Þjóðviljinn - 08.11.1966, Síða 5
Þriðjudagur 8. nóvember 1966 — ÞJóÐVILJINN — SÍÐA g
Landsmót Ungmennafélags fs-
lands haldið að Eiðum 1968
□ Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands
hélf 23. þing sitt að Eiðum fyrir skömmu. Forsetar
þingsins voru kjörnir Þorkell Steinar Ellertsson,
Eiðum, og Stefán Þorleifsson Neskaupstað.
Handknattleikur:
Yalur varð fyrsti
Rvíkurmeistarinn
■ Valsstúlkurnar í 1. flokki kvenna urðu fyrstar
til að tryggja sér sigur í nýbyrjuðu Reykjavíkur-
móti í handknattleik. Þær sigruðu KR með 5 mörk-
um gegn á, én höfðu áður unnið Fram 8:4.
önnur úrslit á sunnudaginn
urðu sem hér segir:
1 3. fl- karla sigraði KR
Þrótt með 7 mörkum gegn 3,
Fram vann Ármann 10:5 og
I Valur vann Víking 9:1. •
I 2. fl. karla vann KR Vík-
ing með 4 mörkum gegn 3, Val-
ur og Fram'gerðu jafntefli 4:4
og ÍR vann Þrótt 12:4.
Tveir leikir fóru fram í meist-
araflokki kvenna: Víkingur
vann KR með 4 mörkum gegn
3 og Valur vann Ármann með
10 mörkum gegn 2 (í hálfleik
5:0).
Staðan í meistaraflokki kv-
er nú þessi:
Valur
Fram
Víkingur
KR
Ármann
2 2 0 0 18:4 4
1 1 0 0 8:3 2
2 10 1 6:11 2
10 0 1 3:4 0
2 0 0 2 5:18 0
Reykjavíkurmótinu verður á-
fram haldið - í Laugardalshöll-
inni í kvöld kl. 8. Þá fara
fram þrír leikir í meistarafl.
karla: Fram — Víkingur, Valur
— Þróttur, KR — tR. '
77/ leigu
fjögurra herbergja einbýlishús í Kópavogi til 14.
maí n.k. Bílskúr og húsgögn geta fylgt. — Tilboð
merkt „Einbýlishús" sendist afgreiðslu blaðsins
fyrir miðvikudagskvöld.
tiétt rennur
(fiMeJSoá
FÆST i KAUPFÉLÖqUM OG
VERZLUNUM UM LAND ALLT
Formaður flutti skýrslu
stjórnar og verða hér á eftir
rakin helztu atriði hennar.
Glíma, knattspyma og
handknattleikur
Fyrsta fjórðungsglíma Aust-
urlands var háð í sumar.
Keppendur voru 6 — þrír frá
Seyðisfirði og þrír frá Reyðar-
firði. Sigurvegari varð Haf-
steinn Steindórsson, Seyðis-
firði og hlaut hann að verð-
launum fagurt glímuhorn,
gefið af Ólafi Ólafssyni, út-
gerðafmanni á Seyðisfirði.
Nú var í fyrsta skipti keppt
í þrem flokkum á knattspyrnu-
móti Austurlands. Mjög góð
þátttaka var í flokki 13—15
ára, eða alls 8 félög. Austri,
Eskifirði, sigraði. í flokki 15
—17 ára mættu aðeins þrjú
félög til leiks. Austurlands-
meistari varð Þróttur, Nes-
kaupstað. Þróttur sigraði einn-
ig í meistaraflokki og er það
í fyrsta sinni, sem félagið
hreppir meistaratitilinn. Tölu-
vert var um knattspyrnuheim-
sóknir og ferðalög á árinu.
Handknattleikur var með
líflegra móti. Keppt var í þrem
flokkum á Austurlandsmóti og
varð Þróttur sigurvegari í
meistaraflokki karla og kvenna
en Leiknir sigraði í 2. flokki
kvenna. Þar að auki fóru
Þróttarstúlkur í keppnisför til
Reykjavíkur og hingað komu
keppnisflokkar beggja kynja
frá Húsavík og frá Ármanni,
Reykjavík.
Sundmeistaramót
og námskeið
Sundmeistaramót íslands var
haldið í Neskaupstað, en ekki
verður hér skýrt nánar frá
því, þar eð áður hefur birzt
hér í blaðinu frásögn um mót-
ið.
Frjálsíþróttaráð UÍA gekkst
fyrir námskeiði í frjálsum í-
þróttum fyrir unglinga, svo og
leiðbeinendanámskeiði, er
haldið var í samstarfi við ÍKÍ
og FRÍ. Forstöðumaður þess-
ara námskeiða var Þorkell
Steinar Ellertsson, skólastjóri
að Eiðum. Með þessum nám-
skeiðúm er fárið inn á nýja
og mjög athyglisverða braut.
Verði framhald á þessum nám-
skeiðum, er ekki vafi á, að af
þeim verður bæði mikill og
góður árangur. Fátt hefur bag-
að félögin meir,a en skortur á
leiðbeinendum og eins munu
unglingarnir lengi búa að því
að þjálfa undir handleiðslu úr-
valsþjálfaj;a, en Þorkell ^Stein-
ar er viðurkenndur sem einn
okkar snjöllustu frjálsíþrótta-
■ þjálfara.
Fyrir milligöngu íþróttafull-
trúa ríkisins réðst til UÍA
norskur íþróttakennari, Gisle
Espolin Johnson. Dvaldist hann.jy
hér í 7 mánuði og kenndi á
alls 9 stöðum á sambandssvæð-
inu. Þetta er annað árið í röð,
sem UÍA hefur norskan þjálf-
ara á sínum snærum. Báðir
hafa þeir reynzt ágætlega, en
hitt gefur að skilja, að þeir
þurfa sinn tíma til að kynn-
ast okkar aðstæðum og væri
því mun æskilegra' af, íslend-
ingur fengist í starfíð. Er það
og varla vanzalaust, að svo
skuli ástatt í landinu, að leita
þurfi á náðir annarra þjóða til
að fá íþróttaleiðbeinendur fyr-
ir æsku landsins.
Skógarhátíð og
sambandsmerki
UÍA hélt skógarhátíð í Atla-
vik um verzlunarmannahelgina
annað árið í röð. Fór hún hið
bezta fram og þótti sómi að.
Sýslumaður S.-Múla., Axel
Thulinius, hefur átt stóranþátt
Körfuknattleikur:
í, hve vel samkomur þessar
hafa heþpnazt og kann UÍA
honum miklar þakkir fyrir.
Á síðasta ári auglýsti stjórn
UÍA eftir tillögum að merki
sambandsins. Alls bárust 12
tillögur og hlaut tillaga Guð-
jóns E. Jónssonar, skólastjóra
að Hallormsstað, fyrstu verð-
laun, kr. 5.000. Notar Guðjón
hreindýrshorndð sem táknmynd
í merkinu og litimir eru blátt,
rautt og hvítt —- en það eru
þeir litir sem UÍA hefur þeg-
ar tileinkað sér.
Landsmót að Eiðum
1968 undirbúið
Með tilliti til væntánlegs
Landsmóts UMFÍ að Eiðum
sumarið 1968 hafa verið hafn-
ar framkvæmdir við endur-
byggingu íþróttaleikvangsins
að Eiðum. Forustu um fram-
kvæmdir hefur Björn Magnús-
son haft. Hafa framkvæmdir
gengið vel, en mikið starf og
fjárfrekt er framundan. Verða
þessi mál e.t.v. rædd nánar
síðar hér í blaðinu.
Ýmislegt fleira kom fram í
skýrslunni sem ekki er rúm til
að rekja hér að sinni. Ætti
líka af þessu að sjást, að starf
UÍA er fjölþætt og krefst bæði
mikillar vinnu ogv peninga.
Stuðningur bæjar- og sveitar-
félaga hefur verið sambandinu
mikil örvun í starfi og lítur
UÍA á það sem viðurkenningu
á mikilvægi þess hlutverks,
sem það hefur tekið að sér —
að veita æskunni tækifæri til
hollra tómstundaiðkana, — til
heilbrigðs lífs.
Heildarsamtök íslenzkrar
æskú, ÍSÍ óg UMFÍ; 'áttu sína
fulltrúa á þinginu. Frá ÍSÍ
mættu: Gísli Halldórsson, for-
seti, Sveinn Björnsson og Þór-
varður Ámason stjórnarmenn.
Frá UMFÍ: Ármann Pétursson'
gjaldkeri, Hafsteinn Þorvalds-
son, ritari, sem jafnframt var
framkvæmdastjóri Laugar-
vatnsmótsins og Stefán Jasón-
arsori form. síðustu Lands-
mótsnefndar. Fluttu þeir UÍA
gjafir og ámaðaróskir í tilefni
afmælisins. Þá barst og vegleg
fjárupphæð frá hreppsnefnd
Eiðaþinghár.
Forseti ÍSÍ sæmdi Þórarin
Sveinsson æðsta heiðursmerki
sambandsins og einnig vorú
þeir Stefán Þorleifsson og
Kristján Ingólfsson sæmdir
gullmerki ÍSÍ.
Stjórn UÍA, sem kjörin var
í þinglok, er skipuð þessum
mönnum: Formaður: Kristján
Ingólfsson, Eskifirði. Aðrir í
stjórn: Björn Magnússon, Eið-
um; Jón Ólgfsson, Eskifirði;
Magnús Stefánsson, Fáskrúðs-
firði; Elma Guðmundsdóttir,
Neskaupstað; Kristján Magn-
ússon, Egilsstöðum og Sveinn
Guðmundsson, Eiðum.
(Úr Austurlandi)
KR-ingar unnu KFR
og ÍSmeð 99—59
■ Yfirburðasigrar KR-inga í meisfaraflokki karla
settu mestan svip á tvö fyrstu léikkvöld Meistara-
móts Reykjavíkur í körfuknattleik um helgina.
Fram vann KR
í aukaleik í
öðrum flokki
Á sunnudaginn fór fram
aukalcikur í haustmóti 2. fl.
á Melavellinum milli Fram og
KR- Fram vann með 1 marki
gegn cngu.
Þetta var. annar af þreiu
aukalcikjum, scm urðu að fara
fram í þessu móti vegna þess
að þrjú félög urðu efst og
jöfn að stigum: Fram, KR og
Valur. Sl. sunnudag kepptu
Valur og Fram og unnu Vals-
menn með 1 marki gegn engu-
Á sunnudaginn kcmur Ieikur
Valur svo við KR á Melavell-
inum. Nægir Valsmönnum
jafntefli til sigurs í mótinu, en
vinni KR verða félögin enn
jöfn!
Mótið hófst í gamla iþrótta-
húsinu að Hálogalandi sl. laúg-
ardagskvöld með leik fR og
Körfuknattleiksfélags Reykja-
víkur í fyrsta flokki karla. ÍR-
ingar unnu þann leik með 40
stigum gegn 38. Síðari leikur
kvöldsins var i meistaraflokki
karla milli KR og Ármanns.
Þar unnu KR-ingar sem fyrr
var sagt yfirburðasigur hlutu
99 stig gegn 59 (í fyrri hálfléik
47:28)- Þetta var allskemmti-
legur leikur.
Á sunnudagskvöldið endur-
tóku KR-ingar söguna, er þeir
unnu lið fþróttafélags stúdenta
í meistaraflokki karlá með
sömu stigatölu og fyrsta leik
kvöldsins, 99 gegn 59 stigum.
Aðrir leikir það kvöld fóru
svo, að Ármann vann lið ÍR í
3- fl. karla með 31 stigi gegn
16 og KR vann Ármann í 2.
fl. karla með 40 stigum gegn
20.
Bazur
Verkakvennafélagið Framsókn heldur sinn árlega,
vinssela BAZAR, miðvikudaginn 9. nóv. kl. 2 e.h.
í Góðtemplarahúsinu.
Komið os: fferið góð kaup.
Bazarnefndin.
Húsbyggiendur
t
Eigum á lager viðarklæðningu í loft og á veggi.
Sólbekkir — innihurðir.
Sýnum viðarþiljur í glugga verzlunar okkar á
Hverfisgötu 108.
Valviður s.f.
Hverfisgötu 108. — Sími 23318.
Dugguvogi 15. — Sími 30260.
(gnítiiental
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
sem settir eru í, með okkar full-
komnu sjálfvirku neglingarvél.
veita fyllsta öryggi í snjó og
hálku.
Nú er allra veðra von. — Bíðið
ekki eftir óhöppum, en setjið
C0NTINENTAL hjólbarðá, með
eða án nágla, undir bílinn nú
þegar.
Vinnustofa vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GÚMMÍVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.
i