Þjóðviljinn - 23.07.1966, Qupperneq 10
Afli 30 síldveiði-
skipa 3066 lestir
Hagstætt veður var á sildar-
miðunum við Jan Mayen fyrra
sólarhring, en í gærmorgun var
kominn kaldi á miðunum. Alls
tilkynntu 30 skip um afla, sam-
tals 3.066 lestir.
Raufarhöfn lestir
Þorbjöm II. GK 170
Gunnar SU 50
Búðaklettur GK 50
Guðbjörg IS 35
Garðar GK 200
Árni Geir KE 129
Þorleifur OF 48
Sigurður Jónsson SU 70
Guðbjartur Kristján IS 80
Sæúlfur BA 140
Baldur EA 88
Arnar RE 85
Óskar Halldórsson RE 200
Amames GK 73
Sigurfari AK 100
Fagrikletur GK , 140
Hoffell SU 100
Guðrún GK 174
Svanur IS 64
Pétur Sigurðsson RE 90
Helgi Flóventsson ÞH 60
Björgúlfur EA 90
Helga Guðmundsdóttir BA 130
Jón Garðar GK 100
Guðmundur Péturs IS 110
Sigurður Bjarnason EA 230
Sæhrímnir KE 60
Dalatangi lestir
Viðey RE 40
Bjartur NK 110
Árni Magnússon GK 50
Blómadrottningin
er kosin í kvöld
□ í kvöld verður hið árlega blómaball í Hveragerði og
verður þar krýnd blómadrottning ársins. Blómaballið verð-
ur að Hótel Hveragerði og fer ágóðinn til að standa straum
af leikskóla og föndurskóla Kvenfélags Hveragerðis. Hef-
ur þessi skemmtun jafnan farið hið bezta fram og vakið
ánægju gesta.
íslendingar eiga
að dæma einn leik
í Evrópukeppni
Knattspyrnusamband Evrópu
hefur falið íslenzkum dómara og
íslenzkum línuverði að dæma
;inn leik í Evrópukeppni bikar-
meistara í knattspymu- Þetta
er leikur Swansee-town í Waleár
og búlgörsku bikarmeistaranna.
Enn hefur ekki verið ákveðið
hvenær leikurinn fer fram en
samkvæmt kepp nisreglum verð-
ur það að hafa verið fyrir 15.
nktóber næst komandi-
-■
Myndarleg íþróttakona, Matthildur Guðmundsdóttir, tilbúin að vígja nýju laugina. (Ljósm. A. K.)
Spáð mjög tvísýnni lands-
keppni í nýju sundlauginni
□ í gærdag var vatni hleypt í nýju sundlaug-
ina í Laugardalnum og í gærkvöld stungu íslenzk-
ir og danskir sundmenn sér í fyrsta sinn í laug-
ina; það var lokaæfing fyrir landskeppnina sem
hefst kl. 3 síðdegis í dag, laugardag.
Sundfólkið lét ágætlega af
sundlauginni, enda vart við öðru
að búast: Þetta vefður mikið
og fallegt mannvirki fullbúið.
Mörgu er þar enn ólokið, svo
Fugh- og náttúruskoðunar-
ferð um verzlunarmannahelgi
Lagt verður af stað frá
R$ykjavík kl. 9 laugardagsmorg-
uninn 30. júlí með bíl og haldið
til Stykkishólms. Frá Stykkis-
hólmi verður farið samdægurs
með flóabátnum Baldri og siglt
um Breiðafjarðareyjar og skoð-
að fuglalíf þar. Þaðan verður
siglt fyrir Látrabjarg'eins nærri
bjarginu og hægt er og bjargið
skoðað frá sjó. Verður siglt til
Patreksfjarðar um kvöldið og
g'ist þar um nóttina.
Á sunnudag verður ekið frá
Pátreksfirði út á Látrabjarg og
dvalizt þar við fugla- og nátt-
úruskoðun um daginn en gist
aftur á Patreksfirði um nóttina.
Á mánudag, fridag verzlunar-
rhanna, verður ekið frá Patreks-
tirði til Rauðasands og staldrað
þar við við náttúru- og fugla-
skoðun. Þaðan verður ekið síð-
degis að flugvellinum við Sauð-
lauksdal og flogið þaðan til
Reykjavíkur um kvöldið.
Þátttaka þarf að tilkynnast
fyrir miðvikudaginn 27. júlí í
síma 40241 og þar verða gefn-
ar allar nánari upplýsingar um
ferðina. Þátttakendum verður
séð fyrir svenpokaplássi til gist-
ingar en þeir verða sjálfir að
sjá sér fyrir fæði.';
Þetta er önnur fugla- og nátt-
úruskoðunarferðin sem Fugla-
verndarfélagið efnir til. Hin
fyrri var farin í vor og var það
eins dags férð um Suðurnes. Er
í ráði að fara aðra slíka ferð
á þær slóðir síðar í sumar eða
haust.
að keppnin í dag og á morgun
telst ekki vígslumót sundlaug-
arinnar, það bíður seinni tíma.
Óviss úrslit
Það er buizt við að keppnin
verði mjög jöfn og skemmtileg.
Fyrir tveim árum háðu Danir
og íslendingar landskeppni í
sundi með svipuðu sniði. Keppn-
in fór frami erlendis og sigruðu
Danir naumlega, hlutu 39 stig
gegn 33. Nú verður keppt í
fleiri greinum, eða 10 talsins.
Keppendur eru tveir í hverri
grein í landskeppninni, einn frá
hvoru landanna, og gefin 7 stig
fyrir sigurvegara, 5 stig fyrir 2.
mann. Keppendur verða þö fleiri
en tveir í flestum greinanna,
tveir til sex auk landsliðs-
mannanna tveggja.
Þegar Þjóðviljinn spurði
Erling Pálsson, forseta Sund-
sambands fslands, hvernig
hann spáði um úrslit lands-
keppninnar svaraði hann:
— Ég vil engu spá í þeim
efnum, en hitt get ég fullyrt
að keppnin verður skemmti-
leg, nokkuð hörð og ugglaust
tvísýn.
f dag verður keppt í þessum
greinum í landskeppninni: 200
Lokað fyrir ölöglega end-
urvarpsstöð í Eyjum í gær
■ Þjóðviljinn vakti máls á því fyrir nokkrum dögum
að á Klifi í Véstmannaeyjum, í húsakynnum Landssím-
ans, var komið upp endurvarpsstöð fyrir_ dátasjónvarpið
með einkennilegum og hæpnum aðferðum. Naut þetta til-
tæki verndar Ingólfs Jónssonar ráðherra og Guðlaugs
Gíslasonar íhaldsþingmanns og sjónvarpsaðdáanda. — Þau
hafa nú„orðið úrslit, þessa máls að síðdegis í gser var þessari
ólöglegu' endurvarpsstöð lokað að fyrirmælum útvarps-
stjóra.
Blaðið hafði í gær samband
við Magnús H. Magnússon,
stöðvarstjóra Pósts og síma í
Vestmannaeyjum, og sagði hann
að stöðinni hefði verið lokað síð-
degis í gær. Sézt þá ekki til
dátasjónvarpsins i Eyjum nema
á einstaka stað, sem fyrr.
Stóð tit í gær, að sérstakur
sendimaður færi til Eyja að
kanna starfsemi endurvarps-
stöðvarinnar, en hann komst
ekki af stað, þvi ekki var hægt
að lenda á ,Eyjaflugvelli fram
eftir degi vegna hvassviðris. En
meðán beðið var eftir blíðu veð-
urguða, barst skýrsla frá Eyj-
um um málið. Munu þar hafa
verið staðfestar þær upplýs-
ingar sem Þjóðviljinn hefur gef-
ið um málið, og því þótti óþarft
að gera út sérstakan sendimann
til rannsóknar og hefur það þótt
Framhald á 3. síðu.
m flugsundi, þar sem þeir etja
kappi John Bertelsen Danmörku
og Guðmundur Gíslason; 200 m
bringusundi kvenna (Britta Pet-
ersen og Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir); 200 m bringusundi karla
(Finn Rönnow og Fylkir Ágústs-
son, auk tveggja annarra) og 10(1
m baksundi kvenna (Lone Mor-
tensen og Matthildur Guðmunds-
dóttir, auk 5 annarra).
Aukagreinar í dag verða svo
200 m skriðsund karla, 200 m
fjórsund karia, 200 m fjórsund
kvenna, 100 m bringus: stúlkna.
Keppa Danir einnig í þessum
aukagreinum. — Keppni verð-
ur haldið áfram á morgun kl. 5.
Frú Sigurlína Gunnlaugsdótt-
ir, í undirbúningsnefnd blóma-
ballsins, skýrði Þjóðviljanum
svo frá í gær að Kvenfélag
Hveragerðis hefði stofnað til
blómadansleiks í mörg ár og
væri þar kosin blómadrottning
ársins. Hefur þessi skemmtun
átt miklum vinsældum að fagna.
Garðyrkjumennirnir í Hvera-
gerði gefa blómin og hjálpa til
að skreyta húsið fagurlega, og
líka smáblóm til að selja.
Öllum ágóða af skemmtunum
þessum ver kvenfélagið' svo til
að kosta leikskólastarfsemi sína,
en í húsi félagsins hefur und-
anfarin ár verið rekinn leik-
skóli á sumrin fyrir börn tveggja
til sex ára og föndurskóli fyrir
eldri börn. Hefur þetta komið
sér vel, umferð um Hveragerði
er orðin geysimikil og allmargar
m(æður þar vinna utan heimil-
is, í gróðurhúsum og víðar, og
þurfa að koma börnum sínum
í gæzlu. Er það ósk kvenna í
Hveragerði að fært þætti að láta
leikskólann starfa allt árið og
verður ef til vill reynt að halda
honum uppi í vetur, en það mun
þó ekki fullráðið. Erfiðleikar
eru m.a. á því að fá lærðar barn-
fóstrur, én þó hefur verið hægt
að fá mjög góðar stúlkur úr
Hveragerði til starfs þar að
sumrinu, sagði frú Sigurlína.
En þessi starfsemi kostar pen-
inga, ekki sízt þar sem Kven-
félag Hveragerðis á líka tæki
á tveimur barnaleikvöllum, sem
ekki eru gæzluvellir, og stöðugt
þarf að bæta við leiktækjum
og endurnýja leikföng. Og kven-
félagið greiddi í vinnulaun í
fyrrasumar milli 90>—100 þús-
und krónur. Því veltur á miklu
að blómaballið .sé vel sótt, en
þangað koma bæði ungir og
fullorðnir og gamlir og virðast
allir skemmta sér prýðilega. —
Það hefst í kvöld kl. 9.
Mikið gos í nýju
eynni og öskufall
í Vestmannaeyjum
Mikið öskugos hefur verið í
hinni óskírðu eyju hjá Surtsey
síðan á mánudag og hefur gætt
öskufalls í Vestmannaeyjakaup-
stað í regnveðrinu.
Nokkrir vísindamenn hafa unn-
ið að rannsóknum í Surtsey og
hafa þeir fylgzt með gosinu ,
eftir föngum.
Glímusýning
við Arbæ
Færeyjafarar og flokkur
drengja úr Glímudeild- Ármanns
fialda glímusýningu að Árbæ í
dag klukkan fjögur-
Stjórnin skilnmgssljó á gildi sjósamgangna innanlands
Strandferðir fækka
□ Skipverjum á tveimur
skipum Skipaútgerðar ríkis-
ins, Esju og Skjaldbreið hef-
ur verið sagt upp, yfirmönn-
um á Skjaldbreið og Esju og
undirmönnum á Skjaldbreið.
□ í fréttatilkynningu frá
„stjórnarnefnd Skipaútgerð-
ar ríkisins" til blaða í gær
eru þessar ráðstafanir af-
sakaðar með auknum far-
þegaflutningum í lofti og
lengdu vegakerfi! Segir í til-
kynningunni að „athuganir“
hafi verið gerðar undanfar-
ið á því hvort aflia mætti
hentugs skipakosts til leigu
eða kaups í stað þessara
tveggja skipa og sé „að því
stefnt“ að það gæti orðið í
haust!
Fyrir samgönguþörf og at-
vinnulíf margra staða útí á
landi hafa strandferðir Skipa-
útgerðar ríkisins verið mik-
ilvægar og er alger óhæfa af
stjórnarvöldunum að draga
úr þeim svo sem nú virðist
eiga að gera. Hefði verið
sæmra að ríkisstjórnin hefði
haft fyrirhyggju til að auka
strandferðirnar með nýjum
og bættum skipakosti, og það
ÁÐUR en gömlu skipin eru
látin hætta. Hitt virðist eiga
.-.„j
SKJALDBREIÐ
að ráða að ríkisstjórnin hafi
litinn skilning á gildi sam-
gangnanna á sjó fyrir dreif-
býlið, og sé ósárt um þó þær
rninnki.
★
„Fréttatilkynningin" er þann-
ig:
„Svo sem kunnugt er, eru
strandferðaskip Skipaútgerðar
ríkisins allgömul orðin og eigi
lengur hentug miðað við ríkj-
andi aðstæður. Þar við bætist,
að stórauknir farþegaflutningar
í lofti og bætt og lengt vega-
kerfi mynda miklar árstíða-
sveiflur í rekstrinum og gera
hann sífellt kostnaðarsamari. Er
því encjurnýjun skipastólsins
orðin mjög aðkallandi, ef unnt
á að reynast að halda uppi við-
unandi þjónustu við landsbyggð-
ina með viðráðanlegum tilkostn-
aði.
f samræmi við þetta hefur
stjórnarnefnd Skipaútgerðarinn-
ar ákveðið að segja upp, með
samningsbundnum' fyrirvara,
skipverjum á tveimur skipum
útgerðarinnar, og hafa þær þeg-
ar komið til framkvæmda gagn-
vart yfirmönnum samsvarandi
tölu yfirmanna á m.s. „Skjald-
breið“ og m.s. „Esju“ og gagn-
vart undirmönnum á m.s.
„Skjaldbreið". enda hafa þeir
skemmri uppsagnarfrest. Höfðu
skip þessi áður verið sett á sölu-
lista hjá erlendu skipasölufyr-
irtæki, en aðgengileg tilboð hafa
Framhald á 7. síðu.