aS láfa
þjáSina dœma um alúminsamningana
□ Tuttugu og einn þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðuflokksins felldu á Alþingi í
gær tillöguna um áð alúmínsamningarnir yrðu
bornir undir þjóðaratkvæðagreiðslu.
□ Átján þingmenn Alþýðubandalagsins og Fram-
sóknarflokksins í neðri deild greiddu atkvæði
með tillögunni um þjóðaratkvæðagreiðslu. Einn
Framsóknarþingmaður skarst úr leik, greiddi
ekki atkvæði.
Þessir alþingismenn felldu'
tillöguna um þjóðaratkvæða-
greiðslu:
Sverrir Júlíusson, Axel Jóns-
son, Benedikt Gröndal. Birgir
Finnsson, Bjarni Benediktsson.
Davíð Olafsson, Emil Jónsson,
Sigfús Johnsen, Gunnar Gísla-
son Gylfi Þ. Gíslason, Ingólfur
Jónsson. Jóhann Hafstein,. Jón-
as Pétursson, Jónas G Rafnar,
Matthías Bjarnason. Matthías Á.
Mathiesen,. Óskar Levy, Pétur
Sigurðsson, Sigurður Ágústsson.
Sigurður Ingjmundarson. Sig-
urður Bjamason
Listi AEisviubanda-
lagsins á Siglufirði
Listi Alþýðubandalassins við .9.
bæjarstjórnarkosningarnar á
Siglufirðj í vor hefur verið lagð- 10,
ur fram og er skipaður eftir-
töldum mönnum: j 11.
1. Benedikt, Sigurðsson kennari 12.
2. Kolbeinn Friðbjamarson 13
stöðvarstjórj
3. Þóroddur Guðmundsson
framkvæmdastjóri
4. Hannes Baldvinsson síldar-
matsmaður
5. Valey Jónasdóttir kennari
6. Óskar ,Garibaldason formað- I
ur Verkalýðsfélagsins Vöku I 17.
7 Hinrik Aðalsteinsson kennari |
8. Kristján Sigtryggsson hús- í 18.
gagnasmiður ,
14.
15.
16.
Guðrún Albertsdóttir vara-
formaður Verkalýðsfél. Vöku
Þórhallur Björnsson verzl-
unarstjóri
Ragnar Arnalds alþingism.
Jón -Gíslason verkamaður.
Einar M. Albertsson póst-
maður
Halldór Þorleifsson verka-
maðu'r
Jósafat Sigurðsson verzlun-
armaður
Kristín Pálsdóttir hjúkrun-
arkona
Páll Ásgrímsson verzlunar-
maður
Þorvaldur Þorleifsson verka-
maður. .
Þessir alþingisrmenn greiddu
atkvæ'ði me'ð tillögunni:
Sigurvin Einarsson, Jón Kjart-
ansson, Þórarinn Þóravinsson,
Ágúst Þorvaldsson, Björn Fr.
Bjömsson. Eðvarð Sigurðsson,
Einar Ágústsson, Einar Olgeirs-
son, Eysteinn Jónsson, Geir
Gunnarsson, Gísli Guðmundsson.
Vilh.iálmur Hjálmarsson, Halldór
E. Sigurðsson, Hannibal Valdi-
marsson, Ingvcv Guðjónsson.
Jón Skaftason, Lúðvík Jóseps- j
son. Ragnar Arnalds.
Björn Pálsson greiddi ekki
atkvæði.
★ Frávísunardagskrá
felld, 21:19
Rökstudda dagskráin sem I
Framsóknarmenn fluttu var felld
meg 21:19 atkvæðum og greiddu
atkvæði með henni allir þing- j
menn Alþýðubandalagsins og j
Framsóknar í neðrj deild en \
allir þingmenn Alþýðuflokks-
ins og Sjálfstæðisflokksihs á
móti, Einn Framsóknarþingmað-
ur, Björn Pálsson, bar þó fram
afsökun í greinargerð fyrir því
að hann vaeri með frávísunartil-
lögu fiokk-s síns.
★ Tveir Framsóknarmenn
heykjast
Við atkvæðagreiðslu um 1.
gr. frumvarpsjns urðu úrslitjn
21 á móti 17. Tveir Framsókn-
arþingmenn sátu hjá, en að öðru
leyti skiptust atkvæðin alveg
eftir flokkum.
Annar þingmanna Framsókn-
arflokksins, sem skar sig þannig
úr var Jón Skaítason. Gerði
hann þá grein fyrir afstöðu sinni
að þó hann teldi ýmislegt at-
hugavert við samningana við
Swiss Aluminium. teldi hann
að rekstur alúmínbræðslu í
Straumsvik. yrði frekar til ,hags-
bóta þjóðinni og þá einkum
því kjördæmi sem hún væri
staðsett í,.
Hinn var Bjöm Pálsson, og
Fr-amhald á 3. síðu.
DIMISSION
DIMISSION var í menntaskól-
anum í gær: 6-bekkingar
kvöddu skólann og hófu upp-
lestrarfrí fyrir stúdentsprófin.
Athöfnin hófst á sal um kl.
II í gærmorgun, kvaddi þá
inspektor kennara og skóla-
systkin fyrir hönd bekkjar-
systkina sinna og afhenti að
lokum nýkjörnum inspektor
veldissprota. Síðan hófust
kveðjur o.g hróp utandyra og
að lokum fóru dimittentar á
heyvögrtum um bæinn og
heimsóttu kennara sína. 1
gærkvöld skemmtu þeir sér
síðan í Klúbbnum.
MYNDINA hér að ofan tók ljós-
myndari Þjóðviljans, A.K.
, þegar 6-bekkingar gengu nið-
ur skólabrúna undir fánum
bekkjardeildanna.
ÆFR
Kaffikvöld kl. 8,30 í Tjarnar-
götu 20 í kvöld, sumardaginn
fyrsta. Fjölmennið og takiðmeð
ykkur gesti.
Pompidou ræðst heiftarlega
gegn stefnu Bandaríkjanna
Franska stjórnin felldi með yfirgnæfandi meirihluta
vantraust á stjórnina vegna Nato-ákvarðana de Gaulle
Frumvarp um stjórnarskrár-
breytingu flutt á Alþingi
Ð Tveir þingmenn Alþýðubanda-
lagsins, Einar Olgeirsson og Ragnar
Arnalds, flytja á Alþingi frumvarp um
breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins.
Leggja flutningsmenn til í greinargerð
að skipuð verði stjórnarskrárnefnd með
þátttöku allra flokka til þess að athuga
þær breytingar sem felast í frumvarp-
inu og aðrar fyrir næsta þing, svo kom-
ið verði á félagslegum og lýðræðisleg-
um umbótum á stiórnarskrá landsins
fyrir kosningarnar 1967.
D í ákvajðum frumvarpsins er m.a.
fjallað um kosningaaldur, ný og gagn-
merk ákvæði um þjóðaratkvæða-
greiðslu, um eignarrétt á óbyggðum
landsins, um að fslendingar einir megi
eiga fasteignir og náttúruauðæfi á ís-
landi, um skráningu og aukningu fé-
lagslegra réttinda í stjórnarskrána, og
að á íslandi megi aldrei lögleiða her-
skyldu og ísland skuli vera friðlýst
land.
■ Þessar athyglisverðu tillögur um
breytingar á stjórnarskrá landsins
verða kynntar hér í blaðinu á næst-
unni.
PARÍS 20/4 — Franska þjóðþingið felldi síðdegis í dag
með yfirgnæfandi meirihluta tillögu um vantraust á rík-
isstjórn de Gaulle vegna þeirrar ákvörðunar hennar að
hætta hernaðarsamstarfi við önnur ríki- Atlanzhafsbanda-
lagsins. Áður en atkvæði voru greidd hafði Pompidou
forsætisráðherra varið gerðir stjórnarinnar og um leið
ráðizt af heift á Bandaríkjastjórn.
Vantrauststillagan sem Guy
Mollet og aðrir leiðtogar úr
flokkum stjórnarandstöðunnar
höfðu flutt var felld með 345
atkvæðum gegn 137. Þegar Wal-
deck Rochet, formaður kommún-
ista, lýsti því yfir á þingi í gær
að þingmenn þein-a (41 talsins)
myndu ekki greiða atkvæði með
vantrauststillögunni enda þótt
þeir væru andvígir stefnu ríkis-
stjórnarinnar í öðrum málum,
varð Ijóst að ekki kom til greina
að vantrauststillagan yrði sam-
þykkt. Það kemur þó á óvart
hve mikill meirihluti þingsins
lýsti samþykki sínu við stefnu
de Gaulle gagnvart Nató.
Á franska þinginu eiga sæti
482 þingmenn. Ríkisstjórnin hef-
ur hreinan meirihluta á þingi,
styðst við 233 þingmenn flokks
gaulljsta (UNR) og 36 íhaldsþing-
menn (Óháða lýðveldissinna) sem
nú lúta leiðsögn Giscard d‘Est-
aing, fyrrverandi fjármálaráð-
herra. Gaullistar eru einir sér
í minnihluta á þingi og einu
líkumar til þess að vantrausts-
tillagan yrði samþykkt voru þær
að íhaldsmenn sem hann styðja
að jafnaði myndu af hollustu við
Nató skerast úr leik í þetta sinn.
Eins og ráða má af úrslitum
atkvæðagreiðslunnar fer því
fjarri að svo hafi verið. Það er
ekki aðeins að allt stjórnarliðið
hafi greitt atkvæði gegn van-
traustinu og þingmenn kommún-
ista einnig, heldur hefur álitlegur
hópur þingmanna úr vinstri-
og miðflokkunum líka lýst sam-
þykki sínu við stefnu de Gaulle
gagnvart Nató.
Framhald á 3. síðu.
Listi vinstri manna
/ Ólafsfirði birtur
í gær var lagður fram lísti
vinstri manna á Ólafsfirði við
bæjarstjórnarkosningarnar þar í
vor og standa að honum Al-
þýðubandalagsmenn os Fram-
sóknarmenn eins og við siðustu
kosningar. . Listinn er þannig
skipaður, en bæjarfulltvúar eru
aðeins 7 á Ólafsfirði:
1. Ármann Þórðarson kaupfé-
lagsstjóri.
2. Bragi Halldórsson gjaldkeri.
3. Stefán Ólafsson múrara-
meistari.
4. Svejnn Jóhannesson verzlun-
armaður.
5. Nývarð Ólfjörð bóndi.
6. Líney Jónasdóttir húsfrú
7. Rósa Helgadóttir húsfrú.
8. Halldór Kristinsson útgerð-
armaður.
9. Gunnlau-gur Magnússon
trésmíðameistari.
10. Magnús Magnússon tónlistar-
kennari.
11. Gunnar Eiríksson bóndi.
12. Páll Guðmundsson verka-
maður.
13. Ingvj Guðmundsson verka-
maður.
14. Hrafn Ragnarsson skipstjóri.