Þjóðviljinn - 04.03.1967, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 04.03.1967, Blaðsíða 3
Laugardagur 4. marz 1957 — ÞJÓÐVILJINN — SÍDA J Um 300 manns voru drepin og særð í loftárás „fyrir mistök" í S-Vietnam Tvær þotur vörpuðu sprengjum á þorp í norðurhluta Suður-Vietnams en þangað hafði fjöldi manns flúið undan ógnum styrjaldarinnar SAIGON 3/3 — Um 150 íbúar og aðkomumenn í þorpi einu í norðurihluta Suður-Vietnams létu lífið en um 175 aðrir særðust þegar tvær þotur vörpuðu sprengjum á það í gærkvöld. Bandaríska herstjómin í Saigon segir að ekki sé vitað hvaðan þessar þotur komu, en fullyrðir þó að árásin hafi verið gerð „fyrir mistök“. Aðvörun frá Peking gegn „stjórnieysi" „Alþýðudagblaðið“ segir slíkt „stjórnleysi“ geta stefnt öllu þjóðfélagskerfinu í hættu PEKING 3/3 —• Aðalmálgagn kínverska kommúnistaflokks- ins, „Alþýðudagblaðið“ í Peking, sagði í dag að menning- arbyltingin hefði haft í för með sér aukið stjórnleysi í landinu og kvað mikla hættu fólgna í þeirri þróun mála. Þorp þetta, Lang Vei, er ná- lægt landamærum Suður-Viet- nams og Laos og skammt frá friðlýsta svæðinu við 38. breidd- Sýrlendingar veita nú olía BEIRUT 2/3 — Sýrlenzka stjórn- in og olíufélagið Iraq Petroleum Company komust í dag að sam- komulagi sem felur í sér að fé- lagið fellst á að hækka greiðslur sínar til Sýrlendinga um 5(> pró- sent fyrir að fá að veita olíu eftir leiðslum um Sýrland frá norðurhluta íraks. Hefur nú aft- ur verið opnað fyrir leiðslurnar og fallið frá eignarnámi á leiðsl- unum og öðrum eignum olíufé- lagsins. Deilan hefur staðið frá því í nóvember og úrslit henn- ar eru talin mikill sigur fyrir vinstristjómina í Sýrlandi. PARÍS 3/3 — Á sunnudag fara f.am kosningar til franska þjóð- þingsins, og verður þá kosið um 470 þingsæti í hinu eiginlega Frakklandi, en 16 í hlutum franska ríkisins i öðrum heims- álfum. Bernard Fall lét lífið í Vietnam Bernard Fall í Vietnam arbaug. Margir þeirra 2.000 manna sem í þorpinu voru þeg- ar árásin var gerð voru menn sem flúið höfðu undan ógnum stríðsins í nágéannahéruðunum, en Bandaríkjamenn hafa stund- að látlausar loftárásir á friðlýsta svæðið og héruðin í grenndinni mánuðum saman. Þoturnar tvær flugu lágt yfir þorpið í gærícvöld, en komu síð- an aftur og skutu úr vélbyssum á það og vörpuðu niður sprengj- um samfleytt í 25 mínútur. Þorpsbúar leituðu hælis í neð- anjarðarbyrgjum undir húsum sínum, en margir þeirra köfn- uðu þar þegar húsin brunnu. í allan dag var verið að grafa hina dauðu í fjöldagröfum. Bandarískur höfuðsmaður að nafni John Duffy fylgdist með árásinni á þorpið úr virki þar í grenndinni. — Það var erfitt að komast inn í þorpið vegna ofsahita, sagði hann í dag. Hvar. vetna lágu lík manna. Margir héldu enn kyrru fyrir í neðan- Baráttan stendur fyrst og fremst um það hvort gaullistum tekst að halda meirihluta sín- um á þinginu. Niðurstöður skoð- anakannana benda til þess að þeir muni fá meirihluta, þótt þeir tapi atkvæðum. Samkvæmt þeim könnunum ættu kommún- istar að auka verulega fylgi sitt en ekki þingmannatölu að sama skapi og Lýðræðisbandalag vinstri manna fá heldur færri atkvæði en kommúnistar en miklu fleiri þingmenn. Endanleg úrslit munu ekki fást í kosningunum á sunnudag. Þá verða aðeins ráðin úrslit í þeim kjördæmum þar sem einhver frambjóðandi fær hreinan meiri- hluta atkvæða. Viku síðar verður kosið öðru sinni og þá ræður einfaldur meirihluti úrslitum. Ú Þaiit ræddi við Norður-Vietnama RANGÚN 3/3 — Ú Þant fram- kvæmdastjóri SÞ hefur rætt við fulltrúa stjómar Nbrður-Viet- nams í Rangún þar sem hann er nú staddur í orlofi, að sögn Reuters sem hefur fréttina eftir vietnömskum stjórnarerindreka. jarðarbyrgjunum af því að þeir óttuðust nýja árás. 50 dollara á lík. Bandarískur herflokkur kom til þorpsins í dag og yfirmaður herflokksins, William Morley majór, sagði að þorpsbúar myndu fá greidda 50 dollara fyrir hvern þann sem beðið hefði bana. Þeir sem særzt hefðu myndu fá 10—40 dollara eftir atvikum. Majórinn bætti því við „Kiss-In“ fundur í háskóla í USi EAST LANSING, Miehigan 3/3 — Bandarískir háskólastúdent- ar hafa á síðari árum beitt ýms- um nýstárlegum aðferðum til að láta í ljós andúð sína á því sem þeir telja miður fara. Frægir urðu hinir svonefndu „teach-in“- fundir þeirra um Vietnammálið, en þeir hófust við háskólann í Michigan. Stúdentar þar vöktu aftur athygli á sér í gær með nýrri baráttuaðferð. Tveir ung- ir stúdentar — piltur og stúlka að sjálfsögðu — höfðu boðið hvört öðru góða nótt með kossi. Þau fengu hátíðlega aðvörun frá háskólaráði um að láta slíkt ekki koma fyrir aftur. 300 piltar og 300 stúlkur við háskólann mót- mæltu þessum viðbrögðum há- skólaráðsins í gær með því að kyssast látlaust klukkustundum saman í einum samkomusal há- skólans. Háskólaráð lét þennan „kiss-in“-fund afskiptalausan. Harðorð ræða Podgornis um USA og Kina MOSKVU 3/3 — Nikolaj Pod- gorní, forseti Sovétríkjanna, var harð*rður í garð Bandaríkjanna og forystumanna Kína i ræðu sem hann hélt í Kreml í dag- Hann sagði að ekkert mark væri takandi á yfirlýsingum Banda- ríkjastjórnar um að hún vildi samningaviðræður, það hefði komið á daginn hvað eftir ann- að. Bandarísk heimsvaldastefna væri erfiðasti þrándur í götu fyrii* eðlilegri sambúð þjóða heims. Podgorní sagði að menningar- byltingunni í Kina væri beint gegn kbmmúnistaflokknum, rétt- arkerfi sósíalismans og sjálfum grundvelli sósíalistísks samfélags. Sundrungarpostularnir í Peking torvelduðu mjög myndun ‘ iam- fylkingar gegn hinni bandarísku heimsvaldastefnu- að þessur greiðslu fælu ekki í sér neina sektarviðurkenningu. „Fyrir mistök“ Eins og áður segir hefur bandaríska herstjórin ekki enn viljað viðurkenna að flugvélar hennar hafi verið að verki í Lang Vei, en brezka útvarpið sagði í dag að annaðhvort hefðu þarna verið á ferðinni flugvélar Bandaríkjamanna eða Saigon- stjórnarinnar. Það hefur strax verið tilkynnt í Saigon, jafnvel áður en rann- sókn málsins er lokið, að árás- in hljóti að hafa verið gerð „fyrir mistök“. ,,Mistökin“ hafa þá verið þau að þessi morð á ó- breyttum borgurum áttu sér stað fyrir sunnan 38. breiddar- baug, en ekki fyrir norðan hann. Árásir á N-Vietnam Bandarískar flugvélar fóru í Framhald á 6. síðu. Grein bláðsins birtist undir fyrirsögninni „Niðúr með stjórn- leysið“ og er það tekið til marks um hve mikil áherzla er lögð á birtingu þessarar greinar að kinverska - fréttastofan Hsinhua sendi hana út í heild. í greininni segir að öllu þjóð- félagskerfi kommúnismans stafi hætta af „stjórnleysinu“. Sagt er að vissir menn reyni að magna stjórnleysið undir því yfirskini að þeir séu að vinna að „víðtæk- ara, lýðræði“. Þessi grein „Alþýðudagblaðs- ins“ þykir enn ein vísbending um það að þáttaskil hafi orðið í menningarbyltingunni. Þau þáttaskil hafa orðið samtímis því að Sjú Enlæ forsætisráð- herra lætur æ meira til sín taka og æ meira ber á honum. Tveir sérfræðingar sem fjölluðu um þetta í brezka útvarpinu í dag vöruðu þó við því að álykta að einhver alger umskipti hefðu orðið. Sjú Enlæ, sögðu þeir, hefði frá upphafi verið í forystu menningarbyltingarinn- ar, en hann hefði einnig stöð- ugt varað við því að hún mætti ekki bitna á framleiðslunni né á forystumönnum sem sannað hefðu ágæti sitt í starfi. Því var veitt athygli að í dag var í fyrsta sinn í langán tíma, eða síðan í nóvember, minnzt á Lin Piao landvarnaráðherra og „arftaka Maos“ í kínverskum dagblöðum og veggblöðum. Var þar sagt frá því að hann hefði 19. febrúar fengið leyfi Maos til að dreifa tveimur ritgerðum um allt landið. „Alþýðudagblaðið" kallar Lin Piao í dag „náinn vopnabróður Maos“. Upplýsingar um að leyniþjónustan CIA hafi kostað starfsemi bandarískra stúdentasamtaka hafa aft sjálfsögftu hvergi vakið mciri athygli eða umrót en meðal bandarískra stúdenta. — Myndin er tekin á fundi stúdenta í Kaliforníu sem haldinn var um þetta mál. CIA kostaðí líka starfsemi Alþjóðanefndar lögmanna — Nefndin hefur verið verkfæri CIA árum saman, segir aðalhvatamaður að stofnun „Amnesty International'' Óvissa fyrir kosningar til franska þingsins á morgun Johnson vísaði algerlega á bug tillögum Kennedys í síðustu viku lét lífið í Suð- ur-Vietnam prófessor Bernard Fall, einn fróðasti maður á vesturlöndum um Vietnam, viet- nömsku þjóðina t>g sögu hennar. Hann hafði verið prófessor við Howard-háskóla í Bandaríkjun- um síðan 1957. Foreldrar hans voru austurrískir. gyðingar sem nazistar drápu bæði, en sjálfur komst hann undan og barðist með frönsku skæruliðunum í síðustu heimsstyrjöld. Hann var óvæginn í gagnrýni sinni á fram- ferði Bandarikjanna í Vietnam og skrifaði um það bækur og fjölda greina. Hann fór margar kynnisferðir til Vietnams og það var í einni slíkri sem dauða hans bar að. Hann fylgdist með bandarískri hersveit í norður- hluta Suður-Vietnams, steig ofan á jarðsprengju og hlaut þegar bana. WASHINGTON 3/3 — Johnson forseti og Rusk utanríkisráðherra létu ekki á sér standa að vísa á bug tillögum Roberts Kenne- dys um friðargerð 'í Vietnam sem hann' lagði fram í ræðu í öldungadeildinni í gær. Méginat- riði þessara tillagna voru þau að Bandaríkin ættu þegar í stað að hætta loftárásum sínum á Norður-Vietnam og lýsa sig reiðubúin til að hefja samninga- viðræður. Johnson svaraði ræðu Kenne- dys m.a.s. áður en hún var flutt, en honum var kunnugt um inni- hald hennar. Johnson sendi öld- ungadeildarmönnum bréf rétt áður en Kennedy hóf ræðu sína. í þessu bréfi sagði Johnson að ekki yrði hætt við loftárásirnar fyrr en Hanoi hefði fallizt á að draga úr hernaði sínum. Rusk utanríkisráðherra lýsti sig algerlega andvígan tillögun- um, sagði að _ svipaðar tillögur hefðu áður verið bornar fram, en engin ástæða væri til að ætla að stjórn Norður-Vietnams væri fús til að semja um gagn- kvæma minnkun hernaðarað- gerða. LONDON- 3/3 — Alþ’jóða- nefnd lögfræðinga sem verið hefur mjög umsvifamikil undanfarin ár og einkum lát- ið til sín taka mál sem til þess voru fallin að varpa rýrð á sósíalistísku ríkin hef- ur verið verkfæri leyniþjón- ustunnar CIA árum saman. ÞaS er aðalhvatamaður sam- takanna „Amnesty Internation- al“ (Alþjóðleg sakaruppgjöf)! sem hafa að markmiði að að- stoða pólitíska fanga hvarvetna í heiminum, brezki lögmaður- inn Peter Benenson, sem segir þetta um Alþjóðanefnd lögfræð- inga, en áður hafði að vísu vitn- azt að nefndin var ein af fjöi- mörgum stofnuman sem þegið höfðu fé til starfsemi sinnar sem komig var frá CIA. Ástæðan til þess að Benenson veitist nú að Alþjóðanefnd lög- fræðinga er sú að upp eru komnar deilur í „Amnesty Int- ernational“. Benenson sagði af sér formennsku fyrir samtök- unum fyrir jól, vegna þess að hann taldi að þau gætu ekki unnið starf sitt sem skyldi ef aðalstöðvar þeirra væru áfram í London. Hann vildi láta flytja þær til hlutlauss lands, Sviss eða Svíþjóðar. Nú hefur hann hins vegar aft- urkallað afsögn sína og krefst þess jafnframt að framkvæmda- stjóra „Amnesty“, írska lög- manninum Sean MacBird, verði sagt upp, en MacBird er einnig einn af framkvæmdastjórum Al- þjóðanefndar lögfræðfega. í síð- ustu viku komst upp að Al- þjóðanefndin hefði fengið fé frá Bonn, en það fé hefði verið komið úr sjóðum CIA. Benenson sagði einnig að hann hefði orð- ið fyrir vonbrigðum þegar Al- þjóðanefndin neitaði að styðja. „Amnesty'* í máli sem varðar pólitíska fanga sem Bretar hafa misþyrmt í Aden. Benenson sagði á fundi með blaðamönnum í London: — Alþjóðanefnd lögfræðinga hefur verið verkfæri CIA síð- ustu fimmtán árin. Óteljandi stofnanir í bandarískum blöðum hafa verið birtir langir listar yfir stofnanir og félagasamtök í Bandaríkjunum og utan þeirra siem þegið hafa fé sem runnið Framhald á 6. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.