Þjóðviljinn - 10.12.1966, Page 1
Laugardagur 10. desember 19S6
árgangur — 283. tölublað.
Rœtf á þingi um aukin lán til iBnaáarins
Ovariegt er að undanpiggja
skufdabréf framtalsskyldu
i<» •
Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna átján ára
Þingmenn úr Alþýðubandalaginu og Framsokn
mótmæltu því á Alþingi í gær að haldið væri áfram
á þeirri leið að undanþiggja tiltekin skuldabréf
framtalsskyídu, og taldi Eðvarð Sigurðss., sem orð
hafði fyrir þeim, að með því væri verið að slæva
siðferðið í skattamálum, sem ekki væri of gott
fyrir.
Neðri deild Alþingis hafði í
gær til meðferðar við 2. um-
ræðu stjórnarfrumvárp um
breytingu á lögunum um Iðn-
lánasjóð og er aðalefni þess að
hækka almenna lánsheimild
sjóðsins úr 150 miljónum í 300
miljónir, með hliðsjón af því
að sjóðnum mun ætlað að taka
að verulegu leyti við starfi
Framkvæmdabankans, en sá
banki verður lagður niður á
áramótum. Að öðru leyti er það
efni frumvarpsins að undan-
þiggja framtalsskyldu og skatt-
lagningu á sama hátt og sparifé
skuldabréf í almennu skulda-
bréfaláni að upphæð 25 milj-
ónir króna, sem Iðnlánasjóður
er um það bil að gefa út.
Iðnaðarnefnd deildarinnar
hafði orðið sammála um að
mæla með samþykkt frum-
varpsins en þrír nefndarmenn,
Eðvarð Sigurðsson, Gísli Guð-
mundsson og Þórarinn Þórarins-
son, fluttu breytingartillögu við
frumvarpið, um að skuldabréfin
skyldu framtalsskyld en skatt-
frjáls.
Jónas G. Rafnar talaði fyrir
nefndinni en Eðvarð Sigurðsson
mælti fyrir breytingartillögunni.
Kvað Eðvarð alla sammála um
nauðsyn þess að iðnaðurinn ætti
kost á meira lánsfé. Ágreining-
ur í nefndinni hefði einungis
verið um það hvort ætti að und-
Framhald á 3. síðu.
Lokunartimi sölubáða í dagl
ATHYGLI lesenda skal vakin á því, að matvöruverzlunum er lok-
a* klukkan tólf á hádegi í dag, laugardag, en SÉRVÖRUVERZL-
ANIR 'eru hinsvegar opnar til klukkan sex síðdegis-
NÆSTA laugardag 17. desemher, verða matvöruverzlanir einnig
opnar til klukkan tóif á hádegi, en á Þorláksmessu, 23- desem-
her , eru þær opnar til klukkan níu að kvöldi.
SÉRVÖRUVERZLANIR verða opnar á laugardaginn kemur til
klukkan tíu að kvöldi, en á Þorláksmessu verða þær hinsvegar
opnar tii kiukkan tólf á miðnætti-
í dag eru liðin átján ár síðan allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna samþykkti Mannréttindayfirlýs-
inguna sem byggist á inngangi stof-nskrár samtak-
anna þar sem ræðir um „grundvallarréttindi
manna, virðingu þeirra og gildi, jafnrétti karla og
kvenna og allra þjóða, hvort sem stórar eru eða
smáar“. í 5. grein yfirlýsingarinnar segir svo: „Eng-
inn maður skal sæta pyndingum, grimmilegri, ó-
mannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu“.
— Myndin hér að ofan sem japanski ljósmyndarinn
Kyoichi Sawada tók í Suður-Vietnam gefur hug-
mynd um hvernig Bandaríkjamenn virða það á-
kvæði yfirlýsingarinnar.
A sjöttu síðu blaðsins birtist kvæðið „Víetnam‘‘ úr síð-
ustu ljóðabók Hannesar Sigfússonar, JARTEIKN.
\ Happdrætti Þjóðviljans:
SKILADAGUR
■jr 1 dag er skiladagur í happdrætti Þjóðviljans.
Tekið verður á móti skilum á afgreiðslu
blaðsins, Skólavörðustíg 19, í dag frá kl.
10 árdegis til kl. 7 síðdegis.
^ Allir sem tök hafa á eru beðnir að ljúka
Síldarlfsið hefur hækkað í
verði um ca 30% sl. mánuð
■ Sl. mánuð hefur verð á síldarlýsi farið stórhækkandi á
heimsmarkaði og er nú mjög farið að nálgast það verð sem
var á lýsinu í vor áður en verðfallið hófst í sumar. í vor
var gildandi heimsmarkaðsverð á lýsi 72 pund fyrir tonnið
en síðan fór það hríðlœkkandi í sumar og haust og var komið
niður í 50 pund. Fyrir tim það bil mánuði fór verðið aftur
að hækka og er nú komið upp í 65 pund og nemur hækkun-
in 30%. Er búizt við að þetta verð muni haldast næstu
mánuði og fremur fara hækkandi en hitt.
uppgjöri í happdrættinu. Því fyrr, þeim
mun betra.
Dregið verður á Þorláksmessu, 23. desem-
ber. Aðalvinningarnir era tvær Moskwitsch-
bifreiðir, árgerð 1967, og aukavinningar
eru fimm.
Kaupið miða í Happdrætti Þjóðviljans og
eignizt von í vinningunum. Seljið miða.
Efhim Þjóðviljaim!
Orsökin íyrir hinu mikla
verðfalli á síldarlýsi í sumar og
haust var mjög mikið framboð
á heimsmarkaðnum og munaði
þar mest um mikla síldveiði
Perúmanna. Nú hefur hins veg-
ar langt sjómannaverkfall í
Perú lamað síldveiðar þar og
lýsisframleiðslu og á það sinn
þátt í verðhækkuninni nú. í
annan stað hættu Norðmenn
síldveiðum um skeið í haust
vegna verðfallsins og dró það
mjög úr lýsisframleiðslu þeirra
en Norðmenn hafa verið ásamt
Perúmönnum aðalkeppinautar
okkar á lýsismarkaðnum.
Þá hefur einnig orðið nokkur
hækkun á síldarmjöli á heims-
markaði að undanförnu þótt sú
hækkun hafi ekki verið eins
stórfelld og á lýsinu.
Þessar nýjustu frjttir í
markaðsmálum fyrir síldar-
afurðir • eru að sjálfsögðu
mikið fagnaðarefni fyrir okk-
ur íslendinga sem eigum af-
komu okkar svo mjög komna
undir sölu sjávarafurða. En
nú er eftir að sjá hvort verð-
ur brugðið jafnskjótt við og
í sumar og haust þegar ver'i-
fallið á síldarlýsinu hófst. Þá
var síidarverðið strax lækkað
til stórmuna eins og menn
munu minnast og lá nærri
að ailar síldveiðar stöðvuðust
af þeim sökum. Og verðfallið
á síldarafurðunum hefur af
ríkisstjóminni og atvinnu-
rekendum verið notað sem
aðalröksemdin fyrir því að
þjóðarbúið og allur atvinnu-
rekstur í landinu beri ekki
hærra kaupgjald og þar af
leiðandi verði að koma í veg
fyrir allar kauphækkanir eigi
hrun ekki að skella yfir.
Verður einkar fróðlegt að sjá
hver viðbrögðin verða nú hjá
ríkisstjóm og atvinnurek-
endasamtökum við þessum
markaðsverðhækkunum.
Kuldatíð áfram
I gær var enn hvassviðri á
Austfjörðum og snjókoma um
landið norðaustanvert en heldur
hafði dregið úr frostinu. Bjart
var hins vegar sunnan og vest-
anlands.
Samkvæmt upplýsingum Veð-
urstofunnar í gær eru taldar
horfur á áframhaldandi kulda-
tíð enn um sinn.