Þjóðviljinn - 04.03.1967, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 04.03.1967, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 4. marz 1967. Blaðskák TR:TA SVART: TA: Jón Björgvinsson Þorgeir Steingrímsson. abcdeí gh Abending tí! bindindismanna Að undanförnu hefur nokk- uð borið á gagnrýni á starf- semi bindindissamtakanna í landinu og ófengislöggjöfinni, bæði í blöðum, útvarpi og sjónvarpi. Ég get að nokkru leyti stutt þessa gagnrýni og mun hér lítillega skýra mín sjónarmið og álit á starfi bindindissamtakanna. Þá sjaldan heyrist í tals- mönnum bindindissamtak- anna, þá er einasta krafan sem þeir fara fram á sú, að innflutningsbann skuli sett á 'áfengi. Vissulega væri þá mest- ur vapdi leystur, hvað áfeng- isvandamálið snertir, en það eru því miður engar líkur á að slíkt bann verði lögfest og þess vegna tel ég að bindind- issamtökin verði að miða bar- áttu sína við það, hvernig forða megi þjóðinni og þá sér í lagi unglingunum frá síaukinni áfengisneyzlu, með þá staðreynd fyrir augum að áfengi er og verður fyrir í landinu til sölu. í fyrsta lagi verður að hefja nú þegar skipulega bindindis- fræðslu í barna- og unglinga- skólum. Þar nægir ekki að einn templari eða svo heim- sæki skólana einu sinni á vetri, eins og tíðkazt hefur. Það þarf beinlínis að kenna bindindi. Gefa þarf út bók í þeim tilgangi og kenna hana rétt eins og landafræði og sögu, Qg er sízt minni þörf. Með þessu móti og með sýn- ingu fræðslumynda má koma inn hjá barninu viðbjóði og fyrirlitningu á áfengi og á- hrifum þess. Þessi fræðsla múrf, er fram líða stundir og æskan vex upp, breyta al- menningsálitinu á áfenginu og.opna augu manna fyrir því gífurlega böli, sem áfeng- isneyzla er. Einnig verða samtök bindind- ismanna að berjast fyrir þvi, að aðstaða æskunnar til skemmtana verði stórbætt. Aðstaða æiskufólks í Rvík til skemmtanalífs er til háðung- ar, og atburðirnir á Hótel ís- landslóðinni nú um daginn eru mikil ádeila á ríkjandi þjóðskipulag, og raunar af- leiðing af því. Ef einkaauð- magnið getur ekki grætt á samkomustöðum, þá lognast þeir út af og deýja. Það er óviðráðanleg staðreynd að í dag græðir einkaauðmagnið ekki á öðrum skemmtistöðum . en þeim, er hafa vínveitingar. Brýn nauðsyn er að komið sé upp vínveitingalausum skemmtistöðum fyrir unglinga, sem reknir séu með aðstoð ríkis og/eðá bæjar, en skemmtanalöpgun unglinga ekki höfð að féþúfu eins og nú er. Staðir þessir verða að hafa uppeldisfræðilegt gildi. Mér er ekki kunnugt um að bindindissamtökin hafi nokkurn tíma farið íram á að bindindiskennsla yrði tek- in ugp í skólum og aðstaða^ æskunnar til skemmtunar bætt. Þar er að minnsta kosti ekki um neina baráttu að ræða. Til þess að barátta bindindismanna verði jákvæð og raunhæf, verða þeir að láta eitthvað af mörkum, fórna sér fyrir hugsjón síng. Þjóðin veriður ekki bindindis- söm þó að stúkumenn haldi lokaða fundi um áfengismál, þar sem allir vilja tala, en enginn framkvæma neitt, eng- inn láta neitt af mörkum fyrir hugsjón bindir ';ssam- takanna. Þjóðin verður heldur ekki bindindissöm þó þeir, sem áfengis neyta, séu eilíf- lega húðskammaðir og læstir inni í tukthúsi. Það verður að meðhöndla þetta fólk eins og sjúklinga, eins og það væri haldið krabbameim ' eðá öðr- um viðlfka sjúkdómi, og reyna að komast fyrir méinsemdina, svo að einstaklingurinn geti aftur orðið nýtur þjoðfélags- þegn. Að þessu eiga bindind- issamtökin að vinna mark- visst og ákveðið, en ekki ein- blína stöðugt á þá stund, þeg- ' ar áfengi verður ekki lengur til sölú í landinu, sem trúlega verður aldrei eða a.m.k. ekki í bráð. G. Brynjúlfsson. ,Guð sér um, sina' Á öndverðu ári 1965 mætti ég á förnum vegi mál- kunningja mínum einum, ung- um manni úr stétt hinna nýrri innflytjenda eða um- boðssala, sem í flestum til- fellum hafa slík störf sem „hobby“. Tjáði hinn ungi maður mér vandræði sín, sem voru í því fólgin, að hann hugðist kaupa sér íbúð, átti til þess eina miljón króna í handbæru fé, en hafði á fram- tölum sínum til skatts láðst að telja fram nokkra eign. Sæi hann því engin ráð til að koma þessum kaupum á, nema eiga á hættu að kom- ast í kast við skattayfir- völdin, en það vildý hann um fram allt ekki. Yrði hann því að bíða hentugra tæki- færis með íbúðarkaupin. Hér á dögunum hitti ég svo þennan unga mann aftur af tilviljun. Innti ég hann þá eftir því, hvernig hefði út- leiðst með íbúðarkaupin í hitteðfyrra. Það reddaðist nú á farsælan hátt, sagði hann, tækifærið kom upp í hend- urnar á mér, þegar fjármála- ráðherrann bauð út fyrsta vísitölutryggða skuldabréfa- lánið til þriggja ára. Ég bara keypti skattfrjáls og ófram- talsskyld bréf fyrir eina mi-ljón, sem ég svo fæ út- borguð haustið . 1968 með visitöluálagi og vöxtum, sem kemur til að nema þá um einni miljón og fjögur hundr- uð þúsund krónum.. Ég er þegar búinn að festa kaup á finni íbúðvmeð þeim skil- málum, að ég greiði hana að fullu á sama tíma og bréfin koma til útborgun^r. Finnst þér ekki sniðugt að komast svona út úr klípunni? bætti hann við Ég verð að segja það, að af því að ég er ekki ratvís í völundarhúsi viðskiptalífsins, varð ég steini lostinn. Mér varð aðeins að orði: Já, Magn- ús sér um sína. x. abcdef gh HVÍTT: TR: Arinbjörn Guðmundsson \ Guðjón Jóhannsson 9. Rg5 Fóreldrar í Langholtsskólahverfi Munið stpfnfund foreldrasam- takanna á sunnudagskvöld í safnaðarheimilinu við Sólheima ! klukkan 20.30. — Nefndin. Sýning Þórarins hamlengd • Ágæt aðsókn hefur veriö að sýningu Listasafnsins á málvcrk- um Þórarins B. Þorlákssonar og hefur nú verið ákveðið að hún veröi opin til 12. marz til að gefa sem flestum kost á að kynnast Iist þéssa fyrsta meistara okkar. Br rétt oð benda á í því sam- bandi að þetta verður sennilega eina tækifærið á ævinni til að sjá þessi málverk öll saman komin því að meirihluti þeirra er fenginn að láni úr ýmsum áttum. Sýningin er opin kl. 13,30-22 daglcga. Myndin er af einu málverki Þórarins, Heimili listamanns- ins, frá 1924- Að vonum í fyrradag staðfesti Morgun- blaðið að ritstjórn blaðsins hefði hafnað boði umað senda Sigurð A. Magnússon til Víet- nams, og jafnframt birtu rit- stjóramir skýringu á þeirri 4- kvörðun sinni. Segja þeir að Upplýsingaþjónusta Banda- ríkjanna hafi valið Sigurðal- veg sérstaklega til fararinnar, en ritstjórar Morgunblaðsins séu sjálfstætt fólk og láti ekki neina Bandaríkjamenn skipa sér fyrir verkum; ef Morgunblaðið gpndi mann í kjölfar bandaríska innrásar- hersins í Víetnam vilji rit- stjóramir ráða því sjálfirhver fari. Þessi sjálfstæðisyfirlýsing væri næsta lofsverð ef ekki væri vitað hvemig á henni stendur. Upplýsingaþjónusta Bandaríkjanna hefur að und- anfömu verið gagnrýnd mjög í stríðsmálgögnum vestanhafs ■•■■■■■■■■•■■■■■■■imanaiBiMMiuainaaamiiaiiiiain fyrir að hleypa til Víetnams fréttamönnum sem sízt hafi lagt innrásarhemum lið i frásögnum sínum, og hefur sumum af þeim fréttamönnum raunar verið vísað úr landi af leppstjóminni í Saígon og bandarískum hernaðaryfir- völdum. Er skemmst að minn- ast harkalegra árása á Salis- bury, einn af ritstjórum New Yörk Times, sem gerði sig raunar sekan um það fráleita afbrot að fara einnig til norð- urhluta landsins og greina frá því sem • þar bar fyrir augu. Ritstjórar Morgun- blaðsins hafa auðvitað óttazt að ef Sigurður A. Magnússon færi kynni að verða litið á blað þeirra sem kommúnista- málgagn — á borð við New York Times. Svo er að sjá sem ritstjórar Morgunblaðsins hafi gefið kost á því að velja sjálfir mann til Víetnamferðar, en Upplýsingaþjónustan hafnað því boði. Hún hefur að von- tim óttazt að Eyjólfur Konráð Jónsson yrði fyrir valinu. — Ný- mæli A það var minnzt hér í pistlunum fyrir nokkru áð piltar og stúlkur hétu nú á máli sumra íþróttamanna „karlunglingar" og „kvenung- lingar“. Málfar þessara í- þróttamanna er þó af gullald- artagi í samanburði við Morgunblaðsmanninn sem samdi um daginn fyrirsögn- ina „Hann-amir og hún-urn- ar“. Þeim mönnum er fátt eftir skilið af íslenzku tungu- taki sem ekki hafa tiltækorö eins og þeir og þær, heldur verða að búa sér til nýjar orðmyndir samkvæmt erlendri fyrirmynd. — Austri. HAMPIÐJAN 0G HEILDSAUNN I' Morgunblaðinu 24. f. m. kemur ÞórhaUur Þorláksson, forstjóri Marco, fram í eigin persónu og heldur áfram sam- anburði á umboðsvörum sínum og framleiðsluvörum Hampiðj- unnar. Aðferðir hans við að ná við- skiptum af keppinaut á mark- aðinum eru sem betur fer, ó- venjulegar hér á landi. Undan- famar vikur hafa stjómendur Hampiðjunnar fengið óvandað- ar kveðjur frá óþekktum rit- höfúndi. Stjómmálamenn og aðrir, sem hafa látið þá skoð- un í ljós að lítilsháttar leið- rétting á starfsskiiyrðum veiðar- færaiðnaðarins væri sanngirn- ismál, hafa verið bomir til- hæfulausum ósannindum. 1 kjölfar þessara þokkalegu iðju er verðsamanburður á ósambæri- legum vörum að gæðum frá Hampiðjunni og „Corfi“ um- boðinu afhentur viðskiptamála- ráðuneytinu, gjaldeyrisnefnd bankanrta, alþingismönnum og útgerðarmönnum í því skyni að rangtúlka hinn sanna verðmis- mun eftir gæðum og efnismagni og valda veiðarfæraiðnaðinum tjóni. Að ráðum ábyrgra manna, sem höfðu hlustað á söguburð, um léleg gæði á framleiðslu- vörum Hampiðjunnar, var talið óhjákvæmilegt að óska eftir gæðarannsókn á þeim vörum, sem „Corfi“ umboðið notaði til •verðsamanburðar. Með þeim hætti var Þórhallur Þorláksson búinn að ékveða hvaða tegund- ir voru teknar til prófunar. Hlutlaus rannsókn fram- kvæmd af Rannsóknarstofu iðnað^rins ,sýnir óumdeilanlega, að gæði „Corfi“ várahna er “i öllum rannsóknartilfellunum minni, en á vörum Hampiðjunn- ar. Samt sem áður heldur Þór-. hallur Þorláksson uppteknum hætti með verðsamanburð, sem sýnir það eitt að verð á þess- um vörum er mismunandi eftir gæðum. Að gefnu þessu tiiefni um samanburð á rúlluverði kaðla hafa ekk;i öll atriði, sem skipta kaupandann máli verið rædd. Sfðast liðið sumar voru fulltrú- ar frá dönsku verksmiðjunr.i Jacob Holm í Kbh. og Esbjerg Towærkfabrik hér á ferð. Þótt við eigum í samkeppni við þær verksmiðjur á markaðinum hér höfum við gagnkvæm vinsam- leg skipti og ræðum sameigin- leg vandamál, sem félagar í Evrópusambandi ’ verksmiðju- eigenda. ■ Það sem báðir þessir aðilar ræddu sérstaklega um, var að portugalskar verksmiðj- ur ná lægra verði á hverja kaðalrúllu með minna efnis- magni en það „standard" er við teljum þurfa til að ná rétt- um gildleika kaðalsins og slit- þoli. Við vorum allir sammála um að reyn-a ekki samkeppni með þeim hætti/ Vegna rúlluverðs samanburð- ar Þ.Þ. verður nú skýrt frá þyngdar og slitþolslista Hamp- iðjunnar annarsvegar og sömu stærðum á lista útgefnum af „Corfi". Þriggja þátta kaðall úr unni, sem er 18 kg þyngrt og hefur 2600 kg meira slitþoL - Þ.Þ. segist hafa á sl. tveim árum valdið algjörum umskipt- um á högum togaranna með botnvörpum frá Portúgal. Það er sorgleg staðreynd að hrun togaraútgerðarinnar hefúr aldr- ei verið örara en á áðurnefndu tímabili, þrátt fyrir portúgölsk botnvörpunet í flestum þeim skipum, sem lagt var. Að sjálf- sþgðu var þessi þróun hvorki netunum að þakka eða kenna, en í hverju liggja hin jalgeru umskipti á högum togarannaað dómi Þórhallar við að hætta fyrirvaralaust viðskiptum við Hampiðjuna og taka upp við- skipti við Marco, fyrst þaðkom ekki fram í hagkvæmari rekstri. Urðu ekki þessi algjöru um- skipti á högum Þórhalls Þor- lákssonar sjálfs? Sumir togarar fóru ekki með viðskipti sín frá Hampiðjunni og aðrir komu aftur um leið og hægt var að framleiða gexwi- efni með nýrri gerð véla. Meö- ' al þessara skipa eru togarar sem hafa minnstan veiðarfæra- kostnað og er það eftir atvik- um bezti mælikvarðinn. Hitt er svo rétt sem Þórhallur gleðst mjög yfir að nokkrir togarar nota eingöngu erlendar botn- vörpur, en það liggur ekkert fyrir um það, að veiðarfæra- kostnaður þeirra sé minni en hinna, sem fóru að tilmælum ráðherra um það, að tugmilj- óna króna framlag úr ríkissjóði komi atvinnurekstri þjóðarinn- ar að sem mestum notum, en til þess er féð veitt. Það kemur fram hjá Þórhalli . Þorlákssyni að erlendir.vfram- leiðendur hafa allt í einu stór- lækkað verðið til Islands. En vitað er að engin rök eru fyrir þéirri lækkun í hráefnaverði eða í lækkun vinnulauna. Sömu vörur og Hampiðjan er að byrja framleiðslu á eru boðnar með 30% lækkun og það er auðvitað hrein tilviljun að slík- ar lækkanir koma til fram- kvæmda um það leyti, sem Hampiðjan var að afla sér nýrra yéla til að auka framleiðslu sína. Það er nú öllum ljóst að tilvera Hampiðjunnar virðist ó- þægileg staðreynd frá sjónar- miði Þórhalls Þorlákssonar. Ef til vill hefði ekki þurft að lækka þessa vöru, ef hún væri ekki að þvælast fyrir áhugamálum umboðssalans. Undan þeirri tor- tryggni verður ekki komizt, ef síldarnætur og þorskanet verða ekki einnig lækkuð um 30o?(1. en þær vörur hafa ekkert lækk- að að undanförnu. Hvers vegna notar Þórhallur Þorláksson ekkj hæfileika sína og umhyggju fyrir útgerðinni til að fá stór- fellda lækkun á síldarnótum og þorskanetum, eða hafa hús- bændurnir erlendis ekki áhuga, þar sem ekki er hægt að segia frá innlendri verksmiðju, sem taka þarf til í þeirri sam- keppni? Aróður Þórhalls Þorlákssohsr hefur valdið misskilningi ."7 skaðað rekstur Hampiðjunn polypropylcne þráðum Movlon kaðall Hampiðjan Ummál þyngd slitþol þyngcl slitþol m.m. kg. kg. kg. kg. 12 13 1.750 14 1.860 16 22 . 3.000 25 3.250 20 34 4.850 39 5.040 24 50 6,400 57 7.200 40 140 16,600 158 19.200 Þeir Movlon kaðlar, sem þeg- ar er búið að slitprófa hafa slitþol mjög nálægt eða heldur undir framangreindum slitþols- lista, en bæði meðalslitþol og meðalþyngd á rúllu er 12—13% hærra hjá Hampiðjunni enhjá „Corfi“ samkvæmt áðumefnd- um framleiðsluupplýsingum fyr- irtækjanna. Er því augljóst að Þ.Þ. ber eaman verð á 40 mm rúllu frá ,,Corfi“ sem vegur 140 kg. og hefur 16600 kg slit- þol á móti rúlftu frá Hampiðj- undanfamar vikur. Það verður ekki útgerðinni til hagsbóta að nota tímabundna erfiðleika t.il að hjálpa til viðútrýmingu inn- lends veiðafæraiðnaðar. Þvert á móti þarf' sem fyrstaðkoma upp verksmiðju til framleiðslu á síldamótum og þorskanetum til þess að umboðssalan fái hæfilegt aðhald einnig á því sviði, en þar rfkir athyglisverð- ur friður og samstaða í verð- lagningu sem stendur. Hannes FáJsson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.