Þjóðviljinn - 07.09.1966, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 07.09.1966, Qupperneq 2
2 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 7. september 1966. Hugtakið umbúðir mun fýrst og fremst fela í sér efni eða hluti gerða til varðveizlu eða flutnings vöru eða annarra hluta. Frumtilgangurinn er því hagnýts eðlis, þótt viðleitni til samræmingar fegurðar og til- gangs hafi snemma komið til sögu. Áður fyrr voru umbúðir meira í formi íláta, enda var ' framleiðsla þeirra til skamms tima kölluð flátasmíði í ís- lenzku máli- I formi íláta hafa um aldir verið framleiddir skrautmunir og listaverk. sem að öðru leyti höfðu takmarkað hagnýtt gildi. Gerð og framleiðsla umbúða hefur tekið miklum breyting- um og framförum hin sfðari ár með tilkomu nýrra efna og aukinnar kröfu um hagnýtt og viðskiptalegt gildi þeirra. Hið hagnýta gildi miðast fyrst og fremst við varðveizlu vörunnar, er þær hafa að geyma, en hið viðskiptalega að vekja athygli á henni og notagildi hennar á smekklegan hátt- Fyrr á tímum mun umbúðar- eða ílátasmíði að mestu hafa verið unnin á verkstæðum í smáum stfl. eða sem heimilisiðnaður, en nú hin síðari ár sem stórfelld verk- smiðjuframleiðsla. Upphaf innlendrar umbúðaframleiðslu Umbúðaframleiðsla í nútíma mynd á sér ekki langa sögu á íslandi. ílátasmíðj, eins og það j hugtak mun almennt skýrt, er^ þó mjög gömul — en sem sjálf- stæð iön eða atvinnurekstur er beykisiðn langelzt. Samkvæmt heimildum í Iðnsögu Islands hafa Islendingar fyrst lært beyjkisi.ðn á dögum einokunar- verziunárinnar og f fyrri heimsstyrjöldinni voru trétunn- ur framleiddar hér í stórum stím^pess tíma mælikvarða til útflutnings á íslenzkum afurð- um. Sú smíði mun þó fyrst og fremst hafa verið handverk, en fyrstu tunnugerðarvélamar voru fluttar til landsins árið 1935 af Pétri Bjarnasyni, beyki, og sonum hans, Tryggva og Bjarna: Nú mun beykisiðn að fullu vera liðin undir Iok nema bá samsetning á síldartunnum á Siglufirði og Akureyri. Að beykisiðn frátalinni mun fyrsti vfsir að verksmiðjufram- leiddum umbúðum vera dósa- framleiðsla hjá Blikksmiðju Péturs Jónssonar, er hóf fram- leiðslu á þeim með sérstökum ' vélum árið 1907- Arið 1928 stofnsði sama .fyrirtæki, er þá hét Blikksmiðja J.B. Péturs- sonár, Tunnuverksmiðjuna. Framleiddi hún trétunnur með blikktunnum innan í, og voru þær gerðar til útflutnings á lýsi- • Þessi framleiðsla lagðist þó brátt niður. Sömu aðilar stofnuðu Stáltunnugerðina 1932, einnig til lýsistunnuframleiðslu, en nú er starfsemi hennar hætt. Kassagerð Reykjavíkur h-f. var stofnuð .1932, en í raun hóf hún störf tveim árdm fyrr. Upp- haflega miðaðist framleiðslan við trékassa fyrir niðursoðna mjólk, smjörlíki og fisk til út- flutningj, en verksmiðjan varð brátt að breyta til, þvf að nú hafa bylgju-pappakassar og pappaöskjur leyst trékassa af hólmi. Páppírspokagerðin h-f. og Dósaverksmiðjan h.f. fylgdu brátt í kjölfarið- Síðan hafa nokkur önnur umbúðafyrirtæki bætzt við og víkkað svið þess- arar greinar. Á hinum tiltölulega stutta tíma frá því að umbúðafram- leiðsla hófst hérlepdis sem at- vinnugrein, hafa orðið stórstíg- ar breytingar og framfarir. Umbúðir og pökkun eru orðin mjög mikilvægur þáttur í við- skiptalífi nútíma þjóðfélags og til þeirra gerðar miklar kröfur. Veltur því á miklu, að umbúða- framleiðendur séu færir um að uppfylla þær kröfur, enda er notendum umbúða ljóst, hvílík- um úrslitum smekklegur frá- gangur á vörum getur valdið í harðri samkeppni frjálsra við- skipta. Innlend umbúðafram- leiðsla er því öðrum atvinnu- greinum jafn mikilsverð og þær eru henni. f þessu sem öðru er hver öðrum háður. Enginn þáttur athafnalífsins getur staðið einn og óstuddur án hinna- Nauðsyn vörukynninga Á Iðnsýningunni 1966 sem nú stendur yfir, sýna flestir aðal- umbúðaframleiðendumir vörur sínar. Eru það eftirtalin fyrir- tæki: Dósaverksmiðjan h.f. sýnfr margar gerðir af lakkbomum blikk- og áldósum, áletruðum og skreyttum — einnig óáletr- uðum — fyrir niðursuðu, máln- ingu o.m.fl. Etna h-f. sýnir ölflöskuhettur frá öllum öj. og gosdrykkja- verksmiðjunum, en starfsemi hennar einskorðast við þá fram- leiðslu- Kassagerð Reykjavíkur h.f. sýnir bylgju-pappakassa, pappa- öskjur og límmiða f mjög fjöl- breyttri litprentun . (Offset og Letterpress) fyrir innlenda iðn- aðarframleiðslu og útflutnings- vömr frystihúsa, ásamt mjólk- urumbúðum, er m.a. hafa verið teknar í notkun á Akureyri og Keflavíkurflugvelli. Plastprent h-f. sýnir fjöl- breytt úrval af plastpokum, plastdósum, pappírspokum, sellofanpokum og öðrum um- búðum úr álþynnum (alúmíní- um foil), sellofan og umbúða- pappír í anilínprentun. Sigurplast h.f. sýnir mikið úrval af plastdósum, plast- flöskum og öðrum umbúðum úr plasti — prentað sem óáprent- að. ur að vera frágenginn á smekk- legan eða hreinlegan hátt. Það er hætt að tína nokkra brjóst- sykurmola eða kexkökur upp úr búðarskúffum með höndun- um í kramarhús- Hreinlætis- kröfur nútímans leyfa ekki slíkt — neytendur kaupa ekki slíkar vörur. Frágangur vörunn- ar, útlit og geymsluhæfni, verða að miðast við kröfur neytenda, Að sjálfsðgðu á hún nokkuð erfitt uppdráttar, enda er hér yfirleitt um að ræða ung og fjármagnsslítil fyrirtæki og mik- ill hluti umbúða nýtrar engrar eða lítillar tollverndar. Vélar til umbúðagerðar eru mjög dýrar og krefjast oft örrar endurnýjunar vegna sífelldra breytinga á umbúðum — og nýrra, er ryðja þeim eldri Stálumbúðir h.f. sýna stál— tunnur í mismunandi stærðum til útflutnings á meðalalýsi, svo og bakka úr áli og ryðfríu stáli fyrir matvælaiðnaðinn. Við yfirsýn áhorfenda hljóta þeir að veita athygli hinni miklu fjölbreytni í íslenkri umbúðaframleiðslu. Þeir hljóta einnig að sjá, hve víða inn- lendar umbúðir skreyta vörur annarra framleiðenda. Nú verða framleiðendur flestra vörutegunda, einkum hinna svokölluðu neyzluvara, að full- ganga frá þeim til afgreiðslu til neytenda. Tími handpökkunar og uppviktunar í verzlunum er liðinn — og tími afgreiðslu á flestum tegundum fatnaðar úr hillum verzlana, þar sem hann lá óvarinn og velktur, er einnig liðinn. Nú verður sérhver hlut- því að þeir ráða, þegar miðað er við eðlilega viðskiptahætti. Samkvæmt þessu verða not- endur umbúða að haga sér og eftir því verða framleiðendur umbúðanna að fara. í frjálsri verzlun tjóar ekki að segja „Þú skalt hafa þetta eða ekkert“ — Á næstai götuhorni er önnur verzlun, sem fólk getur snúið sér til. Þó finnast enn nokkr- ar undantekningar frá þeirri reglu, (sem sanna ágæti henn- ar)! Umbúðir á Iðnsýningn Að loknum ofangreindum hugleiðingum mætti spyrja: Hvar stendur íslenzkur um- búðaiðnaður í hinni hörðu verð- og gæðasamkeppni við erlend- ar umbúðir nú á tímum frjáls innflutnings? úr vegi. Samanlögð gjöld af innfluttum iðnaðarvél- um eru hér almennt 35 prósent. Rýrir þetta mjög getu fjár- magr\slítilla iðnrekenda til að búa sig góðum vélakosti, þar sem lánamöguleikar eru stund- um litlu meiri en nemur áður- nefndum gjöldum. Fjármagns- nýting verður því mjög slæm og eykur reksturskostnað fyr- irtækja óeðlilega mikið. Segja má, að verulegur hluti þeirra umbúða, er landsmenn nota, sé nú framleiddur innanlands. Nokkuð vantar þó á, og er það einkum, þar sem þörf er dýrra véla. Núverandi tDlla- og skattalöggjöf hindrar þetta í vissum mæli — og svo í sum- um tilvikum ónógur markaður- í heild á íslenzkur iðnaður nú mjög í vök að verjast fyrir erlendum varningi, sem hóf- laust er fluttur inn og auglýst- ur í mun ríkara mæli en ís- lenzkir framleiðendur geta al- mennt. veitt sér. Það hefur lengi legið í landi ótrú á því, sem innlent er- Stundum hef- ur þetta átt rétt á sér, en oft ekki- Iðnsýning sem þessi, er r.ú stendur vfir, þar sem sýnd- ar eru aðal framleiðsluvörur iðnaðarins, er líklegust til að eyða tortryggni, því að þar geta neytendur kynnt sér á hlut- lægan hátt fjölbreytt vöruval og ga^ði þess. Einnig er nauð- synlegt fyrir hina einstöku iðri- rekendur að kynnast vel fram- leiðslu annarra með það fyrir augum að geta notað þeirra framleiðsluvörur til sinnar eig- in starfrækslu. Hin síðari ár er verkaskipt- ing í iðnaði og samvinna á milli fyrirtækja að færast mjög í vöxt. Hvað umbúðaframleiðsl- una varðar, þá er henni sérstök nauðsyn kynningar gagnvart öðrum framleiðendum og dreif- endum. Umbúðir eru orðnar all- stór liður í rekstri annarra framleiðenda og verzlana. Er því mikils um vert, að þær séu valdar af kostgæfni- En þótt góðar umbúðir séu oft dýrar verða þær venjulegast ódýrar í raun vegna miklu betri varð- wsizlu vörunnar og aukinnar söli^iæfni. GOÐ VARA FÆR ALDREI OF GÓÐAR UMBÚÐIRI lÐNlSYMINGlNl DOSAVERKSMIÐJAN H.F. KASSAGERÐ REYKJAVÍKUR H.F. PLASTPRENT H.E SIGURPLAST H.F STÚKA' NQ 109 - - - 379 - - 260 ' ' - 221 /

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.