Þjóðviljinn - 16.11.1966, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 16. nóvcmber M66 — t»JOÐVHJTNN — SfÐA
Mestar tíkur taldar
á stjórn SPD og FDP
Báðir flokkar hafa birt stefnuskrár sinar
sem eru samhljóða í veigamiklum atriðum
Ceausescu (í miðju) ogr Sjivkof (th) í Sofia.
Ceausescu varar yii
þinghaldi gegn Kína
Bresnéf tók undir tillögu Sjivkofs um þing
kommúnistaflokka, ítrekaði gagnrýni á Kína
SOFIA 15/11 — Nicolae Ceausescu, leiðtogi rúmenskra
kommúnista, varaði í ræðu á þingi búlgarska kommúnista-
flokksins í Sofia í dag við hverju því sem leitt gæti til
éndanlegrar sundrungar milli kommúnistaflokkanna og
sósíalistísku ríkjanna.
Áður hafði Leoníd Bresnéf, að-
alritari sovézka flokksins, tekið
undir þá tillögu Sjivkofs, ritara
búlgarska flokksins, að efna
ætti til alþjóðaþings kommún-
istaflokkanna. Brgsnéf tók einn-
ig undir gagnrýni Sjivkofs á leið-
toga kínverskra kommúnista og
sagði eins og hann að þeir tor-
velduðu sameiginlega aðstoð
sósíalistísku ríkjanna við viet-
nsku þjóðina.
3resnéf sagði þó ekkert um
hvort sovézki flokkurinn vaeri
reiðubúinn að boða til slíksþings
og'riiefridÍ heldur ekkert hveriær
ætti að halda það. Þingfulltrúar,
sem eru um 1500 talsins auk gesta
frá kommúnistá- og verklýðs-
flokkúm í um 70 löndum, hylltu
Bresnéf ákaft.
Rúmenar hafa áður hvað eftir
annað látið í ljós andstöðu sína
við alþjóðlegt þinghald sem
myndi varla hafa annan tilgang
en þann að útskúfa kínverskum
kommúnistum og bandamönnum
þeirra úr hinni alþjóðlegu hreyf-
ingu. Ceaijsescu ítrekaði það enn
í dag að slíkt þinghald mvndi
aðeins verða til 'þess að skera
fyrir fullt og allt á þau bönd
sem enn tengja kommúnista-
flökkana: Hfánri lét eírinig algér-
lega hjá líða i ræðu sinni að
gagnrýna afstðftu Kinverja.
BONN 15/11 — Mestar líkur eru nú taldar á því að stjóm-
arkreppan í Vestur-Þýzkalandi leysist með 'samkomulagi
milli sósíaldemókrata (SPD) og Frjálsra demókrata (FDP)
um myndun samsteypustjómar, en flokkamir hafa naum-
an meirihluta á þinginu í Bonn.
1 dag hófust í Bonn viðræður
leiðtoga sósíaldemókrata, Willy
Brandts, og hins nýkjöma leið-
toga Kristilegra, domókrat.a.
Kurt-Georgs Kiesingers, til að
kanna líkur á stjómarsamstarfi
þeirra. Þeir ræddust við í þrjár
klukkustundir og nýr fundur
verður haldinn með þeim á
morgun. Það er þó víst að eng-
in niðurstaða mun fást á þeim
fundi; stjómarkreppan mun ekki
leysast fyrr en í, fyrsta lagi í
næstu viku, þar sem allir flokkar
bíða Úrslitanna í kosningunum
til fylkisþingsins í Bajern, sem
fram fara á sunnudag. Þau
úrslit munu geta ráðið mikluum
lausn stjómarkreppunnar. Flestir
telja að flokksdeild Kristilegra
muni tapa í kosningunum í
Bajem eins og £ öðram fylkjurn
þar sem kosið hefur verið nýlega.
Ef tapið verður mikið munu
aukast líkur á því að sósíaldemó-
kratar og Frjálsir demókratar
gangi til stjómarsamstarfs.
Samhljóða í meginatriðum.
Frjálsir demókratar birtu í dag
stefnuyfirlýsingu . og er hún í
ýmsum veigamiklum atriðum,
einkum þeim sem varða utanrík-
ismál, samhljóða yfirlýstri stefnu
sósíaldemókrata.
Frjálsir demókratar taka fyrst
fram að þeir .muni ekki failafrá
þeirri kröfu sinni sem varð til
þess að uppúr samstarfinu við
CDU-CSU slitnaði, að rikisút-
gjöld verði minnkuð til þessað
koma í veg fyrir hinn áætlaða
4 miljarða marka halla á fjár-
lögunum. FDP er sammála sós-
íaldemókrötum um að Vestur-
Þýzkaland eigi að taka upp
stjómmálasamband við sósíalist-
ísku ríkin í A-Evrópu. Hin
svonefnda Hallstein-kenning sem
Framhald á 7. síðu.
Bandarísk flugvél hrapar
til jarðar i A-Þýzkalandi
BERLÍN 15/11 — Bandarísk
þota af gerðinni Boeing 727 hrap-
aði í nótt til jarðar í Ausíur-
Þýzkalandi, og fórust með henni
þrír menn.
Þotan sem var í eigu Pan
American Airways var á leið
með fimm lestir af pósti frá
Frankfurt til Vestur-Berlínar.
Flugturninn á Tegelflugvelli á
franska hernámssvæðinu í Vest-
ur-Berlín missti samband við
þotuna kl. 0,44 í nótt og spurð-
ist síðan ekkert til hennar fyrr
en það fékkst staðfest níu
klukkustundum síðar að hún
hefði hrapað til jarðar við Dalg-
ow í Potsdamhéraði, skammt frá
Berlín. Á þessum slóðum hef-
ur sovézki herinn í Austur-
Þýzkal'andi eitt helzta athafna-
svæði sttt- og eru þar- búðir-fyrir
mörg þúsund hermenn. Mjög
slæmt skyggni var.
Álit Evrópumanna samkvæmt bandarískri skoðanakönnun:
BANDARÍKIN SPILLA FYRIR
FRIÐARHORFUM í HEIMINUM
Nær helmingur aðspurðra var þeirrar skoðunar, en aðeins sjöundi
hver taldi að stefna Bandaríkjanna leiddi til friðar í heiminum
WASHINGTON — Skoðanakönnun sem gerð hefur verið
í fimm aðildarríkjum Atlanzbandalagsins í Vestur-Evrópu
á afstöðu manna þar til utanríkisstefnu Bandaríkjanna
leiddi í ljós að um helmingur aðspurðra var þeirrar skoð-
una að utanríkisstefna Bandaríkjanna spillti fyrir friðar-
horfum í heiminum, en aðeins sjöundi hver taldi að hún
myndi leiða til friðar.
að ganga til móts við bandamenn Ekki í miklu áliti ™
sína og þeir mættu ekki láta mik- »
ilvæg dvrópsk málefni sitja á Spilla fyrir friði
hakanum vegna stríðsins í Viet- Skoðanakönnuninni var stjórn-
nam. að af starfsmönnum Princeton-
háskólans og var hún gerð í lok
septembermánaðar s.l. tæir höfðu
sér til aðstoðar Evrópumenn sem
unnið hafa fyrif bandarísku
upplýsingaþjónustuna, USIA.
Ein spurningin hljóðaði svo;
„Teljið þér að núverandi utan-
ríkisstefna leiði til friðar eða
torveldi að friði sé komið á?“
Niðurstöður athugunarinnar
byggjast á svörum samtals 6090
manna í Vestur-Evrópu sem
skiptast þannig: í Bretlandi 1447. !
Vestur-Þýzkalandi 2130, Frakk- |
landi, 2022, Belgíu 260 og Hol-
landix231. Svörin skiptust þann- ;
ig:
„Leiðir til friðar“, 14%.
„Spillir fyrir friði“, 46 %.
„Breytir engu“, 23%.
„Veit ekki“. 17%.
Johnson i Iitlu áliti
Með annarri spurningu, sagði
Morton, var reynt að kanna mat
Vestur-Evrópumanna á stjórnum
Eisenhowers, Kennedys og John-
sons. Hún hljóðaði svo: „Undir
stjórn hvaða forseta hefur á-
hrifavald Bandaríkjanna verið
mest: Johnsons, Kennedys eða
Eisenhowers?" Og svörin skipt-
ust á þessa leið:
Undir stjórn Eisenhowers 11%.
Kennedys 74%. '
Johnsons 2%.
Engin breyting 5%.
Veit ekki 8%.
Hungnrganga í Ernakulam í Keralafylki á IndlandL
Matyælaskortur sverfui
æ fastar ú Indverjum
Er nú í sumiun héruðum sárari en hann hefur
orðið í manna minnum, segir Indira Gandhi
t
NÝJU DELHI 15/11 — Indira Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands, sagði í dag á fundi með blaðamönnum í Nýju Delhi,
að matvælaskorturinn í vissum hlutum Indlands væri sár-
ari en hann hefði verið í manna minnum.
Úrkoma hefði nú bragðizt þar
í þrjú ár samfleytt og væri nú
svo komið að varla væri fnéira
vatn að finna þar. Þau land-
svæði sem um ræðir era aust-
urhéruð fylkjanna Uttar Prad-
esh og héraðin í fylkinu Bihar i
norðurhluta Indlands og í Guj-
arat í vesturhlutanum, við Ara-
bíuhaf. Þótt þessi hérað séu
verst leikin af þurrkunum er
matvælaskortur mikilu víðar í
landinu, eins og t.d. í Kerala,
syðst á vesturströndinni.
Indira Gandhi skýrði blaða-
mönnum frá því að matvæli hefðu
verið send til þessara héraða og
allt væri gert til að bægja
hungurvofunni frá dyrum, en
indverska stjórnin hefur legið
undir þungum ásökunum um at-
hafnaleysi, sem m.a. hefur le'tt
til þess að hungursneyð hefur
vofað yfir í sumum héraðum
þótt birgðir matvæla væra til i
öðrum, og fyrir að leyfa brösk-
uram að safna birgðum koms £
þvi skyni að sprengja upp verð-
ið.
Ekki meiri matvæli
Subramaniam matvælaráð-
herra skýrði indverska þinginu
frá því i dag að ekki væri
i svipinn von á meiri matvæia-
birgðum til landsins frá útlönd-
um og ástæða, væri til að óttast
að Indverjum myndi ganga ert-
iðlega að afla sér matvæla er-
lendis frá á næsta ári. Hann
kvaðst óttast að Bandaríkin
myndu ekki verða jafn aflögu-
fær á næsta ári og þau hefðu
verið í ár og myndu ekki geta
látið Indverjum £ té það kom
sem þeir þarfnast og Kanada og
Ástralía hefðu fyrirfram selt
mestallt það kom sem þau löná
hefðu aflögu. Það eru einkum
^Cínverjar sem undanfarið hafa
gert samninga við Kanada og
Ástralíu um kaup á komi.
Leitað til Sovctríkjanna
Sagt er í Nýju Delhi að ind-
verska stjórnin hafi farið þess
Paasio ræðir við Kosygin
Lyng skoðar nýbyggingar
MOSKVU 15/11 — Það hefur
vakið athygli að leiðtogar tveggja
Norðurlandaþjóða eru nú staddir
samtímis i Moskvu. Lyng, utan-
ríkisráðherra Noregs, kom þang-
að um helgina og hóf viðræður
sínar við Gromiko utanríkisráð-
herra i gær, en í gær kom
þangað fjölmenn finnsk stjómar-
sendinefnd undir forastu Paas-
ios forsætisráðherra og ræddi
við Kosygin forsætisráðherra i
dag. '
Lyng skoðaði sig um í Moskvu
i dag og kynnti sér einkum hin-
ar miklu íbúðabyggingar sem
era að gerbreyta svip stórborgar-
innar.
Þótt það kunni að vera til-
viljún aö þéir Lyng og Paasio
eru staddir í Moskvu samtímis
þykja heimsóknir þeirra bera
vitni um síbætta sambúð Sovét-
ríkjanna og Norðurlanda. Heim-
sókn Paasios er talin sérstaklega
mikilvæg, þar sem hann er
fyrsti leiðtogi finnskra sósíal-
demókrata sem kemur í opin-
bera heimsókn þangað.
Talið er að heimsóknin geti
markað tímamót í samskiptum
finnskra sósialdemókrata viðSov-
étríkin, en fram að þessu hefur
sovétstjómin haft illan bifur á
þeim. Paasio sagði í ræðu í dag
að finnska stjómin myridi halda
vinsamlegri afstöðu sinni til
Sovétríkjanna.
Indira Gandhi
á leit við Sovétríkin að fá að
kaupa af þeim eina miljón lesta
af komi á næsta ári, en Sov-
étríkin era vel birg af kcrni nú
vegna góðrar uppskeru á þessu
ári.
Subramaniam skýrði þinginu
frá þvi að reynt væri að bæta
úr verstu neyðinni með því að
senda þurrmjólk og önnur mat-
væli til barna í hungursneyðar-
héruðunum og fylkisstjómirnar
hefðu fengið sérstök fyrirmæli
um að auka matvælaframleiðsi-
una. Hann hvatti jafnframt til
þess að sparlega væri farið með
vatn. Það vatn sem menn not-
uðu til að þvo sér úr ætti að
því loknu að nota tn að vökva
plöntur.