Þjóðviljinn - 08.11.1966, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 08.11.1966, Blaðsíða 7
T Þriðjudagur a. nóvember 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA ’J Skúli Guðjónsson á Ljótunnarstöðum skrifar um útvarpsdagskrána: Enginn hlutur frumur á sínum stuð íslendingar eru sagðir ósam- mála um flest. >ó er það ætlan mín, að flestir séu á einu máli um að hringlið með klukkuna, afturá- bak að veturnóttum og áfram á útlíðandi vetri, sé ekki ein- ungis þarflaust heldur einnig óþægilegt, jafnvel hvimleitt. Engan hefi ég heyrt mæla því bót eða færa fyrir því nokkur skynsamleg rök, marg- ur hefur haft það á hornum sér og fundið því sitt af hverju til foráttu, meðal annars í út- varpinu í rabbi um dag og veg. En þessi kross, að vísu ekki þungbær, hefur nú einu sinni verið á okkur lagður aá hinum visu stjórnvöldum og enginn virðist eygja nokkra von um að honum muni nokkru sinni verða af okkur létt. ' Hann er eins og náttúrulög- mál, skapadómur, eða erlend- ur her í landi, sem þýðingar- laust er að mögla undan eða rísa gegn. Umturnun Hljóðvarp Vilhjálmur útvarpsstjóri í sjónvarpinu. Ofan á hina hefðbundnu vetumóttafærslu klukkunnar bætist svo önnur röskun á okkar daglega amstri og bard- úsi, sem, ef iillt er með fefldu, gengur nokkurn veginn með sama hætti frá degi til dags. Umturnun sú er orðið hefur á dagskrá útvarpsins að þess- um veturnóttum er meiri en svo, að við höfum áttað okkur á henni nú, þegar þetta er ritað. Við, sem höfsm ávallt litið á okkar ágæta útvarpsstjóra sem ímynd og tákn hins óum- breytanlega í þessum fallvalt- leikans heimi, stöndum eigin- lega undrandi og gáttaðir yfir því að hann skuli hafa leiðst út í að hræra svo í hinni gömlu góðu dagskrá, að segja má að þar sé enginn hlutur framar á sínum stað. En ef til vill kalla þeir þetta vinnuhagræðingu fyrir sunnan. En vinnuhagræðingin er svo stórt orð í nútímanum, að allt verður undan að láta, jafnvel útvarpsstjórinn. Og enn er þó eitt ótalið og ekki hið veigaminnsta: Útvarpsstjórinn tilkynnti okkur, að okkar gamla góða útvarp héti ekki lengur því Þóroddur Guðmundsson nafni. Héreftir skal það heita hljóðvarp, hvað sem tautar og raular. En útvarpið og sjón- varpið standa bæði undir hin- um stóra hatti Vilhjálms Þ. Gíslasonar. Það er að vísu skiljanlegt, að honum sé það ekki á móti skapi að útvarps- stjórahatturinn verði tengi- liður og sameiningartákn hinna tveggja fyrirtækja, er hann veitir forstöðu. En hér mun þó verða við ramman reip að draga. Útvarp er orðið svo fastmótað hugtak í málinu, að merkingu þess verður trauðla breytt með laga- boðum eða reglugerðum. Það er tómt mál að tala um það nú, að heppilegra hefði verið að taka upp orðið hljóð- varp, þegar í öndverðu. Auk þess fæ ég ekki skilið. Auk ætti að vera því til fyrirstöðu, að útvarp og sjónvarp geti stað- ið hlið við hlið. Nítjánda öldin Skýrsla sú, er útvarpsstjóri flutti um dagskrá komandi vetrar, vekur því miður ekki hjá okkur neina sérstaka til- hlökkun eða eftirvæntingu. Sem við tókum að hugleiða orð úlvarpsst-jórans, komumst við að þeirri niðurstöðu, að eiginlega breyltist dagskróin meira að íormi en eíni. Von- andi rætist þó úr þessu öllu saman. Þetta íer ef til vill allt á annan og hetri veg en við þorum að vona, nú að vet- urnóttum. Meðal þess,- er okkur var lof- að, voru tuttugu og fimm er- indi um nítjándu öldina. Minna hefði nú kannski mátt gagn gera. Það er í rauninni engin ný bóla, að útvarpið fjalli um þessa merkilegu öld,- enda er hún allrar athygli verð. Það er ætlan mín, að fólkið í þessu- landi þekki enga öld jafnvel og þessa öld, og meðal annars íyrir atbeina útvarpsins. Hitt er jafnframt ætlan mín, að þjóðin, eða að minnsta kosti sá hluti hennar sem er innan við miðjan aldúr, þekki enga öld jafnlítið sem okkar eigin . öld, þá tuttugustu. Hvað vita menn um sjálfstæðisbaráttu þá er háð hefur verið á þessari öld? Hvað vita menn um félags- mólahreyfingar, eins og sam- vinnuhreyfinguna, og verka- lýðsbaráttuna? Hvað vita menn um kreppuna milli 1930 og 1940? svo að fátt eitt sé nefnt. Vonandi kemur röðin að tutt- ugustu öldinni hinn næsta vet- ur. Gísli og Jónas Tveir gamlir útvarpskunn- ingjar hafa tekið að sér sinn þáttinn hvor á þessum vetri. Það eru þeir Gísli Ástþórsson og Jónaá Jónasson. Gísli er sennilega öllum ís- lendingum snjallari í að tala um ekki neitt, þannig að manni þyki gaman að, snöggvast. En guð nóði hann, ef hann ætlar að halda áfram í allan vetur, eins og hann byrjaði á laugar- daginn íyrstan í vetri. Sumt i þættinum var að ■ vísu bráð- sniðugt, eins og t.d. þegar hann var að ræða um, hvernig mönn- um er skákað úr opinberri þjónustu. þegar þeir eru sjötug- ir, öðrum en þeim, sem ekki þurfa að gera annað en stjórna landinu. En undir lokin rann allt út í sandinn fyrir honum. Andinn virtist hafa yfirgefið hann löngu áður en sá tími var liðinn, er honum hafði ver- ið ætlaður. Jónas Jónasson fór heldur ékki sem gæfusamlegast af stað. Uppi- staða hans voru þrír smá leik- þættir. Sá fyrsti, Umferðahnút- urinn á Laugaveginum, var þolanlegur, annar, Fylliríið á Baltika, snöggtum verri, en sá þriðji, um hjónin, sem ,ekki gátu fundið slökkvarann á hótelherberginu, miklu‘verstur og raunar eins fjarri því að vera skemmtilegur og verða má. Þeir höfðu ekki heppnina með sér í þetta sinn er Sig- urður okkar vanur að, segja, g|3 IndriðL G. Þorsteinsson þegar íþróttamennirnir hans hafa staðið sig verr en hann hafði vænzt. Við skulum vona að Jónas hafi heppnina með sér næst. Frá sumrinu Skulum við nú taka vetrar- dagskrána út af dagskrá um sinn, en hverfa til þeirra tíma meðan enn var sumartími og sumardagskrá, þegar þær Hólrft- friður og Brynja voru að tuska til góðkunna borgara, Gísli Kristjánsson að villast í Aust- ur-Þýzkalandi, Stefón Jónsson að horfa á rauðu varðliðana austur í Kína, Geir borgarstjóri að tala um fjárhagsvandræði höfuðstaðarins, Hörður Berg- mann að-tala um íjöldamenn- ingu og fjölmiðlunartæki, Jó- hann Pálsson, að lesa Grunn- inn eftir Diirrenmat, Magnús ráðherra að flytja fjrálagaræð- una og vetrardagskráin lá ennþá falin í skrifborðsskúffu útvarpsstjórans. Margt fleira munum við enn úr> dagskrá nýliðins sum- ars.Meðal annars erindin hans Þórodds Guðmundssonar úr bókmenntaheimi Dana. Þetta voru prýðileg erindi, sem fjöll- uðu um Johannes Evald og Adam Oehlenschlager. Frásögnin hröð og lifandi og ótrúlega miklum fróðleik komið á fram- færi við hlustendur um líf og samtíð þessara manna. Kenning Indriða í skáldaþætti, nokkru fyrir veturnætur, var Indriði Þor- steinsson kynntur hlustend- um. Hefur svo raunar ver- ið gert nokkrum sinnum áður og ekki um að sak- ast, þvi að Indriði er góður rithöfundur. Þó myndum við ekki óska eftir því að heyra í þriðja skipti á þessu ári sög- una hans um fílana í Kauj>- mannahöfn, sem skitu í hjól- börurnar. í viðtali við höíundinn kom fram allsérkennileg og raunar harðneskjuleg kenning nm ót- hlutun listamannastyrkja. Indriði vill að ríkið borgi nokkrum ungum mönnum, er langar til að verða rithöfundar, svo sem eins og prófessorslaun í þrjú ár, svo að þeir geti helg- að sig köllun sinni og reynt til þrautar, hvað innra með þeim býr. Að þeim tíma liðnum skulu verk þeirra vegin og metin, sennilega af einhverjum sér- fróðum mönnum. Sá sem yrði fyrir því óláni, að verk hans reyndust léttvæg og einskisnýt, væri þar með úr leik, fallinn harðneskjuleg kenning um út- af stallinum og varla þess að vænta, að hann eigi sér framar upþreisnar von. Það er hættulegra að detta af háum stalli en lágum, sökum aðdráttarafls jarðarinnar. Og guð verði þeim rithöf- undum náðugur, er yrði hrint fram af stallinum. Þeir mættu sannarlega vera meira en litlir karlar, ef þeir þyldu slíkt, án þess að bíða tjón á sálu sinni. Snúi maður hinsvegar hug- mynd Indriða við og hugsi sér þetta sem prófraun, ekki í rit- leikni heldur í manndómi, mætti segja að nokkurt vit væri í henni. Þá væri sigurinn ekki fólginn í því, að vera á stall- inum ævilangt, heldur ' í hinu/ að koma ómeiddur niður og hasla sér völl á öðrum vett- vangi. Tillaga doktors Fyrir nokkru ræddi doktor Gunnlaugur Þórðarson um dag og veg. Það sem vakti athygli mína öðru fremur vat sú til- laga háns, að flýtja hingað tibetska flóttamenn og setja niður á afdala- og eyðijarðir. Taldi doktor Gunnlaugur, að skynsamlegra væri að styrkja .menn þessa til að setjast .hér að, en senda þeim peninga aust- ur til Indlands. Ef til vill er þetta ekki vitlausara en margt annað, sem maður heyrir í út- .varpinu. En við getum ekki varizt þeirri hugsun, að þetta kemur alveg þvert á landbún- aðarstefnuskrá Alþýðuflokks- ins. Þó að hinir tibelsku land- nemar yrðu ef . til / vill ekki • stórvirkir búvöruframleiðend- ur í öndverðu, er aldrei að vita, nema þeir kynnu að spjara sig.'Þeir gætu aukið á offram- leiðslu búvara, kallað á auknar útflutningsuppbætur,. og trufl- að á margan hátt efnahagskerfi viðreisn arst jórn arinnar. Stefán í Kína Steíán Jónsson íréttamaður hvarf frá sumarþætti sínum í útvarpinu um mitt sumar. Síðan höfðum við ekki spurn- ir af honum langa hrið og vor- um jafnvel farnir að halda, að hann hefði orðið íyrir slysi, eða að hann hefði af einhverjum dularfullum sökum íallið í var* anlega ónáð hjá litvarpinu. Við urðum því bæði hissa og glaðir, þegar okkur barst , rödd hans austan frá Kína, ein- hvern tíma nálægt mánaða- mótum september-október. Ekki var annað að heyra en hann væri hinn ánægðasti aust- ur þar og í essinu sínu, líkt og hann væri austur i Skaftafells- sýslu að rabba við Einar frá Hvalsnesi eða Steinþór á Hala. Hann tók meira að segja að ieiðrétta eitt og annað, sem hann .sagði að hefði verið rang- hermt í fréttum frá þessu voða- lega fólki. En þær leiðrétting- ar fengu þó ekki að standa lengi, því að fréttastofa út- varpsins rak þær jafnharðan ofan í hann með tilstyrk og milligöngu Rússa. Svo heyrðist aftur frá Stefáni eftir byltingarafmælið kín- verska, og var hann þá enn í góðu skapi og i essinu sínu, en síðan hefur ekkert til hans heyrzt. En við bíðum og von- um að hann skili sér innan . tíðar og segi okkur enn meira frá Kina. En sama kveldið og heyrðist írá Stefáni síðara skiptið lásu þeir upp í þættinum „Efst á baugi“, tuttugu og þrjú boð- orð rauðu varðliðanna. Mátti af því marka, að þeir eru slórvirkir um boðorðagerð aust- ur frá og nálega þrefaldir í roðinu, miðað við Jón Þor- steinsson, boðorðasmið Alþýðu- flokksins. .Það má segja um þessi boð- orð þeirra austanmanna líkt og um boðorð Jóns, að sum eru góð. önnur minna góð. T.d. fannst mér ágætt boðorðið um að hver maður skyldi vinna líkamlega vinnu. Það boðorð er reyndar komið frá skaparan- um sjálfum, að því er segir í hinni helgu bók, og Páll postuli ítrekar það á allhressilegan hátt, svo að þetta boðorð ættu sannkristnir menn ekki að reikna þeim kinversku til dómsáfellis. Við bíðum Allt er óstöðugt í þessum heimi. Stefán Jónsson Til skamms tíma hefur það verið talin borgaraleg skylda, heilög dyggð og nánast sálu- hjálparatriði, að trúa engu því orði, er fram gekk af rúss- neskum munni. Það var eiginlega ekki fyrr en Krústjoff hafði talað yfir hausamótum Stalíns, að heið- virðir og velþenkjandi borgar- ar tóku að endurskoða þessa afstöðu sina. Sannleiksást Rússa óx síðan jafnt og þétt, eftir því sem deilur þeirra og Kínverja hörðnuðu. Nú er svo komið, að útvarpið okkar hefur ekki á að skipa öðrum heim- ildum áreiðanlegri um gang mála í Kina en þeim er frá Rússum eru komnar. Fyrst Rússar eru taldir áreiðanlegri heimildarmenn en aðrir um gang mála i Kína, hví skyldu þeir ekki vera svo um atburði, er gerast annarstaðar á jarð- kringlunni? Hversvegna flytur ekki útvarpið okkar fréttir frá slyrjöldinni í Vietnam eftir rússneskum heimildum? Hvers- vegna er ekki farið eftir rúss- neskum heimildum í fréttum af öðrum athæfum Bandaríkja- manna og vigbúnaði yíða um veröldina? Annað væri hrein ' rökleysa og þversögn. Svo bíðum við eftir Stefáni og væntum þess, að hann muni leiða okkur í allan sannleika. Ljótunnarstöðum, 24. október 1966. Skúli Guðjónsson. Olympíuskákmótið á Kúbu: F/scher vildi ekki teflu uf trúurástæðum á /uugurdegi! Um lielgina voru tcfldar biðskákir úr 1. umferS í A- flokki á Olympíuskákmótinu á Kúbu svo og 2. og 3. um- ferð. Biðskákum íslendinga og Argentínumanna lyktaði svo að Friðrik gerði jafntefli við Najdorof og Ingi gerði jafn- tefii við Panno, hlaut Argen- tína því 2’4 vinning gegn 114. í 2. umferð tefldu íslendingar við Búlgara og töpuðu 3:1. Friðrik gerði jafntefli viðMin- ev, Ingi jafntefli við Bobotsov en Guðmundur Pálmason tap- aði fyrir Tringvo og Guðmund- ur Sigurjónsson tapaði fyrir Popov. í 3. umferð tcfldu ís- lendingar við Tékka. Gunnar tapaði fyrir Jansa en skákir Friðriks og Hort, Guðmundar Pálmasonar og Fiiips, Frey- steins og Kavalek fóru allar í bið. Úrslitin í 1. umferðinni urðu sem sagt þessi: Ungverjaland 3 — Noregur 1. Júgóslavía 3 — A-Þýzkaland 1. Búlgaría 3 — Spánn 1. Sovétríkin 214 — Tékkóslóvakía 1%. Rúmenía 3Vj — Kúba 14. Bandarikin 314 — Danmörk 14. Það bar helzt til tiöinda í þessari um* ferð að Larsen tapaði fyrir Ro- bert Byrne. I annarri umferð fóru leikar sem hér segir: Noregur tvo — Rúmenía 2- Argentína 3V? — Austur-Þýzkaland 14 ■ Tékkó- slóvakia 2Vj — Spánn 114. Júgóslavía tvo — Ungverjaland 2. Danmörk 3'A — Kúba hálfan. Sovétríkin' fjóra ■— Banda- ríkin engan. Þessi síðast töldu úrslit voru allsöguleg. Fischer krafðist frestunar á skák sinni við Sovétríkin vegna trúar sinnar en Sovétmenn AJEDREZ JAHAIiANACUBA Od-NovI966 höfnuðu þeirri kröfu. Mætti þandaríska sveitin þá ekki til leiks og var sovézku svedtinni dæmdur vinningur ^á öllum borðum. Úrslit í 3. umferð urðu þessi: Júgó?lavía 4 — Noregur 0. Sovétríkin 314 — Kúba 14. Danmörk .114 — Rúmenía 14 og tvær biðskákir. Bandaríkin 3 — Spánn 0 og 1 biðskák. Búlgaría 14 — A-Þýzkaland 14 og 3 biðskákir. Argentína 1 — Ungverjaland 1 og 2 biðskákir. Staðan að loknum 3 umferð- um er þá þessi: 1. Sovétríkin 10, 2. Júgóslavía 9. 3. Argentína 7, 2 bið. 4. Búlgaría 614, 3 bið. 5. Bandarikin 614, 1 bið. 6.—7. Rúmenía 6, 2 bið. Ungverjaland 6, 2 bið. 8. Danmörk 514, 2 bið. 9. Tékkóslóvakía 5, 3 bið. 10. Noregur 3. 11. ísland 214, 3 bið. 12. Spánn 214, 1 bið. 13. A-Þýzkaland 2, 3 bið. 14. Kúba 114. i i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.