Þjóðviljinn - 03.11.1966, Page 1

Þjóðviljinn - 03.11.1966, Page 1
/ Nýjasta „afrek" vararektors: HOTAR AÐ BEITA STUD- ENTA LÖGREGLUYALDI 75. flokksþing Sósíalistaflokksins verður sett á morgun kl. 5 s.d. 15. þing Sameining- arflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins verður sett á morgun, 'föstudaginn 4. nóvem- ber, kl. 5 e.h. í Tjarn- argötu 20 af formanni flokksins, Einari Ol- geirssyni. Þingið mun standa í þrjá daga og lýkur því á sunnudagskvöld. Munu sitja þingið á annað hundrað fulltrú- ar frá sósíalistafélög- um í öllum kjördæm- um landsins. Á dagskrá þingsins eru eft- irtalin alriði 1. Þingsetning. 2. Skipun nefndanefndar og kjörbréfanefndar. 3. Rannsókn kjörbréfa. 4. Álit kjörbréfanefndar og nefndanefndar. Myndin er tekin á síðasta þingi Sósialistaflokksins sem haldið var í nóvember 1964. útgáfa 5. Kosning starfsmanna þings- ins og starfsnefnda. 6. Skýrsla miðstjórnar, stjórn- málaviðhorfið og næstu verkefni flokksins. 7. Hlutverk og starfsemi Sós- íalistaflokksins Þjóðviljans. 8. Reikningar flokksins, blaða- og bókaútgáfu. 9. Fjárhagsáætlun fyrir næstu tvö ár. 10. Lagabreytingar. 11. Kosning flokksstjórnar sg varamanna ásamt endur- skoðendum og varaendur- skoðendum. 12. Ákvörðun staðar fyrir næsta flokksþing. 13. Þingslit. Klukkan 5 í dag efnir Stúd- entafélag Háskóla fslands til al- menns fundar í Súlnasal Hótel Sögu, þar sem sænska skáldkon- an Sara Lidman mun flytja fyr- irlestur um Vietnam og svára fyrirspumum. Fundurinn verð- ur settur rétt fyrir klukkan fimm á tröppum Háskóla fslands og flytur Sara þar stutt ávarp. Eins og kunnugt er bannaði prófessor Halldór Halldórsson vararektor skólans að fundurinn yrði haldinn í húsakynnum hans og jafnframt hefur hann hótað stúdentum að siga á þá lögregl- unni ef þeir komi með fundinn inn á Háskólalóðina. Stúdentar hafa þegar svarað gerraeði vara- rektors á verðugan hátt með verkfalli því, sem sagt er frá annarsstaðar f blaðinu, en þeir harma mjög að níðskrif Morg- unblaðsins skuli eiga svo greiða leið að embættismönnum skólans og hafa slík áhrif á þá. Þjóðviljinn hefur reynt að hafásamband við málfundanefnd félagsins en fengið þau svör að þetta vaeri mál, sem æskilegast væri að leysa innan skólans. Ö- hætt mun þó að fúllyrða að Há- skólaráð sem slíkt, stendur ekki einhuga að baki þeirrar ákvörð- unar vararektors að bannafund- inn. ★ Fundurinn á Hótel Sögu er öllum opinn og er fólk hvatt til að fjölmenna þangað. _ Aldmður muður beið bunu i umferðurslysi í fyrrinótt Banaslys varð á Suðurlands- braut á móts við húsið nr. 4 í fyrrinótt rétt um miðnættið. Aldraður maður varð Þar fyrir bíl. Slysið vildi til með þeim hætti, að Moskwitch fólksbíl var ekið austur brautina, en mað- urinn mun hafa gengið yfirhana frá suðri til norðausturs. Skyggni var mjög slæmt og sá bílstjór- inn ekki til ferða mannsins, fyrr en rétt í þann mund að hann skall á bílnum. Maðurinn kast- .aðist upp á vélarhús bílsins og braut framrúðuna, en skall síð- an í götuna. Hann var fluttur meðvitundarlaus á Slysavarð- stofuna og þaðan á Landsspit- ala, þar sem hann lézt skömmu síðar. Ekki er hægt að skýra frá nafni hans að svo stöddu, vegna þess að ekki hafði í gær tekizt að ná til ættingja hans, sem eru búsettir úti á landi. I Moskwitch bílnum voru auk bílstjórans, tvær stúlkur. Sat önnur þeirra fram í og hlaut nokkrar skrámur af glerbrotum, einnig. taugaáfall. ★ Rannsóknarlögreglan óskar eft- ir því, að þeir sem kynnu að hafa séð aðdraganda slyssins, eða slysið sjálft gefi sig þegar fram við hana. Þetta var 6. banaslysið í um- ferðinni f lögsagnarumdæmi víkur á þessu ári. Bjarni Benediktsson viðurkennir:* Inngungu íslendingu í EBE befði drepið íslenzkun iðnuð í umræðum á Alþingi i gær viðurkenndi Bjarni Bene- diktsson forsætisráðherra að innganga íslands í Efnahags- bandalag Evrópu hefði orðið til þess að drepa íslenzkan iðnað, sem ekki hefði reynzt fær um að keppa við fjölda- framleiðslu iðnaðarþjóðanna á jafnréttisgrundvelli. Heldur var dauflegt á Alþingi í gær og, fór allur fundartími sameinaðs þings til þess að ræða um þrjár þingsályktunartillögur Framsóknarþingmanna. Fjallaði ein um jarðakaup ríkisins, önn- Sésíalisfafélag HsfnarfUrðar Sósíalistafélag Hafnarfjarðar heldur félagsfund að Strandgötu 41 í kvöld, fimmtudag, kl. 20,30. FUND AREFNI: Kjör fulltrúa á 15. þing Sósíalistaflokksins. — önnur mál. Félagar, fjölmennið og munið að sýna ber sjdrteini við inn- ganginn. — Stjórnin. ur um athugun á námslaunum og námslánum og töluðu Helgi Bergs og Iifgvar Gíslason fyrir þeim. Loks var haldið áfram umræðum um kaup Seðiabank- ans á víxlum iðnaðarins og átt- ust þar við Þórarinn Þórarins- son og ráðherrar tveir, Bjarni Benediktsson og Jóhann Haf- stéin, og var þeirri umræðu enn frestað. Var fátt nýtt í umræðunum nema hvað Bjarni Benediktsson viðurkenndi að innganga íslands í Efnahagsbandalag Evrópu hefði orðið til þess að drepa íslenzk- an iðnað, og er fróðlegt að bera þá yfirlýsingu saman við áróð- urinn í stjórnarblöðunum fyrir innlimun íslands í Efnahags- bandalagið. Eiim maður fórst er eldur kom upp í verzlun- arhúsinu Kjörgarði við Laugaveg í gærdag. Miklar skemmdir munu hafa orðið þar af reyk, en tiltölulega litlar af eldi og vatni. Reyknrinn barst svo óðfluga um húsið að margt af starfs- fólkinu átti fótum fjör að launa. Slökkviliðið var kallað að Kjör- garði rétt fyrir klukkan 5 i gær- dag. Þá var eldur la\is i bfcainn- keyrslu Hverfisgötumegin, en húsið fullt af reyk. Þegar var ráðist að eldinum Hverfisgötu- megin, en menn sendir með grímur upp í' húsið Laugavegs- megin til að leita að fólki, sem kynni að hafa orðið innlyksa. Reykurinn var þá kominn upp um allar hæðimar fjóra:, en enginn maður fannst þrátt fyrir ftarlega leit. Menn sem voru að vinna á fjórðu hæðinni, en Mn er í smíðum, gátu forðað sér upp á þakið og þaðan á vinnupalla og niður. í kjallaranum, þar sem eldur- inn var, var mjög heitt, en mað- ur sendur' þangað inn strax og fært 7ar. Fannst þá einn maður láöno á öðífmu pg hafiðí scú»i- lega kafnað. Ekki. er hægt ad skýra frá nafni hans að svo stöddu að ósk vandamanna. Kristján Friðriksson forstjóri Últíma er annar af eigendum Kjörgarðs. Honum segist svofrá, að hann hafi verið staddur á 3. hasð við að borga út kaup. Haíí þá síminn á skrifborðinu hringt og honum verið sagt að eldur væri laus í húsinu. Hljóp hann þá strax fram í salinn, en á 3. hæð er vinnustofa Última, og sagði fólkinu að forða. sér út Ekki sagðist hann hafa kallað til mannanna á 4. hæð, enda vitað að þeir áttu greiða leið út Framhald á 6. síðu. HM-keppnin í sjónvnrpinu ■ Sjónvarpið hefur tryggrt sér kvikmyndir af nokkrutm helztu kappleikjanna, sem háðir voru í úrslitum heimsmeistarakeppninn- ar í knattspyrnu á Englandi í sumar sem leið. Fyrsta myndin verður sýnd í sjónvarpinu annað kvöld, þ.e. leikur Pnrtúgala og Sovétmanna um þriðja sætið í keppninni. Hefst sýning myndarinn- ar lanst fyrir kiukkan hálf sjö, 18,30. ■ Þessi tíðindi munu vafalaust gleðja hinn stóra hóp áhugamanna um knattspyrnu hér á landi, og ekki hvað sízt þar sem vitað er að kvikmyndirnar eru mjög góðar og sýna ekki aðeins brot úr kappteikjunum heldur þá alla. 1 i # V 4

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.