Þjóðviljinn - 11.06.1966, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 11.06.1966, Blaðsíða 1
Alþýðubandalagið í Reykjavík: Framhaldsstofnlundur haid- inn í Lidó á mánudagskvðld S ★ Framhaldsstofnfundur Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík verð- ur haldinn í veitingahúsinu Lidó n.k. mánudagskvöld kl. 8.30. Á fundinum verður kjör- ið fulltrúaráð og lokið öðr- um störfum stofnfundar. ★ Tiilaga stjórnar um fulltrúa- ráðið Iiggur frammi í skrif- stofu Alþýðubandalagsins í morgun, sunnudag, kl. 14—18. Þar verður á sama tíma tekið við öðrum tillögum frá fé- lagsmönnum. Á fundinum á mánudagskvöld mun Lúðvík Jósepsson alþing- ismaður ræða um stjórnmála- viðhorfið nú að afstöðnum kosningum til bæjar og sveitarstjórna. Alþýðubandalagsfólk er hvatt til að fjölmenna á framhalds- stofnfundinn og taka með sér nýja félaga, en innritun nýrra stofnfélaga fer fram á fund- inum. Unairnefndir Verkamannasambands íslands og Vinnuveitendasambandsins á fundinum í gær. — Frá vinstri: Eðvarð Sigurðsson, Björn Jónsison, Björgvin Sigurðsson og Gunnar Guðjónsson. — (Ljósmyndari Þjóðviljans, Ari Kárason, tók myndina). Árangurslaus fundur Verkamannasambandsins og vinnuveitenda % » Slitnað upp úr samninqum Umræðufundur og skemmt- un I Sigtúni á sunnuduginn □ Fundur undirnefnda frá framkvæmdanefnd Verkamannasambands íslands og frá vinnu- veitendasamtökunum, sem haldimn var í gær, varð algerlega ár^ngurslaus. □ Q Slitnaði þar með upp úr samningaumleitun- um sem fram hafa farið undanfarið milli þess- ara aðila, að minnsta kosti í bráð. Q Q Framkværhdanefnd Verkamannasambands ís- lands hélt fund í gær síðdegis í Lindarbæ, að lokmum hinum sameiginlega fundi undir- nefndanna, f Var þar ákveðið að boða alla stjórn Verka- mannasambandsins til fundar í Reykjavík í næstu viku vegna samningamálanna. í stjórn Verkamanmasambands íslands eru álls ellefu menn, víðsvegar að af landinu. ★ Samtök hernámsandstæðinga efna til umræðufundar í Sig- túni á morgun, sunnudag kl. 2 e.h. Þorlcifur Hauksson stúd. mag. hefur framsögu um menningarviku sem hald- in verður í haust á vcgum samtakanna. Þá verða rædd sjónvarps- og 'menningarmál. ★ A sunnudagskvöld efna sam- tökin til skcmmtunar í Sig- túni og hefst hún kl. 9. Þar flytur Sverrir Hólmarsson stúd. mag. ræðu og frumflutt- ur verður leikþátturinn „Leit- in“, eftir Bjarna Benediktsson frá Hofteigi. Leikstjóri vcrð- ur Bjarni Steingrímsson og leikendur Bryndís Schram, Jón Júlíusson og Karl Guð- mundsson. ★ Aðgöngumiðasala verður við innganginn og eru hernáms- andstæðingar hvattir til að mæta á skemmtunina. ★ Aliar nánari upþlýsingar eru gefnar á skrifstofu samták- anna í Mjóstræti 3, sími 24701. Hvernig lizf s]ómönnum á? NORWICH VANN Í.A. MEÐ 6:1 - SJÁ 3. SÍÐU Hefur síldurverðið lækkuð um krónur 4,15 hvert mál? □ Síðdegis í gærdag höfð- um við samband við fjóra síldarskipstjóra úti á miðun- um og voru þrír þeirra stadd- ir á bátum sínum norður undir Jan Mayen. □ Allir-vöktu þessir skip- stjórar á sér alþjóðarathygli í fyrrasumar fyrir rösklega forystu við uppVeisn síldar- flotans gegn' þáverandi síld- a’rverði og stefndi þá allur flotinn fyrir norðan og aust- an til hafnar." □ Þjóðviljanum þótti rétt að forvitnast um hug þeirra til nýkomins síldarverðs og spurðum við um álit þeirra og fara svör þeirra hér á eftir: Verður uppreisn aftur? Við náðum tali af Haraldi Ág- ústssyni, skipstj. á Reykjaborg- inni norður undir Jan Mayen síðdegis í gær. Var allt gott að frétta af skipshöfninni um borð og leið öllum vel. — Hvemig lízt þér á si'ldar- verðið í sumar? Ég tíi ákaflega óánægður með þetta síldarverð og held því fram, að það hafj lækkað um ríflega fjórar krónur á máli síðan í fyrrasumar. Ég hef átt tal við marga síld- arsjómenn hérna í kringum mig og allsstaðar heyrist mér vera Framhald á 7. síðu Sýning í Ásmundarsal Þessi mosaikmynd er eitt af þeim verkum sem sýnd eru i Ásmundarsa] í dag og á morg- un. Verkin eru öll eftir börn sem hafa verið á námskeiðum Myndlistarskólans í Reykjavik í vetur og eru þau á aldrinum 7—12 ára. Nánar er sagt frá sýningunni á bak- siðu. — (Ljósm. Þjóð- viljinn A.K.). AAikil óánægja meðal strætisvagnastj óra: 26 vagnstjórar hafahætthjá SVR frá áramótum Mikil óánægja hcfur ríkt að undanfömu meðal vagn- stjóra Strætisvagna Reykja- i víkur með kaup og kjör og hafa þeir átt bæði 5 málaferl- um og Iöngu samningaþófi við borgina um þessi mál og litla leiðréttingu fengið. Hafa 26 vagnstjórar hætt hjá fyrir- tækinu frá áramótum og nú vantar a.m.k. 8-9 menn til þess að hægt sé að gefa vagn- stjórunum umsamin fri. Nýlega er fallinn dómur hjá borgardómaraembættinu í Reykjavík í máli sem strætis- vagnastjórar hafa átt í við borgina. Upphaf þess máls er það, að þegar Gunnar Thbr- oddsen var enn borgarstjóri gaf hann strætisvagnastjórum skrifleg loforð fyrir hönd borgarinnar um það að þeir skyldu í launum fylgja eftir lögreglumönnum borgarinnar og ekki sæta lakari kjörum en þeir. Síðan kjaradómur ' kom tii sögunnar hafa strætisvagna- stjórar hins vegar verið tveim flokkum lægri í launum en lögreglumenn hjá borginni yfirleitt eru og hefur það ver- ið byggt á því að lögreglu- menn sem lokið hafa viðbót- arnámskeiði hafa verið sett- ir f hærri launaflokk. Þessu vildu strætisvagnastjórar ekki una Pg höfðuðu mál á hendur Reykjavfkurborg á grundvelli loforðs fyrrverandi borgar- stjóra. Fyrir nokkrum dögum féll dómur í þessu máli og þykir strætisvagnastjórum hann all- undarlegur. 1 forsendum dómsins er viðurkennt að þeir eigi rétt á sömu kjörum og lögreglumenn á grundvelli fyrrgreinds samnings en hins- vegar var borginni ekki talið skylt ag greiða vagnstjórun- um sömu laun og lögreglu- mönnum sem lokið hefðu við- bótamámskeiði. Við þetta þykir strætis- vagnastjórum hart að búa og skírskota til þess að þeir þurfi eins og lögreglumennirnir að leggja á sig meira nám í sam- bandi við starf sitt en al- mennir bifreiðastjórar sem með réttu megi leggja að jöfnu við viðbótamámskeið lögregluþjónanna. Var sam- þykkt á fjöimennum fundi vagnstjóra í fyrrinótt að á- frýja málinu til hæstaréttar. Þá hafa strætisvagnastjór- ar átt að undanfömu í léngu samningaþófi við borgina út af frídögum. Gerðu þeir kröfu til fjögurra frídaga í mánuði og fór það mái fyrir sátta'- semjara og náðust þeir samn- ingar, að þar sem ekki væri unnt vegna manneklu að gefa strætisvagnastjórunum svo marga frídaga skyldu þeir fá greiddar 1420 krónur á mánuði fyrir tvo frídaga sem þeir yrðu að vinna. Við þetta samkomulag var þó ekki Iengi staðið og er nú búið að lækka þessa auka- greiðslu niður í 1103 krónur á mánuði með því að beita allskonar útreikningum. Þetta frídagamál var einn- ig til umræðu á fundinum í fyrrinótt og var þar safrr þykkt .að veita Strætisvögnum Reykjavíkur frest fram yfir sumarfrí. eða þar til í haust, til þess að ráða þá níu menn sem fyrirtækið vantar til þess að * unnt sé að standa við það að gefa vagnstjómn- úm þessa umsömdu fjóra frí- daga í mánuði.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.