Þjóðviljinn - 26.08.1966, Blaðsíða 3
FostudagUT 28. ágóst !966 — KTÖÐVTLXTNN — SÍDA J
De Gaulle leggur
upp í heimsreisu
Ræðir fyrst við Haile Selaisse Eþíópíukeisara, en
mest vænta menn sér af ræðu hans í Kambodju
PARÍS 25/6 — De Gaulle forseti lagði í dag upp í ferð
sína umhverfis hnöttinn. Einkaflugvél hans fór á loft frá
Orly-flugvelli við París snemma í morgun og hennar var
vænzt til Djibouti í Franska Sómalilandi síðdegis.
Menn eru orðnir því vanir að
de Gaulle geri ekkert, eða fari,
svo að hann sjálfur verði bendl-
aður við, nema að baki liggi
mikilvægar ástæðuu.
Þegar de Gaulle hittir Haile
Selassie, keisara Eþíópíu og af-
komanda drottningarinnar af
Saba, þá finnst honum að sögn
kunnugra sem mætist tveir iafn-
ingjar, tveir höfðingjar þjóða
sem aldrei létu á hlut sinn
ganga. De Gaulle hefur aldrei
dregið dul á virðingu sína fyrir
keisaranum, sem heldur kaus að
fara í útlegð en gerast leppur
sigurvegaranna.
Frá Di.iibouti fer de Gaulle til
Addis . Abeba á fund keisarans.
Franska Sómaliland er eina
svæðið í Afriku sem enn heitir
nýlenda, nýlendur Portúgala eru
að forminu til hluti af „heima-
landinu“. Eþíópíukeisarar hafai
jafnan gert tilkall til þessa lands,
en víst er að Haile Selassie mun
ekki leggja mikla áherzlu á þá
kröfu.
Miklu fremur munu viðræður
þeirra snúast um samskipti
þeiira nýfrjálsu ríkja Afríku
sem hallast að enskri og hinna
sem hallast að franskri tungu.
Haile Selassie hefur sem þjóð-
höfðingi eina „svarta" ríkisins
sem aldrei komst undir hramm
nýlenduveldanna haft forustu
um samstöðu þeirra- Bandalag
Afríkuríkja hefur aðsetur sitt i
Addis Abeba, Eþíópíustjóm, svo
afturhaldssöm sem hún er í flest-
um málum heimafyrir, hefur
beitt sér fyrir hvers konar sam-
vinnu Afríkuríkjanná á milli —
bg jafnan hafnað eindregið sér-
hverri íhlutun hinna gömlu ný-
lenduvelda. þetta sjálfstæði óg
mannsbragur er de Gaulle að
skapi. Því leggur hann nú leið
sína til Addis Abeba — og end-
urgeldur með því heimsókn keis-
arans til Parísar árið 1959 (sjá
mynd).
Ræðan í Phnom Penh
. En allt, sem þeim de Gaulle
og Ras Tafari fer á milli, bætt
sambúð ensku- og frönskumæl-
andi Afríkumanna, Ródesía, Suð-
ur-Afríka og önnur þau afrísku
málefni sem þeir munu fjalla
um, er áðeins forleikur að því
sem löngu hefur veyið lýst yfir skoðun sinni, að friði yrði ekki
opinberlega og síðan hefur ver- komið á í Vietnam eða öðrum
ið margítrekað, —. forleikur að löndum Indókína nema með því
þeirri ræðu sem boðað hefur að allir aðilar virtu að fullu
verið að de Gaulle muni flytja ákvæði Gebfarsáttmálans frá
í Phnom Penh, höfuðborg Kam- 1954 og haldið fram þeim skiln-
bodja, á fimmtudaginn kemur. ingi að skýlausum ákvæðum
Rétt fyrir þrottför de Gaulle sáttmálans að Bandaríkjamenn
frá Orly í dag var það enn í- 6----------------;----------------
trekað að vænta mætti meiri-
háttair stefnuyfirlýsingar de
Gaulle um stríðið í Vietnam og
ástandið í Indókína yfirleitt.
De Gaulle hefur. é undanförn-
um árum margsinnis lýst þeirri
Að hálfrí miljón drepinni í
bléðbaðsnu í Indónesíu
NEW YORK 25/8 — Fréttaritari „New York Times“ í Suð-
austur-Asiu segir að 150.000 eða jafnvel '400.000 manns
hafi verið drepin í blóðbaðinu sem gekk yfir Indónesíu í
fyrrahaust eftir hina misheppnuðu uppreisn Úntúngs of-
ursta, sem kommúnistum hefur síðar verið kennt um.
Fréttamaður blaðsins segist hafa góðar heimildir fyrir
þessu. Þó kynni að vera að fjöldi þeirra sem drepnir voru
nálgist háifa miljónina, og þessum manndrápum er haldið
áfram. Fréttámáðúr „New York Times“ segir að slátrun
þúsunda kommúnista muni marka spor í sögu Indónesíu
öldum saman.
og stríðið / Vietnam
verði að hverfa á brott með allan
sinn her frá Indókína. Ýmsar
getgátur eru uppi um hvað de
Gaulle muni segja í ræðu sinni
í Phnom Penh á fimmtudaginn,
en allir þykjast þess fullvissir að
orðúm hans verði ekki vel tekið
Washington.
Fundur norrænu fkgmákfé-
lagannu haldinn í Reykjavik
Undanfarið hefur staðið yfir í
Reykjavík þing sambands nor-
rænna flugmálafélaga og Iýkur
því í dag. Sambandið var stofn-
að fyrir þremur áruni og er þetta
fjórða þingið, það næsta verður
haldið í Danmörku.
10—12 mál hafa verið á dag-
skrá þingsins. Ákveðið hefur
verið enskt nafn hinna norrænu
Búizt við mpduro
MOSKVA 25/8 — Sovézka tungl-
farið Lúna II. heldur áfram leið
sinni að ákvörðunarstað og er
talið nær vist að ætlunin sé að
það fari á braut umhv. tungl-
ið, eins og Lúna 10. gerði fyrst
allra geimfara 3. apríl s. 1. Að
sjálfsögðu eru uppi um það get-
gátur að Lúna 11., sem er miklu
þyngri og umfangsmeiri en síð-
asta tunglfar Bandaríkjanna, Or-
biter I., muni senda til jarðar
myndir af ókönnuðu yfirborði
tunglsins.
samtaka og er það Association
of Nordic Aeroclubs, skammstaf-
að ANA- Af öðrum málumþings-
ins mun það einna merkast, að
ákveðið hefur verið að Norður-
lönd skiptist á svifflugnemum og
kemst það mál væntanlega í
kring á næsta ári. Einnig' hefur
verið rætt um sameiginlegt
tímarit flugmálafélaganna og
samræmingu á hinum margvís-
legu reglum sem gilda um einlca-
flug, en flugmáíafélögunum er
fyrst og fremst ætlað að vera
málsvari einkaflugsins.— í þessu
ssimbandi gat Baldvin Jónsson,
hrl- formaður FlugmálafélagiS ls-
lands, þess, að deila Loftleiða við
SAS stæði algjörlega utan við
svið þessara samtaka. bau láta
sig einkaflugið eitt varða.
★
Talsvert yfir tuttugu þúsund
manns munu nú starfa í flug-
málafélögum Norðurlanda, en
allir áhugamenn geta sem hæg-
ast orðið félagar. Flugmálafélag
Islands átti þrjátíu ára afmæli
í gær og af því tilefni sæmdu
fulltrúar danska og sænska flug-
málafélagsins, félagið æðsta heið-
ursmerki SFimtaka sinna-
Sameinast Siúdentáráð og SÍSE
Framhald af 10. síðu.
sem fyrr ségir, áhej'rnarfulltrú-
ar frá SHÍ. Samvinna hefur ver-
ið hafin milli SHÍ og SÍSE á
ýmsum sviðum m.a. hefur verið
ráðinn sameiginlegur fram-
kvæmdastjóri auk þess, sem
samstarf hefur verið í kjara-
málum og utanríkismálum. Enn
hefur þó ekki orðið af stofnun
Sambands íslenzkra háskólastúd-
enta (SÍH), en nefnd fulltrúa
frá SHÍ og SÍSE vinnur að
þeim málum.
Ákveðið var á fundinum að
halda námskynningu í samráði
við SHÍ, eins og undanfarin ár,
og fer hún fram þriðjudaginn
30. þ.m. í Menntaskólanum í
Reykjavík og hefst kl. 20. Á
námskynningu þessari verða
gefnar upplýsingar um nám í
fjölmörgum riámsgreinum við
Háskóla íslands og fjölda er-
lendra háskóla. Verður reynt að
gera hana víðtækari en náms-
kynningar þær, sem SÍSE og
SHÍ stóðu að sl. vetur við
menntaskólana utan Reykjavík-
ur og Verzlunarskóla íslands.
Þess skal ' að lokum getið, að
SÍSE rekur skrifstofu, Hverfis-
götu 14, Reykjavík. Eru þar
veittar upplýsingar um nám er-
lendis. — Skrifstofan er opin
þriðjudaga og fimmtudaga kl.
17.30—19.00. Sími: 17752.
STOKKHÓLMI 25/8 — Stríðið í
Vietnam varð í dag að megin-
atriði í baráttunni fyrir kosning-
ar til sveita- og bæjarstjórna í
Svíþjóð sem fram eiga að fara
18. september.
Um alla Svíþjóð hafa verið
festir upp áróðursmiðar þar sem
þess er krafizt að Bandaríkja-
menn fgri brott frá Vietnam.
Enginn flokkur er nefndur á
nafn á miðum þessum, en komm-
únistar gangast fúslega við því
að hafa fest þá upp.
Urban Karlsson, framkvæmda-
stjóri kommúnistaflokksins, hef-
ur sagt að þótt aðeins sé um
að ræða að kjósa menn í bæj-
arstjórnir, þá sé ekki hægt að
heyja kosningabaráttuna án þess
að minnast á Vietnam. Karlsson
var að því spurður í sænska
sjónvarpinu hvemig á því stæði
að riafn kommúnlstaflokksins
vœri ekki nefnt á miðunum og
svaraði hann því til að „Viet-
namstríðið væri mál sem menn
taka afstöðu tll án tillits til
f lok.kshol lusfu. “
Það eru síður en svo aðeins
kommúnistar sem lýst hafaand-
stöðu sinni við stefnu Banda-
ríkjanna í Vietnam. Það vakti
t.d. athygli mikla að formaður
sósialdemókrata í efri deild
sænska þingsins. Ingmund Bengts-
son lýsti því yfir að Bandaríkin
bæra höfuðábyrgðina á stríðinu
í Vietnam.
arasir enn
á einum degi
SAIGON 25/8 — Bandaríska her-
stjórnin í Saigon tilkjmnti í dag
að bandarískar flugvélar hefðu
í gær farið i fleiri árásarferðir
á skotmörk í Suður-Vietnam en
á nokkrum öðrum degi, 146 sagði
hún að „metið“ í dag hefði ver-
ið, sjö betur en árásir á ein-
um degi höfðu verið flestar áður.
Laufásvegi 61.
SELUR:
•• •.
Innkaupatöskur
verð frá kr. 150,00.
Innkaupapoka,
verð frá kr. 35,00.
StöSumælægjöld hækkuð
Framhald af J síðu.
Nýlega hafa verið settir upp
nýir stöðumælar á Laugavegi
áð Snorrabraut og á næstunni
verða settir upp nýir stöðumælar
á Hverfisgötu að Klapparstíg. Á
báðum þessum stöðum hækkar
stöðumælagjaldið úr einni krónu
í tvær krónur fyrir hverjar byrj-
aðar 15 mínútur og skal sérstak-
lega tekið fram að mælarnir era
eingöngu gerðir fyrir tveggja
krónu peninga.
Verkefni stöðumælavarðar, er
að fylgjast með stöðu bifreiða
við stöðumæla og setja miða á
þær bifreiðar, þar sem rauða
skífan er uppi. Þó sérstakir
ÓÚTSALA
MIKILL
AFSLÁTTUR
Kvenskór — Karlmannaskór — Barnaskór
SKÓVERZLUN
PÉTURS ANDRÉSSONAR
Eaugavegi 17.
SKÓVERZLUNIN
FRAMNESVEGI 2.
UriæsasKi
stöðumælavérðir hafi verið ráðn
ir til starfa munu lögreglumenn
fylgjast áfram með stöðu bifreiða
við gjaldskylda stöðureiti.
Á bakhlið miðanna, sem sett-
ir eru á bifreiðar þeirra öku-
manna sem ekki fylgja reglum
um stöðumæla stendur m.a.
„Skv. heimild í reglum umstöðu-
roæla, 6. gr., er yður gerðurkóst-
ur á að Ijúka framangreindu
máli með greiðslu 50,00 kr. auka-
leigugjalds í stöðumælasjóð. Ef
þér fallizt á'þá málsmeðferð, ber
yður að undirrita tilkynningu
þessa óg greiða gjaldið í skrif-
stofu lögreglustjórans innan
viku. Sé um ítrekað brot að ræða
af yðar hendi, er heimilt að
beita sektum, er nema hærri
upphæð, en framan greinir.
Fallizt þér ékki á málsmeð-
ferð þessa, mun kæra send saka-
dómi með venjulegum hætti.“
Stöðumælar voru fyrst settir
upp í Rvík 1957, en það árvoru
138 mælar settir upp. Nú era 422
stöðumælar H notkun í Reykja-
vík. Þá má geta þess að stöðu-
mælasjóður hefur jrfir þrjú hundr-
uð gjaldfrjáls bílastæði á leigíu í
Reykjavík.
Gjaldskylda við stöðumæla
er á sama tíma og verzlunum er
almennt leyft að hafa opið.
(Frá umferðarnefnd Rvíkur).
Blaðdreifing
Blaðburðarbörn óskast í eftirtalin hverfi:
Reykjavíkurveg
Mela
Framnesveg
Laufásveg
Leifsgötu
Þórsgötu
Grettisgötu
ÞJÓÐVILJINN
Miklubraut
Sigtún
Brúnir
Skioasund
Nökkvavog
Selás
Sími 17-500.
T/LKYNNÍNG
frá LoftskeytaskóSanum
Loftskeytanámskeið hefst i Revkjavik um mánaða-
mótin september—október 1966.
Umsóknir ásamt prófskírteini miðskólaprófs eða
annars hliðstæðs prófs og sundskírteini sendist
póst- og símamálastjóminni fyrir 12. seot n.k.
Inntökupróf verða væntanlega haldin dagana 20.
til 22. september n.k. — Prófað verður í ensku og
reikningi, þar á meðal bókstafareikningi.
Nánari upplýsingar í síma 1-10-00 í Reykjavík.
Póst- og símamálastjórnin.