Þjóðviljinn - 24.01.1967, Page 3

Þjóðviljinn - 24.01.1967, Page 3
Þriöjudagur 24. janúar 1967 ÞJÓÐVILJINN SÍÐA 3 Ho Chi Minh er sagður hafa boðið Johnson forseta heim til viðræðna Bandarískur rabbíni segist hafa þau skilaboð með frá Hanoi þar sem hann ásamt öðrum vesturlenzkum kennimönnum ræddi við Ho forseta V "1 • • i ' ’ . r ÖÖYÍÖ loffárásirnar LONDON 23/1 — Bandaríkjamenn eru nú með loftárásum sínum á Norður-Vietnam farnir að legrgja í eyði einstök liéruð, sögðu þrír vesturlenzkir kennimenn sem nýkomnir eru frá Norður-Vietnam í dag á fundi með blaðamönnum í London. — En Norður-Vietnamar munu ekki gefast upp eða krjúpa á kné fyrir sprengjuárásunum, sagði sá sem helzt hafði orð fyrir hópnum, Bandaríkjamaðurinn Abraham Muste. — Norður-Vietnamar eru farnir að sætta sig við stór- árásir úr Iofti og margir þeirra lifa bókstaflcga neðan- jarðar. Þeir hafa einnig sætt sig við að Hanoi verði alger- lega lögð í rústir, sagði Muste sem er formaður fyrir sam- tökum bandarískra friðarvina. I sameiginlegri yfirlýsingu sem Muste og ferðafélagar hans tveir, enski presturinn Ambrose Reeves og banda- ríski rabbininn Abraham Feinberg, hafa undirritað er skorað á Bandaríkin að hætta lofthernaðinum gegn Norð- ur-Vietnam. Loftárásirnar brjóta í bága við alþjóðarétt og þær eru tilefnislausar árásaraðgerðir stórveldis gegn litlu landi og þær þjáningar sem þær hafa í för með sér fyrir börn, konur, gamalmenni og alla þjóðina eru ómannúðlegar og brjóta gegn öllum siðgæðisreglum, segja þeir félagar. Þeir segjast sjálfir hafa séð hvernig umhorfs var í ibúðarhverfum Hanoi eftir loftárásirnar sem á þau voru gerðar 13. og 14. desember. — Okkur finnst það þess vegna ógnarlegt að talsmenn bandarískra stjórnarvalda reyna að neita þessu eða gera Iítið úr því, bæta þeir við. LONDON 23/1 — Ho Chi Minh, forseti Norður-Vietnams, hefur boðið Johnson forseta til friðarviðræðna í Hanoi, sagði bandaríski gyðingaklerkurinn Abraham Feinberg, á fundi með blaðamönnum í London { dag, en þangað var hann kominn á heimleið úr ferð til Norður-Vietnams. Feinberg . sem var í Hanoi á- samt öðrum kennimönnum af vesturlöndum sagði að Ho for- seti hefði minnzt þess í viðræð- um við sig og Ambrose Reeves, aðstoðarbiskup ensku kirkjunn- ar í Chichester, að Johnson for- seti hefði sagzt vera reiðubúinn að ræða um frið við hvern sem væri, hvenær sem væri og hvar sem væri. — Ég býð Johnson að vera gestur okkar og ræða við okkur nákvæmlega hér þar sem þér nú sitjið, í höll þeirri sem franski landstiórinn í Indókína bjó í, hafði Feinberg eftir Ho forseta. Ho er sagður haía bætt við: — Johnson getur komið hing- að ásamt konu sinni og dætr- um, ritara sínum, lækni sínum. matreiðslumanni sínum. En hann ætti ekki að koma hingað með skammbysu við beltið og flota- foringja sína og hershöfðingja ætti hann ekki að hafa með sér. Ho fullvissaði viðmælendur sína um að Johnson myndi ekki hafa neitt illt að óttast í Hanoi. Séra Reeves tók fram að sér hefði skilizt að Ho’ forseti hefði viljað fá Johnson einan í heim- sókn, svo að þeir gætu ræðzt við undir fjögur augu. Hann hefði ekki ætlazt til að haldinn yrði fundur margra þjóðarleið- Fréttir aí uppjsotum, átökum og harðrí andstöðu gegn Mao Sagt er að Mao hafi fyrirskipað að herinn skerist í leikinn - Sjang Kajsék hugsar gott til glóðarinnar PEKING 23/1 — Af fréttum sem ýmist eru hafðar eftir veggblöðum í Peking eða kínverskum útvarpsstöðvum virðist mega ráða að ringulreiðin ágerist í Kína og fari baráttan harðnandi milli stuðningsmanna og andstæðinga menningarbyltingarinnar og þarmeð Mao Tsetungs. í vegg- blöðunum er sagt að Mao hafi fyrirskipað hernum að sker- vandræðaástand í byggðarlög- um umhverfis Peking, segir AFP, en þar virðast sumar hinna miklu kommúna vera að leysast upp. Blaðið ber andstæðinga Framhald á 6. síðu. toga í Hanoi. — Þetta var pers- ónulegt heimboð til forsetans, sagði hann. Feinberg rabbíni sagði að sér hefði skilizt að fyrir stjórn Norð- ur-Vietnams hefði vakað að gera það ljóst að hún vildi fyrir sitt leyti greiða fyrir samningavið- ræðum um frið. Hann kvaðst mundu koma heimboðinu til Johnsons forseta. Auk þeirra Feinbergs og Reev- es voru með í förinni til Hanoi Abraham Muste sem er for- maður fyrir samtökum banda- rískra friðarsinna, og dr. Martin Niemöller, hinn kunni þýzki kennimaðúr. (Hér á síðunni er sagt frá yfirlýsingu sem lögð var fram á blaðamannafundinum í London og einnig birt viðtal við dr. Niemöller sem birtist í vesturþýzka vikublaðinu „Der Spiegel“). Brezka útvarpið átti í dag við- tal við séra Ambrose Reeves um dvöl hans i Norður-Vietnam. Séra Reeves er mjög kunnur maður, hann. var biskup ensku kirkjunnar í Jóhannesarborg i .Suður-Afr.íku árin 1949—1961. en var rekinn úr landi í september 1960 fyrir baráttu sína gegn kyn- þáttakúguninni þar, og hefur síðar verið aðstoðarbiskup í London og Chichester. Séra Reeves saeði i viðtalinu að hann og ferðafélagar hans ! hefðu haft mikið upp úr ferð- i inni. — Við höfum séð rústir í og umhverfis Hanoi. Við hitt- um einnig fólk sem átti um sárt að binda vegna loftárásanna. Þær fullyrðingar Bandaríkja- manna eru fáránlegar að þeir ráðizt ekki á óbreytta borgara. — Hittuð þér Ho Chi Minh? — Já, hann er mjög stórbrot- inn persónuleiki. Við áttum mjög óþvingaðar viðræður við hann. Hann er ákaflega viðfelld- inn maður. — Kom nokkuð íram í þess- um viðræðum við Ho Chi Minh sem gæti gefið vísbendingu um hvar lausn á Vietnamstríðinu væri að finna? — Nei, ég held að við verðum Framhald á 6. síðu. Barízt á götunum í höfuðborg Nicaragua MAKAGUA 23/1 — Blóðugir bardagar urðu í Managua, höfuðborg Nicaragua í Mið-Ameríku, í gærkvöld og nótt, þegar efnt var til mótmæla gegn tilhögun forsetakosninga sem fyrir dyrum standa í landinu og sérstaklega framboði Anastasio Sbmoza' hershöfðingja. ast í leikinn. Textinn á veggblöðunum var þessi: Eftir að Mao formaður hafði lesið um árekstrana sem orðið hafa í Anhvei (einu fylki Kína, í austanverðu miðju land- inu, fyrir vestan Nanking) gaf hann Lin Piao þau fyrirmæli að framvegis skyldi herinn styðja hina vinsti'isinnuðu byltingaral- þýðu ef nauðsyn krefðist. Það er misskilningur að herinn eigi að fylgja stefnu afskiptaleysis. Það er ekki í samræmi við það sem hefur gerzt. Upp á síðkastið- hefur herinn tekið fullan þátt í öllum pólitískum herferðum og hreyfingum, var sagt í vegg- blöðunum. Eins og fyrri daginn er varaö við því að treysta um of því sem í þessi veggblöð er skrifað. Það sem stóð í þeim í dag kunni að- eins að vera áminning til and- stæðinga Maos um að herinn fylgi honum. Undanfarið hafa borizt margar fregnir af óeirðum og uppþotum í Anhvei-fylki, en veggblöðhafa verið heimildir fyrir öllum þeim fréttum. Hinsvegar hafa borizt fréttir nf slíkum uppþotum og átökum i Kiangsi-fylki, sem er fyrirsunn- an Anhvei, og heimildin fyrir þeim virðist vera traustari, þar sem hún er útvarpsstöð fylkisins. Það má ráða af fréttaflutningn- um að áhangendur Maos stjórm útvarpsstöðinni, en í dag skýrði hún frá því að þeir hefðu orðið fyrir manntjóni í tveggja daga átökum í Kiangsi-fylki. Engar tölur voru nefndar, en sagt aö heimsóttir hefðu veriö menn sem lægju á sjúkrahúsum eftir á- rekstra 11. og 12. janúar. Frá Kiangsi hafa annars áður borizt fréttir af verkföllum, matvæla- skorti og ringulréið. Japanskt blað skýrði í dag frá því að um 40 manns hefðu særzt í viðureignum í Sjangsjún i Mansjúríu. Þar hefði lostið saman rauðum varðliðum og starfsmönnum kvikmyndafélags. I veggblöðum í Peking hefur einnig mátt lesa um harðnandi andstöðu gegn menningarbylt- ingunni í ýmsum stórborgum Mansjúríu, svo sem Pinkiang (Harbin) og Múkden, einnig í borginni Paoting í Hopei-fylki, sem er næst fyrir sunnan Man- sjúríu. „Alþýðudagblaðið" í Peking sagði í dag að ólgan í landinu sem væri sök andstæðinga menningarbyltingarinnar ógnadi nú landbúnaðarframleiðslunni. Blaðið talar sérstaklega um Anastasio er sonur og nafni Somoza þess sem náði völdum í Nicaragua í skjóli Bandaríkja- manna fyrir stríð og hélt þeim þar til hann var myrtur í sept- ember 1956. Anastasio og eldri bröðir hans, Luis, hafa síðanhaft öll völd í landinu, en haft leppa sína í embætti forseta. Andstæðingar Somoza fóru fylktu liði um götur borgarinn- ar í gærkvöld og sló brátt í bardaga milli þein-a og vopnaðr- ar lögreglu. A.m.k. sextán menn munu hafa verið skotnir til bana, en margir særðust. Skriðdrekar voru sendir inn í borgina í nótt og voru á verði á ýmsum stöð- um í henni. 1 tilkynningu stjórnarinnar seint í gærkvöld var sagt að uppreisnarmenn væru undir stjórn Fernando Aguero, fram- bjóðanda íhaldsmanna í forseta- kosningunum, og blaðaeiganda að nafni Pedro Chamoro. Hins veg- ar hafi kommúnistar séð sérleik á borði og reyni þeir að notfæra sér ringulreiðina. Kommúnistar hafi dreift vopnurn og skotfærum sem þeir hafi smyglað inn í landið. Þegar sfðast fréttist höfðu uppreisnarmenn búið um sig í gistihúsi einu í borginni og héldu þar sem gislum 20 útlendingum. Vitað er að nokkrir þeirra eru bandarískir en ekki vitað um þjóðemi annarra. „Hættið þessari vitfirringu" Hinn kunni þýzki kennimaður, dr. Martin Niemöller, einn af sex forsetum Heimskirkju- ráðsins, hefur verið í Norður-Vietnam og í síðasta tölublaði vestur- þýzka vikuritsins ,.Dcr Spiegel" birtist eftirfar- andi viðtal við hann heimkominn. Spiegel: Séra Niemöller, urð- uð þér þess áskynja að Norð- ur-Vietnamar trúi enn á að stríðslokin verði þeim í vil? Niemöller: Leiðtogar Norður- Vietnams trúa því enn statt og stöðugt að. svo fari. En slík endalok stríðsins merkja ekki að Bandaríkjamenn verði sigraðir. Því í Hanoi hafa menn þetta sjónarmið: Stríðinu er lokið strax og Bandaríkjamenn fara úr land- inu. Spiegel: Er Ho Chi Minh for- seti ofstækismaður sem vill berjast þar til lokasigur er unninn? Niemöller. Ho forseti er sann- arlega enginn ofstækismaður. Hann er mannúðlega og skyn- samlega þenkjandi maður. Ef þér með ..lokasigri" eigið við Þessi mynd fylgdi viðtalinu við dr. Niemöller og þessi skýring með: Hann heldur á kúlu úr einni bandarískri „klasasprengju" sem að áliti Niemöllers er aðeins til þess fallin að drepa fólk eða lim- lesta, en vinnur ekki á nein- um mannvirkjum. brottför Bandaríkjamanna — þá mun hann berjast þar til lokasigur vinnst. En hann stefnir ekki að því að búa Bandaríkjamönnum siðferði- legan eða hemaðarlegan ósig- ur. Hann segir: „Allt er und- ir Bandaríkjamönnum komið. Ef þeir vilja heyj:a stríð í 20 ár, þá heyjum við stríð í 20 ár. Ef þeir vilja semja frið, þá semjum við frið og bjóðum þeim að því loknu meira að segja upp á te“. Spiegel: Fylkja Norður-Viet- namar sér enn um Ho forseta eftir loftárásir Bandaríkja- manna mánuðum saman eða urðuð þér var við uppgjafar- merki? Niemöller: Að mínu áliti fylkir öll vietnamska þjóðin sér um Ho — og sennilega einnig Þjóðfrelsisfylkingin í Suður-Vietnam sem annars stendur algerlega á eigin fót- um. Spiegel: Hefur hið langa stríð veikt baráttuþrek íbúa Norð- ur-Vietnams? Niemöller: Því fer alls fjarri. Af öllu snart mig mest ásetn- ingur allra kynslóða þessarar þjóðar að halda áfram stríð- inu, jafnvel þótt það standi í 20 ár. Spiegel: Kínverjar eru mikil- vægustu bandamenn Hanoi. Hefur valdabaráttan sem nú á sér stað í Kína áhrif á stefnu Norður-Vietnama? NiemöIIer: Það er einkenni- legt, . en í Norður-Vietnam heyrist lítið um það talað. Þjóðin er bundin við sín eig- in örlög. Spiegel: Þér voruð frjáls ferða yðar í Hanoi... Niemöller: ... já, hver okkar hafði eigin bíl til umráða og gat farið hvert sem hann vildi í Hanoi og umhverfi... Spiegel: . .. og gert sér þannig grein fyrir eyðileggingunni? Niemöller: Auðvitað aðeins að mjög takmörkuðu leyti. Við skoðuðum með leiðsögn gest- gjafa okkar staðinn Nhat Dan, sex km fyrir norðan Hanoi, sem lagður var í eyði en hef- ur verið endurreistur. Við sáum einnig í Hanoi og um- hverfi borgarinnar rústir — þ.á.m. eyðilagða vefnaðar- verksmiðju og framhalds- skóla verklýðsfélaganna sem hafði orðið fyrir sprengjum. Spiegel: Gerðu Bandaríkja- menn loftárás meðan þér vor- uð þarna? Niemöller: Aðvörunarmerki um loftárás voru gefin ekki aðeins einu sinni, heldur fjór- um sinnum — tvisvar í Hanoi og tvisvar þegar við heim- sóttum Phu Ly, stað í ná- grenni höfuðborgarinnar sem hefur verið lagður algerlega í eyði. Við heyrðum hreyfla- drunur bandarísku flugvél- anna og tvívegis urðum við m.a.s. að leita hælis í stein- steyptum loftvarnabyrgjum. Spiegel: Séra Niemöller, teljið þér að þýzka Sambandslýð- veldið geti og eigi að aðstoða Norður-Vietnam? Niemöller: Ég vildi skýra frá því hvemig hægt er að auka aðstoðina við Norður-Vietnam. „Hilfsaktion Vietnam" hefur varið fé til kaupa á lyfjum sem Norður-Vietnam getur ekki sjálf framleitt á næst- unni. Handa hinum sjúku og særðu er mest þörf á fúkka- lyfjum, kininlyfjum og lækn- ingartækjum handa sjúkra- hælum sem komið hefur ver- ið upp á afskekktum stöðum í landinu. En Hanoi væntir þess eins af stiórn Sambands- lýðveldisins, að hún segi við Bandaríkjamenn: „Hættið nú þessari vitfirringu!" Slíktyrði vel þegið. Spiegel: Undanfarnar vikur og mánuði hafa geistlegir og veraldlegir valdamenn borið fram tillögur um frið í Viet- nam. Fær þessi friðarviðleitni yfirleitt nokkurn hliómgrunn hjá valdhöfunum í Norður- Vietnam? Niemöller: Já, ég tel að sér- hverri friðarviðleitni sé fágh- að — svo fremi sem út frá Ganfarsamningunum frá 1964 Spiegel: ... frá brottför Bandaríkjamanna . ..? Niemöller: . .. sé gengið. Spiegel: Hvers urðuð þér á- skynja um striðið í Vietnam? Er það tilraun til að sameina landið með valdi, er það þjóðarstríð gegn bandarískri íhlutun eða er það tilraun kommúnista til að ná völdum í öllu landinu? Niemöller: Sjónarmið Ho Chi Minhs og allrar þjóðarinnar í Norður-Vietnam er: Við heyj- um ekkert stríð. Stríðið er háð gegn okkur og við verj- umst. Spiegel: Þér hafið sagt að Bandaríkjamenn einir hafi í höndum sér að ljúka stríðinu. Hvað á Washington að gera til þess að Hanoi fallist á frið- arviðræður? Niemöller: Hætta loftárásun- um. Verði loftárásunum hætt, mun Norður-Vietnam þegar í stað fallast á viðræður. En bessar viðræður gætu aðeins orðið á grundvelli Genfar- samninganna, bví að Ho Chi Minh tekur ekki í mál að falla frá einu einasta atriði þeirra. ♦ 4 j

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.