Þjóðviljinn - 24.01.1967, Síða 10

Þjóðviljinn - 24.01.1967, Síða 10
Neituiu uB tuku við kennslubókinni vegnu hrottulegrur burdugumyndur Eins og frá hefur verið skýrt hér í bl_ Jinu er Islandssaga Jónasar Jónssonar frá Hriflu, 1. hefti nýlega komin út hjá Ríkisútgáfu námsbóka í nýrri útgáfu og hefur Halldór Pét- ursson teiknari myndskreytt bókina. Þjoðviljinn hafði fregnir af því í gær að ýmsum kennur- um þættu bardagamyndimar í bókinni full hrottalegar og lítt við hæfi í kennslubók fyrir börn. Þannig hefði t.d. kenn- arafélag Austurbæjarskólans samþykkt á fundi sl. föstudag að neita að taka við bókinni til kennslu í skólanum af þess- um sökum. Blaðið sneri sér í gær tii ■ formanns • • -kennarafélagsins, Þórðar • Magnússonar, og leit- aði staðfestingar hans á þess- ari frétjfc.. Kyað. hanp það rétt Hin umdeilda bardagamynd Halldórs Péturssonar. vera áð kennarafélagið hefði samþykkt að taka ekki við bókinni af þessum sökum og væri það einkum ein mynd er því ylli, er hún af Gunnari á Hlíðarenda að kasta manni af atgeirnum út á Rangá. Þórður sagði að ákvörðun þessi hefði verið tilkynnt for- stöðumanni Ríkisútgáfu náms- bóka og ætlaði hann að láta skipta um mynd og prenta upp eina örk af bókinni, myndi það því dragast um einaviku eða svo að bókin yrði tekin til kennslu við skólann. Þjóðviljinn átti einnig tal við Jón Emil Guðjónsson for- stöðumann Ríkisútgáfu náms- bóka. Staðfesti hann það sem Þórður hafði sagt að ætlunin væri að skipta um mynd i bókinni og sagði að það væri tiltölulega auðvelt þar sem ekki væri búið að hefta nema lítinn hluta upplagsins af bókinni. Sagði hann að ný- byrjað væri að dreifa bókinni í skólana og hefðu honum ekki borizt umkvartanir frá öðr- um skólum en Austurbæjar- skólanum yfir myndunum í henni. Gullfoss á leið til Madeira í sélskini oj hita Ferð GuIIfoss til sólarlanda hefur gengið samkvæipt áætlun til þessa sagði Sigurlaugur Þor- kelsson, blaðafulltrúi Eimskipa- félags íslands, er Þjóðviljinn hafði samband við hann í gær, óg að sögn Friðjóns Ástráðsson- ar fararstjóra ríkir almenn ánægja meðal hinna Jjðlega. 100 farþega urn borð.: - . . ; . Skipið hreppfi- ágætt veður á fyrsta kafla' ferðarinnár,' en þeg- ar suður á Atlanzhafið kom gerði vestan brælu. Ekki tafði þetta þó för Gullfoss neitt; skip- ið kom á áætlunartíma til aðál- borgar Azoreyja Ponte Delgata, kl. 6 sl. sunnudagskvöld. Þar var þá gott veður, hiti 16 stig. Eftir sólarhrings viðdvöl á Azoreyj- um hélt Gullfoss áleiðis til Mad- ':ra og þangað á skipið að vera i mið í fyrramálið. Hveravallafarar sneru aftur vegna ófærðar Tveír lelðangrar lögðu af stað inn á Hveravelli um helgina, annar frá Reykjavík, en hinn frá Selfossi. Hvorugur hópurinn komst alla leið sökum ófærð- ar. Hinsvegar mun hópur frá Blönduósi hafa komizt þangað og aftur til byggða. Hópurinn frá Reykjavík komst inn að Hvitá, en snéri þar aft- ur eftir að augablað í fjöður ann- ars jeppans hafði brotnað. Sel- fyssingarnir komust inn að Hvít- árnssi. Þar brotnaði gírkassi í einum bílnum og varð að fá hann frá Réykjavík með þyrlu Andra Heiðberg, Leiðangurinn snéri við ~ð svo búnu. Framhald á 6. síðu. Arshátíð Sósíal- istafé!. Kópavogs Börnin á Þorrafagnaði í Tjarnargötu 20 ir Árshátíð Sósíalistafél. Kópa- vogs verður haldin i félags- heimilinu laugardaginn 28. þ. m. og hefst kl. 7 síðdegis. Snæddur verður þorramatur, ýmis skemmtiatriði verða s boðstólum og að lokum verð- ur stiginn dans. ic Tryggið ykkur miða í tíma. Gpplýsingar og miðapantanir í simum 40515 — 40172 — 41794. ★ Nánar verður skýrt frá árs- hátiðinni hér í blaðinu síðar. SUNNUDAGINN hélt Sósíal- istafélag Reykjavíkur Þorra- fagnað fyrir börn félagsmanna og þótti þessi nýbreytni tak- ast með ágætum. TIL SKEMMTUNAR var söngur hljóðfæraleikur og dans, sýnd var kvikmynd og Vilborg Dagbjartsdóltir sagði börnun um sögur. Að lokum kom Þorri sjálfur í heimsókn og vakti hann kátínu barnanna. ÞETTA MUN vera í fyrsta sinn sem efnt er til Þorrafagnaðar fyrir börn og virtust börnin engu síður skemmta sér þar vel en á hinum hcfðbundnu jólatrésskemmtunum. MYNDIRNAR tók Ijósmyndari Þjóðviljans Ari Kárason á Þorrafagnaðinum og sýni*- önnur þeirra börnin hlusta á sögur Vilborgar en á hinni eru þau í hringdansinum. Þriðjudagur 24. janúar 1967 — 32. árgangur — 19. tölublað. FHogHonvedleika í Budapest 5. f ebr. Fyrri leikur FH, Islandsmeist- aranna í handknattleik, og ung- versku meistaranna, Honved, fer fram í Budapest 5. febrúar n.k. Síðari leikur liðanna verður i Reykjavík 12. febrúar, en leikir þessir eru Iiður í 1. umf. Evr- ópukeppninnar. FH-ingar fara utan 2. febrúar og leika tvo leiki í ferðinni. Síð- ari leikurinn verður aukaleikur, sem fram fer 7. febr., en eklci vita FH-ingar enn gegn hvaða liði þeir leika þá. Ungversku meistararnir koma svo til R- víkur og leika síðari leikinn gegn FH 12. febrúar og auka- leik gegn Fram 14. febrúar. Að því er Birgir Björnsson, fyrirliði og þjálfari FH, sagði Þjóðviljanum í gær er enn ekki ákveðið, hvort Ragnar Jónsson fer til Ungverjalands, en allir aðrir fastir leikmenn liðsins verða með í ferðinni. Auk þeirra fara þeir Hallsteinn Hinriksson, Árni Ágústsson og Einar Mathie- sen. Vegna bolludagsins, sem er 6. febrúar á Ragnar ekki heiman- gegnt frá starfi sínu til að fara til Ungverjalands, en Ragnar er bakari að iðn og eins og kunnugt er þá er bolludagurinn stærsti dagur ársins hjá bökurum. Eru ráðamenn í handknattleiksdeild FH nú að reyna að fá lærðan bakara, sem er kokkur á síldar- bát, til að hlaupa í skarðið í stað Ragnars í Snorrabakaríi á bolludaginn. Ef það tekst fer Ragnar með FH til Ungverja- lands, annars ekki. Enginn vafi er á, að mikið veltur um gengi FH í leiknum gegn Honved hvort Ragnar keppir með liðinu eða ekki, því að af síðustu leikjum FH í Islandsmótinu er ljóst að Ragnar er að ná aftur þeirri leikni er hann sýndi þegar hann var upp á sitt bezta. 15 ára drengur á Siglufirði týndur Er Þjóðviljinn átti tal viðlög- regluna á Siglufirði um kl. 11,30 í gærkvöld var þar í þann veg- inn að hefjast leit að 15 ára pilti er hafði farið að heiman frá sér klukkan rúmlega eitt í gær og ætlaði upp í hlíðina fyrír ofan bæinn til þess að taka myndir. Þegar drengurinn var ekki kominn heim til sín í gærkvöld og ekkert spurðist til hans var farið aö safna liði til leitar að honum. Veður var gott í Siglufirði í gærkvöld, stjörnubjart og stillt. r—----------------........... Jl/lörg innbrot frumin í R. vík um helginu Aðfaranótt sunnudagsins var brotizt inn í Borgartún 25 en þar er til lnisa á fyrstu hæð Vélsmiðjan Þrymur, á annarri hæð Húsgagnavinnustofa Árna Jónssonar, á þriðju hæð Verk- fræðistofan Fjarhitun og á f jórðu hæð Byggingarfélagið Brú. Var brotizt inn hjá öllum þess- um fyrirtækjum og spellvirki framin m.a. brotnar hurðir á öllum hæðum. í vélsmiðjunni var stolið 700—800 krónum í sparimerkj- um, og í trésmiðjunni gamalli, tómri skjalatösku. í verkfræði- stofunni var engu stolið en sprengdur upp tómur peninga- kassi og hann eyðilagður. Engu var stolið frá Brú en reynt að sprengja upp peningakassa án árangurs. Um helgina var brotizt inn í Eyjabúð, Háaleitisbraut 108 og Véla- og raftækjaverzlunina, Laugavegi 92. Á báðum stöðum voru brotnar rúður en engu stol- ið. í fyrrinótt var brotizt inn í þrjár skartgripaverzlanir; hjá Magnúsi Baldvinssyni, Laugavegi 12, Helga Sigurðssyni, Skóla- vörðustíg 3 og Magnúsi Ás- mundssyni, Ingólfsstræti 3. Var stolið úrum, hringjum og kveikj- ara og er þýfið virt á um 23 þúsund krónur. Sami maðurinn framdi þessi þrjú innbrot. Hafði hann fengið bæjarleyfi frá Bláa bandinu og orðið allölvaður. Er hann kom á Bláa bandið aftur var hann blóðugur, hafði skorið sig á höndum, og var hringt á lögregluna sem flutti hann á Slysavarðstofuna og komst þá upp um þjófnaðinn. Vegleg afmælishátíð Hlífar i Hafnarfirði á laugardaginn Verkamannafclagið Hlíf i Hafnarfirði minntist 60 ára af- mælis síns með hófi í Alþýðu- húsinu sl. Iaugardag. Hermann Guðmundsson, form. Hlífar, setti fagnaðinn, en veizlu- stjóri var Gunnar Guðmundsson, varaformaður Hlífar. Ólafur Þ. Kristjánsson rakti sögu félagsins, en ■ að ræðu hans lokinni voru tveir Hlífarfélagar heiðraðir: Borghildur Níelsdóttir, en hún er annar tveggja stofnenda Hlíf- ar, sem enn eru á lífi, hinn er Bjarnasína M. Oddsdóttir. Þá var Ólafur Jónsson heiðraður með gullmerki félagsins, en Ól- pf"r sat í stjórn Hh’far í 14 er og þar af form. í tvö ár og hef- ur enginn annar en Hermann Guðmundsson verið svo lengi i stjórn félagsins. Næstur talaði Hannibal Valdi- marsson, forseti ASÍ, og ersagt frá ræðu hans annarsstaðar hér i blaðinu. Kristján Jónsson form. Sjómannafélags Hafnarfjarðar, talaði fyrir hönd sjómanna, iðn- verkafólks og verkakvenna f Hafnarfirði og afhenti Hlíf gjöf frá félögunum. Eðvarð Sigurðs- son flutti kveðjur frá Verkam.- félaginu Dagsbrún og færði fé- laginu styttu að gjöf og Kristinn Guðmundsson, bæjarstjóri, flutti kveðjur og árnaðaróskir og af- henti félaginu málverk að gjöf frá Hafnarfjarðarbæ. Félaginn bárust blóm og fjölmörg skeyti, sem voru lesin upp á hátíðinni. Að lokum var dansað og fór af- mælisfagnaðurinn bið bezta fram.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.