Þjóðviljinn - 13.07.1966, Síða 1

Þjóðviljinn - 13.07.1966, Síða 1
Hér á að heyja landskeppni í sundi við Dani Þessir ungu menn vinna af kappi við að undirbúa sundlaugina nýju í Laugar- dalnum en þar á að fara fram um næstu helgilands- keppni 5 sundi milli Dana og Islendinga- — Sjá nán- ari frásögn á baksiðu- (Ljúsm. Þjóðv. A.K.) keppnin í London n LONDON 12/7 — Úrslit í n annarri umferð í heimsmeist- □ arakeppninni í knattspyrnu í . I 1 Bretlandi í dag.urðu þessi- H 1 2' riðli sigruðu Vestur-Þjóð- n .verjar Sviss með 5—0 (3—0 í n hálfleik). r~l 1 3- riðli sigraði Brasilía Búlg- H aríu með 2—0 (1—0 í hálf- n leik).. H I 4. riðli unnu Sovétríkin N- n Kóreu með 3—0 (2—0 í hálf- H leik). n Nánar er sagt frá leikjunum á n 3- síðu. DIQDVUIINN Miðvikudagur 13. júlí |1966 — 31. árgangur — 153. tölublað. Fulltrúar Boeing-verlcsmiðjanna komnir Samningur um þotukaup Fl undirritaður í vikulokin? □ Gera má ráð fyrir að fulltrúar Boeing-flugvéla- verksmiðjanna í • Bandaríkjunum og forráðamenn Flúgfélags Islands gangi frá samningi um kaup félagsins á farþegaþotu af B-727 gerð fyrir næstu helgi. Tveir fulltrúar bandarísku verksmiðjanna komu hingað til Reykjavíkúr í fyrrakvöld og í gærmorgun hófu þeir viðræður um kaupsamninginn við forráða- menn Flugfélags Islands. Banda- ríkjamennimir eru tveir; Poul Petit yfirmaður samningadeildar Boeing-verksmiðjanna og Tom Roth lögfræðingur, en af Flug- félagsins hálfu taka þeir eink- um þátt í samningaviðræðunum Örn O. Johnson forstjóri, Jó- hann Gíslason deildarstjóri flug- reksturs og Sigurður Matthías- son fulltrúi. Sem fyrr segir er gert ráð fyrir að unnt verði að ganga að fullu frá kaupsamningi þotunn- ar nú í lok vikunnar og undir- rita hann. Um ýmis atriði þarf að semja, enda þótt frá flestu hafi þegar verið gengið í sam- bandi við þotukaupin. M.a. er nú ekkert til fyrirstöðu ríkisá- byrgð á láni því sem Flugfélagið þarf til kaupanna. Reiknað er með að Boeing- verksmiðjurnar skili Flugfélagi Islands hinni nýju þotu á næsta vori, í apríl eða maí-mánuði, þannig að hún komist í gagnið þegar í upphafi sumaráætlunar félagsins. Má þá reikna með talsverðum breytingum á áætl- uninni, svo afkastamikil er hin nýja þota. Vegna lánsábyrgðarinnar sendi fjármálaráðuneytið frá sér svo- fellda fréttatilkynningu í gær: „Að gefnu tilefni vill fjár- málaráðuneytið taka fram eftir- farandi: Ríkisstjómin hefur samþykkt að veita Flugfélagi íslands rík- isábyrgð á láni vegna kaupa á Boeing 727 þotu, 80% af kaup- verði, að settum þeim trygging- um og uppfylltum þeim fjárhags- legu skilmálum, sem fjármála- ráðuneytið og ríkisábyrgðasjóður telja nauðsynlegt. Ríkisábyrgðin er bundin þeim skilyrðum að umrædd þota verði gerð út frá Keflavíkurflugvelli. Ráðuneytið hefir falið ríkis- ábyi-gðasjóði að annast endanlega afgreiðslu málsins". Síldveiðin fyrra sólarhring: 31 skip fékk sam tals rúm 6700 t. LOKS FENGINN BÆJAR- STJÓRI í HAFNARFIRÐI? — Friðsamlegur fundur bæjarstjórnar í gær Gott veður var á síldarmiðun- um fyrra sólarhring og góð veiði á svipuðum slóðum og áður, þe. 100 mílur SSA frá Jan Maycn. Samtals 31 skip mcð 6.703 tonn. Guðbjörg GK 336 tonn. Halki- on VE 314. Víðir II GK 215. Hafrún IS 436. Arnar RE 365. Baldur EA 190. Þessir bátar voru allir með tvær landanir. Bjartur NK ^50. Helga Guðmd. 230. Dan IS 100. Svanur ÍS 80. Björgvin EA 180. Óskar Hall- dórsson RE 240. Jón Kjartanss, SU 303. Framnes ÍS 13Q. Þor- steinn RE 220. Húni II. HU 170. Hamravík KE 150. Anna SI 140. Faxi GK 200. Dagfari ÞH 240. Heimir SU 190. Guðmundur Péturs IS 190. Sóley ÍS 260. Björgúlfur EA 240. Seley SU 280. Dalatangi: Barði NK 270. Grótta RE 170. Sæhrímnir KE 130. Reykjaborg RE 240. Hánnes Hafstein EA 110. Guðm. Þórðarson RE 110. Drengur drukkn- ar í Hafnarfirði Nokkru fyrir hádegi sl. sunnu- dag varð það hörmulega slys, að þriggja ára drcngur, Jónas Már Gunnarsson til heimilis aðBIika- lóni við Hafnarfjörð féll I sjó- inn og drukknaffi. Drengurinn var að leik með systkinum sínum, 5 og 7 ára gömlum, við svonefnda Bala- kletta er hann féll í sjóinn. Ekki var mjög djúpt þar sem dreng- uri'nn féll í sjóinn og tókst systkinum hans að ná honum á þurrt land eftir nokkra stund og gerðu þau síðan aðvart um slysið. Læknir og lögregla voru þegar kvödd á vettvang og lífg- unartilraunir hafnar en þærbáru engan árangur. Var drengurinn fluttur í Slysavarðstofuna en ekki tókst að vekja hann til lífs- ir.s. n A fundi bæjarstjórnar Hafn- arfjarðar sem haldinn var í gær var samþykkt tillaga um að fara þess á leit við Kristin Ó- Guð- mundsson að taka að sér að gcgna bæjarstjórastarfinu til bráðabirgða- n Má því segja að láusn hafi náðst á bæjarstjóramálinu í Hafnarfirði a.m.k- um stundar- sakir- Fundurinn fór friðsamlega fram og engar stórræður á borð við þær sem fluttar voru á síð- asta fundi voru haldnar. Það var Hafsteinn Baldvins- son, bæjarstjóri sem bar fram tillöguna um að biðja Kristin Ó- Guðmuridsson um að taka að sér bæjarstjóraembættið fyrst um sinn. Var tillaga Hafsteins samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum en tveir fulltrúar Alþýðuflokksins sátu hjá. Kristinn Ó. Guðmundsson hef- ur verið lögfræðingur Hafnar- fjarðarbæjar undanfiarin átta ár. Þess ber að geta að bæjar- stjómarfundurinn var stuttur og laggóð^. og fóru fundarstörf fram með fríði og spekt- Ferð ÆFR út í bláinn Farið verður út i bláinn í kvöld. Lagt af stað frá Tjamar- götu 20 kl- 8.30 stundvíslega. Fararstjóri verður öm Ólafsson- Rekstrarstöðvun hjá Stál- skipasmiíjunni í Kópavogi 1 janúar í vetur átti frétta- maður Þjóðviljans viðtal við Ólaf H. Jónsson framkvæmda. stjóra Stálskipasmiðjunnar hf. í Kópavogi um starfsemi skipasmiðjunnar sem er ung að árum, stofnuð 1961. I viðtalinu ræddi Ólafur m.a. um aðbúnað stjórnarvaldanna að skipasmíðaiðnaðinum í landinu og taldi hann höfuð- erfiðleika skipasmíðastöðv- anna vera skort á rekstrarfé og lánafyrirgreiðslum í . því sambandi auk þess sem þær nytu ekki sömu tollívilnana á efnivörum sem skipasmíða- stöðvar í nágrannalöndunum Af þessum sökum og fleiri ætti innlend skipasmíði mjög erfitt uppdráttar í samkeppni við erlendar skipasmíðastöðv- ar. Nú er svo komið hag þessa unga nauðsynjafyrirtækis að héita má að starfsemi þess liggi alveg niðri þessa dag- ana og óyíst um framtíðina. I viðtali við Þjóðviljann í gær sagði Ólafur að í fyrra- dag hefðu einir 10 af starf- mönnum fyrirtækisins farið í sumarfrí og væru þá aðeins eftir starfandi hjá því 5 vél- smiðir sem vinna að niður- setningu véla í þjörgunarskip sem fyrirtækið er langt kom- ið með að smíða fyrir Haf- stein Jóhannsson froskmann á Akranesi, en í vetur unnu hjá fyrirtækinu um 25 manrisauk verktaka er störfuðu fyrir það. Ólafur kvaðst engu vilja spá um framtíð fyrirtækisins. það ætti nú við mikla erfið- leika að stríða og væri unnið að því að reyna að leysa úr þeim. Kæmi þar hvorttveggja til sögunnar skcrtur á rekstr- arfé og ýmsir byrjunarörðug- leikar sem ung fyrirtæki með takmarkað fjárhagslegt bol- magn ættu jafnan við aðetja. Taldi hann að sömu sögu væri að segja af fleiri fyrirtækj- um í þessari iðngrein. Sýnir þetta dæmi um Stál- skipasmiðjuna, að „viðreisn- in“ og skilningsleysi stjómar- valdanna gagnvart innlend- um iðnfyrirtækjum ætla ekki að gera endasleppt við ís- lenzkan iðnað, jafnvel slík- an undirstöðuatvinnuveg eins og skipasmíðar eru fyrirfisk- veiðiþjóð eins og okkur ts- lendinga.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.