Þjóðviljinn - 23.07.1966, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 23.07.1966, Blaðsíða 6
g StöA — ÞJÓÐVIE.JINN — tyaugardagur 23. fúlí 1966. • Vígslu- biskupskjör • Alls greiddu 97 atkvæði en 93 höfðu atkvæðisrétt. (Alþýðublaðið í gær.). • Bréf frá lesanda E.Þ. sendir eftirfarandi pistil: — 1 tilefni af grein sem birtist nýlega í Þjóðviljanum um tóbaksreykingar og heilsu eftir J.A. langar mig að taka fram eftirfarandi: — Ég tel að það sé misskilningur hjá greinarhöfundi að enginn sann- ur menntamaður reyki. Hins- vegar ættu vel menntaðir menn að gera sér hættuna ijósari en ,,sauðsvartur almúg- inn“. Það fer eftir innræti hvers einstaklings, hvort hann lætur sína slœmu bresti eða ávana koma niður á öðrum, en ekki beinh'nis eftir menntun hans. Skólamir eiga og auð- vitað að gæta skyldu sinnar í bessum efnum, en einnig kennararnir geta verið mis- jafnlega siðferðilega broskaðir. En við skuium reyna að vera bjartsýn og treysta bvi að mannkynsins bíði bjartari tímar með auknum þroska þess. — R.Þ. • Hver er nútíma- maðurinn? • Höfuðpersónurnar eru harð- svíraðar hetjur, sem láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna; liggja kvenfólk, aka sportbíi- um og myrða nokkra glæpa- menn — svona þegar henta þykir. Hetjur þessar gætu allt eins verið sönn ímynd nútíma- mannsins, og það er kannski einmitt að mörgu leyti þess vegna, sem þannig kvikmyndir fá góða aðsókn. (Kvikmyndagagnrýni í Tímanum). A/ý IjoSabók Böðvar Guðmundsson I mannabyggð Verð. óbundin kr. 190,00 + sölusk. innbundin kr. 230,00 + sölusk, HEIMSKRINGLA LÖGTAK Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og aö undan- gengnum úrskurði verða lögtök látin fram fara án frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum: Áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi, gjöldum af innlendum tollvöruteg- undum, matvælaeftirlitsgjaldi og gjaldi til styrkt- arsjóðs fatlaöra, skipulagsgjaldi af nýbygging- ingum, útflutnings- og aflatryggingasjóðsgjöld- um, söluskatti 2. ársfjórðungs 1966 og hækkun- um á söluskatti eldri tímabila, svo og trygginga- iðgjöldum af skipshöfnum ásamt skrámngar- gjöldum. Yfirborgarfógetinn í Reykjavík, 21. júlí 1966. KR. KRISTJÁNSSON. Einhleypur sjómaBur óskar eftir herbergi, baði og gæti látið í té afnot af síma. Hef leigt 5 ár á sama stað. Meðmæli frá síðasta leigusala fyrir hendi. Tilboð óskast send Þjóðviljanum. Merkt: „Vél- stjóri 900“, fyrir mánaðamót. • Mótssöngur Landssambands skáta, Hreðavatni 1966 Sólskin á vöngum, sumar í björtum augum, söngur á vörum, gleði í hverri sál, unaður lífsins titrandi í öllum taugum — tökum viö lagið við Hreðavatn og lífgum skátabál. Loksins, já loksins lifum við þessa daga. Lífið er fagurt, veröldin unaðsleg Þannig skal veröa okkar og íslands saga —' óhikað, fagnandi, stolt og frjáls við göngum lífsins veg. • Ort þegar léttir til Nú er sólskin og sunnanblær og svipur á landi hýrnar. Það Rræða sig sjálfsagt allar ær, og ekki er að tala um kýrnar, svo það kemur eflaust mikil mjólk og maður veit ekki hvernig fólk hnyklar hneykslunarbrýrnar. Ben. frá Hofteigi. • Einhversstaðar verða vondir að vera • 1 morgun klukkan 9,15 setti borgarstjórinn í Rvík, Geir Hallgrímsson, alþjóölegt bruna- varðamót, sem standa mun hér í Hvík næstu daga. Pór mótssetningin fram í nýju slökkvistöðinni við Reykjanes- braut að viðstöddum fulltrúum á mótinu. — (Dagbl. Vísir). • Æskan komin út • 7.-8. tölublað ÆSKUNNAR er nýkomið út og er efni þess fjölbreytt að vanda. Af efni blaðsins má nefna Ævintýri Webs skipstjóra, Sum- arævintýri Danna eftir Hildi Ingu og framhaldssöguna um Davíð Gopperfield eftir Dick- ens. Ennfremur er þar að finna kennsluþátt í esperanto. i- þróttaspjall eftir Kristján Jó- hannsson, og fjölmargir dæg- urlagasöngvar og Ieikarar eru kynntir og birtar myndir af þeim. Fyrir yngstu lesenduma er þáttur um sólskrxkjuna. Lýsing H. E. á staöháttum í Þórsmörk er einnig í blaðinu og þættir um handavinnu, flug, frímerki og matreiðslu svo að dæmi séu tekin. Auk þessa eru margar myndasögur í Æskunni og ým- islegt efni annað. Árgangurinn kostar 175,00 kr. en í lausasölu kostar blaðið kr. 25,00. • Afmæli • Níræð er í dag Valgerður Jónsdóttir, Meistaravöllum 11, Reykjavxk. • títvarp, laugardaginn 23. júlí. 13,00 Óskalög sjúklinga. Þor- steinn Helgason kynnir lögin. 15,05 Lög fyrir ferðafólk — með ábendingum og viðtals- þáttum um umferðarmál. Andrés Indriðason og Pétur Sveinbjarnarson sjá um þátt- inn. 16.35 Dóra Ingadóttir og Pét- ur Steingrímsson kynna létt lög. 17,05 Helgi Guðmundsson úr- smiður velur sér hljómplöt- ur. 18,00 Lög úr „Sígaunabarónin- um“ eftir Strauss, og þættir úr óperunni „Selda brúðurin" eftir Smetana. 20,00 í kvöld. Brynja Benedikts- dóttir og Hólmfríður Gunn- arsdóttir sjá um þáttinn. 20,30 Karlakói’inn Þrestir f Hafnarfirði syngur. Söngstjóri Herbert H. Ágústsson. Ein- söngvarar: Ólafur Eyjólfsson og Ámi Gunnlaugsson. Skúli Haildórsson leikur með ápi- anó. 21,10 Leikrit „Skammbyssa, herra minn,“ eftir Gabriel Timmory. Þýð.: HjörturHall- dórsson. Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir. 22,15 Danslög. 24,00 Dagskrárlok. Útbob Kópavogskaupstaö’ur áskar eftir tilboðum í hol- ræsalögn, í ónefnda götu, meöfram Hafnarfjarð- arvegi. Útboösgögn áfhent á skrifstofu minni, gegn 2.000,— kr. skilatryggingu. Tilboð opnuð 2. ágúst 1966. Kópavogi 22. júlí 1966. BÆJARVERKFRÆÐINGUR. Skrifstofu Skógræktar rikisins er lokuö frá 25. júlí til 8. ágiúst. — Ef nauðsyn krefur, hafið samband við Skógræktarfélag Reykjavíkur. Símar 40300 og 40313. SKÓGRÆKTARSTJÓRI. BHstjóra karl eða konu, vantar á sendiferðabíl ritsímans frá 2. ágúst. — Upplýsingar um starfið eru gefn- ar í síma 11000. RITSÍMASTJÓRINN, REYKJAVÍK. Frá Tækniskóla ísiands Starfsemi Tækniskóla íslands veturinn 1966—67 >■*» hefst 1. október n.k. í Reykjavík mun skólinn starfa í tveim deildum: forskóladeild og 1.. bekk tækniskóla. Á Akureyri verður starfræktur einn forskóladeildarbekkur. Inntökuskilyrði í forskóladeild eru, aö umsækj- andi hafi lokið iðnnámi eöa hafi lokið tilskildri verklegri þjálfun auk gagnfræða- eða landsprófs. Auk þess þarf umsækjandi aö standast inntöku- próf, er skólinn lætur halda. Inntökuprófið fer fram á tímabilinu 26.—30. sept., og veröur próf- að í íslenzku, dönsku og reikningi í námsefni, er samsvarar námsefni til gagnfræöaprófs. Nánari upplýsingar veröa veittar og umsóknar- eyðublöð afhent á skrifstofu Tækniskólans í Sjómannaskólanum kl. 17—19 mánudaga, mið- vikudaga og föstudaga. Ennfremur afhendir húsvörður Sjómannaskólans umsóknareyðublöð. Á Akureyri mun skólastjóri Iönskólans gefa upp- lýsingar og afhenda umsóknareyðublöð. Umsóknarfrestur er til 1. sept. 1966. SKÓLASTJ ÓRI. Gúmmívinnustofan h.f. Skipholfi 35 — Símar 31055 og 30688

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.