Þjóðviljinn - 23.07.1966, Blaðsíða 1
Laugardagur 23. júlí 1966 — 31. árgangur —162. tölublað.
a nyjum
stað að Þeistareykjum
Má kannski búast við eldgosi innan tíðar?
■ í Vísi í gær er frá því skýrt að Hjörtur Tryggvason
bæjargjaldkeri á Húsavíl? hafi fyrir skömmu verið á ferð
um Reykjaheiði og hafi hann þá fundið nýtt jarðhitasvæði
nokkur hundruð metrum norðan við gamla jarðhitasvæð-
ið á Þeistareykjum. Segir 1 fréttinni að gróður hafi verið
farinn að skrælna þar á nokkur hundruð fermetra svæði
og hafi Hjörtur mælt þar 60 metra hita aðeins þumlungi
neðan við grassvörðinn.
Þá segir í fréttinni að bróð-
ir Hjartar, Eysteinn Tryggva-
, son, sem er prófessor í jarð-
fræði við liáskóla i Banda-
rikjunum en staddur hér á
áfanginn
-V í gær var aftur komið sólskin
i.’ og gott veður og voru þá hafn-
-> ar framkvæmdir við malbik-
if un síðasta áfanga Hafnarfjarð-
•;*r arvegar, frá Arnarnesi að
-V Kópavogslæk. Myndin er tek-
-V in af, malbikuninni og mönn-
V um að störfum við hana á
-ir Kópavogsháisinum. — (Ljósm.
> R. A.).
landi um þessar mundir, hafi
farið með honum í fyrradag
til þess að kanna staðinn 'og
hefur blaðið það eftir Ey-
steini að hugsanlegt sé að
þarna kunni að byrja eldgos
á næstunni.
Þjóðviljinn átti í gær tal
við Sigurð Þórarinsson jarð-
fræðing og spurði hann álits
á þessu náttúrufyrirbæri.
Sagði Sigurður að það væri
að vísu ekki óalgengt að jarð-
hitasvæði flyttu sig til, þ.e.
að hverir hyrfu og kæmu
upp á nýjum stöðum í næsta
nágrenni. Hann kvaðst hins
vegar ekki vita nákvæmlega
hve lahgt þetta nýja jarðhita-
svæði væri frá gamla svæð-
inu en eftir þeim upplýsing-
um sem hann hefði fengið
hefði einhver jarðhiti fundizt
áður í hellisskúta sem þarna
væri en nú hefði hitinn í
skútanum stóraukizt skyndi-
lega.
Framhald á 3. síðu.
(Ljosm
A. K.)
Shri Binay Ranjan Sen
1. deild:
Valur vann
i
Kefíavík 4:3
í gærkvöld fór fram á Laugar-
dalsvellinum þýðingarmikill leik-
ur í meistaramótinu í knatt-
spyrnu. Áttust þar við Valur og
Keflvíkingar og var þetta fyrri
leikur félaganna. Lauk ■ honum
með sigri Vals 4:3.
Leikurinn var oft skemmtileg-
ur og rás hans næsta einkenni-
leg. í fyrri hálfleik sýndu Vals-
menn talsverða jrfirburði og
skor.uðu hvorki meira né minna
en fjögur mörk — Keflvík-
ingar hinsvegar ekkert. Ekki
voru yfirburðir Valsmanna þó
slíkir sem markatalan gefur til
kynna, en þeir notuðu mjög vel
tjekifæri sín. '
En í seinni hálfleik skiptir al-
veg um, var sem Keflvíkingar
sendu fram spánnýtt lið. Réðu
þeir lögum og lofum á vellinum
fyrsta hálftímann og tókst- þeim
þá að skora þrjú mörk. Síðustu
fimmtán mínúturnar jafnaðist
leikurinn hinsvegar nokk-uð . og
tókst Keflvíkingum ekki að
jafna.
Framkvæmdastjóri Matvælastofnunar S.Þ. á Íslandi
©
□ Hingrað er kominn í stutta heimsókn framkvæmdastjóri Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO), Shri Binay Ranjan Sen.
□ Á blaðamannafundi í gær ræddi Sen um baráttuna gegn hungri í heim-
inum og þá einkum um nauðsyn þess að hagnýta betur fisk og aðrar
^sjávarafurðir til að auka eggjahvítuforða heims-
insi Sagði hann að á þessu sviði gætu íslendingar
lagt fram mikilvæga aðstoð sem reynd og fram-
sækin þjóð í fiskveiðum, og myndi FAO í auknum
mæli leita til íslenzkra sérfræðinga í þessu skyni.
□ Þá lauk hr. Sen miklu lofsorði á íslenzk æsku-
lýðssamtök, sem hafi unnið mikilvægt starf með
skipulagningu Herferðar gegn hungri hér á landi
og náð góðum árangri.
Aðild Islands
Hr- Sen hóf máls á því, að
lýsa ánægjulegum áhrifum af
fyrstu kynnum sínum af Islandi-
Hann kvaðist hafa gert sér þá
hugmynd Um Islendinga, að þeir
væru dugleg þjóð sem byggi við
tiltöluléga einfalda lifnaðarhætti;
enginn væri of ríkur og enginn
of fátækur heldur — hefði hann
aðeins rekizt á eina þjóð aðra á
löngum ferðalögum sem okkur
líktist að þessu leyti, en það
væru Nýsjálendingar-
Sen sagði, að Islendingar hefðu
verið aðilar að FAO allt frá því
að samtökin urðu til og hefðu
þeir hjá stofnuninni jafnan kunn-
að að meta þátttöku Islands- Það
væri þeim og ánægja að ágætur
fulltrúi íslands, Davíð Ölafsson,
ætti sæti í nýlegri néfnd FAO
sem ’ fjallaði um aukningu fisk-
veiða og betri hagnýtingu sjáv-
arafurða. Framlag Islands til
baipttu gegn hungri gæti fyrst
og fremst verið fólgin í því að
miðla öðrum af þekklngu sinni
og tækni í fiskveiðum og myndi
FAO leita £ enn ríkari mæli en
fyrr til íslenzkra sérfraeðinga.
Þá kvaðst hr. Sen vilja sér-
staklega þakka íslenzkum æsku-
lýðssamtökum. sem hefðu skipu-
lagt herferð gegn hungri með
miklum ágætum bg safnað fé til
nytsamlegra framkvæmda í ýms-
um Afríkuríkjum. Sýndi þetta
framtak að mannúðarstefna væri
íslehdingum í blóð borin; þeir
gleymdu því ekki í velferð
sinni að sýna virka samúð þeim
þjóðum sem \ver eru á vegi
staddar.
Fiskveiðar
Sen sagði að FAO beindi nú
mikilli athygli. að þýðingu eggja-
hvítuauðæfa hafsins, en talið er,
að nú sé aðeins um eitt prósent
af forða hafsins notaður til
manneldis- Bæði væri reynt að
örfa fiskveiðar eftir föngum: í
mörgum löndum hefðu fiskimenn
mjög lélegan skipakost og kæm-
ust varla spönn frá landi — auk
þess væru engin ráð til að geyma
fiskinn eða flytja hann á fjarlæg-
ari markaði; úr þessu væri nú
reynt að bæta með bættum skipa
kosti- Auk þess væri unnjð mik-
ið starf í þá átt að búa til fiski-
mjöl sem hæft væri til manneld-
is — en um 30% sjávarafurða
er nú notað til skepnufóðurs- Er
Framhald á 7. síðu.
4 RR 400
KeflavíkurflugvöIIur Iokaðist vegna þoku og rigningar að-
faranótt fimmtudags, 21- júlí- Samkvæmt áætlun áttu tvær
RoIIs Royce 400 vélar (frá Lúxcmborg) og ein DC-6B vél (frá
Helsingfors og Ós!ó) að ienda þá um nóttina, en aðcins fyrri
Rollsinn gat lent, áður en völlurinn lokaðist. Ilinn Rollsinn
varð aO ienda í Prestwick ásamt DC-6B vélinni. Fimmtudags-
mprgun komu tvcir Rollsar að vcstan, og gátu þeir lcnt og
haldið áætlun. En um sama leyti kom Rollsinn, sem orðið
hafði að Ienda í Prestwick nóttina áður. Þá var enn ófar-
inn fyirsti Rollsinn, sem Iokazt hafði inni nóttina áður, en
hann hélt véstur um haf um hádegi þennan dag. Voru þá
allar RoIIs Royce 400 vélar Loftleiða samtímis á Keflavíkur-
flugvelli, og auk þeirra tvær DC-6B vélar, sem fóru til Norður-
landa og Hollands. Fimmtudagsmorguninn var því einhver
mesti annadagur í sögu Loftlciða á Keflavíkurflugvelli. Auk
Loftleiðavéla voru fyrir í K-vík 2 litlar þotur og ein KLM-vél-