Þjóðviljinn - 19.02.1967, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.02.1967, Blaðsíða 1
Sunnudagur 19. fehjúar 1967 — 32. árgangur — 42. tölublað. Nýjung í skipasmíði hér ó landi Verður rafknúið síldar- skip smíðað á Akureyri? ----- ' Slippstöðin á Akureyri mun á næstunni hefja smíði * Fyrir svipað fé og kostað hefur að reisa mörg af hinum stóru og íb urðarmiklu einbýlishúsum hefði mátt koma upp 3—4 góðum og hóflegum íbúðum. — Myndin sýnir eitt af flatarstóru einbýlishús unum i Arnarnesinu í Garðahreppi. Borgarstjórn: íhaldið er andvígt allrí tak- mörkun á smíði óhófsíbúða! Vísaði frá tillögu Alþýðubandalagsins um að hagkvæm nýting fjár- magns og vinnuafls skuli jafnan ráða mestu um íbúðahúsabyggingar ■ í umræðum þeim, sem urðu á borgarstjórnar- fundinum sl. fimmtudag: um tillögu Guðmundar Vigfússonar, borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins, varðandi hámarksstærð íbúðabygginga o.fl. lagði flutnmgsmaður sérstaka áherzlu á þá þjóðhags- legu nauðsyn að sem flestar hóflegar og hagkvæm- ar íbúðir fáist fyrir það fjármagn og vinnuafl sem til íbúðabygginga fer hverju sinni. 550 tonna síldveiðiskips fyrir Sæmund Þórðarson skip- stjóra, sem er landskunnur aflamaður og hefur stjórnað Þórði Jónassyni EA allt frá því að hann kom til landsins. ■ Áætlað er að Sæmundur og Þorsteinn Jónsson tækni- fræðingur fari á næstunni til Þýzkalands í boði fyrirtæk- is, sem framleiðir búnað í rafknúin skip, en Þjóðverjar hafa undanfarin ár fengið nokkra reynslu af útgerð rafknúinna skuttogara. Um þetta nýmæli í skipasmíðum hér segir svo í Akureyrarblaðinu Verkamanninum, sem kom út í fyrra- dag: Tillaga Guðmundar var birt í heild hér x blaðinu í gær, en í henni var m.a. gert ráð fyrir því að borgarstjórnin beindi þeim tilmælum til skipulagsnefndar og 6kipulagsdeildar borgarinnar að hafa það sjónarmið .iafnan í huga við skipulagningu nýrra íbúða- hverfa og ókvörðun skilmálaum hámarksstærð bygginga, einkum á einbýlishúsalóðum, að sem hagkvæmust nýting fáist á þvi fjármagni og vinnuafli þjóðar- innar sem varið er til íbúðabygg- inga í landinu. Yrði um þetta leitað samstarfs við nágranna- sveitarfélögin í því skyni að skapa mest samræmi í- þessu efni á Reykjanessvæðinu. Öhagstætt hlutfall f framsöguræðu sinni benti Guðmundur Vigfússon m.a. á að því væru eðlilega takmörk sett hversu miklu fjármagni og vinnu- afli þjóðin gæti ráðstafað til byggingar íbúðarhúsnæðis á hverjum tíma. Vegna mikillar húsnæðisþarfar og húsnæðis- skoxds hér væri nauðsynlegt að þetta fjármagn og vinnuafl nýtt- ist sem bezt og að það skilaði sem flestum íbúðum við hæfi og þarfir almennings. Rannsóknir og skýrslur sýna, sagði Guðmundur, að stærri hluti þjóðartekna fslenðinga fer til í- búðabygginga en h já mörgum eða flestum nágrannaþjóðum okkar, en hinsvegar fáum við hlutfalls- lega færri íbúðir út úr því en aðrar þjóðir, og það svo að veru- legu munar. Þessu veldur í fyrsta lagi hæiri byggingarkostnaður hér en annarsstaðar ogjafnframt skortur á skipulagðri bygginga- starfsemi og í annan stað stærri íbúðir og meiri íburður en víð- ast annansstaðar. f Dæmi um hófleysið Guðmundur sagði að opinberir aðilar mættu sízt af öllu ýta undir byggingu óhóflegra íbúða og íburðarmikilla, þvert á móti þyrttu þeir að vinna að skynsam- legri hófsemi og leitast við að Framhald á 11. síðu. „Farið var að athuga þessa möguleika þegar í ljós kom, hve. mikið vélarafl þurfti til þess að knýja hin ýmsu hjálpartæki, því Sæmundur hefur hug á að búa skip sitt vel út. Tvær þverskrúfur verða, önn- ur 150 hö. en hin 100 hö. Frysti- kerfi sem getur annað fiystingu á 10—15 tonnum af síld á sólar- hring þarf 120 hö. og rafknúin spil 200 hö. Þannig að þessi raf- magnstæki binda um 600 hö., þegar önnur rafmagnsnotkun bætist við. Þetta er mikið og drýt afl, sem bindast þarf í hjálpartækjum og því vaknaði sú sp^rning, hvort ekki væri rétt að sameina þetta aðalvélarafli skipsins. ★ Ef þessi leið verður valin, verða tvær aðalvélar hvor 600 hö., sem með hjálparrafölum framleiða riðstraum. Sá hluti rafstraumsins, sem notaður verð- ur til að knýja skipið áfram, fer í gegnum afriðla og síðan inn á tvo jafnstbaumshreyfla til sam- ans 1000 hö., sem knýja skrúfu- öxulinn, en riðstraumsrafmagn verður notað í skipinu að öðru leyti. Auk þessara tveggja aðal- véla, verður ein lítil 30 ha. vél til rafmagneframlejðslu þegar lítið álag er, t.d. þegar legið er í höfn“. Þess er getið í fréttinni að gert sé ráð fyrir að þessi bún- aður sé nokkru dýrari en hinn vanalegi. en menn séu vongóð- ir um að hann verði ódýrari í rekstri og spari bæði vélarslit og olíu. Gótifognaður Kvenfélags sósíalista Kvenfélag sósíalista efnir til góufagnaðar aö Tjarnargötu 20 laugardaginn 25. þ-m. Islenzkur matur á borðum pg kaffi. Fjöl- breytt skemmtiatriði. Þátttaka ti'lkynnist í símum 17808, 33586 og 40799- Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Nefndin. Kópavogur Félag óháðra kjósenda hefur rabbfund | Þinghól, mánudag- inn 20. febrúar, kl. 8-30. — Kaffi- veitingar. — Stjórnin. Nómskeið ÆFR í fundar- störfum og rœðumennsku Námskeiði ÆFR í fundarstörfum og ræðu- mennsku verður fram haldið n.k. þriðjudags- kvöld í Tjamargötu 20 og hefst það klukkan 21. Er þetta annar hluti námskeiðsins sem nú stendur yfir. Að þessu sinni leiðbeinir Arnar Jónsson leikari um framsögn. Mætið vel og stundvís- lega. Stjórn ÆFR. Ráðstefna haldin um Vietnammálið og stofnuð íslenzk Vietnamnefnd Ekki liður sá dagur nú orð- ið, að blöð og útvarp minni okkur ekki á styrjöldina í Ví- etnam. Hernaðarátökin verða stöðugt víðtækari og grimmi- legri, stríðið verður æ fórn- frekara á mannafla og verð- mæti. Jafnframt eykst sú hætta, að stríðið breiðist út. breytist í víðfeðmari og ægi- legri átök heldur en við get- um gert okkur grein fyrir. Æ fleiri einstaklingar’ og samtök um allan heim lýsa nú yfir andstöðu sinni á styrj- öldinni’ í Víetnam og fylkja sér um þá kröfu, að þessum háskalega hildarleik ljúki. Nægir í því sambandi að benda á víðtækar mótmæla- aðgerðir víða um heim. Á Norðurlöndum hefur baráttan gegn V'xetnamstríðinu m.a. verið skipulögð af stórum Víetnamnefndum. íslendingar hafa fram til þessa verið fremur sinmilitl- ir um VíetnammáHð. Það er álit undirritaðra að þetta stafi fremur af samtakaleysi, en að íslendinga skorti áhuga eða skilning á málinu. Öll- um hugsandi körlum og kon- um hlýtur að vera ljós sú á- byrgð, sem þetta mál legg- ur okkur á herðar. Styrjaldir, jafnvel staðbundnar, varða hvert einasta mannsbarn á hnettinum. Undanfarnar vikur hala farið fram viðræður milli nokkurra íslenzkra félaga- samtaka um nauðsyn þess, að við íslendin.Tar höfumst cuthvað að í þessu máli. Hel- ur nú náðst samkomulag um hinar fyrstu samræmdu að- gerðir. í fyrsta lagi að halda ráðstefnu um Víetnammálið, í öðru lagi að stofna íslenzka Víetnamnefnd. Að samkomu- laginu standa eftirtalin átta fclög: Félag frjálslyndra stúd- enta, Félag róttækra stúdenta Menningar- og friðarsamtök íslenzkra kvenna, Rithöfunda- félng íslands, Samband ungra , Framsóknarmanna, Samband- ungra jafnaðarmanna, Stúd entafélag jafnaðarmanna og Æskulýðsfylkingin , — sam- band ungra sóisíalista. Ráðstefnan um Víetnam- málið verður haldin dagans 25. og 2'6. febrúar n.k. í sam- komuhúsinu Tjarnarbúð í Reykjavík. Dagskrá hennar verður í meginatriðum á þá leið, að viðfangsefninu verð- ur skipt í tvo meginþætti: saga Víetnammálsins verður rædd fyrri daginn, en seinni daginn verður rætt um bar- áttnna gegn Víetnamstríðinu. Ráðstefnan verður sett af Thor Vilhjálmssyni rithöf- undi, en meðal framsögu- manna um fyrri dagskrárlið- inn verða Magnús Torfi Ól- afsson fyrrv. blaðamaður og Árni Gunnarsson fréttamað- ur. Framsögumenn seinni dag ráðstefnunnar verða m. a. Andri ísaksson sálfræðingur Ólafur Einarsson stud. mag.. Stefán Jónsson fréttamaður og Sigurður A. Magnússon blaðamaður. Félögin mtinu, hvert i sínu lagi og sameig- inlega, gera allt sem í þeirra valdi stendur til að ráðstefn- an verði vel skipulögð og fjölsótt. Ýmsum forystumönn- um í félagsmálum og þekkt- um einstaklingum verður boð- ið sérstaklega, en að öðru leyti verður ráðstefnan opin almenningi meðan húsrúm leyfir. Dagskrá, fundartími og annað, er varðar framkvæmd og skipulag ráðstefnunnar. verður auglýst nánar í dág- blöðunum næstu daga. Eins og fyrr segir er svo fyrirhugað að stofnsetja ís- lenzka Víetnamnefnd. Verð- ur hún opin bæði einstakling- um og félögum. Verkefni hennar verður fyrst og fremst að skipuleggja og hafa frum- kvæði í baráttunni gegn Víetnamstríðinu hér á landi. í ávarpi til væntanlegra stofnenda segja st.ofnfélöffin m.a.: „Aðalréttlætiskrafa víet- nömskú þjóðarinnar og þeirra. er vilja tryggja frið og frelsi landsins, er . . . að Víetnam- ar fái að ráða málum sír.um einir og án erlendra efs dpta. Til þess að svo geti orðið. verður allt ^erlent herlið að hverfa á brott frá Víetnam. Fyrsta skrefið að þvi marki er að ófriði linni í Víetnam. Þar af leiðandi lýsum við yf- ir stuðningi við tillögur Ú Þants, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna “ Nánar verður skýrt frá stofnun og skipulagi íslenzku Víetnamnefndarinnar síðar. Undirrituð félög skora á alla íslendinga að taka undir kröfu þeirra og styðja bar- áttuna fyrir skjótri og varan- legri lausn Víetnammálsins Félag frjálslyndra stúdenta Félag róttækra stúdenta Menningar- og friðarsam- tök íslenzkra kvenna Rithöfundafélag tslands Samband urigra Framsókn- armanna Samband ungra jafnaðar- manna Stúdentafélag jafnaðar manna Æskulýðsfylkingin sam- band ungra sósíalista.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.