Þjóðviljinn - 05.05.1966, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 05.05.1966, Blaðsíða 1
■Fimmtudagur 5. maí 1966 — 31. árgangur — 99. tölublað. ( UnniB er að lausn læknadeilunnar Samningaviðræður standa nú yfir milli fulltrúa frá Læknafélagi Reykjavíkur og fulltrúa ■ ríkisvaldsins um lausn kjaradeilu lækna við Landspítalann og Rannsókn- arstofu Háskóians en þær lágu niðri síðara hluta apríl. Sl. mánudag ræddi heil- brigðismálaráðherra við stjórnir Læknafélags Reykja- víkur og Læknafélags íslands um málið og síðan voru tekn- ar upp að nýju samninga- viðræður. Sagði Baldur Möll- pr ráðuneytisstjóri í viðtali við Þjóðviljann í gær að nú yrði reynt til þrautar að finna lausn á deilunni en það gæti tekið nokkra daga ennþá. ÞINGFLOKKUR ALÞYÐUBANDALAGSINS FER ÞESS Á LEIT AÐ Bandaríski fáninn brenndur í Stokkhólmi Um allan hcim mótuðust hátíðahöldin og kröfugö ngurnar 1. maí af stríðinu.-í Victnam, kröfunni um að því verði hætt og andúð í garð Bandaríkjann a fyrir útrýmingarhemað þeirra. Hvergi setti Vi- etnam meiri svip á 1. maí en í Svíþjóð, þar sem fundahöld undir forystu sósíaldcmókrata voru fyrst og fremst tileinkuð Vietnam og kröfunni um frið. Eftir fundinn í Stokkhólmi, þar sem Tor- sten Nilsson utanríkisráðherra var aðalræðumaður fór hópur ungs fólks fylktu liði til bandaríska sendiráðsins í borginni og brenndi þar fána Bandaríkjanna. Gerbreytt lögum um kísilgúrverksmiðju ■ Frumvarp ríkisstjórnarinnar um kisilgúrverksmiðju við Mývatn, gerbreyting á gildandi lögum um það efni, var samþykkt í gær sem lög frá Alþingi. Rökstudd dagskrá Framsóknarmanna í fjárhagsnefnd neðri deildar um að vísa málinu frá, var felld með atkvæðum st'jórnarflokk- anng og fjögurra Framsóknarþingmanna, en með frávís- un greiddu atkvæði Alþýðubandalágsmenn allir og af- gangurinn af Framsókn í neðri deild. Var dagskráin felld með 25 atkvæðum gegn 15. □ Framsóknarþingmennimir sem greiddu atkvæði með stjórn- arflokkunum og gegn tillögu síns eigin flokks voru Bjöm Pálsson, Jón Skaftason, Ingvar Gíslason og Hjörtur Eldjám. □ Urðu miklar umræður við 2. umræðu málsins í gær og töluðu Jónas Rafnar, Lúðvík Jósepsson, Skúli Guðmundsson, Magnús Jónsson, Hjörtur Eld- iám. Einar Olceirsson. Biarni Benediktsson og Jóhann Haf- stein. Við 3. umræðu kvaddi enginn sér hljóðs og var fmm- varpið samþykkt með 25 atkv. gegn 15. Lúðvík Jósepsson hafði fram- sögu sem 1. minnihluti fjár- hagsnefndar, og lagði til aðfrum- varþið yrði fellt. 1 nefndaráliti sínu segir Lúð- vík: MeS frv. þessu fer ríkisstjórn- in fram á mjög víðtækar heim- ildir sér til handa til samninga við erlendan auðhring um bygg- ingu og rekstur kísilgúrverk- Framhald á 8. síðu. <S>- Forsetinn, Ásgeir Ásgeirsson, hefur neitað að verða við þeirri beiðni ■ Á þriðjudag gengu Lúðvík Jósepsson og Gils Guðmundsson á fund forseta íslands, herra Ás- geirs Ásgeirssonar að Bessastöðum. Fóru þeir þess á leit fyrir hönd þingflokks Al- þýðubandalagsins að forsetinn b’eitti forsetavaldi sínu til þess að láta fram fara þjóðaratkvæða- greiðslu um nýlega samþykkt lög um lagagildi samnings ríkisstjórnarinnar við Swiss Alumini- um um alúmínbræðslu í Straumsvík, þannig að þau verði ekki látin öðlast gildi nema meirihluti þeirra sem þátt taka í atkvæðagreiðslunni hafi samþykkt lögin. Afdrifaríkt stórmál fyrir þjóðina ■ Á það var sérstaklega bent af fulltrúum Al- þýðubandalagsins í viðtalinu við forsetann að á- stæður til þess að fram á þettg væri farið væru þær, að hér er um stórmál að ræða sem hlyti að verða afdrifaríkt fyrir þjóðina; að fram hefði kom- ið á alþingi að 27 af 60__alþingismönnum hafi greitt því atkvæði að efnt yrði 'til slíkrar þjóðaratkvæða- greiðslu um málið og að naumur meirihluti hafi verið fyrir því á Alþingi að samþykkja lögin. Teldi Alþýðubandalagið mjög miklar líkur til þess ~að meirihluti þjóðarinnar sé andstæður lagasetning- unni. Einnig var bent á að nú sé óvenju auðvelt að koma við þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem fyrir dyrum séu almennar kosningar í landinu, eftir þrjár vikur í kaupstöðum og kauptúnum og mán- uði síðar í öðrum sveitarfélögum. Þannig þy.rfti atkvæðagreiðslan á engan hátt að fefja málið, sé meirihlutavilji með þjóðinni fyrir lagasetning- unni. i Af þessum ástæðum og ýmsum fleiri fóru þeir Lúðvík og Gils eindregið fram á að forseti íslands notfærði sér ákvæði stjórnarskrárinnar og stað- festi lögin ekki fyrr en atkvæðagreiðsla hefði far- ið fram og því aðeins að meirihluti þeirra sem þátt taka í atkvæðagreiðslunni samþykki lögin. Forseti ætlar að staðfesta lögin ■ Forseti íslands hefur svarað þessari beiðni og er svar hans á þá lund _að þar sem Alþingi hafi samþykkt frumvarp ríkisstjómarinnar, sjái hann ekki ás'fæðu 'til annars en staðfesta lögin þegar þau verði lögð fyrir hann. Framhald á 8. síðu. fslands- bankalöonn fró 1902 eru ejna fyrirmyndin! ★ I umræðunum um kísil- gúrmálið í neðri deild Alþingis j gær vefengdi Einar Olgeirsson lögmæti þess að ríkisstjóminni væri gefin heimild til að semja við tiltekin fyr- irtæki um skattgreiðslur til langs tíma og binda þannig hendur Alþingis og þjóðar. ★ Forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fullyrti að þetta væri lögum sam- kvæmt bindandi og við þvi mætti ekki hrófla með nýjum lagaákvæð- um nema bætur kæmu fyrir. Hafði hann fund- ið eitt fordæmi, í lög- unum um íslandsbanka frá 1902, þar sem Is- landsbanka- voru veitt viss skattfríðindi! ★ Einar kvað það rétt hjá Bjarna, að lögin um Is- landsbanka, sett meðan ísland var undir danskri stjóm, megi/ heita for- dæmi þess sem nú er verið að gera með alú- mín- og kísilgúrsamn- ingunum. ■ En hvorki þjóðin eða Alþingi muni Játa binda hendur sínar í 45 ár eins og ætlunin sé með alúmínsamningn- um, þar sem hinu er- lenda auðfélagi er m.a. ákveðin viss skattpró- senta, fram til ársins 2014. ★ Benti Einar á hvernig ó- svífinn þingmeirihluti gæti misnotað slík á- kvæði £ þágu vissra at- vinnurekendahópa og fyrirtækja, jafnt inn- lendra sem erlendra. Og samkvæmt ummælum Sigurðar Bjamasonar í ■ útvarpsumræðunum virt- ist ljóst að ætlunin væri að kalla fleiri auðhringi • inn í landið, það gætu, t.d. orðið Standard Oil, Findus og Unilever, samkvæmt þeim atvinnu- greinum sem Sigurður hefði minnzt á.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.