Þjóðviljinn - 11.06.1966, Qupperneq 10
ABaMundur Sambantlsins hófsf! gœr:
Umsetning SÍS jókst um 518,4 milj.
en kaupfélagsreksturinn mun lakari
DIODVIUINN
Laugardagur XI. júní 1966 — 31. árgangur — 128. tölublað.
■ Umsetning Sambands íslenzkra samvinnufélaga á síðasta ári var meiri en nokkru
sinni fyrr, einkum vegna útflutnings. Heildarumsetning í öllum aðaldeildum og smærri
starfsgreinum SÍS á árinu varð alls 2.540,2 milj. og hafði aukizt um 518,4 milj. frá ár-
inu áður eða um 25,64%. Mest varð aukningin í sjávarafurðadeild, 307,4 mil'j. Innflutn-
ingsdeild hafði aukið umsetningu sína um 160,6 miljónir og véladeild um 45 milj. en
umsetning búvörudeildar hafði hinsvegar minnkað um 28,9 milj. króna.
Frá þessu skýrði forstjóri
Sambandsins, Erlendur Einars-
son, á 64. aðalfundi SÍS í Bif-
röst í gær. Þegar fundurinn var
settur þar í gærmorgun voru
flestallir þeira 105 fulltrúa frá
56 kaupféíögum sem rétt eiga til
fundarsetu maettir, en auk þeirra
sitja fundinn sambandsstjómar-
menn, forstjóri, framkvæmda-
stjórar, endurskoðendur og all-
margir starfsmenn.
Hækkun á rekstrarkostnaði
Hér fara á eftir nokkur fleiri
atriði úr ræðu forstjórans.
Unesco á fslandi:
Formannafurdin-
um lýkur í dag
Eins og frá hefur verið skýrt,
stendur yfir þessa dagana í
Reykjavík formannafundur nor-
rænu Unesco-nefndanna. Fram
að þessu hafa formennirnir rætt
meðal annars almenn menning-
armál með hliðsjón af samtökun-
um, svo og fjármál, en fjárlög
Unesco fyrir næstu tvö ár nema
62 miljónum dala. Þá hafa for-
menn rætt málefni vangefinna,
en Norðurlönd hafa innan
Unesco unnið brautryðjendastarf
í málefnum slíks fólks.
Formannafundinum lýkur vænt-
anlega í dag, laugardag. Fulltrú-
ar ’á fundinum eru fyrir Dan-
mörk frk. Agnete Vöhtz, formað-
ur, rektor Preben Kirkegárd,
prófessor dr. phil Mogens Phil,
afdelingschef V Hammer, og
fuldmægtig Birgit Nielsen. Fyrir
Finnland prófessor Illmo Hela,
formaður, prófessor Arvi Kivi-
maa, prófessor Paavo Kastari,
magister' Kalervo Siikala ■ og
magister Kalevi Sorsa (ritari
nefndarinnar). Fyrir Noreg há-
skólabókavörður dr. phil.‘ Harald
Tveterás, programmredaktör A.
Akkenhaug og generalsekretær
Ger Gisvold, S. undervisnings-
rád Ragnar Lund, formaður, pró-
fessor Hilding Eek, prófessor
Torbjörn Caspersson, byráddirpk-
tör Olof G. Tandberg og general-
sekreterare Göran Hasselmark.
Fyrir Island sitja þennan fund
Gylfi Þ. Gíslason, Þorleifúr Thor-
lacius, deildarstjóri utanríkis-
ráðuneytisins, og Þórður Einars-
son, j-plltrúi.
Rúmlega helmingur af heild-
arumsetningunni árið 1965 er
sala á búvörum og sjávarafurð-
um, eða samtals kr. 1.309 milj.
Vörur þessar selur Sambandið
gegn umboðslaunum. sem eru
írá 1 til 3%.
Umsetning í aðaldeildum Sam-
bandsins árið 1965 var sem hér
segir í milj.
Búvörudeild 518,2 og hafði
minnkað um 28,9
Sjávarafurðadeild 808,1 og hafði
• vaxið um 307,4
Innflutningsdeild 477,4 og hafði
vaxið um 160,6 %
Véladeild
. vaxið um
240,9 og hafði
45,0
Skipadeild ) 110,1 og hafði
vaxið um 12,5
Iðnaðardeild 224,2 og hafði
vaxið um 6,4.
Á árinu 1965 hélt rekstrar-
kostnaður látlaust áfram að
hækka, sagði forstjórinn. Heild-
arlaunagreiðslur á rekstrarreikn-
ingi Sambandsins urðu kr. 168.5
milj. á móti 136,6 milj. árið áður
Hækkunin nemur kr. 31.9 milj.,
eða 13.3%. Fjöldi starfsmanna
Framhald á 7. síðu.
Kópavogsbúar!
■ H-listinn heldur skemmti-
kvö d fyrir unglinga í félagsheim-
ili Kópavogs annað kvöld, sunnu-
daginn 12. júní, kl. 20. Tempó
leika. — Aðgöngumiðar afhentir
í Þinghól í dag, laugardag, kl.
2—4 e.h. og við innganginn.
H-listinn.
Athyglisverð báka-
sýning opnuð i dag
□ „íslenzk bókagerð 1965“
nefnist sýnin'g, sem opnuð
verður í Iðnskólanum í dag
kl. 4 og verður opin daglega
kl. 2—10 til 19. júní. — Það
er Félag íslenzkra teiknara,
sem að sýningunni stendur
og eru þar sýndar rúmlega
20 íslenzkar bækur, sem vald-
ar voru af 9 manna dóm-
nefnd: sem úrvalið af ís-
„Kirkjuhóll" heitir þessi mynd, sem 15 nem cndur úr Myndlistarskólanum hafa gert í sam-
vinnu. (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Verk barna úr Myndlistarskólanum:
Mosaikveggmyndir
í Asmundarsal
f Ásmundarsal við Freyju-
götu verður S dag, laugardag
opnuð sýning á verkum barna
úr Myndlistarskólanum. Sýn-
ingin verður opin í dag og á
morgun frá klukkan 2-8 og
er þar margt skcmmtjlegt að
sjá, t.d. tvær stórar vegg-
myndir úr mosaik, sem börn-
in hafa unnið að í samein-
ingu.
Börnin, sem eiga verk á
sýningunni eru á aldrinum 7-
12 ára, úr tveim deildum, en
í hvorri deild eru um 15
nemendur. Kennarar í vetur
voru tveir, þeir Magnús Páls-
son og Ragnar Kjartansson.
Á neðri hæðinni þar sem
kennslan fór fram í vetur eru
vatnslitamyndir og keramik
og einnig alls komar hlutir
unnir úr mosaik t. d. skyrtu-
hnappar og hálsmen. Sagði
Magnús Pálsson, að á nám-
skeiðinu, sem byrjaði í marz
hefði eingöngu verið unnið úr
leir og hefði náðst ágætur
árangur af því.
Þegar á efri hæðina er
komið blasa við tvær stórar
mosaikmyndir og er stærð
annarrar 1.20x4.90 m. Nefnist
önnur ■ myndin „örkin hans
Nóa“, og hin „Kirkju-
hóll“ og myndu þær sóma
sér vel sem veggskreytingar.
t. d. á bamaheimilum.
Margar mosaikmyndir aðr-
ar eru á sýningunni í Ás-
mundarsal og einnig stór
vatnslitamynd af kastala.
samansett úr átján teikning-
um hafa margir nemend-
ur unnið að henni, en þessar
tilraunir með samvinnu er
nýjung á námskeiðum Mynd-
listarskólans.
lenzkri bókagerð 1965. —
Sömuleiðis eru á sýningunni
úrvalsbækur frá Noregi, Sví-
þjóð, Danmörku, Sviss og
Þýzkalandi, sem valdar hafa
verið af dómnefndum í við-
komandi landi — og mun
láta nærri að bækurnar á
sýningunni séu 150 talsins.
Félag íslenzkra teiknara ákvað
fyrir ári síðan að standa fyrir
sýningu á bezt gerðu bókum árs-
ins 1965 og var Ieitað til þeirra
félaga, sem að bókagerð vima
og þau beðin að útnefna mann
í dómnefndina og einnig voru
bókaútgefendur fieðnir að senda
bækur sem samkeppnishæfar
væru.
Þegar úrvals bækurnar voru
valdar var tekið tillit til bók-
bands, upppetningar, leturs,
káputeikningar, myndskreyting-
ar, prentunar og pappírsvals, en
þó einkanlega hvemig bókin
tæki sig út sem heild.
1 sambandi við sýninguna er
gefin út skrá yfir þær bækur
sem valdar voru úr, en þeim er
skipt í flokka; skáldverk, fræði-
bækur og Ijóð, myndabækur,
námsbækur, barnabækur, tíma-
rit og ennfremur voru á sýning-
unni fimm úrvals bókakápur.
1 skránni eru einnig umsagn-
ir um íslenzku bækurnar og má
nefna sem dæmi að Limrur
Þorsteins Valdimarssonar fá
þennan dóm: „Skemmtilega gerð
bók. Góð myndskreyting, sem
fellur vel að efninu. Letur gott
Framhald á 7. síðu.
Kennslutceki
til sýnis
Um þessar mundir stendur yf-
ir í Vogaskóla sýning nýrra
bandarískra kennslutækja. Það
er fyrirtækið Ámi Ólafsson &
Co, sem að sýnir.gunni stendur,
en hún er oþin til mánudags-
kvölds é tímanum 2—9. Kennslu-
tæki þessi eru á margan hátt ný-
stárleg, og hefur þessi þáttur
kennslumála rauriar verið mjög
svo vanræktur á Islandi. Tækin
em nokkuð misdýr eins og að
líkum lætur. Geta má þess, að
skemmtilegt líkan af. eyra, sem
fréttamaður ,,Þjóðviljans“ sá
þama, kostar um 3.500 krónur
og segir fyrirtækið það svipað
verð og á tveimur skólastólum.
Frá syningu Sverris Haraldssonar. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Sverrir sýnir eftir þriggja ára hlé:
Landslagsmyndir
+**»*»» +ts» \
og tréskúlptúr
□ í dag kl. 3 verður opn-
uð í nýbyggingu Mennta-
skólans sýning á verkum
Sverris Haraldssonar list-
málara og verður hún op-
in í tíu daga eða til 21.
júní. Það er Listafélág
Menntaskólans sem stend-
ur fyrír sýningunni, en
Sv^rrir kenndi teikningu
á námskeiði þess í vetur.
Á sýningunni eru alls um
sextíu listaverk: olíumálverk,
teikningar og tréskurður.
Teikningarnar eru allt frá
árinu 1947 og eru allar í
einkaeign. Málverkin eru flest
frá því eftir áramót i vetur
og það elzta frá því um hvíta-
sunnu i fyrra og tréskurðar-
myndirnar frá ársbyrjun 1964.
Sverri hélt síðast sjálfstæða
sýningu í Listamannaskálan-
um 1963, en síðan hefur orðið
talsverð breyting á stíl hans
og eru þau málverk sem nú
eru sýnd mjög ólík hinum
fyrri. Þau hafa hlotið sam-
heitig „Stemningar úr Soga-
mýri“. enda öll- máluð eftir
útsýni um sama gluggann í
í'búð málarans í Sogamýri.
Þetta eru landslagsmyndir, en
heldur slæm láhdabréf, sagði
Sverrir er hann sýndi blaða-
mönnum sýninguna i gser.
Tréskúlptúrana vill Sverr-
if aðeins láta kalla tálgað-
ar spýtur og segist hafa dund-
að við þær meðan hann
snerti ekki á málverkinu.
Sverrir sýndi fyrst á sýn-
ingu Félags íslenzkra mynd-
listarmanna 1948, en fyrsta
sjálfstæða sýning hans vaf
1952 áður en hann fór til Par-
ísar til eins árs dvalar. Fimm
árum síðar fór hann til Berl-
ínar þar sem hann dvaldist
í þrjú ár. Hann hefur tekið
þátt í öllum norrænum sýn-
ingum í Reykjavík, Kaup-
mannahöfn, Louisiana, Stokk-
hólmi, Helsinki, Moskvu, Par-
ís, Brússel og Róm. í fyrra
tók hann þátt í alþjóðasýn-
ingu í París þar sem hið
fræga listasafn Musée d’Art
Moderne keypti eina mynd
eftir hann. /
Sýning Sverris verður op-
in daglega til 21. júní á tím-
anum kl. 3—11 e.h.
Viðtal við Sverri um við-
horf hans til listarinnar og
persónulega þróun hans sjálfs
birtist í Þjóðviljanum á morg-
un, sunnudag.
Þing framhaldsskólokennara
hófsf í Reykjavík í gœrdag
f gær var sett i Reykjavík 11.
þing Landsambands framhalds-
skólakennara. Þingið var sett
kl. 17 og gerði það formaður
samtakanna, Ólafur Einarsson,
en forseti var kjörinn Stefán
Ól. Jónsson, Laugarnesskóla. Þá
fluttu ávörp menntamálaráð-
herra, fræðslustjóri og formenn
S.Í.B og B.S.R.B. Fundur s'kyldi
svo aftur hefjast klukkan átta
í gærkvöld. Var ætlunin að taka
þar kjörbréf til athugunar og
nýja félaga inn í samtökin. Þá
skyldu og fara fram nefndakosn-
ingar og formaður flytja skýrslu
sína.
Þinginu lýkur á morgun,
sunnudag. Þingfulltrúar munu
vera um 80, en meðlimir sam-
takanna um 500.
í