Þjóðviljinn - 11.06.1966, Page 3
rjaugarðagtir W. fttfíf I9G6 — PJÖDVII.JINX — SfÐA 3
Stjórnarliðar hertóku Hue
Ky var fengið alræðisvald
SAIGON 10/6 — Sérstakt lögreglulið herforingjastjórnar-
innar í Saigon tók í dag öll völd í vígi Búddatrúarmanna,
Hue, í sínar hendur, vék lögreglu borgarinnar frá störfum
og lýsti neyðarástandi til morguns. Leiðtogi Búddatrúar-
manna, Tri Quang, hefur verið fluttur í sjúkrahús eftir
44 stunda hungurverkfall gegn stuðningi Bandaríkja-
manna við stjóm Kys marskálks. Ky forsætisráðherra hef-
ur fengið alræðisvald í efnahagsmálum Suður-Vietnams
til þriggja mánaða.
Tólf flugvélar fluttu lögreglu-
lig þetta frá Saigon til Hue.
Um mið.ian dág réðust um 400.
lögreglumenn, vopnaðir táragasi
og kylfum á lögreglustöðina í
borginni. Tóku þeir allt umboð
af lögreglunni, sem hefur sýnt
andstöðu Búddatrúarmanna gegn
stjórninni fulla samúð og ekki
hafzt að er stúdentar í Hue réð-
ust á byggingar, þar sem banda-
rískar stofnanjr hafa aðsetur.
Ekki hafa borizt fréttir af því
að til vopnaðra átaka hafi kom
ið, né heldur af viðbrögðym
þeirra þúsunda stjómarhermanna
í norðurhéruðunum, sem að und-
anförnu hafa margir hv^rjir tek-
ig afstöðu meg Búddatrúarmönn-
um í átökunum.
Stúdentar hafa haft útvarps-
stöðina í Hue á valdi sínu, og
hefur stjórnin komið upp sér-
stakri leyniútvarpsstöð í borg-
inni til að láta til sín heyra,
og tilkynnti um hana neyðará-
stand og útgöngubann til mt>rg-
uns.
Leiðtogi hinnar stríðandi
Búddakirkju í norðurhéruðunum,
Thich Tri Quang, var fluttur á
sjúkrahús í dag eftir 44 stunda
hungurverkfall. Hann hefur lýst
því yfir, að hann muni svelta
si'g allt þar til Bandarikjastjórn
lætur af stuðningi við stjórn
Kys marskálks
í stæst- musteri Saígons hafa
átján núnkar hafið 48
klst. h verkfall gegn stjórn-
inni og segjast þeir vilja feta
í fótspor Tri Quangs.
Ky íorsætisráðherra hefur
fengið alræðisvald til næstu.
þriggja mánaða til að gefa út
hvaða lög sem honum sýrtist um
efnahagslegar ráðstafanir, skatta,
gjaldeyrismál — og á verkefni
hans. að verða Það, að stöðva
hina gífurlegu verðbólgu f land-
inu. Ky hótaði á sínum tíma
ag skjóta matvælakaupmenn í
Saigon ef hrísgrjón héldu áfram
að hækka í verði. -
í nótt sprengdu skæruliðar í
loft upp orkuver við Lai Thieu,
aðeins 25 km frá Saigon.
Fjöldi árekstra
Övenju mikið var um órekstra
í borginni í gær eða alls 13.
Ekki hlutust þó af þeim nein
alvarleg slys, en margir bílar
löskuðust meira, og minna.
Silfurlampinn |
afhentur n.k.
mánudagskvöld
Félag íslenzkra leikdómenda
hélt aðalfund föstudaginn in.
júní. Fráfarandi stjórn var end-
urkjörin, en hana skipa:' Sigurð-
ur A. Ríagnússon formaður, Ólaf-
ur Jónsson ritari og Gunnar
Bergmann gjaldkeri.
Að loknum aðalfundárstörfum
fór fram atkvæðagreiðsla um
Silfurlampann fyrir bezta leik á
liðnu leikári. Verður Silfurlamp-
inn afhentur í hófi í Þjóðleik-
húskjallaranum mánudaginn 13.
júní kl. 9 e.h. og úrslit at-
kvæðagreiðslunnar þá tilkynnt.
Hófið verður óformlegt, og eru
allir leikarar og leiklistarunnend-
ur hvattir til að taka þátt í því.
*
-
Frá verkfallinu — skip sem hefur verið lagt og kröfuspjald verka-
inanna: Bindum endi á 5G stunda vinnuviku.
Er verkfall farmanna að leysast?
Brézjnéf á kosningafuhdi:
Meírí sovézk að-
stoð við Vietnam
MOSKVU 10/6 — Aðalritari
Kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna, Leoníd Brézjnéf, hélt ræðu
j_..dag á kosningafundi í Moskyy.
Sagði hann m.a. að Sovétríkin
myndu halda áfram að auka
stuðning sinn víð Norður-Viet-
nam og að Þau myndu gera nýj-
ar ráðstafanir sem miðuðu að
þvi ag tryggja Vietnamþjóð sig-
ur i frelsisþaráttu sinni.
Brézjnéf veittist bæði að
bandarískri heimsvaldastefnu og
vesturþýzkri hernaðarstefnu, en
fréttaskýrendur segja, að orða-
lagið hefði ekki verið eins
harðneskjulegt og oft áður. —
Sagði hann, að ef Bandaríkja-
menn létu af árásarstríði sínu í
Vietnam og stigin yrðu skref til
tryggingar öryggis í Evrópu
myndu allar aðstæður í heim-
inum gjörbreytast.
Brézjnéf sagði að hernaðarút-
gjöld væru þungur baggi á Sov-
étríkjunum og vildu sovétmenn
ekkert frekar en losna við ein-
•hverjar þessara byrða, en að-
stæður hefðu enn ekki leyfl
það.
Aðalrilarinn lagði í ræðu sinni
sérstaka áherzlu á bætta sam-
búð við Frakkland, sem hann
taldi geta orðið grundvöll að
raunhæfum framförum að því
er varðar öryggj Evrópu og
samstarf Evrópuriljja.
Bakkað á dreng —
annar lenti íyrir
tveimur bílum
Tveir drengir urðu fyrir bif-
reiðum í gær, hlutu báðir meiðsl
og voru fluttir á Slysavarðstof-
una.
Fyrra slysið varð rétt eftir há-
degið á gatnamótum Laugavegs
og Snorrabrautar. Þar lenti Eric
Jensen Skúlagötu 55, þriggja ára
gamall, fyrir bíl, kastaðist til
baka og varð fyrir annarri bif-
reið sem kom á eftir.
Um sexleytið sat Jón G. Bald-
ursson Háteigsvegi 6, 4 ára, á
dyraþrepum verzlunarinnar Hag-
kaup við Miklatorg þegar þifreið
var skyndilega bakkað að tröpp-
unum og varð drengurinn fyrir
henni.
Gömul kona varð
fyrir reiðhjóli
Kona á níræðlsaldri, Arndís
Jónsdóttir, Njálsgötu 9, varð í
gærmoxgun fyrir reiðhjóli á
Laugavegi.Hún var flutt á Slysa-
varðstofuna en ekki er kunnugt
um hve mikil meiðsl hennar
reyndust.
Spænskir sjómenn hafa ein-
ir verri kjör en peir brezku
LONDQN 10/6 — Stjórn brezka sjómannasambandsins gaf
þær óvæntu upplýsingar í dag, að hún telji sig hafa fundið
lausn á vinnudeilu þeirri sem nú hefur staðið í £.6 daga.
Sjómenn %afa hingað til hvergi viljað hvika frá kröfum
sínum. Tíðindi þessi gerðust eftir að fulltrúi Br^’-n verk-
lýðssambandsins TUC ræddi við forystumenn sjc na —
en TUC hafði áður lýst því yfir að það styddi sjómenn
ekki í deilu þeirra. Má telja líklegt að stjórn Wilsons hafi
notað yfirráð sín yfir TUC til að knýja sjómenn til und-
anhalds. — Meðfylgjandi grein sesir lítillega frá forsend-
um vinnudeilunnar.
Á kaupbindingarstefna að vera
efnahagslegt lyf eða aðferð til
þess að jafna mikinn og óréttlát-
an tekjumismun?
Þessi spurning er mjög til um-
ræðu í brezkri verkalýðsstétt í
ljósi sjómannaverkfallsins, sem
nú hefur staðið £ nokkrar vikur.
Undirrætur verkfallsins eru
tvær: brezkir sjómenn hafa sult-
arlaun og enn eru í gildi fárán-
leg siglingalög frá 1894, en sam-
kvæmt þeim hafa útgerðar-
menn og skipstjórar óheyrilegan
rétt gagnvart áhöfninni.
Stíflugarðar brcsta.
„Brezkir sjómenn hafa verri
laun en nokkrir sjómenn í Evr-
ópu, að Spánverjum undan\
skildum“. Þetta eru ummæli
Roland Wickendens, sem er í
hópi skipaeigenda, en hann er að
vísu „svarti sauðurinn" í þeim
hopi, þar serri fylirtæki hans
Townsend Ferries hefur alltaf
greitt hæstu laun.
Wickenden var gegn andstöðu
skipaeigenda við kröfum verk-
fallsmanna.
„Ef við göngrum að kröfum
þeirra mun það kosta okkur
14.000 pund á ári — en verkfallið
kostaði okkur sömu upphæð á
einni viku“.
En styrkasta stoð skipaeigenda
var Wilson forsætisráðherra. Að
ganga að kröfum sjómanna þýð-
ii að:
„Stíflur þær scm við höfum
reist með verð- og kaupbindingu
munu gjörsamlega bresta,‘‘ sagði
forsætisráðherrann, þegar verk-
fallið hófst og nokkru síðar lýsti
hann því yfir að landið væri í
umsátursástandi
Kröfur sjómanna.
Náttúrlega líta kröfur sjó-
rrtanna um 17% hækkun út fyr-
ir að vera óhæfilegar.
En ástæða þeirra er sú, að
brezkir sjómenn þurfa nú að
'vinna 56 stundir á viku Íyrií’ 60
pund á mánuði.
— Það eru 7.200.00 ísl. krónur.
Kröfur sjómanna eru settar
fram sem kröfur um styttan
vinnutíma. Þeir krefjast þess að
Framhald á 7. siðu.
Tímarit Kommúnistaflokks Kína
. f *
Gagnbyltingarhætta
er enn fyrír hendi
Heimsókn Norwich Citv:
Akranes skorti úthald - tapaði 6:1
FEKING 10/6. I forystugrein i
tímariti Kínverska kommúnista.
Lokið er þingi
haffræðinge
MOSKVU 9/6 — Lokig er í
Moskvu tíu daga alþjóðlegu
þingi haffræðinga frá 57 lönd-
um. Fjörlegar umræður á þing-
inu eru taldar munu skapa
grundvöll fyrir víðtæku sam-
starfj um hafrannsóknir.
Sovézki vísindamaðurinn A.
Vinogradof sagði á blaðamanna-
fundi, að allmörg ríki muni nú
taka upp samstarf um kprtlagn-
ingu vissra svæða Indlandshafs.
Deilur urðu stundum all-
hvassar á þinginu ,— og þá
einkum milli sovézkra og banda-
rískra um> kenninguna um hreyf-
ingar meáinlanda, en þá kenn-
ingu töldu sovézkir méstu firru.
Um 2000 manns sátú þingið.
flokksins, Rauði faninn, er prent-
uð er upp í öllum helztu dag-
blöðum i dag, er því haldið fram
að hætta á gagnbyltingu sé fyrir
Tiendi í Kína.
Segir í greininni að ef ekki
verði í tíma tekið fyrir þróun
borgaralegra hugmynda, þá geti
komið til andbyltingar og blóðs-
úthellinga. Þjóðin verði að vera
á verði gegn öflum svipuðum
þeim og gerðu uppreisn í Ung-
verjalandi 1956. Borgarastéttin sé
enn svarinn andstæðingur rikj-
andi skipulags og haldi fast við
afstöðu sína og geti hvenær sem
er látið til sín taká.
Tímaritið segir að borgaraleg
öfl uta'n flokksins geti fengið að
skipta um skoðun í friði, ef þau
geri ekkert það sem skaða megi
valda, en það sé ekki hægt að
fara með lempni að borgaraleg-
um öflum innan flokksins, því
að dulbúin hætta sé langsamlega
geigvænlegust af öllum hættum.
B Þótt gestimir byr.juöu með
liörkusókn, sem Skagamienji
hristu af sér, var fyrri hálfleik-
urinn heldur skemmtilcgur, og
frammistaða Akraness góö, þótt
þeir ættu í vök að vcrjast, og
náðu því að skora eitt mark eins
og atvinnumennirnir, og var
það Ríkarður sem það gerði á
síðastu mínútu hálfleiksins.
Þegar í upphafi leiksins málti
sjá að þetta enska lið ætlaði- að
knýja fram mörk, svo var sókn-
in áköf í byrjun leiksins, og
máttu Skagamenn hafa sig allá
við og verjast, en smátt og
smátt fóru þeir að ná, betri tök-
um á leik sínum, spyrnurnar að
verða ákveðnari, og samleikur-
inn nákvæmari, og þeir fóru
vig og við að sækja og var Þá
töluverð hætta við 'mark gest-
anna. Fyrsta verulega hættan
vig mark Akraness var þegar
miðherjinn Davis skallar í slána,
eftir að Einar markmaður hafði
kastað sér til að verja sendingu
fyrir, en' heppnin er með honum
hann fær knöttir.n úr slánni i
fangið þar sem hann liggur á
jörðinni. Þrem mínútum síðar
skora Bretarnir fyrsta mark
sitt og var það Bryceland :
ágæta sendingu frá Punton
Þegar líða tók á hálfleikinn
áttu Skagamenn áhlaup í vax-
andi mæli og enduðu með hörku-
! skotum — eitt sinn varði mark-
maður en í annað sinn fór
I knötturinn í hliðarnetið.
Á síðustu mínútu hálfleiksins
sækja Akranesmenn hart og
fylgir Ríkarður fast eftir, og
endar sóknin með því að Rík-
arður spyrnir ag marki en það
er hálfvarið og knötturinn
hrekku.r í áttina til hans aftur
þar sem hann kastar sér fram
og nær að koma knettinum inn-
an á stöngina og þaðan í mark-
ið. Var þessu mfárki Ríkarðs
íagnað óskaplega.
Síðari hálfleikur var ekki að
sama skapi skemmtiiegur, var
sem úthald Skagamanna væri
meira og minna horfið, því þeir
náðu ekki svipuðum tökum á
leiknum og í fyrri hálfleiknum.
Hinsvegar voru það gestirnir sem
nú áttu ekki í neinum vandræð-
um með mótherjana og gátu
nánast gert þag sem þeim sýnd-
ist, og er á leikinn leið virtist
sem þeim væri orðið sama um
gang leiksins þannig að þeir
voru meira að leika sér.
Það beið heldur ekki lengi að
Norwich ógnaði og það hvað
eftir annað, og þrátt fyrir það
að Jón Leós ver á línu, — að
vísu skot frá samherja! — og
markmaður ver í horn mjög
bættulegt skot 1 byrjun leiks.
Stutt var liðig á leikinn þegar
Curran skorar eftir að Einar
hafði hálfvarið hörkusköt frá
Davis Nokkru síðar einlék
Brycland fram og endar það
nieð markskoti af vítateig sem
Einar fékk ekkert við ráðið 3:1.
Rélt fyrr miðjan hálfleikinn
tekur Anderson aukaspyrnu
hægra megin framarlega og
sendir yfir til Davis sem skall-
ar sérlega skemmtilega, óverj-
andi fyrir Einar 4:1. Litlu síð-
ar sækja Bretarnir fast, og
halda knettinum við vítateig
Skagamanna, og á 22. mín. er
Brycland á markteig frír og
frjáls og fær knöttinn þangað
og er ekkí í vandræðum að
skpra 5:1.
Skagamenn eiga nú við og við
sóknarlotur sem þó voru ekki
sérlega ógnandi, þó mátti ekki
miklu muna er Guðjón einlék
fram, og.inná vítateignn en skot-
ið fór langt fyrir ofan.
Á 43. mín. er útspyrna frá
marki en bakvörðurinn dró
heldur stutt og náði Breti knett-
inum rétt við vítateiginn og
æddi með hann inn að mark-
nu og lék á bakvörðinn og þá
var ekki að sökum að spyrja,
sjötta markig varð staðreynd, og
var það Brycland sem 'skoraði,
og þannig endaði leikurinn 6:1,
sem er síst of lítið eftir tæki-
færum og leik
Þetta er ka Hð er vel leik-
andi og leiknir menn með mikla
kunnáttu, sem við hér kom-
umst ekki í neinn samjöfnúð
við. á neinu sviði, og þó éru
þetta engir galdramenn á sviði
knattspymunnar. Hvergi var
veila í liðinu og erfitt að gera
upp á milli manna.
Akranesliðig getur verið án-
ægt með fyrri hálflpk sinn
þrátt fyrir ýmsar veilur, og má
vera að hinn gljúpi og leiðin-
legi völlur eigi einhverja sök
á sumu af því. Aðalgallar liðs-
ins voru hve lengi þeir héldu
knettinum og komust því oft-
ast í þröng ag gefa hann og
misstu hann alltof oft. Sumpart
stafaði þetta af því, ag „næsti
maður“ var ekki á hreyfinsu
eða tiltækur.
Ennfremur voru sendingar
þeirra of ónákvæmar baeði um
stefnu og eins hve fastar þær
máttu vera.
Þrátt fyrir þetta- verður þetta
unga ákagalig ekkert lamb að
leika sér við í sumar ef þeir,
halda áfram á þessari braut og
sníða þessa augljósu galla af.
Milli Matthíasar og Guðjóns
var oft skemmtileg samvinna,
og það var greinilegt að allir
höfðu þeir hug á samvinnunni,
þótt þeir hefðu ekki mikil tök
á henni i þessum leik. Ríkarð-
ur var oft nokkuð góður bindi-
liður í framlípunni en þó gerðu
ungu mennirnir of mikið af því
ag leita Ríkarðs og senda hon-
um knöttinn hvernig sem á stóð.
Vömin: Með Jón Leós sem
langbezta mann, sem stöðvaði
fjölda áhlaupa. og Boga Sig-
urðs f>P .TAViarvnocecn
Verður gaman ag iylgjast með
þessu liðí Skagamanna í sumar.
Dómari var Hannes Sigurðs-
son og dæmdi vel. — Frimana,