Þjóðviljinn - 24.01.1967, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 24.01.1967, Blaðsíða 6
§ SÍBA — ÞJÓÐVTLJINN — Þriðjudagur 24. janúar 1567. 13.15 Við vinuna. 14.40 Gerður Magnúsdóttir talar um gamla. siði og nýja á föstunni. 15-00 Miðdegisútvarp. Ortolani og hljómsveit hans og P. Alexander, Wahlgren og sveit Berts Kámpferts leika og syngja. 16.00 Síðdegisútvarp- Steíán íslandi syngur. Fíharmoníu- sveitin í Vfnarborg leikur tvö verk eftir Sibelius: Finlandia ' og Karelíu-svítuna; Sir Mal- colm Sargent stjórnar. Rub- instein og RCA-Victor hljóm- sveitin leikur Píanókonsert í g-moll op. 16 eftir Grieg, Wallenstein stjórnar. 17-05 Framburðarkennsla í dönsku og ensku. Tónleikar. 17.40 CTtvarpssaga barnanna: Hvíti steinninn- 18.00 Tónleikar. 19-30 óvinur á undanhaldi. Bjarni Bjamason læknir flyt- ur erindi um krabbamein. 19.50 Lög unga fólksins. Her- mann Gunnarsson kynnir. 20.30 títvarpssagan: Trúðarnir eftir Graham Greene- Magnús Kjartansson ritstjóri les eigin þýðingu (14). 21.30 Lestur Ps<ssíusálma (2). 22.00 Framferði mannsins og ábyrgð hans; III.: Vatns- birgðir jarðar. Vésteinn Óla- son flytur fyrirlestur eftir Sundberg dósent. 22-23 Leander syngur dægur- lög frá árum áður- 22.55 Á hljóðbergi, Ijóðaljóðin. Claire Bloom og Claude Rains flytja. 23.25 Dagskrárlok. o Brúðkaup ® Þann 30. des. voa-u gefin saman í hjónaband í kirkju ó- háða safnaðarins af séra Emil Bjömssyni ungfrú Berglind Andrésdóttir, Suðurgötu 24 og össur Kristinsson, Bárugötu 6, Dalvik. Heimili þeirra verður í Hamborg. (Stúdió Guðmundar, Garðastræti 8, sími 20900.). • Glettan • ,,Eitt tveggja krónu fri- merki, takk-“ Bréf til Johnsons forseta Bandaríkja NorBur-Ameríku „Hr. L. B. Johnson, forseti Bandarik.ja Norður-Ameríkn, Washington. Styrjöldin í Vietnam er í vax- an«H mæfi að verða styrjöld milli Bandarikjanna og viet- nömsku þjóðarinnar. Stöðugt breiðist styrjöldin út jafnframt því sem grimmd hennar eykst. Notkun morðtækja skapar íbúun- um ólýsaniegar þjáningar. I»essi langvinna styr,jöld er alvarleg ógnun við heimsfriðinn. Með sérstökum viðbjóði hefur fólk um allan heim fylgzt með síðnstu aðgerðum Bandarikja- manna. Eyðing alls iífs á 5-0 fer- kílómetra svæði með magnes- íumsprengjum, sem orsaka ioga í allt að 2500 metra hæð, er cin- hver ömurlegasta staðreynd um hvemig tækni nútímans er mis- beitt. Þegar haft er í huga, að þessari tækni er beitt gegn fá- Kviknaði í íbúðarhúsi Um kl. 15 á laugardaginn var slökkviliðið kallað að litlu íbúð- arhúsi, Hléskógum við Vatns- veituveg. Þar hafði kviknað í út frá eldavél og urðu nokkrar skemmdir á húsinu en íbúarnir voru ekki heima þegar þetta gerðist. Á sunnudagsmorgunin kvikn- aði einnig í kartöfluskúr í Smá- löndum og stóð hann í björtu báli þegar slökkviliðið kom á staðinn. Þá varð það slys á sunnudag- inn um kl. 3 e.h. að piltur á vél- hjóli rakst á fólksbifreið á móts við Sogaveg 176. Var pilturinn fluttur á Slysavarðstofuna en meiðsli hans voru ekki talin al- varlegs eðlis. Stefán Karlsson flytur hér tvo fyririestra Félag íslon7.kra fræða hef- ur fengið Stefán Karlsson mng. art., starfsmann Árnasaíns í Kaupmannahöfn til að halda tvo fyrirlestra á vegum félagsins. | Fyrri fyrirlesturinn, sem nefnist íslrnzk hókagerð fyrir Norð- menn á 13. og 14. öld, verður haldinn í fyrstu kennslustofu Há- skóla íslands miðvikudaginn 25. janúar og hefst kl. 20. Seinni íyririesturinn, sem neínist: Brot úr tveimur íslenzk- um þýðingum eftir „Jarteina- postillu" Kristjáns Péturssonar 1518. verður á sama stað íimmtu- daginn 26. janúar og hefst kl. 20.30. Öllum er heimilt að koma og hlýða á fyrirlestrana. Hveravellir Framhald af 10. síðu. Reykjavíkurleiðangurinn hafði mcðferðis póst, mjólk og ýmis- legt smávegis til hjónanna á Hveravöllum, Kristjáns Hjálm- arssonar og Huldu Margrétar Hermóðsdóttur. Þjóðviljinn átti stutt samtal við Kristján í gær. Hann kvað þeim hjónum líða mjög vel og hefði verið svo í allan vetur. Ekki kviði hann helrlur íramtíð- inni. Frost þar innfrá hefur kom- ist yfir 22 stig í vetur og jafn- fallinn snjór upp í 60 cm. Hóp- urinn frá Blönduósi komst inn- eftir um þrjúleytið í fyrrinótt og var á heimleið í gær. Gekk ferðin að óskum. tækri vanþróaAri þ.jói'i, sem i ára- tugi hefur harizt gegn erlendum yfirráftum, verftur allt tal Banda- rík jamanna um frift og frelsi o-g lýðræfti að innantómu hjómi. Og furftuleg ögrun má þaft teljast við samvizku heimsins, þegar Johnson, forseti Bandarikjanna lýsir sig sérlega hreykinn vegna þessara síðustu árása. Hernaftur Bandaríkjastjórnar í Vietnam er aft veröa ljótasti bletturinn á sögu Bandaríkjanna. í nafni þeirra hugsjóna, sem mynduðu hornstein við stofnun Bandaríkjanna skorum við á Bandaríkjastjórn aft hætta öllum hernaftaraðgerðum í Vietnam. Frá andstæðingum styrjaldar- stefnu Bandarikjanna í Vietnam.'1 Kína Frarnibald af 3. síðu. menningarbyltingarinnar ýms- um sökum: Þeir hafi af algeru handahófi dreift kom- og fóður- birgðum, neitað hafi verið af- hendingu á komi til ríkisins, greiðslum á afborgunum lána og á leigugjaldi fyrir vélarogafnot af vatn.slciðslum og greiðslu ra?- magnsgjaids. Fjárfestingarsióðum hafi verið skipt upp og jafnvel vaxtatekjum hafi verið skiptupp milli bænda. Sj-ang Kajsék sagði á fundi í Taivan í dag að stjómin í Peking riðaði til falls og nú vœri komið tækifærið til árásar á meginland Kína. — Við munum leysa okk- ar heilaga hlutverk af hendi, vinna aftur meginlandið og leysa landa okkar undan okinu, sagði Sjang. Vietnam Framhald af 3. síðu. að segja það hreinskilnislega að Jæss eru engin merki eins og stendur. Refsað fyrir ferðina? Talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins sagði í dag að Feinberg rabbíni, sem er barvla- riskur þegn þótt hann sé nú búseltur í Toronto í Kanada, hefði ekki haft neitt leyfi til þess að fara til Norður-Vietnams. Hann hefði sótt um vegabréís- áritun hjá ráðuneytinu, en ver- ið neitað um hana, enda væri hann ekki í neinum þeim hópi manna sem slíkt ferðaleyfi gætu fengið, væri hvorki blaðamaður, læknir, vísindamaður né full- (rúi Rauðakrossins. — Öðrum Bandaríkjamönnum sem farið haía í óleyfi til Norður-Vielnams heíur verið refsað með því að ]>cir hafa verið sviptir vega- bréfum sínum. Banaslysið Framheld af 1. síðu. öðrum stað, handtaska á þeim þriðja, skór hans höfðu þeytzt hvor í sína áttina. — Sjúkra- bíll og lögregla komu fljótlega á vettvang. Var Jón þegar flutt- ur á slysavarðstofuna og reynd- ist látinn; mun hann hafa dáið Jjegar er ekið var á hann. Jón Haukfell Jónsson átti heima á Háteigsvegi 17. Hann v-ar íæddur 7da ágúst 1894, ó- giftur og bomlaus. Hingað til Reykjavíkur fluttist hann frá Hornafirði. Hann hefur að und- anfömu unnið í Járnsteyp- unni h.f. i Ánanaustum. Ökumaðurinn á bifreiðinni er nýorðinn 17 ára; hann tók bfl- próf 9da janúar s.l. og hefur einu sinni eftir það verið tekinn fyrir of hraðan akstur. Með honum í bílnum voru þrir ungr lingar aðrir. A. Sheridan látin ANN SHERIDAN, hin kunna handaríska leikkona, lézt um síðustu hclgi, 51 árs að aldri. Banamein hcnnar var krahha- mein. Ann Sheridan lék í fjöl- mörgum kvikmyndum um dag- ana, en einna frægust var myndin „The man who came to dinner". — Á myndinni sést leikkonan x hlutverki sínu í bandarisku myndinni „Dodge City“ frá 1939. Atkvæiagreiðsla Framhald af 1. síðu. staddir kunna að vera í Rvík í febrúar. Alls munu yfir 5000 ríkisstarfs- menn hafa atkvæðisrétt varðandi uppsögn samninganna. Starfs- mannafélög bæjarstarfsmanna munu hvert um sig annast at- kvæðagreiðslu um uppsögn samninga þeirra við viðkomandi bæjarfélag. Iðja, félag verksmiðjufólks í Reykjavík. Allsherjaratkvœða- greiðsla Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða- greiðslu um kjör stjómar, varamanna í stjóm, endurskoðenda og varaendurskoðenda. Tillögum ber að skila á skrifstofu félagsins, Skipholti 19 eigi síðar en 26. jan. 1967 kl. 11 f.h. Hverri tillögu skulu fylgja meðmæli 100 fullgildra félagsmanna. Stjórn Iðju, félags verksmiðjufólks í Reykjavík. BÓKARI Fyrirtæki í næsta nágrenni Reykjavíkur óskar eftir að ráða mann til bókhaldsstafa. Laun sam- kvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. — Um- sóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfs- reynslu sendist blaðinu merkt 1979. Auglýsingasími Þjóðviljans 17 500 SamvinnuskóHnn Bifröst Stúlku vantar að Samvinnuskólanum. Upplýsing- ar í símstöðinni að Bifröst, Borgarfirði. Samvinnuskólinn Bifröst. j 4 ! Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík i 100 áta afmælisfagnaður { félagsins verður haldinn að Hótel Sögu fostudaginn 3. febrúar og hefst imeð borðhaldi kl. 19,30 stundvíslega. Aðgöngumiðar eru seldir í skrifstofu Landssambands iðnaðarmanna, Iðnaðarbankanum, skrifstofu Meistarafélags iðnaðarmanna, Skipholti 70, og Iðnskólanum, Skólavörðuhseð, á venjulegum skrifstofutíma. (Borð verða tekin frá í Hótel Sögu þ. 30. og 31. jan. kl. 17—19). 100 óra saga í móli og myndum. Sýning á 100 ára starfi Iðnaðarmannafélagsins i Reykjavík í máli og myndum verður opnuð almenningi í Iðnskólanum á Skólavörðuhæð — Inngangur frá Vitastíg — kl. 18,00 laugardaginn 28. janúar. — Sýningin verður síðan opin daglega kl. 15 — 22 til og með 5. febrúar. Félagsstjómin. I ! Kjötbúö Suöurvers tilkynnir: Tökum að okkur veizlur, kalt borð, smurt brauð, KJÖTBÚÐ SUÐURVERS, liorni Stigahlíðar og snittur, kokteilsnittur og brauðtertur. Hamrahlíðar. - Sími 35645. - Geymið auglýsinguna. J I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.