Þjóðviljinn - 05.05.1966, Qupperneq 8
3 SlöA ’ÞJÓÐVmJINN — Fimmtudagur 5. mai 1966
Lett rennur
Ghdoó
FÆST í KAUPFÉLÖGUM OG
VERZLUNUM UM LAND ALLT
Blómaskóli Michelsens
Garð-rósastiklar, nýkomnir.
Amerísk-rauð — Hollenzk-bleik — Frönsk-gul.
Pantið fljótt — Sendi í póstkröfu.
Blómstrandi pottarósir og margt annað fallegt.
Blómaskóli Michelsens
Hveragerði.
Frá sjúkrasamlagi
Kópavogs
Guðmundur Eyjólfsson læknir hættir störf-
um fyrir samlagið, frá og með 1. maí 1966.
Samlagsméðlimir hans eru vinsamlega beðnir að
komá með skírteinin á skrifstofu sjúkrasamlags-
ins og velja annan lækni.
Sjúkrasamlag Kópavogs.
Æskan komin út
ISMIi
• Virðing við
þjóðsönginn
• Fbrvitinn skrifar:
„Þegar fundi verklýðsfélag-
anna lauk 1. maí var þjóðsöng-
ur íslands leikinn, en fundar-
menn stóðu kyrrir og karlmenn
tóku flestir ofan höfuðföt sín.
En mér þótti furðulegt að sjá
einn af yfirlögregluþjónum
borgarinnar hegða sér eins og
ekkert væri um að vera, hann
heilsaði þjóðsöngnum ckki,
heldur hélt áfram að masa
hlæjandi við félaga sinn. Eiga
yfirmenn lögreglunnar ekki að
vera öðrum fordæmi í prúð-
mannlegu hátterni og kunna
að sýna þjóðsöng Islendinga þá
virðingu sem ber?
Forvitinn.‘‘
*
Dagur Evrópu á vegum Evrópuráðs
• Fjóröa tölublað Æskunnar
á þessu ári er komið út og flyt-
ur að vanda fjölbreytt efni við
hæfi barna og unglinga. I
þessu tölublaði hefst ný mynda-
saga, sagan um Rasmus Kubb,
sem náð hefur miklum vinsæld-
um í Evrópu. Rasmus Kubbur
er bangsastrákur, og verða hann
og vinir hans vafalaust vinsæl-
ir hér sem annarstaðar. Mynd-
in er af forsíðu Æskunnar.
Glettan
Óskum að ráða símastúlku
á bæjarskrifstofurnar í Kópavogi. — Vélritunar-
kunnátta áskilin.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf. ■ sendist undirrituðum fyrir 15. maí
næstkomandi.
Bæjarstjórinn í Kópavogi.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu sam-
úð og vinarhug við fráfall og jarðarför
EINARS KRISTJÁNSSONAR, óperusöngvara
Martha Kristjánsson
Vala Kristjánsson
Brynja Kristjánsson.
• Kalli litli vildi ekki fara
út að leika sér. Þá sagði pabbi
honum að fara út að telja
pípuhatta, sem hann sæi, hann
skyldi fá krónu fyrir hvern
hatt.
Stuttu seinna kom Kalli
hlaupandi inn og sagði:
— Þetta verður dýrt fyrir
þig pabbi, það er að koma lík-
fylgd!
• Hannes eða
Jón?
• Vorið er komið, og grasið er
farið að grænka á Austurvelli
kringum Hannes Hafstein.
(Unnar Stefánsson í útvarps-
umræðunum í fyrrakvöld).
• Negrasálmar og
bjartsýni
• Gloria Davy syngur negra-
sálma — þeir eru enn á dag-
skrá og nú ekki hvað sízt í
sambandi við marga þekkta
þjóðlagasöngvara og söngva-
smiði, sem hafa sótt margt til
þeirra.
Þegar við heyrum að dag-
skrárliður heitir „byggðalýsing
Héðinsfjarðar" er- ekki undar-
legt að okkur komi það til
hugar, að slíkur þáttur ætti
betur heima í íslenzku sjón-
varpi — þótt ekki væri nema
í því formi að sýndar væru
ljósmyndir með erindi.
Ung skáldkona les upp Ijóð
sín. Eru það ekki í raun réttri
undur og stórmerki, að enn
skuli merm hflfa þá bjartsýni
til að bera að gefá út sitt
fyrsta Ijóðakver?
13.00 Eydís Eyþórsdóttir sér
um óskalagaþátt fyrir sjó-
menn.
15.00 Miðdegisútvarp. Sigurveig
Hjaltested syngur. Guðmund-
ur Jónsson og Karlakór R-
víkur syngja. Hljómsveit R.
• 1 dag er 5. maí, en þá er DAGUR EVRÖPU hátíðlegur haldinn
í þeim 18 ríkjum, scm standa að Evrópuráðinu í Strasbourg.
Starfsemi ráðsins er margþætt, t.d. eru í þessari viku haldnir
fundir ráðgjafarlþings Evrópuráðsins, þar sem U Þant, forstjóri
Sameinuðu þjóðanna, er meðal ræðumanna. Eitt af þeim málum
sem Evrópuráðið hefur lagt mesta áherzlu á, eru mannréttindi.
Hefur ráðið m.a. staðið fyrir gerð Mannréttindasáttmála Evrópu,
sem Island heíur fullgilt. 1 samræmi við ákvæði þess sáttmála
starfa bæði mannréttindanefnd bg mannréttindadómstóll. Ný
bygging hefur nýlega verið reist fyrir þessar stofnanir skammt
frá aðalstöðvum Evrópuráðsins í Strasbourg. Myndín sýnir þetta
nýja mannréttindahús.
moll fyrir einleiksflaútu eftir
C. Ph. E. Bach. b) Sónata
fyrir flautu og píanó eftir
Hindemith. c) Sex lög fyrir
flautu og píanó eftir Ch.
Kæchlin. d) Melódía úr Or-
feus Pg Evrídike, eftir Gluck.
20.30 Byggðarlýsing Héðins-
fjarðar. Sigurbjörn Stefáne-
son flytur erindi frá Guð-
laugi Sigurðssyni á Siglufirði.
20.50 Gloria Davy syngur
negrasálma.
21.10 Svava Jakobsdóttir spjall-
ar um brúðkaupssiði í Sví-
þjóð.
21.30 Korisert í c-moll fyrír
tvö píanó og hljómsveit eft-
ir J. S. Bach. Paul Badura*
Skoda og J. Demus leika méð
hljómsveit Ríkisóperunnar í
Vínarborg; Kurt Redel stj.
21.45 Nína Björk Amadóttir
les úr ljóöabók sinni, ásamt
með Arnari Jónssyni.
22.15 Jarðarför, smásaga eftir
Guðmund Friðjónsson; síðari
hluti. Sigurður Sigurmundss.
bóndi í Hvítárholti les.
22.40 Djassþáttur Ólafur Stép-
hensen flytur.
23.10 Bridgeþáttur. Hallur Sí-
monarson flybur.
Nína li.jörlí,.
Kubelik leikur forleik að
Töfrastyttunni cftir Weber.
Þættir úr Orfeus í undir-
heimum eftir Offenbach; A.
Faris stjórnar.
16.30 Síðdegisútvarp: C. Byrd
leikur á gítar, kór og hljóm-
sveit M. Millers, Ferrante bg
Teicher J. Andrews, Dic Van
Dyke B. Kalle o.fl. syngja
og leika.
17.40 Þingfréttir.
18.00 Or söngleikjum og kvik-
myndum: The Sound of Mus-
ic eftir Rodger og Hammer-
stein.
20.00 Daglegt mál.
20.05 Tónleikar í útvarpssal.
Simon Hunt leikur á flautu
og Halldór Haraldsson á pí-
arió: a) Þáttur úr sónötu í a-
Lögin um kísilgúrverksmiðjnna
Framhald af 1. síðu.
smiðju við Mývatn. Auðhringur
sá, sem hér er um að ræða, er
Johns-Manville Corporation, New
York. Hann mun vera stærsti
framleiðandi og söluaðili að kís-
ilgúr í heiminum og hefur m.a.
í sínum höndum 65% af sölu á
öllum kísilgúr í Vestur-Evrópu.
Samkvæmt frv. er ráðgert, að
ríkisstjórnin fái heimild til að
semja við þennan eða annan er-
lendan aðila um þátttöku í fram-
leiðslufélagi, sem eigi og reki
kísilgúrverksmiðjuna. Hinn er-
lendi aðili á að eiga minnst 39%
hlutafjárins, en gæti eins vei
eignazt 49%, ef þátttaka sveitar-
félaganna á Norðurlandi yrði lít-
il í félaginu. Þá er ráðgert, að
hinn erlendi aðili eigi einn sölu-
félagið, sem á að hafa einkarétt
til sölu á allri framleiðslu verk-
smiðjunnar.
Samkvæmt upplýsingum, sem
gefnar hafa verið, er talið, að
verksmiðjan muni kosta 145—150
miljónir króna, án tolla og að-
flutningsgjalda. Hlutaféð er á-
ætlað 60 milj. króna.
1 frv. er ráðgert, að bæði fé-
lögin, framleiðslufélagið og sölu-
félagið, greiði skatta samkvæmt
sérstökum samningum, en verði
ekki skattlögð eins og önnur fyr-
irtæki í landinu. Samið yrði um
óbreytanlega skatta í 20 ár, sem
yrði samníngstímirin við hinn er-
lenda aðila.
Ég tel óeðlilegt, að ríkisstjórn-
inni séu veittar slíkar óúkveðn-
ar og víðtækar heimildir til
samninga við erlenda aðila sem
ráðgert er í frumvarpinu.
Ég tel, að alla slíka samninga-
gerð eigi að lcggja fyrir Alþingi,
svo að ekki fari á milli mála,
um hvað er samið og hver vilji
Alþingis er.
1 giidandi lögum um kísilgúr-
verksmiðju við Mývatn eru
nægjanleg ákvæði til fram-
kvæmda í málinu að mínum
dómi og ekki ástæða til breyt-
inga fyrr en formlega samnings-
drög liggja fyrir um, að annað
sé nauðsynlegt en rúmast innan
þeirra laga.
Ég legg því til, að frumv.
verði fellt.
Sendisveinn
óskast til starfa strax. — Upplýsingar í
síma 17500.
Krafan um þjóðaratkvæðagreiðslu
Framhald af 1, síðu. -
Barst Þjóðviljanum í gær eftirfarandi fréttatilkynning
frá skrifstofu forseta íslands:
Lúðvík Jósepsson, formaður þingflokks Alþýðubanda-
lagsins og Gils Guðmundsson, alþingismaður, gengu á
fund forseta íslands í gær og fóru þess á leit f.h. þingflokks
Alþýðubandalagsins, að forseti beitti forsetavaldi sínu til
þess að láta fram fara þjóðaratkvæðagreiðslu um nýsam-
þykkt lög um lagagildi álsamnings ríkisstjórnarinnar við
Swiss Aluminium, þannig að þau verði ekki látin öðlast
gildi nema meiri hluti þeirra sem þátt taka í atkvæðagreiðsl-
unni hafi samþykkt lögin.
Málaleitan þessari hefir forseti svarað á þá leið, að Al-
þingi hafi eins og kunnugt er þegar samþykkt frumyarpið
og hann sjái ekki ástæðu til annars en að staðfesta lögin
þegar þau verða lögð fyrir hann.
Reykjavík, 4. maí 1966.
Skrifstofa forseta íslands.
Aðulfundur
Pöntunarfélags Náttúrulaskningafélags ReyVjavík-
ur verður haldinn í húsi Guðspékifélagsins, Ing-
ólfsstræti 22 fimmtudaginn 12. maí n.k. kl. 8.30.
— Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjómin.
i
j.