Þjóðviljinn - 04.03.1967, Síða 1
Laugardagur 4. marz 1967 — 32. árqanqur -t- 53. tölublað.
Freyja frá Súðavík talin af
★ Freyja frá Súðavík er nú talin af og er leit að henni aft mestu
hætt. Varðskipið Albert kom að norðan og tók þátt í leitinni í
fyrrinótt og í gærmorgun og varð ekki vart við neitt.
★ Seytján bátar leituðu í fyrradag og tvær flugvélar fram eftir
degi og reyndist þetta umfangsmikil og nákvæm leit að bátnum.
★ Þá munu Súðvíkingar hafa leitað eitthvað á landi í gærdag
og bar sú Ieit ekki árangur.
I^-
Félagsmál i Reykjavlk undir forystu ihaldsins:
Hvarvetna blasir við sleifarlag-
ið, tómlætið og skipulagsleysið
Sigurjón Björnsson, borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins, gerði harða hríð
að borgarstjórnarmeirihlutanum á fundi borgarstjórnar í fyrrakvöld
■ Það er engv Iíkara én borgarstjórn armeirihlutinn ffleymj því að það býr
fólk í þessari I cr^, — það er eins og honum sé fyrirmunað að skilja, að
það þurfi að huga að fleiru en dauðum hlutum, samanber það að þegar
rausnast er til að byggja nýtt barnaheimili er ógjörningur að muna eftir því
að það er byggt fyrir böm, en ekkj til að speglast í sjálfu sér.
Með þessum orðum lauk Sig-f"
urjón Bjömsson, borgarfulltrúi
Alþýöubandalagsins, ræðu sinni
á borgarstjórnarfundinum í
fyrrakvöld, er hann gagnrýndi
harölega sleifarlag, tómlæti og
skipulagsleysi íhaldsins og borg-
aryfirvalda í bamavemdarmál-
um og félagsmálum almennt. Var
drepið á þessa raeðu í blaðinu
í gær og þó einkum getið um-
ræðna sem út af henni spunn-
ust um íyrirkomulag á rekstri
barnaheimilisins Hlíðarenda,
rekstursfyrirkomulag sem Sigur-
jón taldi löngu úrelt og afar var-
hugavert. Það skal tekið fram,
að hér er átt við vistheimilið að
Hlíðarenda, en ekki barnaheim-
ili (dagheimili) Sumargjafar.
Barnaverndarmálin
Sigurjón Björnsson beindi
þeirri fyrirspurn til borgarstjóra,
hvemig miðaði samræmingu til-
lagna ( samstarfsnefndar um
barnavérndarmál frá 1. marz
1966 og fékk þau svör að álits-
gerðar í málinu væri að vænta
„fyrir vorið“.
Sigurjón kvaðst þá vilja nota
tilefni þessa ársafmælis til að
rifja upp afskipti eða öllu held-
ur afskiptaleysi borgarstjórnar-
meirihlutans af barnaverndar-
málunum og reyndar félagsmál-
um í heild á liðnum árum. Sagði
hann að meðferð málsins sem
um var spurt væri glöggt dæmi.
Það hefði kostað a.m.k. eins árs
baming í borgarstjórn að fá
skipaða nefnd til að vinna að
samræmingu barnaverndarmál-
anna. Nefndin hefði síðan setið
tvö ár að störfum, en hún hefði
vissulega getað skilað áliti miklu
fyrr ef íhaldið hefði ekki bein-
línis tafið það af ásettu ráði
með því að kveðja ekki nefnd-
armenn saman til fundar nen»
endrum og eins. — Það var
raunar aldrei ætlun íhaldsins,
sagði Sigurjón, að skila öðru
vísi áliti en því sem gerði róð
fyrir óbreyttu ástandi, eins '
tillögur meirihluta nefndarinxv..
502 ára gamalt úr ú sýningu
tírið á myndinni er smiðað árið 1465 og e«r því orðið 502 á.ra gam-
alt og utanum það er haglega gerður kassi sem einnig sést á mynd-
inni. tír þetta er ásamt fleiri gömlum úrum á sýningu sem Jóhann-
es Norðfjörð h.f. úra- og skartgripaverzlunin hefur opnað í tilefni'
af 65 ára afmæli sínu. — Sjá frétt á 10. síðu. — (Ljósm. A. K.).
„Pressuballið" 17. marz nk.
Edward Heath heiðursgestar
Hið árlega Pressuball Blaða-
mannafélags íslands verður
haldið föstudaginn 17. marz n.
k. í Súlnasal Hótel Sögu. Heið-
ursgestur á ballinu að þessu
sinni verður Edward Heath,
leiðtogi stjórnarandstöðunnar í
Bretlandi og einnig mun forseti
íslands heiðra samkomuna með
nærveru sinni.
Aðalræðu kvöldsins flytur
hciðursgesturinn, Edward Heath.
Þá munu Fjórtán Fóstbræður
syngja og Ómar Ragnarsson
flytur skemmtiþátt er saminn er
fyrir þetta tækifæri og mun
hann flytja hluta hans á enskri
tungu.
Súlnasalurinn verður sérstak-
lega skreyttur og vel til matar-
ins vandað en hann verður fjór-
réttaður. Loks verður stiginn
dans til kl. 2 e.m.
Tekið verður á móti miða-
pöntunum kl. 2—5 í dag og á
morgun hjá Tómasi Karlssyni.
sími 24584 og Atla Steinarssyni,
sími 32790.
bera með sér. Hitt kom þeim
afar illa, að tveir nefndarmanna
skyldu ekki vilja beygja sig. Og
nú er liðið eitt ár í viðbót, alls
4 ár. Hvað skyldu þau verða
mörg í viðbót? Og hvað skyldi
íhaldið hafa skapað mörg mein-
leg örlög ungra þegna á þess-
um 4 árum? sagði ræðumaður.
Skólamálin
Sigurjón Björnsson sagði að
dæmið um bamaverndarmálin
væri aðeins eitt af mörgum,
hvarvetna blöstu við sömu stað-
Framhald á 6. síðu.
Þjéðviljinn
er 16 síður
á morgun
■ Á morgun er sunnudagur
og þá verður Þjóðviljinn
16 síður eins og undan-
farna sunnudaga. Efni
blaðsins verður fjölbreytt
og vandað. Til dæmis að
taka:
■ Austri skrifar hvíldardags-
greinina „Að kaupa prent-
frelsið“. Birt er grein um
stríðshörmungarnar í Vi-
etnam eftir bandaríska
konu, Mörthu Gellhorn.
■ Frásögn og myndir frá
framkvæmdum við lands-
höfn í Njarðvík.
■ Sunnudagssagan er Speg-
illinn eftir Alphonse Daud-
et. Hlöðver Sigurðsson
skólastjóri á Siglufirði
skrifar Svíþjóðarbréf.
■ Birtur er fyrri hluti grein-
ar úr bandaríska tímarit-
inu Ramparts þar sem
flett er ofan af samskipt-
um CIA, bandarísku leyni-
þjónustunnar, og stúdenta-
samtakanna í Bandaríkj—
unum.
■ Þá eru greinar um tvær
sænskar kvikmyndir, sem
verið er að sýna eða sýnd-
ar verða á næstunni hér
í Reykjavík. Einnig skák-
þáttur, föndurhom.
B Nýr þáttur hefst í blað-
inu, „vettvangur menning-
arlegrar baráttu", sem png-
ir listamenn ritstýra.
Sjákrarúsmskorturism hefur
stundum leitt til duuðsfullu
Haukur Kristjánsson neitaði að ræða í fréttaauka
Utvarpsins um Slysavarðstofuna af ótta
B Þjóðviljinn fékk það staðfest í gær, að Haukur Kristj-
ánsson, yfirlæknir Slysavanpstofunnar í Reykjavík, hefði
neitað að koma fram í fréttaauka hjá Ríkisútvarpinu. Vildi
læknirinn með þessu mótmæla ákvörðun meirihluta út-
varpsráðs, um að stöðva flutning á þættinum þjóðlíf í út-
varpinu í fyrrakvöld.
Fréttastofa ríkisútvarpsins fór
þéss á leit í janúar að spjalla
við Hauk Kristjánsson um
Slysavarðstofuna og ætlaði
fréttastofan að herma loforðið
upp á lækninn í fyrradag og
hafði Arna Gunnarssyni, frétta-
manni verið falið að tala við
lækninn, — en þegar til kast-
anna kom, þá neitaði Haukur að
ræða um málefni Slysavarðstof-
unnar á þeim forsendum, að
hann kærði sig ekki um neinn
mótmæli við að hindra flutning
þáttarins Þjóðlíf seinná um
kvöldið.
Stöðvun þáttarins hefur vak-
ið mikla athygli og er það haft
eftir Guðmundi Jónssyni, fram-
kvæmdastjóra hljóðvarpsins,
sem sér um svonefnd hlustenda-
bréf, að þessi þáttur sé mjög
rómaður að ágætum í bréfum
frá hlustendum síðustu daga.
Stúdentafélag Háskólans hefur
nú ákveðið að efna til umræðu-
fundar um neyðarástand í
sjúkrahúsmálum, og annan að-
búnað lsekna og þar á meðal um
Slysavarðstofuna í Reykjavík og
hefur farið þess á leit við lækn-
ana Árna Björnsson og Ásmund
Brekkan, að þeir verði frum-
mælendur á þessum fundi og
hafa þeir samþykkt það fyrir
siti leyti.
Mikið neyðarástand ríkir nú
í sjúkrahúsmálum borgarinnar
og hefur þessi sjúkrarúmaskort-
ur stundum haft í för með sér
dauðsföll þeirra manna er kom-
ust eigi nógu fljótt undir við-
eigandi meðhöndlun af þessum
sökum.
Þeir valdamenn er bera á-
byrgð á þessum málum hafa
hingað til skotig _ sér á bak við
læknana, — hinsvegar er neyð-
arástandið orðið það alvarlegt,
að það stríðir orðið á samvizku
lækna að þegja um þetta sleif-
arlag öllu lengur.
Þjóðviljinn náði sambandi í
gær við Hauk Kristjánsson,
lækni og innti hann nánar eftir
neitun hans að koma fram
í fréttaauka hjá útvarpinu.
Jú. — þetta er rétt, sagði
Haukur. Ég kærði mig ekki um
hugsanlegan sensor á málflutn-
ingi mínum og einnig ber að
líta á þetta sem mótmaeli við að
þátturinn Þjóðlif fékkst ekki
fluttur hjá útvarpinu.
Ég hef haft tal af þeim lækn-
Framhald á 6. siðu-
sensor
sensor á málflutningi sínum og
einnig bæri að líta á þetta sem
Framhald á. (L síðu.
Aðalfundur Kven-
félags sósíalista
Aðalfundur Kvenfélags sósí-
alista verður haldinn þriðjudag-
inn *7. þ.m. í Tjamargötu 20 kL
8,30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Margrét Ottósdóttir segir frá
nýafstaðinni Þýzkalandsför.
Kaffi.
Landsnefndar-
fundurinn verð-
ur settur í dag
KI. 3 síðdegis í dag, laugar-
dag, verður landsnefndarfundur
Samtaka hemámsandstæðinga
settur í Lindarbæ. Ragnar Arn-
alds alþm. setur fundinn, Loft-
ur Guttormsson sagnfræðingur
skýrir frá starfi miðnefndar og
framkvæmdanefndar, Heimir
Pálsson stud. mag. raeðir um
verkefni samtakanna næstu
mánuði og þeir Bjöm Teitsson
stud. mag. og Svavar Gestsson
stud. jur. hafa framsögur um
stefnumál samtakanna. — Fund-
inum lýkur á morgun.
Aihr bærism vur vatnsluus hútt í sólurhrmg
Vandræðaástand í Kópavogi í gær
B3 Allur Kópavogur og mik-
ill hluti Búsíaðahverfis voru
algerlega vatnslaus í al)an
gærdag og ríkti mikið ófremd-
arástand á flestum heimil.
um á þessu svæði af þessum
sökum. Húsmæðurnar gátu
ekki eldað matinn, þvegið
upp eða gert neitt það er
vatn þurfti að nota til, fólk
gat ekki þve'gið sér um hend-
urnar éða burstað í sér tenn-
urnar og þeir karlmenn sem
ekki nota rafmagnsrakvélar
urðu að fara órakaðir í vinn-
una svo að nokkur dæmi séu
nefnd.
Orsökin fyrir þessiu ófremd-
arástandi er sú að í fyrra-
kvöld eða snemma í fyrri-
nótt sprakk aðalæðin í Foss-
vogi sem flytur vatn til Kópa-
vogs og frá henni fær einnig
austurhhíti Bústaðahverfis
vatn. Hafin var leit að bilun-
inni í fyrrinótt en hún fannst
ekki fyrr en í gærmorgun.
Pípan sem sprakk er 17
tommu víð og er hún orðin
33 ára gömul, var lögð árið
1934. Er ætlunin að skipta
alveg um leiðslu síðar á árinu
en í gaer var unnið að því að
gera við bilunina til bráða-
birgða og skipta um pípur
á nokkrum hluta lagnarinnar.
Vann allur viðgerðarflokkur
vatnsveitunnar að því að gera
við bilunina í gær en þrátt
fyrir það var ekki búizt við
því síðdegis i gær er Þjóð-
viljinn átti tal vig skrifstofu-
stjóra vatnsveitunnar að við-
gerðinni yrði lokið fyrr en
með kvöldinu.