Þjóðviljinn - 08.12.1966, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 8. desember 1966 — 31. árgangur — 281. tölublað
Saigonhemenn ræna og rupla í
sveitaþorpum sem á ui„friSa'
Bandarískum fréttamönnum blöskra aðfarir þeirra;
— Þannig er fólk laðað til fylgis við lýðræðið
I
ALGER NEITUN!
!
■ Eins og sagt var frá í fréttum
í síðustu viku var blaðamanni
Þjóðviljans, Vilborgu Harðardótt-
ur, neitað um vegabréfsárituri til
Bandaríkjanna til að taka þátt í
ferð sem Loftleiðir buðu frétta-
mönnum blaða og útvarps til, til
að kynnast starfsemi félagsins í
New York. Neitun bandaríska
sendiráðsins um vegabréfsáritun
byggðist á því að Vilborg er félagi
í Sósíalistafélagi Reykjavíkur, en
henni var jafnframt bent á að hún
gæti sótt um undanþágu til árit-
unar, en slíka undanþágu yrði að
sækja um til Washington og var
það gert símleiðis.
■ Loftleiðir framlengdu þá boð-
ið til Þjóðviljans og tilkynntu að
Vilborg gæti farið vestur, hvenær
sem hún fengi áritunina, jafnvel
þótt það yrði ekki fyrr en eftiy að
hinir blaðamennirnir kæmu heim.
■ í gær barst loks svar við um-
sókninni og reyndist NEIKVÆTT.
Ástæðu gat varakonsúll sendi-
ráðsins enga aðra gefið en þá
sömu, neitun sendiráðsins um á-
ritun hefðj aðeins verið staðfest,
sagði hann, og engin undanþága
veitt.
■ Hinir blaðamennimir sem þátt
tóku í ferðinni, komu heim í gær-
morgun.
LONDON — Bandarískum
stríðsfréttariturum ofbýður
hvernig hersveitir Saigon-
stjórnarinnar láta greipar
sópa um þorpin í sveitum
síns eigin lands og telja
framferði þeirra ekki aðeins
siðlaust, heldur einnig hættu-
legt frá póHtísku sjónarmiði,
segir fréttaritari brezka
blaðsiris „The Guardian“ í
Washington, Richard Scott.
Hann segir að ætlunin sé að
á naestu mánuðum taki Saigon-
herinn við því sem kallast „frið-
un“ sveitanna í Suður-Vietnam
af bandarisku hersveitunum, sem
í staðinn eiga að einbeita sér að
hernaðaraðgerðum.
Megintilgangurinn með „frið-
uninni" sé að vinna traust og
stuðning bænda. Það geti varla
verið rétta leiðin til þessa að
ræna frá þeim húsdýrum þeirra
og amboðum. En fréttaritarar
bandarískra blaða lýsi því hvern-
ig Saigonhermennimir láti greip-
ar sópa um allt þegar þeir koma
til að gegna „friðarstarfi" sínu í
sveitaþorþunu m.
I bandarískum blöðum, m.a.
„New York Times“, var á
fimmtudaginn var lýst einum
slikum leiðangri. Skömmu fyrir
hádegi höfðu brynvarðir bílar
komið með 120 hermenn til
þorpsins Vaníao. Á leiðinni hafði
ekki orðið vart við „Vietcong“-
sveitir og engin ástæða var lil
að ætla að slíkar sveitir hefðu
hafzt við í þorpinu. Hins vegar
var það að heita mátti mannlaust.
Saigonhermennirnir reyndu alls
ekki að komast að því hvernig á
því stóð að þorpsbúar höfðu flúið
að heiman, hvort það var vegna
þess að þeir hefðu orðið skelf-
ingu lostnir þegar þeir sáu her-
bílana nálgast eða vegna þess að
þeir hefðu í rauninni verið vin-
veittir skæruliðum.
Saigohhermennirnir gengu hús
úr húsi og höfðu' á brott með sér
allt matarkyns sem þeir fundu.
Þeir köstuðu handsprengjum í
fiskatjörn þorpsins svo að fisk-
amir flutu upp. Þeir fylltu
hjálma sína af eggjum, stálu
tylft kjúklinga, mörgum öndum,
um 50 kílóum af hrisgrjónum, 5
pokum af fiski, bananaklösum,
einnig innanstokksmunum, tóku
Framhald á 3. síðu.
Jólatré fró Hamboraarhöfn
Erýn fíörf breytinga á meðferð ís-
lenzkra dómsmála og dómaskipan
KENNA KARATE
Nöer allur fundur Sameinaðs þings í gær fór í Umræður um dómsmál og
dómaskipun, og kom fram hjá öllum sem töluðu, dómsmálaráðherra Jó-
hanni Hafstein, Ólafi Jóhannessýni1 lagaprpfessoi', Bjarna Benediktssyni
'forsætisráðherra og ^Birni Fr. Björnssyni sýslumanni að meðferð dómsmála
og dómaskipan hér á landi væri í mörgu ábótavant. Æskilegt væri að dómarar
þyrftu ekki að sinna öðr-
um störfum, og það yrði
að teljast skortur á rétt-
aröryggi að sami maður
hefði rannsókn máls með
höndum og kvæði upp
í því. Leggja yrði
áherzlu á ráðstafanir til
að flýta meðferð dóms-
mála.
Dómsmálaráðherrá Jóhann
hefur lagt fyrir Al-
þingi umfangsmikla skýrslu um
athugun á meðferð dómsmála og
dómaskipun árin 1961-65, ogflutti
hann alllanga ræðu um skýrsluna
á þingfundinum í gær, en um-
Tveir ungir Japanar eru nýkomnir hingað til lands og munu
á næstunni halda námskeið þar sem kennd vcrða undirstöðuatriði í
japanskri íþrótt sem ncfnist ,.karate“. — Frímann segir nánar frá
þessu á íþróttasíðu, en myndin var tekin af þeim japönsku félög-
um, er þeir sýndu blaðamönnum íþróttina í fyrrakvöld- Ljósm. A.K.
ræðurnar sem fyrr getur voru um
þá skýrslu og einnig þingsálykt-
unartillögu Björns Fr. Björnsson-
ar og fleiri Framsóknarþing-
manna um athugun á breyttri
héraðsdómaskipun.
Skýrði dómsmálaráðherra svo
frá að hann hefðj skipað nefnd
til að fjalla um þessi mál í fram-
haldi af skýrslunni. 1 inngangi
hennar er skýrslunni og nef ndar-
skipuninni lýst á hessa leið:
Skýrslusöfnun
„Undanfarin ár hefur verið
unnið að því í dómsmálaráðu-
Framhald á 6. síðu.
Skipstjóra- og stýrimannafélagið í Hamborg hefur sent Reykja-
víkurhöfn jólatré að gjöf og var kveikt á þvl við Hafnarbúðir
klukkan 5 í gærdag. Þetta er í annað skipti scm slík gjöf berst
hingað frá Hamborg. Viðstaddir athöfnina við Hafnarbúðir i gær
voru m. a- hafnarstjórarnir í Hamborg og Reykjavik; ambassador
Þjóðverja hér á Iandi og borgarstjórinn í Reykjavík. (Ljósm. A-K.).
Eiturhernaðurinu
i Suður-Vietnam
MOSKVU 7/12 — Fulltrúi Þjóð-
frelsisfylkingarinnar í Suður-Vi-
etnam skýrði fréttamönnum frá
því í Moskvu í dag að 140.000
manna hefðu fengið að kenna á
eiturgasi og öðrum kemiskum
vopnum sem Bandaríkjamenn
beita í Suður-Vietnam og tjón
hefði orðið á 700.000 hekturum af
ræktuðu landi af völdum eitur-
efnanna.
Líkur til að ísinn muni verða
landfastur við Vestfirðina
• Margar tilkynningar um haf-
ís út af Vestfjörðum hafa borizt
síðan í fyrrinótt. Eftir öllum sól-
armerkjum að dæma er ísinn á
leið að landinu og hefur verið
tilkynnt um spangir allt sunnan
frá Kóp, sem er sunnan við
Arnarfjörð og allt norður að
Kögri.
• I allan gærdag var blindbyl-
ur á þessum slóðum og ekki
hægt að huga nánar að ísnum,
ei, flogið verður könnunarflug
strax og gefur- Eftir tilkynning-
unum að dæma hefur ísinn færzt
helmingi nær landinu en í fyrra-
dag. þegar hann var um og yfir
20 mílur undan
• í gær var spáð vestlægri átt
á þessúm slóðum og ætti það
enn að auka líkumar fyrir að
ísinn verði landfastur- 1 hánorð-
urátt mun hann þó heldur hald-
ast frá landinu vestanmegin, en
reka upp að austan við Hom.
• Hér fara á eftir þær tilkynn-
ingar sem borizt höfðu frá því
á miðnætti í fyrririótt og þangað
til á hádegi í gær.
• Á miðnætti tilkynnti mótor-
bátur að hann sæi ís í ratsjá 13
mílur NNV frá Rit norðan við
Djúp.
• Klukkan þrjú í fyrrinótt til-
kynnti mótorbátur að hann sæi
ís í ratsjá 12 mílur VNV frá Kóp
sunnanvið mynni Arnarfjarðar.
Isirin virtist nokkuð þéttur og
lá jaðarinn frá SV —NA.
| • Klukkan níu í gærmorgun
; tilkynnti varðskip að ísspangir
sæjust í ratsjá 10 mílur norður
I frá Kögri, 7 mflur í N frá
j Straumnesi ,og 10 í vestur frá
j Rit
• Klukkan 12.50 í gærdag til-
kynnti svo varðskip um stóra ís-
spöng níu mílur vestur af Barða
sunnan önundarfjarðar-
• Fleiri tilkynningar höfðu eklri
borizt síðdegis í gær
• Spáð var NV átt og kólnandi
um allt land.
Munib Happdrætti Þjóöviijans 1960