Þjóðviljinn - 24.05.1966, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ,ÞJÖÐVTLJINN — Þriðjudagur 24. maí 1966.
llMVIIIIIIIIIIIIIIRfllfllllllllMllilllllllHli
6, þetta er indælt stríð"
frumsýnmg í næstu viku
í byrjun júní frumsýnir
Þjóðleikhúsið söngleikinn „Ó,
þetta er indælt stríð“ og
verður þetta síðasta frumsýn-
ingin á þessu leikári hjá
Þjóðleikhúsinu. Mikið hefur
verið rætt og ritað um þenn-
an söngleik, sem hefur hlot-
ið miklar vinsældir, hvar sem
hann hefur verið sýndur.
Höfundar leiksins eru Char-
les Chilton og Joan Little-
wood og var leikurinn frum-
sýndur hjá Theater Work-
shop í London í marz 1963.
Leikstjóri var Joan Little-
-wood, leikhússtjóri í fyrr-
nefndu leiljhúsi. en um starf
hennar og list hafa verið
skrifaðar margar greinar og
bækur, því að segja má að
hún hafi valdið gjörbyltingu
í ensku leikhúsi. Sýning Joan
Littlewood á „Ó, þetta er
indælt stríð“. vakti óhemju
mikla athygli og var sýnt um
langan tíma við metaðsókn.
Farið var með leikinn til
Parísar og hann sýndur hjá
„Leikhúsi þjóðanna" og hlaut
leikurinn heiðursverðlaun það
leikárið í París.
Leikritið „Ó, þetta er in-
dælt stríð“, gerist í fyr'ri
heimsstyrjöldinni og fjallar
um helztu atriðin í þeirri
styrjöld. Allir þeir söngvar,
sem urðu vinsælir í styrjöld-
inni 1914—1918 eru sungnir
í leiknum og þar er brugðið
upp mjög snjallri mynd af
því helzta, sem gerðist í
heimsmálunum á þessum ár-
um bæði í gleði og sorg.
Leikstjóri er Kevin Palmer
frá London, en hann vann í
Theater Workshop leikhúsinu
með Joan Littlewood um
langan tima, og er vel kunn-
ur starfi hennar. Einnig hef-
ur Kevin Palmer starfað um
langan tíma í Stratford upon
Avon leikhúsinu. Palmer fór
til Canada og setti þar á svið
„Ó, þetta er indælt stríð“ og
hlaut verðlaun fyrir sviðsetn-
ingu á þessum leik.
Palmer er fæddur í Ástral-
íu, er efnafræðingur að
mennt. Hóf síðar nám í leik-
list og hefur starfað að því
hugðarefni sínu síðan.
Búningar og leiktjöld eru
teiknuð af Una Collins, en
sú hin sama gerði leikmynda-
og búningateikningar fýrir
sýninguna í upphafi.
Leikendur eru 17, þar af
eru 12 karlmenn og 5 konur.
• I
Myndin er af leikstjóran-
um, Kevin Palmer.
Skíðagöngumót
á Hellisheiði
Göngumót á skíðum var
haldið fyrir skömmu í dalnum
milli Skarðsmýrarfjalls og
Flengingarbrekku á Hellisheiði.
Átta keppendur tóku þátt í
móti þessu frá Reykjavík,
Siglufirði og Fljótum. Gengið
var 7 km í hring í dalbotninum.
Mótstjóri var Gísli Kristjáns-
son, IR, og yfirtímavörður var
Gunnar Hjaltason, Hafnarfirði.
?lokkur (20 ára og eldri):
1. Haraldur Pálsson, ÍR 21.11.
2. Páll Guðbjömsson (Skíða-
sveit Fljótamanna 21.56
3. Hermann Guðbjörnss. 22.44.
4. Júlíus Amarson, lR 23.21
5. Björn Olsen, Sigluf. 26.07
6. -Þorbergur Eysteinss. ÍR. 27.16
TJnglingafl.: (sama vegal.).
1. Eyþór Haraldsson, ÍR 21.47
Margir áhorfendur voru við
mót þetta, sem var mjög
skemmtilegt og fór í alla staði
hið bezta fram. Göngumóthef-
ur ekki verið haldið sunnan-
lands síðan 1958, en vonandi
verður mót þetta upphaf þess,
að göngumót munu aftur tíðk-
ast sunnanlands.
r
Fjórðungsmót Norðlendinga / glímu
Þátttakendur S fjórðungsglímumóti Norðlendinga. í fremri röð keppendur í drengjaflokki, frá
vinstri: Halldór Guðmundsson, Haraldur Jónsson, Áskell Jónsson, Már Vcstmann. Aftari röð frá
vinstri: Einar Benediktsson, Sigurður Sigurðsson, Þóroddur Jóhannsson, Valgeir Stefánsson og
Hvað
gerir Geir?
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, lét kosningarnar í
Reykjavik snúast um persónu
sína; hann kvaðst vera að
spyrja borgarbúa hvort þeir
treystu sér. Á kosningadag-
inn var reynt að láta bæinn
be’ra svip hans, danskir tertu-
botnar og bandarískt dósa-
vatn var látið víkja úr búð-
argluggum fyrir ásjónu borg-
arstjórans, og kjörorðið á
forsíðu Morgunblaðsins hljóð-
aði svo: „Kjósum fyrir
Reykjavík. Kjósum GeirHall-
grímsson“, og að sjálfsögðu
gleymdist ekki hin virðulega
mynd leiðtogans.
Geir hefur nú fengið svar
við spurningu sinni. Þeir sem
lýstu fylgi við hann reyndust
vera um 2.000 færri en hinir
sem lýstu andstöðu sinni.
Taki Geir kosningabaráttu
sína alvarlega ber honum tvi-
mælalaust að ségja af sér.
E-ins-
dæmi
Hins vegar kann það að
vera álitamál hvort Reykvík-
ingar hafi tekið hinn ygstur-
heimska manndýrkunaráróð-
ur alvarlega. Að minnsta
kosti virðast ýmsir Sjálfstæð-
Ísflokksmenn hafa haft ann-
an mann í huga en Geir Hall-
grímsson er þeir gengu að
kjörborðinu. í neðsta sæti
, listans, því þrítugasta, —
hinu svokallaða heiðprssæti
— var Bjarni Benediktsson
forsætisráðherra, formaður
Sjálfstæðisflokksins. Þó nokk-
ur brögð voru að því að nafn
hans væri strikað út af list-
anum, og mun það algert
einsdæmi í kosningum hér-
lendis að hróflað sé við
neðstu sætum lista.
Það kann því að vera deilu-
mál í Sjálfstæðisflokknum
hvor beri ábyrgð á ósigrinum,
Geir eða Bjarni. Var þó eng-
inn hörgull á deilumálum
fyrir í þeim herbúðum. —
AustrL
Hraunbúar í Hafnarfirði efna
fil móts um hvítasunnuna
Skátafélagið Hraunbúar hef-
ur lengi haft þann sið aðgang-
ast fyrir vormóti fyrir skátaum
hvítasunnuhelgína. Nú munu
Hraunbúar halda 26. vormótsitt
í Krýsuvík.
Mótið véröur sett á föstu-
dagskvöldið fyrir hvítasunnuog
því verður slitið á annan í
hvítasunnu. Mörg skátafélög
munu taka þátt í mótinu og er
ekki að efa, að myndarleg
tjaldborg mun skarta á grund-
inni ofan við Krýsuvíkurkirkj-
una undir Bæjarfellinu I fyrra'
tóku um 800 skátar þátt í vor-
mótinu, sem þá 'var haldið á
þessum sama stað.
Mótið verður með svipuðu
sniði og verið hefur. Á hvíta-
sunnudag verða guðþjónustur
um morguninn, en síðdegis
verður mótið opið fyrir gesti,
sem vilja heimsækja mótið og
sjá og kynna sér hvað þar er
um að vera.
Varðeldár verða bæði á laug-
ardags- og sunnudagskvöld, og
er varðeldurinn á sunnudags-
kvöldið opinn öllum almenn-
ingi. Varðeldamir verða í
skjóli Arnarfells.
Mótssöngur er þegar tilbú-
inn fyrir þetta mót og er bæði
lag og ljóð frumsamið af
Hraunbúum. Það er ekki að efa,
að fjölmargir skátar í nágrenni
Hafnarfjarðar munu nota sér
þetta tækifæri, en einmitt þetta
mót verður ágætur undirbún-
ingur fyrir landsmótið í sumar.
Mótsgjald er krónur 200,00 og
fyrir það fá þátttakendur móts-
merki, mótsblað, mjólk, kákó
og kex á kvöldin, auk þess
sem mótið sjálft og dagskrá
þess býður upp á.
Sætaferðir verða á mótið úr
Hafnarfirði á hvítasunnudag,
fyrir þá sem vilja heimsækja
mótið, bæði foreldrar skátanna
og aðra velunnara skátahreyf-
ingarinnar. Þau skátafélög, sem
hafa áhuga á að heimsækja
vormótið í Krýsuvík 1966, eru
beðin að hafa sem fyrst sam-
band við einhvem eftirtalinna
Hraunbúa, sem veita allar nán-
ari upplýsingar um mótið:
Hörður Zóphaníasson, Hval-
eyrarbraut 7, Hafnarfirði, sími:
50285, Albert Kristinsson, Sléttu-
hrauni 16, Hafnarfirði, sími:
50785, Þórarinn Guðnason,
Lækjargötu 16, Hafnarfirði,
sími: 51698, Rebekka Ámadótt-
ir, Brunnstíg 6, Hafnarf., simi
51035, Jón Aðalstejns.. Köldu-
kjnn 11, Hafnarf.. sími; 50706.
AUGL ÝSING
um aðalskoðun bifreiða í Hafnarfirði og
Gullbringu- og Kjósarsýslu 1966.
Skoðun fer fram sem hér segir;
Gerðahreppur:
Fimmtudagur 2. júní — Föstudagur 3. júní.
Skoðun fer fram við bamaskólann.
Miðneshreppur:
Mánudagur 6. júní — Þriðjudagur 7. júní.
Skoðun fer ffam við Miðnes h/f.
Njarðvíkur- og Hafnahreppur:
Miðvikudagur 8. júní. — Fimmtudagur 9. júní.
Skoðun fer fram við samkomuhúsið Stapa.
Vatnsleysusitrandarhreppur:
Föstudagur 10. júní.
Skoðun fer fram við frystihúsið.
Grindavíkurhreppur:
Mánudagur 13. júní. — Þriðjudagur 14. júní.
Skoðim fer fram við bamaskólann.
Seltjamameshreppur:
Miðvikudagur 15. júní. —
Fimmtudagur 16. júní.
Mosfells-, Kjalames- og Kjósarhreppur:
Mánudagur 20. júní. — Þriðjudagur 21. júní.
Miðvikudagur 22. júní. — Fimmtudagur 23. júní.
Skoðun fer fram við Hlégarð, Mosfellssveit.
Hafnarfjörður, Garða- og Bessastaða-
hreppur:
Föstudagur 24. júní ___________ G- 1— 250
Mánudagur 27. júní _______G- 251— 500
Þriðjudagur 28. júnj-----------G- 501— 750
Miðvikudagur 29. júní__________ G- 751—1000
Fimmtudagur 30. júní___________ G-1001—1250
Föstudagur 1. júlí ------------ G-1251—1500
Mánudagur 4. júlí ---,_________ G-1501—1750
Þriðjudagur 5. júlí ........... G-1751—2000
Miðvikudagur 6. júlí __________ G-2001—2250
Fimmtudagur 7. júlí __________ G-2251—2500
Föstudagur 8. júlí ............ G-2501—2750
Mánudagur 11. júlí ------------ G-2751—3000
Þriðjudagur 12. júlí ......... G-3001—3250
Miðvikudagur 13. júlí _________ G-3251—3500
Fimmtudagur 14. júlí .......... G-3501—3750
Föstudagur 15. júlí ........... G-3751—4000
Mánudagur 18. júlí ....... G-4001 og þar yfir.
Sikoðun fer fram við Ásbúð, Vesturgötu 4, Hafnar-
firði. Skoðað er frá kl. 9—12 og 13—60.30 (1—4,30
e.h.) á öllum áðumefndum skoðunarstöðum.
Skylt er að sýna ljósastillingarvottorð við
skoðun.
Gjöld af viðtækjum bifreiða skulu greidd við skoð-
un eða sýnd skilríki fyrir, að þau hafi áður verið
greidd.
Við skoðun ber að greiða bifreiðaskatt og sýna
skilríki fyrir því að lögboðin vátrygging fyrir
hverja bifreið sé í gildi og fullgild ökuskírteini
skulu lögð fram.
Vanræksla á að færa bifreið til skoðunar á áður
auglýstum tíma varðar ábyrgð skv. umferðarlögum
nr. 26 1958, og verður bifreiðin tekin úr umferð
hvar sem til hennar næst, ef vanrækt er að færá
hana til skoðunar.
Geti bifreiðaeigandi eða umráðamaður bifreiðar
ekki fært hana til skoðunar á áður auglýstum
tíma, ber honum að tilkynna það bréflega.
Athygli er vakin á þvi að umdæmismerki bif-
reiða skulu vera vel læsileg og er því þeim, er
þurfa að endumýja númeraspjöld bifreiða ráðlagt
að gera svo nú þegar.
Eigendur reiðhjóla með hjálparvél eru
sérstaklega áminntir um að færa reiðhjól
sín til skoðunar.
Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að
máli.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Sýslumaðurinn i Gullbringu- og
Kjósarsýslu, 18. maí 1966.
EINAR INGIMUNDARSON.
«