Þjóðviljinn - 07.09.1966, Page 3
N
MÓÐVTLJiNN — MiSwffcDdagar T. september 1966 — SÍÐA 3
■'V'N.
1111
iiwN
Hllll
■ ■ ■
[ s ■ '•
L
váðu
’öáiáiijáii
rtrma$gt*mw£$tiv
u í]^\h£ttízx .
Hert barátta gegn
Mosnmgum1 Saigons
\
SAIGON 8/9 — Bæði Þjóðfrelsisfylkingin og samtök búdda-
trúarmanna hertu í dag baráttu sína gegn „kosningum“
þeim sem herforingjaklíka Kys og félaga hefur ákveðið
að láta fara fram í Suður-Vietnam .á sunnudaginn.
“ : ® Leiðtogar búddatrúarmanna
mr - r || r kunngerðu að þeir myndu fasta
Rodesia rædd a
! samveldisfundi
LONDON 6/9 — Wilson, for-
sætisráðherra Breta, varði á
samveldisráðstefnunni í London
í dag stefnu stjórnar sinnar í
Ródesíumálinu og hvatti öll sam-
veldislöndin til að styðja hana.
Hann hélt því enn fram að
efnahagsaðgerðirnar gegn stjórn
Smiths myndu nægja til þess að
henni yrði §teypt um síðir. Leið-
togar Afríkuríkjanna sátu á
fundi í dag til að ráða ráðum
sínum um sameiginlega gagn-
rýni á brezku stjórnina.
Myndin er tekin þegar Verwœrd var sýnt banatilræði 1960
Nazistlnn sem var aðal
. höfundur
H,
„apartheids'1
lendrik Frensch Verwoerd var
ekki af Búa-ættum þótt hol-
lenzkt blóð rynni í æðum hans.
Hann var fæddur í Hollandi ár-
ið 1901, en fluttist með foreldr-
um sínum til Suður-Afríku eins
árs gamall, árið sem Búastríðinu
lauk. Hann stundaði nám íheim-
speki og sálfræði við Stellen-
bosch-háskóla og síðan við há-
skólana í Hamborg, Leipzig og
Berlín og hafði þýzkt doktors-
iróf. Á námsárum sínum í
pýzkalandi komst hann í kynrti
við nazismann og þau kynni
‘ mótuðu allt starf
John Vorster dómsmálaráðherra
cr talinn einna líklegastur eftir-
maður Verwoerds
i
zíðan. Hann hafði orðið prófess-
or í sálfræði og síðar félags-
fræði við Stellenbosch-háskóla
1928 og 1936 vakti hann á sér
athygli þegar hann gekkst fyrir
mótmælum suðurafrískra há-
skólakennara gegn því að Gyð-
ingar sem flúið höfðu ofsóknir
þýzku nazistanna fengju að setj-
ast að í Suður-Afríku. Tveimur
f.rum síðar tók hann við rit-
rtiórn málgagns Þjóðernissinna-
flokksins, „Die Transvaaler", og
með því má segja að stjórnmála-
ferill háns hefjist. Hann gegndi
-itstjórastarfinu í ellefu ár og
fór þá aldrei dult með aðdáun
sína á þýzku nazistunum; var
andvígur stuðningi Suður-Afr-
íku við Breta og bandamenn á
-tríðsárunum.
„Hugmyndafræðingur"
Hann mátti kallast „hug-
myndafræðingur“ Þjóðernissinn-
anna, en þá hugmyndafræði
hafði hann tekið að láni hjá
þýzku nazistunum. Hún vann sér
stöðugt meira fylgi meðal hinna
hvítu íbúa Suður-Afríku, fyrst
og fremst þeirra sem voru af
hollenzku bergi brotnir, og 1948
vann Þjóðernissinnaflokkurinn
mikinn kosningasigur. Dr. Malan
myndaðj fyrstu stjórn þeirra og
kvaddi Verwoerd brátt til starfa
í henni. 1950 varð hann ráð-
herra fyrir málefni ,,innfæddra“
og gegndi því embætti 1 átta ár.
Á þeim árum mótaði hann frem-
ur öllum öðrum stefnu „apart-
heids“, aðskilnaðar kynþáttanna,
með öllum þeim hörmungum
sem hún leiddi yfir yfirgnæf-
andi meirihluta íbúanna, Afríku-
mennina, Indverjana og kyn-
blendingana.
Sharpeville
Það var því næsta eðlilegt að
við embætti forsæt-
þegar eftirmaður Ma-
lans, Strijdon, lézt 1958. Síðan
hefur hann borið meiri ábyrgð
en nokkur annar á síaukinni
harðstjórn í Suður-Afríku og
enn voru fyrirmyndirnar sóttar
til Hitlers-Þýzkalands. Blððtíað-
ið mikla í Sharpeville í marz
1960 verður jafnan tengf nafni
hans, einnig vegna þess að mán-
uði síðar munaði minnstu að
hann fengi sjálfur sömu örlög
og hann hafði búið hinum varn-
arlausu íbúum Sharpeville.
Brezkættaður bóndi skaut á
hann og hæfði hann tveimur
skotum (hann kvaðst hafa ætl-
að að hitta „hjarta apartheids"),
en Verwoerd lifði af tilræðið, og
vinsældir hans meðal hinna of-
stækisfyllstu í hópi Þjóðernis-
sinnanna jukust enn. Síðar það
ár var slitið sambandinu við
brezku krúnuna og árið eftir
sagði 1 SUður-Afríka sig úr
brezka samveldinu.
Sumir enn verri
Þrátt fyrir ófagran feril Ver-
woerds, hefur hann á seinni ár-
um ekki verið talinn í hópi
mestu öfgamannanna í stjórn
Suður-Afríku. Þeir hafa legið
honum á hálsi fyrir ráðagerðirn-
ar um stofnun „sjálfstjórnarhér-
aða“ Afríkumanna, hinna svo-
nefndu „Bantústan" og í síðustu
kosningum fyrr á þessu ári
klauf hópur þeirra sig úr Þjóð-
ernissinnaflokknum sem þeir
sökuðu um’ linkind við Afriku-
menn. Þeir fengu að vísu ekki
mikinn byr undir vængi, en öll-
um ^ber saman um að fylgi
þeirra og manna af þeirra tagi
fari vaxandi, einnig innan Þjóð-
ernissinnaflokksins, og má telja
líklegt ^að það vaxi enn eftir
morðið á Verwoerd. Afstaða
stjórnar Suður-Afríku mun vafa-
lítið verða enn óbilgjarnari,
bæði heimafyrir og útávið.
Morðið á Verwoerd — liver
sem tilgangur morðingjans var
— hefur þannig ekki leystneinn
vanda.
ás.
GALWAY, írlandi 4/9 — Tveir
veðurbarnir brezkir fallhlífa-
hermenn gengu í gærkvöld á
land á eyðiey við strönd ír-
lands eftir að hafa róið yfir
Atlanzhafið á 93 dögum. Þeir
lögðu af stað frá Cape Cod í
Massachusetts 4. júní á 20 feta
löngum bát og reru 4.800 km.
Sýrlandsstjórn segist hafa
komið í veg fyrir uppreisn
DAMASKUS 6/9 — Ríkisstjórn
vinstrimanna í Baath-flokknum
í Sýrlandi tilkynnti í dag að
hún hefði komið í veg fyrir
Súkarnc varar
i þrjá sólarhringa frá því á
fimmtudagskvöld í mótmæla-
skyni við „kosningarnar" sem
þeir hafa kallað tóm svik og
blekkingar, en skæruliðar Þjóð-
frelsisfylkingarinnar sprengdu í
dag í loft upp byggingu eina í
Saigon þar sem kjörstaður átti
að vera á sunnudaginn.
Kosningaskrifstofan var í einn-
ar hæðar byggingu og var nærri
því gereyðilögð. Engan mann
sakaði við sprenginguna. í skrif-
stofunni voru ýms áróðursgögn,
hátalarar, bæklingar og önnur
kosningagögn.
Bandaríska sendiráðið til-
kynnti i dag að öllum óbreytt-
um bandarískum borgurum í
Saigon, sem eru 3.000 talsins,
hefði verið fyrirskipað að vera
kyrrir í herbúðum sínum um
helgina.
Leiðtogar búddatrúarmanna,
en samtök þeirra eru langöfl-
ugustu almannasamtökin í þeim
hluta Suður-Vietnams sem Þjóð-
frelsisfylkingin ræður ekki yf-
ir, sögðust mundu skora á alla
fylgismenn sína að taká ekki
þátt i kosningunum á sunnudag.
Allir búddamunkar og nunnur
hafa verið hvött til að taka þátt
í mótmælaföstunni.
DJAKARTA 6/9 — Súkarno
forseti sagði á fundi með göml-
um vopnabræðrum sínum úr
þjóðfrelsisbaráttu Indónesa að
bandaríska leyniþjónustan CIA
ynni að því öllum árum að
koma bæði sér og fullveldi Indó-
nesíu fyrir kattarnef. Hann sagði
í ræðu sem hann hélt í forseta-
höllinni í Djakafta að hann
væri „marxisti í innsta eðli
sínu“.
uppreisn sem hægrimenn í
flokknum hefðu ætlað að gera
til að koma aftur til valda leið-
togum flokksins sem vinstri-
menn viku frá völdum fyrr í
ár.
Heimsvaldasinnum var kennt
um að hafa staðið að baki upp-
reisnarfyrirætlun hægrimanna
og voru þeir sérstaklega bornir
sökum Feisal, konungur Saudi-
Arabíu, og Johnson Bandaríkja-
forseti, s'em veitt hefðu fjárfúlg-
ur sem voru sjöfalt meiri en
árstekjur sýrlenzka ríkisins ti/
samsærisins gegn hinum sósíal-
istísku framfaraöflum í löndum
Araba.
Atkvæðagreiðslan
■m kaupbindingu
LONDON 6/9 — Á morgun, mið-i
vikudag, á að greiða atkvæði
á þingi brezka alþýðusambands-
ins sem haldið er í Blackpool um
ályktunártillögu þá sem fyrir
þinginu liggur til fordæmingar
á kaupbindingarlögum stjórnar
Wilsons. Enda þótt tillagan
njóti stuðnings stærsta verk-
lýðssambandsins, samb. flutn-
ingaverkamanna, er talið að
hún muni verða felld, en varla
með miklum meirihluta.
Boimfáðherra fer
til Rúmeníu
BÚKAREST 5/9 — Kurt
Schmúcker, efnahagsmálaráð-
herra Vestur-Þýzkalands, kom
í gærkvöld til Búkarestar í op-
inbera heimsókn. Tilgangur
ferðarinnar er í Bonn sagður
að bæta sambúð Vestur-Þýzka-
lands og Rúmeníu og mun m.a.
verða undirritaður samningur
um aukin viðskipti landanna.
Ferð Schmúckers vekur nokkra
athygli þar sem þetta er í
fyrsta sinn sem vesturþýzkur
ráðherra heimsækir land í A-
Evrópu utan Sovétríkjanna, en
Vestur-Þýzkaland hefur ekki
stjórnmálasamband við neitt
þeirra.
Hver stund með Camel
léttir lund!“
Kveikið í einni Camel og njótið ánægjunnar
af mildu og hreinræktuðu tóbaksbragði.
BEZTA TÓBAKIÐ GEFUR BEZTA REYKINN
Ein mest selda sígarettan í heiminum.
MMXMHSJl
\