Þjóðviljinn - 16.11.1966, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÖÐVnumm — Miðvikudagur 16. nóvember 1966.
CJtgetandi: Sameiningarflokkui aiþýöu —' Sóeialistaflokk-
urinn.
Kitstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Siguróur Guðmundsson.
Fréttarltstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson.
Simi 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 105.00 á mánuði. Lausa-
soluverð kr. 7.00.
Kjör sjómanna skert
Thaldið á íslandi hefur lengi langað til þess að
-*• geta útkljáð kaup- og kjaramál með bindandi
gerðardómi, einhvers konar þvingun sem vinn-
andi fólk yrði að sætta sig við, líklega helzt í því
formi að fulltrúar atvinnurekenda ættu auðvelt
með að mynda gerðardómsmeirihluta með emb-
ættisverkfæri sæmilega afturhaldssamrar ríkis-
stjórnar og sá meirihluti skammtaði kaup og
kjör. Sjómenn hafa rækilega fengið að kenna á
þessum tilhneigingum íhaldsins, meira að segja
í svo furðulegri mynd, að íhaldsstjórnin gat 1962
att formanni Alþýðuflokksins á foraðið og látið
hann gefa út bráðabirgðalög 1 kjaradeilu síldveiði-
sjómanna um bindandi gerðardóm, sem beinlínis
v.ar til þess settur að skerða hlut síldveiðisjómanna
stórlega, koma fram hlutarskerðingu sem útgerð-
armenn kröfðust en voru að guggna á að koma
fram. Síðan mega síldveiðisjómenn vart minnast
óbölvandi á Alþýðuflokkinn né gerðardómsmála-
ráðherrann, sem enn veitir þeim flokki forystu, en
íhaldið brosir í kampinn og þykir gott að þurrka
þessum íhaldsóhroða í elsku samstarfsflokkinn,
þó það eigi að sjálfsögðu alla sömu sök.
]\Túverandi stjómarflokkar fleyttu gegnum Al-
þingi lögunum um verðlagsráð sjávarútvegs-
ins í árslok 1961. í>ar er ákvörðun jafnmikilvægs
kjaramáls fyrir sjómennog fiskverðið er féngið í
hendur nefnd, verðlagsráði sjávarútvegsins, og
eiga sjómenn þar að vísu fulltrúa, en ákvæði lag-
anna um yfimefnd, bindandi gerðardóm um fisk-
verð, kemur til framkvæmda hverju sinni sem
seljendur og kaupendur fisksins koma sér ekki
saman í verðlagsráðinu. í yfirnefnd er tiltekinn
embættismaður oddamaður og hefur reyndin orð-
ið í langflestum tilfellum að hann hefur afgreitt
þessi viðkvæmu kjaramál með fulltrúum kaup-
enda og gegn atkvæðum sjómanna og útvegs-
manna.
f^annig var framkvæmd hin síðari lækkun á
verði síldar í bræðslu nú í vetur, verðið lækk-
aði á miðnætti í nótt samkvæmt þeim gerðardóms-
úrskurði Jónasar tíaralz og tveggja fulltrúa síld-
arverksmiðjueigenda úr kr. 1.37 í kr. 1,20. Mun
engan undra þó sjómönnum þyki nú hart að geng-
ið með skerðingu á kjörum þeirra, þar sem svo
lítur út sem ætlazt sé til að þeir einir launþega
fái nú útmælda kjaraskerðingu samtímis því að
aðrar starfsstéttir búast til að þoka kjörum sínum
til betri vegar. Enda hefur óánægja með þessa
kjaraskerðingarákvörðun blossað upp á síldveiði-
flotanum og raunar engin líkindi til þess að síld-
veiðisjómenn láti bjóða sér til lengdar slíka með-
ferð. Hér verða sjómannafélögin að verða miklu
virkari í hagsmunabaráttu sjómanna, að öðrum
kosti neyðast sjómenn til að leita nýrra leiða til
að svara hinum ósvífnu og ómaklegu kjaraskerð-
ingarárásum sem á þeim dynja. Það á ekki að
þurfa að viðgangast að einn embættismaður og
tveir aðrir sem taka afla sinn á þurru skammti
íslenzkum sjómönnum kaup og kjör. — s.
Hvað vekiur, hverra hags-
muna er verið ai gæta?
Síðastliöinn föstudag gerði
Barnavinafélagið Síumargjöf
kunnugt að frá og með þeim
degi yrði barnaheimilum félags-
ins lokað kl. 5 s.d. og yrðu að-
standendur bamanna framvegis
að sækja böm sfn á þeim tíma.
Ráðstöfun þessi kom öllum á
óvart og kemur sér ákaflega illa
fyrir útivinnandi mæður. Flest-
ar okkar vinna til kl. 5 a.m.k.
og hveroig eigum við þá að
vera komnar á bamaheimili
það, er gætir bama okkar, á
samri stund og við hættum
vinnu? Hvað eigum við yfir-
leitt til bragðs að taka? Eigum
við e.t.v. að fá stálpaða krakka
tii að sækja bömin, fara með
þau heim og gæta þeirra þang-
að til við komum? Ég býst við
að það verði þrautalending
margra okkar.
Ég vil spyrja framkvæmda-
stjóra Sumargjafar: Er þetta
æskileg lausn mála? Er ekKÍ
slysahætta hér á götum bæjar-
ins nógu mikil samt, þó ekki sé
verið að leika sér að því að láta
hálfgerða óvita sækja smáböm
í bláasta skammdeginu? Það
hefur verið látið i það skína
að þetta sé einhver hefndar-
ráðstöfun gegn starfsstúlkum
sem vinna á bamaheimihinium
og ekki eru fóstrulærðar, fyr-
ir að hafa heimtað 33% álag á
kaup sitt miili kl. 5 og 6 eins
og allir aðrir meðlimir Starfs-
stúlknafélagsins Sóknar hafa
fengið greitt hjá öllum öðrum
atvinnurekendum frá því á s.’.
vori. Þegar þær svo loksins
fengu forráðamenn Sumargjafar
til að fallast á þessa lausn, bá
skal því svarað með þvi að
þennan klt. fái þær alls ekki að
vinna.
Þetta finnst mér vægast sagt
lúaleg aðferð, og sízt samboðin
því ágæta félagi sem Sumargjöf
er. Ég hef um nokkur ár háft
böm á heimilum Sumargjafar,
og af því ég er eins og aðrir
Reykvíkingar ekki alltaf á sama
stað í bænum, þekki ég þau
heimili nokkuð. Verð ég að
segja það, að mér finnst starf-
semi þar öll til fyrirmyndar og
álít ég að stúlkur þær, er þar
vinna, eigi sannarlega kaupið
sitt, hvort sem þær eru fóstru-
lærðar eða ekki. Þá er þess að
gæta að ófaglærðar konur eru
ekki rnargar á bamaheimilum
Sumargjafar, og er trúlega
meiningin að eftir því sem
fleiri fóstrur útskrifuðust verði
færri og færri ófaglærðar stúik-
ur við gæzlustörí þar, enda
hlýtur að vera stefnt að þvi að
þessi störí séu eingöngu unnin
af fóstrum, og á sumrin eru að .
heita engar stúlkur á barna-
heimilum aðrar en fóstrur og
nemar úr fóstruskólanum, þær
vinna því ekki samkvæmt
samningum Starfsstúlknafélags-
ins Sóknar, svo að Sumargjöf
losnar við að greiða þeim fyrr-
greint álag á vinnu milli kl. 5
og 6.
Á barnaheimilinu, þar sem
ég hef bam mitt, vinna 5 ófag-
lærðar gæzlustúlkur. Álag á<$>
vinnu hverrar þeirra er á mán-
uði, miðað við núgildandi kaup,
300,00 kr. ef þær ynnu alilar
alla álagstímana. Þess ber að
gæta að svo er ekki, það fara
alltaf nokkrar' stúlkur kl. 5,
bæði fóstrur og ófaglærðar
stúlkur, svo að þessi upphæð
yrði talsvert minni, gæti maður
gizkað á, að kauphækkun á öllu
heimilinu yrði um 1000,00 kr.
um mánuðinn. Finnst mér því
gefa auga leið að ekki sé heim-
ilt að leggja öryggi bamanna I
þá hættu, að mæðumar verði að
fá einhvem og einhvem til að
sækja þau til þess að spara
nokkrar krónur.
Við hljótum því að spyrja
hvað valdi öðrum eins ráðstöf-
unum og þessum, og hverra
hagsmuna sé verið að gæta.
Áreiðanlega ekki hagsmuna
barnanna okkar, svo mikið er
vist.
Vita skulu forráðamenn Sum-
argjafar það, að við útivinn-
andi mæður sættum okkur ekki
við þessa ráðstöfun og við
munum skera upp herör á móti
henni og beita öllum tiltækum
ráðum til að fá því framgengt
að bamaheimili Sumargjafar
taki aftur upp sinn gamla lok-
unartíma. Við munum ekki sjá
eftir því kaupi sem fer til þess
að borga konunum sem þar
starfa, en. sem kunnugt er
koma allir þeir peningar sem
til þess þarf úr vösum reyk-
vískra skattgreiðenda með ein-
hverjum hætti, annað hvort
sem styrkur frá bænum eða
sem frjáls samskot.
Móðir.
Nikolaj Ignatof
látinn, 64 ára
MOSKVU 14/11 — Nikolaj Igna-
tof, varaforseti Æðstaráðs Sovét-
ríkjanna og forseti Æðstaráðs
rússneska sovétlýðveldisins, er
látinn, 64 ára gamall. Ignaiof
var kosinn í miðstjórn Komm-
únistaflokksins 1952, varð vara-
forsætisráðherra 1959, en tóV
við forsetastörfum sínum í
æðsturáðunum árið 1962.
Skákþáttur:
Björn Þorsteinsson sigraBi
í Haustmóti Taflfélagsins
11. Rxc4
12. Rd2
13. 0-0
14. Rc4
15. HaeX
16. Dc3
17. Bc2
18. f3
19. Re5
20. Db3
21. Bxh7t
22. Hxf3
Db4t
h6
e5
De7
0-0
e4
Rf6
Bf5
Bh7
exf3
Kxh7
De6
Haustmóti T.R. lauk í síðustu 6. Rh4 Be7 21. —, Be6? 22. Bf4, Kxf4 23. 23. Dxb7 Dxa2 ,
viku. í meistaraflokki varð röð 7. g4 0-0 Dg3 mát 24. Hxf6 gxf6
efstu manna þessi: 1. Björn Betra var 7. — •, Rxg4 8. Dxg4, 25. Rd7 Hfc8
Þorsteinsson, 11 v af 13 mögu- Bxh4 9. Hgl með tvísýnni stöðu. 22. 0-0-0 Kefi 26. Rxf6t Kg6
legum. 2.—3. Haukur Angantýs- 23. Rxe4! fxel 27. Rd7 Defi
son og Bragi Bjömsson með 8. g5 Re8 Ekki dugar 23. — dxe4 24. 28. Re5t Kh5
9% v. hvor. Sigur Bjöms var 9. f6 gxf6? Bc4, Ke5 25. Bf4, Kxf4, 6. 29. Da6 f6
mjög öruggur og verðskuldaður. Or því, sem komið er var Dg3 mát. 30. De2t Kg5
Hafði hann forystu allt mótið bezt fyrir svart, að fóma manni 31. h4t Kxh4
í gegn, og var orðinn öruggur fyrir tvö peð. 24. Bg4t Kd6 32. Df2t gefift
sigurvegari fyrir síðustu umferð. 25. Bxd7 Hf3 2. umf. (Undanrásir)
Haukur og Bragi voru einnig vel 10. g6’ — ... 26. Bxe7t Dxe7 Hv: Kortsnoj (Rússl.)
að sínum sætum komnir, og var Svörtum hefur e£ til vill yf- 27. Hxd5t Sv: Fung Yee-Warg (H<
endasprettur Hauks sérlega at- irsézt þessi leikur. Kong).
hyglisverður, en hann vann og svartur gafst upp saddur líf- 1. d4 Rffi
fimm síðustu skákirnar. 1 I. 10. hxg6 daga. 2. c4 e6
flokki sigraði Andrés Fjeldsted 11. Rxg6 — 3. Rc3 Bb4
mjög glæsilega með 6 v. af 6 Nú er komin upp mjög ein- Hér era svo að lokum tvær 4. Rf3 c5
mögulegum. 2. Ölafur G. Odds- kennileg staða. Hvítur hefur skákir, sem þættinum vora að 5. e3 cxd4
son, 4 v. í II. flokki Á-riðli aðeins leikið einum manni Og berast frá Olympíuskákmótinu a 6. exd4 Re4
sigraði Júlíus Friðjónsson með svo peðum, en hefur samt unna Kúbu. 7. Dc2 d5
7 v. af 7 mögulegum. 2. Jón stöðu. 1. umf. (Undanrásir) 8. Bd3 f5
Þorvaldsson, 5V2 v. I B-riðli Hv: Friðrik Ólafsson 9. 0-0 0-0
sigraði Steingrímur Steingrims- 11. Hf7 Sv: A. Kinzel (Austurr.). 10. cxd5 Bxc3
son með 5V2 v. 2. Ásgeir 12. Hgl Rg7 1. c4 e6 11. dxe6 Bxd4
Jónsson, 5 v. 1 unglingaflokki 13. Dg4 f5 2. Rf3 d5 12. Rxd4 Dxd4
sigraði Geir Haarde með 9% 14. Dh3 Hf6 3. d4 c6 13. e7 He8
v. 2. Sverrir Friðþjófsson, 8 v. 15. Dh8f Kf7 4. Ðc2 RÍ6 14. Db3t Kh8
Á hraðskákmóti Haustmótsins, 16. Re5f Rxe5 5. Bg5 Rbd7 15. Df7 . Rf6
sem haldið var s.l. sunnudag, 17. Dxg7t Ke6 6. Rbd2 Be7 16. Df8t Rg8
sigraði Ingvar Ásmundsson með 18. dxe5 Kxc5 7. e3 Re4 17. Dxe8 Bd7
15. v. í 18 skákum. 19. Bg5 d5 8. Bxe7 Dxe7 18. Dd8 De5
Við skulum nú líta á eina 20. Bc2 c5 9. Bd3 Rxd2 19. Bc4 gefið.
skák frá mótinu. Sýnir hún Rraes Biömsson skóla JónS^- 21. Rd2 Bd7 10. Rxd2 dxc4 Bragi Kristjánsson.
lo-
Kristinsson ti;l í hinni sjaldséðu
Ponziani-byrjun.
Hvítt: Bragi Bjömsson
Svart: Jón Kristinsson
Pcmziani-byrjun
1. e4 e5
2. Rf3 Rc6
3. c3 -----
Hin svókailaða Ponzian:-
byrjun, sem er f mikiu uppá-
haldi hjá Braga.
3-------------- f5
Einnig er oft leikið 3. —, d5 í
þessari stöðu.
4. exfð -----
Byrjunarbækur mæla með
4. d4!, fxe4 5. Rxe5, Rf6 6.
Bg5, De7! eða 5. —, Df6 6. Rg4,
Dg6 7. d6, Rd8 8. Be2, Bc5 fi.
0-0, Rf7 með jafnri stöðu.
4. —
5. d4
Rf6
e4
Nýtt haustverð
Kr.
o g 2
300,00 da^gjald
,50 á ekinn km.
LEIK
rALUR
BSLALEiGAN
H
Rauðarárstíg 31
sími 22-0-22