Þjóðviljinn - 24.01.1967, Page 4
4 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 24. jauúar 1967. •
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: ívar H- Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson.
Framkvstj-: Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skóla'vörðust- 19.
Sími 17500 (5 línur) — Áskriftarverð kr. 105,00 á mánuði. —
Lausasöluverð kr. 7.00-
Minnisblað
l^kkert vandamál er erfiðara úrlausnar fyrir ungt
^ fólk en að komast yfir íbúð; félagslegar ráð-
stafanir á því sviði eru frumstæðari hérlendis en
í nokkru nálægu landi; þrautalending flestra er
að reyna að byggja eða kaupa íbúð. Ekki nýtur
framtak einstaklingsins i þ-ú efci samt mikillar
fyrirgreiðslu stjórnarvalda, þrátt fyrir fögur orð
á tyllidö*Uí<« íbúðalán hér eru miklu lægri og
óhagkvæmari en annarstaðar á Norðurlöndum, og
því fer mjög fjarri að eftirspurn eftir þeim sé
fullnægt; nú síðast var helmingur umsækjenda
gerður afturreka þrátt fyrir fullgildar umsóknir.
^Fil þess að koma húsnæðismálum í viðunandi
horf þarf félagslegt stórátak. En á meðan sú
stefna nær ekki fram að ganga er mikil nauðsyn að
létta undir með fólki sem reynir að beita framtaki
einstaklingsins til þess að eignast íbúð til eigin
nota. X samræmi við það lögðu borgarfulltrúar
Alþýðubandalagsins í Reykjavík til á síðasta borg-
arstjórnarfundi að skorað yrði á alþingi að gera
þa lagábreytingu „að þeim, sem byggja eða kaupa
íbuð af hóflegri stærð til eigin afnota í fyrsta skipti,
skuli veittur helmings afsláttur af tekjuskatti og
útsvari tvö næstu ár eftir að bygging hefst eða
kaup á íbúð eru gerð“.
l^essi tillaga Alþýðubandalagsins hlaut stuðning
* borgarfulltrúa Alþýðuflokksins og Framsókn-
arflokksins, en meirihluti íhaldsins snerist önd-
verður gegn henni. Virtist það raunar vera íhald-
inu tilfinningaimál að hamast gegn þessari fyrir-
greiðslu í þágu unga fólksins, því Morgunblaðið
birti sérstaka forustugrein þar sem því er haldið
fram að ungt fólk sem er að koma sér upp íbúð sé
forréttindaaðilar í þjóðfélaginu og þurfi sízt af öllu
á skattfríðindum að halda. Ástæðulaust er að ræða
jafn fráleit og ofstækisfull sjónarmið; hins vegar
ætti unga fólkið að muna vel þessa afstöðu og
launa hana að verðleikum.
Annað minnisblað
Reykjavík mun vera eina bæjarfélagið á landinu
sem hirðir útsvar af mæðralaunum og barna-
lífeyri og lætur aldrað fólk ekki njóta neinna fríð-
inda við útsvarsálagningu. Á síðasta borgarstjórn-
arfundi lögðu fulltrúar Alþýðubandalagsins til að
hér eftir skyldi draga mæðralaun og barnalífeyri
frá skattskyldum tekjum áður en útsvör væru
reiknuð, og að fólk yfir sjötugsaldri slyppi við út-
svör ef launatekjur þess færu ekki yfir 150.000 kr.
Ennfremur var lagt til að útsvör sem. ekki. ná 2-000
kr. yrðu felld niður.
Tillögur þessar fela í sér einföld. réttlætismál.
Framkvæmd þeirra myndi ekki vera mikið
fjárhagsatriði fyrir borgarsjóð, en hún myndi
engu að síður létta undir með ýmsum þeim sem búa
við erfiðust kjör. En slíkt er ekkert áhugamál
þeirra forréttindamanna sem fara með meirihluta
í borgarstjórn Reykjavíkur. Þeir felldu tillögum-
ar og létu síðan Morgunblaðið hreyta í þær skæt-
ingi. Sú afstaða er geymd en ekki gleymd. — m.
Ver ksmið jutogar i
aflar vel
Norski verksmiðjutogarinn.
Longva frá Ál'asundi,. sem er'
kringum 1200 brúttó-rúmlestir
að stærð, kom af miðunum við
Nýfundnaland og Vestur-Græn-
land í nóvember s.l. með 430
smálestir af fullunnum fiskflök-
um eftir þriggja mánaða úthald
frá því hann fór úr Álasunds-
höfn. Flökin voru unnin í
blokkir og var þeim skipað á
land í Grimsby.
Á Longva er 48 manna skips-
höfn. Hásetahlutur úr þessari
veiðiferð var n.kr. 18.860,00, ís-
lenzkar krónur 113.160,00. Fæð-
iskostnaður í ferðinni, þvf að
Norðmennirnir fæða sig sjálfir,
varð kr. 622,00, íslenzkar krón-
ur 3732,00. (Matarefni allt er
keypt inn tollfrítt). Mánaðar-
kaup háseta á verksmiðjutogar-
anum varð þannig í ísienzkum
krónum 36.476 þegar búið var
að draga fæðið frá hlutnum og
verður það að teljast allgott.
En þetta er ekkert einsdæmi
um aflabrögð og hásetahlut á
Longva, því þannig má segja
að þetta hafi gengið til í öll-
um veiðiferðum frá því að skip-
ið hóf veiðar fyrir fáum árum
og stundum betur. Nú er útgerð
þessa skips, A.S. Longvatrál, að
láta smíða nýjan verksmiðju-
togara í Noregi og á hann að
verða öriítið stærri heidur en
þessi. Gert er ráð fyrir að sá
togari geti hafið veiðar á þessu
ári.
Löng útivíst
Úthafslínuveiðarinn Severin
Roald kom til Noregs um miðj-
an desember s.l. af Grænlands-
miðum eftir 6 mánaða úthald.
Afli skipsins var 438 smálestir
af fullstöðnum saltfiski, 25 smár
lestir af frosnum flökum og 3
spjálestip.af, heilffystri. stórlúðu.
Söluverð aflans upp úr skipi
var sagt n. kr. 1.600,000,00, ísl.
kr. 9.600,000,00.
Veiðar Norðmanna
við V-Afríku
Þrír norskir úthafslínuveiðar-
ar hafa stundað veiðar undan
Vestur-Afríku og við Kanarí-
eyjar á sl. ári og aflað sæmi-
lega vel. Þeir komu allir til
heimahafna í Noregi í desember
s.l., en ætluöu svo að halda aft-
ur á hin suðlægu mið í janúa~-
mánuði. Afli skipanna hefur að
stærstum hluta verið sverðfisk-
ur, en einnig nokkurt magn af
makrílhákarli og styrju. Norð-
mennirnir hafa heilfryst aflann
og sett á markað á Italíu, en
þar ei-u þessar fisktegundir eft-
irsóttar.
Japanir veiða talsvert magn
af sverðfiski á Suður-Atlanzhaíi
og fiTsta fyrir Bandaríkjamark-
að. Þeir skera fiskinn af bein-
unum og frysta síðan í kössum.
Bandaríkjamenn kaupa fiskinn
aðeins þannig verkaðan.
Norðmenn eignast
stærsta selfangara
heims
Ishafsútgerðarfélag á Sunn-
mæri í Noregi keypti nýlega
danska flutningaskipið ,,Kista
Dan“ sem var smíðað eftir síð-
asta strið fyrir flutning til
Norðaustur-Grænlands og mun
vera einhversstaðar yfir 2 þús-
und smálestir. Þetta,er stálskip,
smíðað fyrir íshafsferðir eins og
•að framan segir. Skipið hefur
nú hlotið nafnið _ Martin Karl-
sen, en sá maður var tengda-
sonur Peters Brandal, þess er
einna .fyrstur hóf . íshafsútgerð
frá Sunnmæri. Þá var Martin
Karlsen um langt árabil for-
stjóri íshafsútgerðarinnar Peter
Brandal A.S.
Þorskstofninn hrað-
minnkandi
Verið er nú að gera ýmsar
breytingar á skipinu í Ála-
sundi, en að því loknu mun
það halda vestur um haf til
veiða í ísnum við Nýfundna-
land. Gert er ráð fyrir að það
lesti afurðir af 50 þús. selum.
Áhöfn þéssa risastóra selfang-
ara verður 52 menn.
Þau ríki sem standa að fiski-
rannsóknum á Norðaustur-Atl-
antzhafi, þ.e. Noregur, Sovétrík-
in, Stóra-Bretiand og Vestur-
Þýzkaland, þessi ríki hafa nú
gefið út sameiginlega yfirlýs-
ingu þar sem segir að á s.l.
FISKIMÁL
eftir Jóhann
«1. E. Kúld
tíu árum hafi þorskstofninn
gengið svo saman að nú sé tæp-
lega tíundi hluti af kynþroska
fiski á þessu hafsvæði, móti því
sem verið hafi fyrir 10 árum.
Talsmaður Noregs, Klaus Sunn-
aná, fiskimálastjóri, vill að
gerðar verði róttækar ráðstaf-
anir, meðal annars hefur hann
stungið uppá hámarksveiði ár-
lega af þorski og ýsu á þessu
hafsvæði. Fyrstu sameiginlegu
mótaðgerðir framangreindra
þjóða verða þær að möskva-
stærð verður aukin á þessu
hafsvæði.
Norðmenn sam-
þykkja auknar verð-
uppbætur
1 desember s.l. samþykkti
norska Stórþingið að veita 120
miljónir norskra króna, (ísl.
kr. 720 miljónir) til verðupp-
bóta á fisk veiddan af norsk-
um skipum. Þessi samþykkt er
í samræmi við samkomulag sem
náðist milli sjávarútvegsmála-
ráðuneytisins og Noregs Fiskar-
lag um stuðning við norska út-
gerð og fiskimenn, fyrir á þessu
hausti. Þegar ég hafði síðast
fréttir af þessu máli, þá hafði
ekki ennþá verið tekin ákvörð-
un um skiptingu þessa fjár,
eða hve háar uppbætur skyldu
greiddar á hinar ýmsu fiskteg-
undir.
Tveggja þilfara línu-
veiðarar
Á slðustu árum hafa komið
fram á sjónarsviðið tveggja
þilfara fiskiskip. Fyrst kemur
þetta fram við smíði á skuttog-
urum, en nú hafa einnig verið
smíðaðir nokkrir tveggja þilfara
línuveiðarar. Akers mekaniske
verksted í Noregi hefur t.d.
smíðað*tvö slík skip á sl. ári,
380 rúmlestir að stærð hvert.
Þessi skip bæði eru sambland
af síldveiðiskipi íyrir hring-
nótaveiðar og úthafslínuveiðara,
búin tveimur sterkum hliðar-
skrúfum. Síðara skipið af þess-
ari nýju gerð var smíðað fyrir
útgerðarfélag í Álasúndi, sem
tilheyrir fjölskyldunni Aarseth,
sem á nú yfir 25 fiskiskip.
Þetta skip hlaut nafnið Dolsöy,
en sömu menn áttu áður línu-
veiðara með þessu nafni, mikið
afla- og happaskip. Hin nýja
Dolsöy á að geta Icstað 5000
hektólítra af síld, en vera bó
með 1 metra fríboröi á mið-
síðu yfir sjó. Hér kemur m.a.
fram einn af kostum þess að
bil.förin eru tvö. Þá er stöug-
leikahæfni þessa skips talln sér-
staklega mikil.
Eg hef átt þess kost að ræða
við norskan sjómann sem
stundaði þorskveiðar á Græn-
landsmiðum að vetrarlagi á
tveggja þilfara línuveiðara.
slíku skipi þegar fiskað er á
norðlægum slóðum, framyfir
skipin af eldri gerðinni. Þá
telja ýmsir málsmetandi menn,
að' kostir ' tveggja þilfara skips
við síldveiðar, þegar flytja skal
farm um opið haf, séu miklir.
Laxveiðar á græn-
lenzkum
úthafsmiðum
í byrjun desember s.l. kom
hinn gamli línuveiðari Hind-
holmen heim til Noregs eftir
stutta en velheppnaða veiðiferð
á miðunum undan Vestur-
Grænlandi. Afli skipsins var 32
smálestir af 1. flokks 3axi, sem
þeir hraðfrystu um borð. Hind-
holmen er einn af hinum gömlu
línuveiðurum Norðmanna, hafði
áður gufuvél, en er nú með
mótorvél, stærð skipsins er ca
100-120 rúmlestir brúttó.
Eins og áður segir fengu þeir
þennan afla á mjög stuttum
tíma á djúpmiðum undan Vest-
ur-Grænlandi; þeir notuðu rek-
net við laxvéiðina. Annars
hafði skipið líka útbúnað til
þorskveiða og hámeraveiða, en
hEétti algjörlega við þær veið-
ar, þegar laxveiðin var svona
gjöful. Við heimkomuna var
þeim boðið n. kr. 16,00 (ísl. kr.
96,00), fyrir kg í laxfarminum.
I viðtali upþlýsti- skripstjór-
inn að i þessum afla hefðu
fundizt tveir merktir laxar,
báðir merktir við Nova Scotia
í Kanada.
Á Hindholmen var aðeins 9
manna skipshöfn svo að hlut-
ur skipshafnarinnar verður um-
talsverður, þar sem aflaverð-
mætið hleypur upp á 3 miljón-
ir og 72 þúsund íslenzkar kr.,
hafi. þá aflinn verið seldur fyr-
ir þetta verð sem þótti of lágt.
Grálúðuveiðar
Norðmanna
Það eru fá ár síðan Norð-
menn hófu skipulega leit að
grálúðufniðum undan norsku
ströndinni, en það varð til þess
að þeir fundu mið sem voru
tiltölulega auðug af þessari
fisktegund. Síðan þetta gerðist
hjá þeim á sviði hafrann-
sókna, þá hefur verið leitað á
hverju ári að nýjum miðum,
þar sem grálúða heldur sig.
Grálúðuveiðar eru nú snar
þáttur í fiskveiðum Norðmanna,
sumsstaðar undan norsku
ströndinni yfir sumarmánuðina,
einmitt þann árstíma, sem oft
reynist örðugast að afla fisk-
vinnslustöðvunum hráefnis til
vinnslu. Fjöldi hraðfrystihúsa
í norðanverðum Noregi hefur
unnið allt súmarið svo að segja
eingöngu grálúðu, og haft nóg
að gera.
Grálúðan *r unnin í flök og
virðast engin markaðsvandræði
við að selja afurðimar hrað-
frystar. Grálúðan var lengi
frameftir árum aðeins pækil-
söltuð í tunnur og seld þannig
á franskan markað og víðar, og
ennþá er þessi gamla verk-
unaraðferð notuð í stórum stíl.
Þegar litið er yfir skýrslur
norsku fiskimálastjómarinnar,
eins og þær eru birtir í tíma-
riti hennar Fiskets Gang, þá
kemur í ljós að meðalhlutur
við grálúðuveiðar árið 1964
hefur verið n. kr. 636,00 á viku,
ísl. kr. 3.816,00 á viVn. Þetta
sýnir að grálúðan er orðin
þvðingarmikill fiskur fyrir
norskan fiskiðnað og útgerð.
Hvað getum við
lært?
Það er ekkert líklegra held-
ur en að hér við land mundu
finnast auðug grálúðumið ef
eftir væri leitað. Kitt er víst, að
í Eyjafjarðarálnum svonefnda,
dýpinu út af Eyjafirði, þar var
mjög mikið magn af grálúðu
rétt fyrir síðustu heimsstyrjöld,
en þá lét hinn athafnasami út-
gerðarmaður, Öskar heitinn
Halldórsson, Ólafsfjarðarbáta
veiða fyrir sig grálúðu í stór-
um stíl. Grálúðuna Jét Óskar
síðan pækilsalta i síldartunnur
og seldi til Belgíu.
Grálúðari er djúpvatnsfiskur
og veiðist einvörðungu á miklu
dýpi. Norðmennimir veiðá Grí-
lúðuna einungis á línu og sú
aðférð var'einhíg við höfð þeg-
ar Ólafsfirðingar öfluðu þessa
fisks fyrir Óskar.
Hér hafa hraðfrystihús staði'ð
verklaus víða langtímum sam-
an yfir sumarmánuðina og þó
virðist ekki ótrúlegt að hér
mætti finna fiskistofna sem lít-
ið eða ekkert hafa verið nýtí-
ir, e’ins og t.d. grálúðuna og
það máske í næsta nágrenni
þessara húsa sumra hverra. En
þetta skeður ekki af sjálfu sér
Grálúðan er djúpfiskur og
gengur ekki sjálfkrafa á land.
Það þarf að leita að heimkynn-
um hennar og þegar þau hafa
Framhald á 7. síðu.
Cgnímeníal
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
sem settir eru í, meS okkar íull-
komiíu sjálívirku neglingarvél.
veita íyllsta öryggi í snjó og
hálku.
Nú er allra veðra von. — Bíðið
ekki eftir óhöppum, en setjið
C0NTINENTAL hjólbarðá, með
eða án nágla, undir bílinn nú
þegar.
Vinnustofa vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GUMMIVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.
Ymsar fréttir í stuttu máH
Harvn taldi koslina marga á