Þjóðviljinn - 21.04.1966, Síða 12
Almenn reiði yfir fiskhækkuninni
— rætt við reykvískar húsmæður um sumarglaðning ríkisstjórnarinnar
□ Ríkisst'jórnin sendi landsmönnum sumarglaðninginn
um síðustu helgi: stórfelldustu verðhækkun sem um
getur á algengustu néyzluvöru almennings, fiski.
Nemur hækkunin á fiskverðinu frá 37% upp í 79%.
□ Fiskurinn hefur nú verið seldur á hækkaða verðinu
í þrjá daga og er mikill óánægjukurr í fólki, enda
fiskur sú matvara sem allir hafa getað veitt sér
hingað til og margar fjölskyldur hafa á borðum
fimm til sex sinnum í viku, bæði af því að fiskur
er næringarrík og holl fæða og þá ekki síður vegna
verðlags á kjöti og kjötvörum.
□ Það er ekki lítill munur að borga í dag tólf og fimm-
tíu fyrir þorskkílóið sem kostaði sjö krónur á laug-
ardaginn og er það þó ódýrasta fisktegundin. Og
eiga svo þar á ofan að kaupa smjörlíkið til að bræða
út á fyrir kr. 35,30 í stað 24 króna áður.
i
Þáóðviljinn átti í gær viðtöl
við nokkrar húsmæður hér í
Reykjavík um nýja fiskverðið
ög var það einróma álit
þeirra, að nú gengi þessi
verðhækkunaralda ekki leng-
ur, þessi síðasta og versta
hækkun væri til að kóróna
Fyrri afglöp ríkisstjórnarinnar.
Sextíu krónur í
máltíðina
Sigríður Guðlaugsd., Hraun-
braut 4 Kópavogi sagði:
— Mér finnst þetta ýfir-
gengilegt brjálæði og svona
getur ekki gengið lengur. Ég
er nú með átta manns íheim-
ili, sex stráka Qg okkur hjón-
in og bara fiskurinn kostar
orðið 55 til 60 kr, j máltíð-
ina. Áður keypti ég fisk í
matinn fyrir 30—35 krónur.
Þegar maður notar svo smjör-
líki til að steikja í er þetta
bara orðið eins dýrt og kjöt-
máltíð. Ég hef venjulega kjöt
á sunnudögum og eitthvað
kjötkyns fyrir utan það í
miðri viku, en annars alltaf
fisk, eitthvert fiskmeti, nú og
ekki lækkar fiskfarsið líklega
þegar fiskurinn sjálfur hækk-
ar!
Það er rétt hjá Sigríði, fisk-
farsið hefur ekki lækkað, hcld-
ur hækkað úr kr. 19 kílóið í
kr. 26,00.
Verða dönsku kök-
urnar ódýrastar7
Þórdís Jónsdóttir, Austur-
brún 2. elda.r mat fyrir
þrennt fullorðið.
— Ja, nú blöskrar manni
alveg, segir hún. Það er
fjandi hart þegar maður ætl-
ar að kaupa það ódýrasta, að
þá skuli það vera orðið svona
dýrt. Ég .hef alltaf haft fisk
nokkuð oft í viku og miðað við
ýsuflök hef ég þurft svona
meðalflak fyrir um 15 krónur,
en nú má ég punga út með
uppundir 25 krónur.
Svo er annað hitt, að ef til
er ýsa, þá fær maður hana
ekki nema flakaða — auðyitað
til að þeir geti lagt meira á
hana.
Svo er það smjörlíkið. Kom-
ið upp í 35 krónur. Ætli það
endi bara ekki á því, að
dönsku smákökurnar frægu
verði orðnar ódýrari en
heimabakað fyrir rest.
Ringluð á eilífum
verðhækkunum
Jóna Ásmundsdóttir, Hverf-
isgötu 58 sagðist vera orðin
alveg ringluð á þessum eilífu
verðhækkunum. ,
— Við érum 6 í heimili og
hef ég hingað til keypt nýja
ýsu, þá sjaldan hún er á
boðstólum, fyrir 25 krónur í
hverja máltíð. En nú fer að
slaga hátt upp í að það borgi
sig að kaupa kjöt í matinn.
— Annars var ég svohepp-
in að sonur minn veiddi rauð-
maga í soðið í gær, þannig að
ég er ekki 'farin að . finna
verulega fyrir hækkuninni
enn þá, sagði Jóna að lokum.
Er að hugrsa um að
kaupa bát
Þjóðviljinn spurði Berg-
lindi Bragadóttur, Hlunna-
vogi 3 um áiit hennar á hækk-
un fiskverðsins, en hjá henni
eru fjórir í heimili.
Berglind sagðist hafa ákveð-
ið að hætta að borða fisk,
þegar hún frétti um verð-
hækkunjna, það borgar sig
frekar að kaupa V2 kg af
kjötfarsi á 25 kr., en ýsufiök
á 28 kr. kg. Einnig blöskraði
henni nýja verðið á smjör-
líkinu.
— Það endar með því að ég
kaupi bát og fer að stunda
rauðmagaveiðar ef svonaheld-
ur áfram, varð Berglindi að
orði.
Ellefu munnar við
matborðið
Jóhanna Ásgeirsdóttir að
Kársnesbraut 28 Kópavogi 4
hvorkí meira né minna en 9
börn og þarf því að kaupa í
matinn fyrir 11 manns.
— Þetta er alveg ofboðslegt,
segir Jóhanna. Ég keypti
þorskflök fyrir rúmar sextíu
krónur í matinn í dag og
maður getur þá ímyndað sér
hvað þarf að borga fyrir ýsu-
flökin. Fískurinn var það al-
versta sem þeir gátu hækkað,
því hann notar maður á
hyerjum degi. Ég segi fyrir
mig, að ég kaupi fisk svo til
daglega nema á sunnudögum
og hef hingað til komizt af
með 30—35 krónur fyrir þorsk-'
flökin en rúmar 40 krónur fyr-
ir ýsuflökin.
Maður neyðist vist til að
kaupa þetta fram að næstu
kosningum, en þá þarf líka
að sýna þeim svart á hvítu
hvað húsmæðrum finnst um
þessar sífellu verðhækkanir,
segir Jóhanna að endingu.
Maður veit hverja á
ekki að kjósa
Ása Björnsdóttir, Hjallavegi
5 hefur fjóra fullorðna í heim-
ili og segist hafa þurft að
kaupa ýsuflakið á 18 — 20
krónur í máltíðina. Nú kostar
þetta um 30 krónur.
—r Mér finnst þetta alveg
hróplegt hjá ríkisstjórninni,
segir Ása. Allar fisktegund-
irnar hafa hækkað, meira að
segja saltfiskurinn er kominn
upp í 36 krónur kílóið. Þetta
er svei mér ekkert smáræði og
svo hækkaði smjörlíkið líka,
svo ég velti þvl nú fyrir mér,
hvort það borgi sig yfirlejtt
að baka lengur.
Ja, það er ábyggilegt að
maður veit hverja maður á
ekki að kjósa í borgarstjórn-
arkosningunum í vor!
Hrísgrjón eins og
Indverjar
Margrét Blöndal, Heiðar-
gerði 86 hefur sex manna
heimili, og segir:
— Þetta er alveg hræðilegt,
fiskurinn kostar orðið fyrir
okkur yfir 40 krónur, það fer
að borga sig að kaupa held-
ur kjöt — ef það hækkar þá
ekki líka á næstunni!
Annars er held ég bezt að
hætta alveg að. borða kjöt og
f fisk og halla sér bara að hrís-
grjónum eins og Indverjar.
Þau fara að verða það ódýr-
asta, sem hægt er að fá í mat-
inn.
I
I
I
!
I
Brýn fsörf er á fiskverndarráðstöf-
unurn fyrir utan 12 mílna mörkin
Sverrir endurkjör-
inn formaður SFR
■ Aðalfundur Starfsmannafélags ríkisstofnana var hald-
inn sl. þriðjudagskvöld og fór kjör stjómar og fulltrúa
á þing BSRB fram á fundinum, en auk þess voru greidd
atkvœði utan kjörstaðar. Voru atkvæðin talin í gær.
Sverrir Júlíusson Raforkumálaskrifstofunni var endur-
k'jörinn formaður félagsins með 269 atkvæðum en Guðjón
B. Baldvinsson fékk 158 atkvæði.
Auk Sverris voru eftirtaldir
menn kjörnir í stjórn félagsins:
Páll Bergþórsson Veðurstofúnni
með 258 atkvæðum. Sigurður Ó.
Helgason Tollstjóraskrifstofunni
með 254 atkvæðum, Helgi Ei-
ríksson Skipaútgerðinni með 250
atkvæðum, Einar Ólafsson ÁT-
VR með 248 atkvæðum, Gunn-
ar Bjarnason Þjóðleikhúsinu
með 246 atkvæðum og Hermann
Jónsson Verðlagsskrifstofunni
með 242 atkvæðum. Aðrir fram-
bjóðendur til stjórnarkjörs fengu !
156-180 atkvæði.
Framboðslisti Al-
þýðubandalagsins
á Reyðarfirði
Llsti Alþýðubandalagsins á
Reyðarfirði hefur verið lagður
fram og er þanníg skipaður:
1. Ásgeir Metúsalemsson sjó-
maður.
2. Helgi Seljan skólastjóri.
3. Ástríður Beek húsfreyja.
4. Hreinn Pétursson stýrimaður
5. Árnar Andrésson verka-
maður.
6. Björn Jónsson verzlunar-
maður.
7. Marteinn Elíasson iðnaðar-
maður,
8. Sverrir Benediktsson verka-
maður.
9. Pétur Jónasson vélgæzlu-
maður.
10. Þórey Bjömsdóttir húsfreyja
11. Óskar Ágústsson trésmiður.
12. Þórir Gíslason verkamaður.
13. Jón Kr. Guðjónsson bóndi.
14. Jóhann Bjömsson bóndi.
Sverrir Júlíusson
í varastjórn voru kjörin: Ei-
ríkur Pálsson Skattstofu Reykja-
neskjördæmis með 267 atkvæð-
um, Hulda Einarsdóttir þvotta-
húsi Landspítalans með 255 at-
kvæðum og Þorvaldur Steina-
son Kópavogshæli með 240 at-
krvæðum. Aðrir frambjóðendur
hlutu 167 atkvæði.
Þá voru kjörnir 19 fulltrúar
á þing BSRB og fengu þeir sem
kjörnir voru 283-246 atkvæði.
Aðrir frambjóðendur fengu frá
154 til 183 atkvæði.
Fundurinn samþykkti ýmsar
ályktanir, m.a. var samþykkt
eftirfarandi tillaga:
„Aðalfundur SFR 1966 skorar
á fulltrúa BSRB að beita sér m.
a. fyrir eftirfarandi við endur-
skoðun á lögum um samnings-
rétt opinberra starfsmanna,' sem
nú stendur yfir:
Framhald á 3. síðu.
Listi Alþýðubanda-
lagsins Sauðárkréki
í umræðum á fundi samein-
aðs þings í gær ræddi Lúðvík
Jósepsson það sem eitt stærsta
mál íslendinga nú að undirbúa
og gera ráðstafanir til þess að
settar yrðu reglur um fiskveið-
ar á vissum svæðum utan 12
mílna markanna við ísland, og
nefndi til Norðausturland,
nokkra staði á Norðurlandi og
Vestfirði.
Bretar veiða mikið magn á
þessum svæðum og fiskifræð-
ingar hafa nýverið birt skýrsl-
ur sem sýna að þrír af hverj-
um fjórum þorskum sem Bretar
veiða á þessum slóðum er smá-
Eitt málanna á fundi samein-
aðs þings í gær var þingsálykt-
unartillaga frá Alþýðuflokks-
þingmönnum um að láta athuga
hvort rétt þætti að lækka kosn-
ingaaldur í 18 ár.
Framsögumaður allsherjar-
nefndar, Sigurður Ingimundar-
son, skýrði frá að samkomulag
hefði orðið í nefndinni um að
leggja til að tillagan yrði sam-
þykkt nokkuð breytt, þannig að
ekki væri miðað einvörðungu
við þennan aldur. Hefðu öll
æskulýðssambönd stjórnmála-
flokkanna mælt með lækkun
kosningaaldursins.
fiskur, undir 70 cm lengd. Af
heildarveiði fslendinga sjálfra
á þorski er aðcins einn af
hverjum fimm smáfiskur og
þætti það hvergi hættulegt
hlutfall. Hins vegar getur hin
gífurlega smáfiskveiði útlend-
inga stefnt fiskstofninum við ís-
land í hættu.
Umræðurnar fóru fram um
þingsályktunartillögu nokkurra
Framsóknarmanna um Skipun 7
manna nefndar sem vinna ætti
ásamt ríkisstjórninni að öflun
viðurkenningar á rétti íslend-
inga til landgrunnsins.
Þeir ráðherranna sem við-
Tillagan eins og nefndin legg-
ur til að hún verði er þannig:
„Alþingi ályktar að gerð skuli
athugun á því, hvort ekki sé
tímabært og æskilegt að lækka
kosningaaldur, og að jafnframt
verði endurskoðaðar aðrar ald-
urstakmarkanir laga á réttind-
um unga fólksins.
Athugun þessa skal gera sjö
manna nefnd, kosin af Alþingi.
Nefndin kýs sé'r sjálf formann.
Nefndin skal skila áliti svo
snemma, að unnt verði aðleggja
niðurstöður hennar fyrir reglu-
legt Alþingi 1966.“
staddir voru, Emil utanríkisráð-
herra og Bjarni forsætisráð-
herra, töluðu báðir og töldu
ríkisstjórnina alla af vilja gerða
að vinna að þessum málum.
Hins vegar kom fram í ræðum
þeirra að lítið sem ekkert hef-
ur verið gert í málinu á undan-
förnum árum í því skyni að afla
viðurkenningar á rétti íslend-
inga og kynna málstað okkar í
landhelgismálinu. Og ekki töldu
þeir þörf að skipa nú þingnefnd
í málið, heldur væri vænlegra
að láta sérfræðinga taka að
vinna að málinu og síðar gæti
ríkisstjórnin leitað til þingflokk-
anna og Alþingis. Allir sem
töluðu lögðu áherzlu á að skapa
þyrfti víðtæka samstöðu um að-
gerðir í landhelgismálinu.
Brýnasta verkefnið nú
Lúðvík lagði áherzlu á, að
það sem nú lægi mest á væri’
að koma á veiðireglum á þeim
svæðum utan 12 mílna mark-
anna sem nefnd voru, með
hvaða veiðarfærum mætti veiða
þar og á hvaða tíma. Nauðsyn
væri að koma á skynsamlegum
reglum um þessi atriði svo að
útlendingar spilltu ekki fisk-
stofnum íslendinga. ,
Minnti Lúðvík á að nú þegar
hefur fengizt allvíðtæk alþjóð-
leg viðurkenning á rétti strand-
ríkis sem á alla afkomu sína
undir fiskveiðum til að setja
reglur um veiðitakmarkanir út-
lendinga eða forréttindaaðstöðu
fyrir innlend veiðiskip, og þá
viðurkenningu yrðum við að
hagnýta okkur sem bezt.
Úrðu flutningsmaður og aðr-
ir þeir sem töluðu ásáttir um
að málið yrði rætt rækilega og
athugað í utanríkismálanefnd
þegar á þessu þingi, og þá m. a.
tillagan um nefndarskipun og
hvert verksvið nefndarinnar
ætti að vera.
Húsnæðismála■
stjórn kosin
til 4 úra
Á furidi sameinaðs þings í gær
fór fram kosning fimm manna
og jafnmargra varamanna íhús-
næðismálastjórn, til fjögurra
ára, frá 4. apríl 1966 til jafn-
lengdar 1970.
Þessir hlutu kosningu: Aðal-
menn: Guðmundur Vigfússon,
Hannes Pálsson, Óskar Hall-
grímsson, Ragnar Lárusson, Þor-
valdur Garðar Kristjánsson.
Varamenn: Sigurður Sig-
mundsson, Þráinn Valdimarsson,
Sigurður Guðmundsson skrif-
stofustjóri, Árni Grétar Finns-
son, Gunnar Helgason.
Framboðslisti Alþýðubanda-
lagsins á Sauðárkróki við bæjar-
st.jórnarkosning:arnar þar í vor
hefur verið laeður fram og er
hann skipaður eftirtöldum
mönnum, en bæjarfulltrúar á
Sauðárkróki eru 7 að tölu:
1. Hulda Sigurbjömsdóttir
gjaldkeri Verkakvennafélags-
ins Öldunnar.
2. Hreinn Sigurðsson fram-
kvæmdiastjóri.
3. Hólmfríður Jónasdóttir for-
maður Verkakvennafélagsins
Öldunnar.
4. Haukur Brynjólfsson iðn-
nemi,
5. Guðmundur Jónasson vélstj.
6. Lára Angantýsdóttir húsfrú
7. Jónas Þór Pálsson málari
8. Jón Snædal Jónssón tré-
smiður. /
9 Jón H Friðriksson trésmiður
10. Hjaltj Guðmundsson tré-
smiður.
11. Haukur Pálsson mjólkur-
fræðingur.
12 Fjóla Ágústsdóttir húsjrú.
13- Valgarð Björnsson vélavið-
gerðarmaður.
14. Skafti Magnússon iðnrek-
. andi.
Hátíðahöldin í
Kopavogi í dag
Hátíðahöld sumardagsins
fyrsta í Kópavogi hefjast kl. 1
e.h. með skrúðgöngu barna und-
ir stjórn skáta frá Kársnesskóla
og Digranesskóla og leika lúðra-
sveitir fyrir göngunum. Gengið
verður að Kópavogssjcóla, en
þar hefst útisamkoma kl. 1.30.
Óli Kr. Jónsson, kennari, setur
samkomuna en Frímann Jónas-
son, fyrrv/ skólastjóri, flytur
ávarp. Jón Gunnlaugsson
skemmtir, og lúðrasveitir leika
sumarlög. Klukkan 2 hefjast
drengjahlaup og víðavangshlaup
UMF Breiðabliks við Kópavogs-
skóla, og tvær barnaskemmtan-
ir verða í Félagsheimilinu kl. 2
og kl. 3.30 e.h. Allur ágóði af
merkjasölu dagsins rennur ti’
sumardvalarheimilis bárna í
Kópavogi.
Kosningaaidurinn iækkaður?