Þjóðviljinn - 29.07.1966, Blaðsíða 1
Föstudagur 29. júlí 1966
31. árgangur — 167. tölublað.
JT \
AlögB útsvör / Neskaupstað
20 milj. kr. hækkun 51.5%
Þó munu hvergi hluffalisSega lægri útsvör í kaupstöðum!
■ Neskaupstað 28/7. —
Lokið er álagningu út-
svara og aðstöðugjalda í
Neskaupstað fyrir árið
1966 og var skrá yfir
hvort tveggja lögð fram
í gær. Álögð heildarút-
svör eru röskar 20 milj-
ónir króna, í fyrra 13,2
milj., hækkun 51,5%. Þar
af greiða einstaklingar
Lim 11 miljónir eða 55%
en fyrirtæki 9 miljónir
eða 45% af upphæðinni.
Þrátt fyrir mikla hækk-
un munu hvergi lægri
útsvör í kaupstöðunum.
Var gefinn almennur af-
sláttur af útsvörunum
16% og tryjggingabætur
undanþegnar álagningu.
Útsvörin
Álagning útsvara hér í Nes-
kaupstað í fyrra þótti miklum
tíðindum sæta, en þá hækkaði
útsvarsupphæðin um 70% frá
árinu áður. Álagningin í ár mun
einnig þykja saga til næsta bæj-
ar því nú hækkar útsvarsupp-
hæðin úr 13,2 miljónum í kr.
20.023.700’ eða _ um 51,5%. Af
þessari upphæð er einstaklingum
ætlað að greiða 11.061.100
(5.945.400 í fyrra) en fyrirtækj-
um kr. 8.962.600 (7.254.600).
| Einstaklingar sem nú bera út-
svar eru 444 talsins og hefur
fjölgað um 38 frá fyrra ári, en
i Framhald á 6. síðu-.
29 miljónum jafnað
niðurá Akranesi
Á Akranesi var í þetta sinn
jafnað niður útsvörum að upp-
hæð kr. 24.885.300 á 1123 ein-
staklinga og 47 félög. Alls
greiða einstaklingar kr. 23.461.500
í útsvör en félögin 1.393.800. A8-
stöðugjöld voru lögð á 122 ein-
staklinga og 60 félög, þau gjöld
nema samtals 4.179.600 kr. og
bera einstaklingar þar af 702.200
kr. en félögin kr. 3.377.400.
Ýmsir liðir voru dregnir frá
fyrir álagningu svo sem sjúkra-
bætur, mæðralaun, slysabætur,
N0RRÆNA
HÚS/Ð
RÍSAF
GRUNNl
ÞESSA DAGANA er unnið af
kappi við byggingu Norræna
hússins og veröur platan yfir
kjallaranum steypt í .dag. Þór-
Ir Kr. Þórðarson prófessor
sem er fulltrúi íslands i bygg-
inganefndinni og formaður
framkvæmdanefndar sagði í
viðtali við Þjóðviljann í gær,
að framkvæmdir hefðu tafizt
um a.m.k. þrjár vikur í vor
vegna þess hve mikið frost
var í jörð en grafið var fyrir
kjallara hússins í fyrra. Að
undanförnu hefur verkinu
hins vegar miðað vel áfram
og er áætlun að verða náð.
Er ætlunin að ljúka byggingu
hússins á tveim árum.
HÚSIÐ er sem kunnugt er teikn-
að af hinum fræga finnska
arkitekt, Alvar Aalto og er
Skarphéðirtn Jóhannsson arki-
tekt fulltrúi hans í sambandi
við bygginguna. Bygginga-
meistari er Jón Bergsteinsson
og trésmíðameistari Magnús
Bergsteinsson. Eftirlitsmaður
með byggingunni er Maggi
Jónsson tæknifræðingur en
Almenna byggingafélagið ann-
ast alla verkfræðiþjónustu.
Myndin er tekin -í gær. —
(Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Fá skip með afla
Hagstætt veður var á síldar-
miðunum fyrra sólarhring og
voru skipin aðallega um 90 til
110 mílur SSV af Jan Mayen
eða á leið þangað. — AIls til-
kynntu 12 skip um afla, 1112 Iestir.
Raufarhöfn
Helga Björg HU 165
Halldór Jónsson SH 35
Guðbjartur Kristján ÍS 50
Sigurður Bjarnason EA 50
Loftur Baldvinsson EA 135
Hafþór RE 157
Baldur EA 52
Guðrún Jónsdóttir ÍS 100
Ólafur Friðbertsson ÍS 43
Ólafur bekkur ÓF 175
Jón Kjartansson SU 90
Sæhrímnir KE 60
Grœnmetisverzlunin kœrð:
Sökuð um skemmda vöru
Neytendasamtökin draga í efa að
innfluttar kartöflur fyrirtækisins
séu í raun ætlaðar til manneldis!
■ Þau tíðindi hafa nú gerzt, að Neytendasamtök-
in hafa kært Grænmetisverzlun landbúnaðarins
fyrir Sjó- og .Verzlunardómi og bera henni á brýn
svo stórfelld mistök í sambandi við kartöflusöl-
una undanfarið, að vart sé einleikið. Verzlunar-
Iiættir fyrirtækisins stríði gegn öllu viðskiptavel-
sæmi enda ólöglegir. Þá hafa Neytendasamtökin
skrifað landbúnaðarráðuneytinu og farið fram á
grundvallarbreytingar á skipulagi þessara mála.
Hér fara á eftir nokkrar glefs-
ur úr bréfi Neytendasamtakanna
til ráðuneytisins og svo kærunni
sjálfri.
„Kartöflur þessar (undanfarna
mánuði) hafa verið meira og
minna skemmdar, en verið seld-
ar í lokuðum umbúðum með vill-
andi einkennum. Nú síðast hafa
hinar innfluttu kartöflur verið
seldar sem 1. fl. enda þótt um
væri að ræða blöndu af ætum
og óætum, skemmdum og ó-
skemmdum kartöflum í öllum
hugsanlegum hlutföllu*n“.
Yfirstrikarfir
„Ekki er skylt að fíokka inn-
fluttar kartöflur svo sem inn-
Icndar, en eigi að síður hefur
Grænmetisverzlunin selt þær í
umbúöum, sem ætlaðar eru fyr-
ir innl. flokkaðar kartöflur og
þannig gefið ranglega til kynna,
að um flokkun hafi verið að
ræða. Sem dæmi má taka poka
með áletmninni: Grænmetis-
verzlunin, GuIIaugakartöflur.
Eyrsti flokkur. Er þarna aðeins
strikað yfir orðið „gullauga'*.
Skepnufóður?
„Draga verður í efa, að kart-
öflur þær, sem fluttar hafa ver-
ið inn, til dæmis þær, sem seld-
ar hafa verið sem fyrsti flokkur
undanfarið, séu ætlaðar til mann-
eldis heldur öllu fremur til
skepnufóðurs eða iðnaðar. Stærð-
elli- og örorkubætur, fjölskyldú-
bætur með öllum bömum og
bamalífeyrir, sem reiknaður er
til tekna við álagningu tekju-
skatts. Veittur var aukafrádrátt-
ur 10.000 krónur á sjötta bam
og þar yfir, allir gjaldendur sem
náð höfðu sjötugsaldri á árinu
1965 fengu 30.000 kr. aukafrádrátt
og fleiri atriði komu til. Loks
var veittur 10% afsláttur af öll-
um útsvörum.
Hæstu útsvör og aðstöðugjöld
bera þessir einstaklingar: Garðar
Finnsson 240.900, Runólfur Hall-
freðsson 214.200, Þórður Guð-
jónsson 207.200, Viðar Karlsson
197.400, Alfreð Karlsson 123.700,
Hjálmar Lýðsson 123.200, Hilmar
Harðarson 120.900, Einaf Kjart-
ansson 114.700, Kristján Péturs-
son 113.300, Þoryaldur Guðmunds-
son 113.600, Þórður Óskarsson
111.000, Gúðjón Gíslason 109.500
og Lárus Árnason 104.000.
Af félögum eru þessi hæst:
Haraldur Böðvarsson & Co.
1.159.300, Þórður Óskarsson h.f.
270.000, Þorgeir & Ellert h.f.
262.200, Síldar. og fiskimjöls-
verksmiðjan h.f. 448.000, Fiski-
ver h.f. 226.800, ICaupfélag S-
Borgf. 210.800, Staðarfell h.f.
141.600, Sútun h.f. 138.200, Heima-
skagi h.f. 134.400, Þprsmörk h.f.
111.500, Nótastöfiin hf. 110.800 og
Sig. Hallbjörnsson 104.300.
armunur þeirra sýnir, að þær
hafa hvergi verið flokkaðar á
venjulegan hátt, þegar um mat-
atkartöflur er að ræða“.
Svo mörg voru þau orð!
//
Lukkupokar”
„Sé tekið tillit til innihalds
pokanna og miðað við óskemmd-
Framhald á 6. síðu.
Leifr að Sigurði
hætt að mestu
1 gær var að mestu hætt
leitinni að Sigurði Theó-
dórssyni, piltinum sem
hvarf frá félagsheimilinu
Birkimel á Barðaströnd að-
faranótt sunnudags; þó
leituðu skátar áfram. Leit-
in hefur verið mjög um-
fangsmikil og fjöldi manns
tekið þátt í henni, um 150
manns að jafnaði. Slysa-
varnafélag Islands sendi
mann vestur til að aðstóða
við ^skipulagningu leitarinn-
ar, einnig lét félagið tal-
stöðvar í té og þyrla fé-
lagsins leitaði lengi dags á
því svæði sem helzt kom
til greina. — Er nú álit leit-
armanna, að það vel hafi
verið að gert, að ekki sé
árangurs að vænta af frek-
ari leit.
Skógafosssmyglið:
V-
Fimm þegar dæmdir í gæzluvarðhald
■ Dómsrannsókn í smyglmáli skipverja á m.s. Skóga-
fossi var haldið áfram í gær og var þá fjórtándi maðurinn
handtekinn. Er það bifreiðastjóri sá, sem ók smyglvam-
ingnum frá Þorlákshöfn í Kópavog. í gær höfðu þegar
fimm menn verið úrskurðaðir í gæzluvarðhald vegna
þessa máls, en allir fjórtán hafa játað aðild að smyglinu.
Bifreiðastjórinn, sem um ræðir, hafði farið þrjár ferðir
austur fyrir heiði’til að sækja smyglið.
■ Eins og skýrt hefur verið frá er hér um meiriháttar
smygl að ræða og tilraunin sérlega ósvífin 'þar eð reynt
var að dulbúa vaminginn sem vörupartí. Smyglið, eða
öllu heldur það sem fundizt hefur, er um hálf miljón vind-
linga og 228 vínflöskur. Jón Abraham Ólafsson, saka-
dómari, annast rannsokn malsins og stóðu yfirheyrslur
í allan gærdag og fram á kvöld. ‘ ^