Þjóðviljinn - 11.06.1966, Side 2
2 SlÐA — ÞJÓÐVTUINN — Laugardagur 11. júní 1966.
ída B. Cuðnadóttir
Minning
Þegar sú ■ sorgarírétt barst
okkur til eyrna þann 7. júní
■að ída Guðnadóttir væri
dáin setti margan hljóðan —
ekki aðeins nánustu ástvini
hennar, heldur fjölmennan
frændgarð, kunningja og vini.
Þó að ída hefði legig þungt
h^ldin um alllanga hrið grun-
aði engan að dauðinn myndi
taka völdin, andlát hennar kom
öllum að óvörum, við stóðum
miklum og óvæntum harmi
lostin. Það er að sjálfsögðu ekk-
ert nýtt er ung og ágæt kona
hnígur í valinn langt fyrir ald-
ur fram, og þó alltaf jafn ó-
bærilegt, óskiljanlegt og sárt.
ída B. Guðnadóttir verður
borin til moldar í dag, aðeins
þrjátíu og þriggja ára að aldri.
Hún fæddist í ' Borgarfirði
eystra I. júní 1933, dóttir dug-
andi og merkra hjóna í hinni
alkúnnu austfirzku sveit, en
varð átta mánaða að aldri kjör-
----------------------------------«>
Reknir úr fangelsi
Klefadyrum var . hrint opn-
um og vörðurinn hrópaði:
„Hamrock, Wealkie og Roach
eiga að koma út“.
„Hvað nú?“
„Yfirvöld skipaskurðarsvæð-
isins í Panama krefjast þess,
að þið séuð látnir lausir. Þið
eigið að fara aftur til ykkar
herdeildar.“
Mennirnir þrír tóku föggur
sínar og fylgdu verðinum. En
þeir neituðu að yfirgefa fang-
elsið. „Þið hafið engan rétt til
að láta okkur lausa“, hrópuðu
þeir. „Við höfum verið dæmd-
ir, og í steininum viljum við
vera“.
Það er ekki á hverjum degi
sem menn krefjast /fangelsis-
vistar sjálfum sér til handa.
En þessir þrír menn höfðugóð-
ar og gildar ástæður til þess.
Það átti nefnilega að senda þá
til Suður-Vietnam og þeir voru
ekki ýkja hrifnir af tilhugsun-
inni. Einn morguninn réðust
þeir á skrifstofustúlku í banda-
ríska sendiráðinu, pyðilögðu
hárgreiðslu hennar með öllu,
rændu hana fimmtán dölum og
löbbuðu sig svo burt, en þó
það rólega, að lögreglan næði
strax í þá. Þeir voru dæmdir
í sex mánaða farígelsi. Og það
er einkar slpljanlegt að þeir
vilji heldur dúsa í steininum
en myrða saklausa bændur og
börn þeirra í Víetnam og týna
kannski engu fyrir nema líf-
inu. — En hernaðaryfirvöldin
bandarísku eru sem sagt áöðru
máli og mbð það voru þeirfé-
lagar „reknir úr fangelsinu“.
dóttir móðurbróður síns Guðna
Ámasonar og Rósu Ingimars-
dóttur konu hans; þau bjuggu
fyrst á Akureyri, síðar á Siglu-
firði um hríð, en fluttust til
ReykjavíkUr og hafa dvalið
þar síðan. Það mun ekki of-
mælt ag ída hafi verið sann-
ur sólargeisli á heimili hinna
ágætu hjóna, og hún endurgalt
jafnan í ríkum mæli mikla um-
hyggju þeirra og ást. Nú eru
ljós hinna öldruðu hjóna slokn-
uð og sár harmur að þeim
kveðinn, en hins.má minnast
er Stefán G. segir í eftirmæl-
um um unga ónefnda konu,' að
„helft vorrar sálar er minn-
ingar manns, og margoft sú
göfugri og dýrri“.
Þó ag fda væri ekki lang-
skólagengin sem kallað e.r hlaut
hún-góða menntun, og það var
á Laugum, skólasetri Þingey-
inga að hún kynntist fyrst
Braga Eggértssyni frá Laxár-
dal í Þistilfirði; kornung'að ár-
um felldu þau hugi saman. Þau
Bragi giftust þann 27. desem-
ber árið 1952, og brúðkaup
þeirra geymi ég j föstu minni;
þar var mikið fjölmenni í
þröngum húsakynnum, glaumur
og gleði. Bragi var þá fátækur
iðnnemi og kjörin smá hin
fyrstu ár, en sameinuð atorka,
verklagni og vilji hjóhanna
ungu fékk brátt unnið bug á
öllum erfiðleikum, þau sköp-
uðu vonum bráðar fallegt heim-
ili, þurftu ekki að kvíða kom-
andi degi. Þau eignuðust tvö
Eng-
Nýr
landfræðingur
Jónas Kristjánsson, blaða-
máður Vísis, virðist vera
maður fróðleiksfús, og er það
lofsverður eiginleiki. Hitt er
öllu lakara að svo er að sjá
sem hann sé einn af þeim
mönnum sem telja sig hafa
höndlað allan sannleika um
leið og þeir hafa nasað af
einhverju viðfangsefni; hafa
alvizkugreinar hans um hin
fjölbreytilegustu efni birzt í
Vísi undanfarin ár. Nýlega
hefur þessi atorkusami blaða-
maður til dæmis lokið byrj-
endanámi í larídafræði við
Háskóla íslands, og sjá: hann
er á svipstundu orðinn þess
umkominn að taka aðra menn
ög kunnáttuminni á kné sér
og veita þeim uppfræðslu.
f grein sem virtist í Vísi
fyrir nokkrum dögum og
vitnað er til með velþóknun
í Morgunblaðþpu í gær kemst
Jónas að þeirri niðurstöðu að
þrír ísléndingar sem önnuð-
ust fyrir nokkrum árum út-
gáfu á landabréfabók fyrir
Ríkisútgáfu námsbóka séu
raunar kínakommar og hafi
unnið verk sín í því skyni að
hjálpa hinum gulu og ská-
eygðu kommúnistum að
leggja undir sig lönd. Hafi
þeir á uppdráttum sínum af-
hent Kínaveldi landssvæði
sem réttilega heyri Indlandi
til, og í annan stað hafi þeir
„gert enn betur og úrskurð-
að að eyjan Formósa eða
Taivan, þar sem Chang Kai
Shek hefur völdin skuli til-
heyra Kína meginlandsins.“
Hinir uppvísu umboðsmenn
Pekingstjórnarinnar, / sem
þannig haga sér, eru Helgi
Elíasson fræðslumálastjóri,
Einar 'Magnússon menrita-
skólarektor og Ágúst Böðv-
arsson landmælingamaður;
má af því marka að hinni al-
kunnu flærð Kínverja eru lít-
il takmörk sett.
Skorti
spásagnaranda
Landamæraþræta Kínverja
og Indverja er ekki eins ein-
föld og Jónas Kristjánsson
vill vera láta. Hin umdeildu
svæði eru talin heyra til
Kína í opinberri kortabók,
Survey - of India, sem sjálf
Indlandsstjórn gaf út 1917;
sama er að segja um kort
það sem fylgdi hinni heims-
frægu alfræðibók Encyclo-
pædia Britannica 1929; enn-
fremur í Oxford Advanced
Atlas (Bartholemew) 1940;
sömuleiðis í útgáfunni 1942 á
Philips Atlas, svo að nokkur
dæmi séu nefnd. Hinir lærð-
ustu landfræðingar á Vestpr-
löndum höfðu komizt að
sömu niðurstöðu um. landa-
mærin og Kínastjórn nú, og
niðurstöður þeirra fóru að
sjálfsögðu inn í námskorta-
bækur víða um lönd, þár á ‘
meðal trúlega einhverjar
kortabækur sem íslenzku þre-
menningarnir hafa stuðzt við.
Það var í rauninni ekki fyrr
en síðári hluta árs 1962, þeg-
ar átök hófust á landamær-
unum að frumkvæði Ind-
verja, að umheimurinn áttaði
sig á því að þarna væri um
deilumál að ræða. En þá var
raunar búið að prenta þessa
íslenzku kortabók, svo að
helzt væri að áfellast höf-
unda hennar fyrir skort á
spásagnaranda.
mn agreinmgur
Enn furðulegri eru þó að-
finnslur Jónasar Kristjáns-
^u/iar út af því að Taivari
skuli vera talin hluti af
Kínaveldi. Ekki er vitað að
um þá landfræðilegu stað-
reynd sé nokkur ágreiningur
í veröldinni. Maó Tsetung og
Sjang Kæsék eru algerlega
sammála um víðáttu ríkisins;
ennfremur þau ríki sem við-
urkenna stjórnir annarshvors
þeirra. Á vettvangi Samein-
uðu þjóðanna er ‘stjórn
Sjangs Kæséks \talin fara
með umboð fyrir Kínaveldi
allt. Að vísu hafa heyrzt
raddir um það að rétt væri
að stofna tvö kínversk ríki,
annað á-meginlandinu hitt á
Taivan, og hafa mælzt. jafn
illa fyrir á báðum stö^unum;
en er hinum mikla lahdfræð-
ingi Vísis virkilega alvara með
það að kortagerðarmenn eigi
að festa þvílíkar'hugmyndir á
blað í stað veruleikans sjálfs?
Vön-
andi eldki
í þessu sambandi rifjast
það upp að áður hafa komið
fram fróðlegar aðfinnslur við
Landabréfabók ríkisútgáf-
unnar. 1963 sneri sendiráð
Vestur-Þýzkalands sér til
fræðslumálastjóra og kvart-
aði undan því að landamæri
Þýzkalands væru sýnd eins
og þau eru nú og hafa verið
síðan 1945. Lét sendiráðið
fylgja kort með hinum
„réttu“ landamærum, það er
að segja landamærunum eins
og þau voru 1937, í valdatíð
Hitlers. Samkvæmt því korti
var Þýzkaland talið eiga til-
kall til verulegs hluta Pól-
lands og hluta af Sovétríkj-
unum, en kröfugerð um það
efn\ er ein helzta undirrót
vígbúnaðar og ótrygg. á-
stands í Evrópu. Svo un^Jar-
lega brá við að Helgi Elías-
son fræðslumálastjóri tók að
sér að dreifa þessu landa-
kröfukorti Vestur-Þjóðverja
til kennara sem eins- konar
„leiðréttingu“. Má hinn sjálf-
skipaði landfræðingur Vísis ef
til vill eiga von á hliðstæðri
fyrirgreiðslu? — Austri.
börn og hvort öðru efnilegra:
Rósu Guðnýju þrettán ára og
Jón Eggert ellefu ára að aldri.
Sambúð þeirra var til sanrirar
fyrirmyndar að því ég veit bezt,
þar ríkti gagnkvæm ást og að-
dáun til hinztu stundar.
ída var vel gefin, lagleg, ein-
örg og frjálslynd í skoðunum,
mjög geðþekk í viðmóti og
traustur vinur vina sinna; í ná-
vist hennar var gott að una. Þó
að hún hafi eflaust ekki geng-
ið heil til skógar frá því hún
fæddi bömin sín tvö unni hún
sér fárrar1 hvíldar, hún gegndi
heimilisstörfum sínum sem
bezt varð á kosið, en vann þó
mikið úti. Hún var mikilhæf
og eftirsótt skrifstofustúlka, en
mest starfaði hún að barna-
gæzlu bæði innanbæjar og ut-
an, og náði þar miklum árangri.
Þeir sem gerst friega þekkja
hafa sagt mér að hún hafi ver-
ið til þess kjörin að veita for-
stöðu stóru bamaheimili, en um
þau mál er því miður of seint
að ræða.
Þau fda og Bragi voru tíðir
, gestir á heimili okkar hjóna
og færðu jafnan með sér birtu
og yl, og á heimili þeirra var
alltaf gott að koma. Við þökk-
um þeim margar ánægjulegar
samverustundir, við samhryggj-
umst Braga, bömuiri hans og
foreldrum ídu á þessari sorg-
arstundu. Og sérstaklega þökkum
við þér fda mín þann skilning
»og umönnun sem þú sýndir
börnum okkar bæði fyrr og
síðar. Þessi fáu og fátæklegu
orð verða að nægja; ég kveð þig
að lokum með orðum lista-
skáldsins góða:
„Vonarstjarna
vandamanna
hvarf í dauðadjúp,
en drottinn ræður“.
Ásgeir Hjartarson.
Tilboði tekið í
annan áfanga
Langholtsskóla
Á fyrsta fundi nýkjörins borg-
arráða á þriðjudag voru m.a. lögð
fram tilboð, sem borizt höfðu í
annan áfanga Langholtsskóla.
Alls bárust sex tilboð í verkið.
Lægst' tilboð borst frá Sigurgeir
Gíslasyni o.fl. a ðfjárh. 9.155.700
kr. Annað lægsta tilboðið var
frá Ármannsfelli hf. 10.900.000
kr., Brú hf. bauð 11.900.000 kr.
í verkið, Einar Ágústsson bygg-
ingameistari 12.275.000 kr., Helgi
Kristjánsson 13.339.009 °2 Böðv-
ar Bjamason 13.450.000 kr.
Lægstbjóðandi óskaði eftir því
að losna frá tilboði sínu vegna
reikningsskekkju sem hann taldi
að orðið hefði og féllst stjórn
Innkaupastastofnunar Reykjavík-
uiborgar á þau tilmæli og lagði
jafnframt til við borgarráð að
tekið yrði tilboði Ármannsfells
hf. Samþykkti borgarráð það.
Byégingardeild borgarinnar á-
ætlaði kostnaðarverð verksins
11.950.000 kr. —
Orlofsheimili
Húsmæðraskólans að Laugarvatni
starfar á tímabilinu 24. júní til 1. sept. n.k. Tekið
verður á móti orlofsgestum á eftirtöldum tímum:
1. hópur frá 24. júní tl 30. júní. ,
2. hópur frá 1. júlí til 7. júlí.
3. hópur frá 8. júlí til 14. júlí.
4. hópur frá 15. júlí til 21. júlí.
5. hópur frá 22. júlí til 28. júlí.
6. hópur frá 29. júlí til 4. ágúst.
7. hópur frá 5. ágúst til 11. ágúst.
8. hópur frá 12. ágúst til 14. ágúst. (3.dagar)
9. hópur frá 20. ágúst til 26. ágúst.
10. hópur frá 27. ágúst til 31. ágúst (5 dagar).
Allar upplýsingar gefur Gerður H. Jóhannsdóttir,
sími 10 eða 23 Laugarvatni, og Ferðaskrifstofa
ZOEGA Hafnarstræti 5, Reykjavík, sími 11964
eða 21720. .
LAUS HVERFI
Blönduhlíð —■< Brúnjr — Seltjamarnes.
ÞJÓÐVILJINN — sími 17500.
Plaslmo
Plast
þakrennur og
niðurfalíspípur
fyrirliggjandi
PLASTMO
Ryðgar ekki
þolir seltu og sót
þarf aldrei að móla
MARS TRADIN6 C0HF
KLAPPARSTÍG 20 SÍM! 17373
vonvnÉu
TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIRf
LINDARGÖTU 9 • REYKJAVÍK • SIMI 22122 _ 21260
I