Þjóðviljinn - 04.03.1967, Side 6
0 SÍÐA — ÞJOÐVILJINU — Ijaugardagur 4. marz 1967.
• Sldðamót
Reykjavíkur
haldið áfram á
sunnudaginn
Á sunnudaginn kemur, 5.
marz, verður Svigmóti Reykja-
víkur haldið áfram. Keppt
verður í B og C-flokkum,
drengjaflokki og telpnaflokki.
Skíðaráð Rvíkur sér um mót-
ið. sem haldið verður við skíða-
skálann i Hveradölum.
Meðal keppenda verða allir
beztu skíðamennimir í Reykja-
vík í hópi hinna yngri. Móts-
stjóm skipa þeir Þórir Lárus-
son, Leifur Gíslason og Bjami
Einarsson. Mótið hefst kl. 1
sd., en nafnakall verður kl. 12
við endamark. Keppendur eru
beðnir að mæta stundvíslega.
Aðalfundur Hús-
félags R-víkur
gagnameistara-
Húsgagnameistarafélag Rvik-
ur hélt aðalfund 21. febrúar.
Á fundi þessum var Kristján
Siggeirsson húsgagnasmiðam.
kjörinn heiðursfél. þess. Krist-
án hefur starfað mjög mikið
fyrir félagið og var formaður
þess í 22 ár.
Árið 1963 baðst Kristján ein-
dregið undan endurkosningu
sem formaður en hefur verið
varaformaður síðastliðin 4 ár.
13.00 Öskalög sjúklinga. Sig-
ríður Sigurðardóttir kynnir.
14.30 Vikan framundan. Bald-
ur Pálmason og Þorkell Sig-
urbjömsson kynna útvarps-
efni.
1510 Veðrið í vikunni. Páll
Bergþórsson skýrir frá.
15.20 Einn á ferð. Gísli J. Ást-
þórsson flytur þátt í tali og
tónum.
16.05 Sigurlaug Guðmundsd.
frá Egilsá velur sér plötur.
17.05 Tómstundaþáttur barna
og unglinga. Örn Arason fl.
17-30 Úr myndabók náttúrunn-
ar- Ingimar Öskarsson talar
um þjóðgarð Tékka f Karp-
ataf jöllum.
17-50 Dóra Ingyadóttir og Pét-
ur Steingrímsson kynna nýj-
ar plötur.
19.30 Harry, smásaga eftir
Rosemary Tirrrperley. Ás-
mundur Jónsson íslenzkaði.
Jón Aðils leikari les.
19.55 Úr tónleikasal: Philip
Jenkins pranóleikari frá
Bretlandi á hljómleikum í
Borgarbíói á Akureyri 7. fe-
brúar. a) Chaconna eftir
Bach-Busoni. b) Skersó nr. 3
eftir Chopin. e) Fjórar baga-
tellur (1938) eftir Rawsthpme-
20.30 Leikrit: Mercadet, gaman-
leikur eftir Honoré de Balzac-
Þýðandi: Ingibjörg Stephen-
sen. Leikstjóri: Ævar R.
Kvaran. Leikendur: Þorsteinn
ö. Stephensen, Guðbjörg Þor-
bjamard., Bryndís Sehram,
Gestur Pálsson, Valdemar
Helgason, Jón Aðils, Valur
Gislason, Rúrik Haraldsson,
Amar Jónsson, Gísli Alfreðs-
son, Benedikt Ámason, Anna
Herskind og Kristín Magnús.
22.50 Danslög.
22.40 Lestur Passíusálma (35).
01.00 Dagskráriok-
• Einþáttungar Mattliiasar Jo-
hanncssen, Eins og þcr sáið og
Jón gamli, hafa nú verið sýnd-
ir 16 sinnum á litla sviðinu í
Lindarbæ við ágæta aðsókn.
Næsta sýning verður á sunnu-
dagskvöld 5. febrúar- Valur
Gíslason leikur aðalhlutverkið
i báðum þáttunum og er mynd-
in af honum í hlutverki sínu í
Jóni gamla.
Rœða
Sigurjóns
Framhald af 1. síðu.
reyndimar. Hann tók skólamál-
in naest sem dæmi:
Hvílíkt stríð og nudd hefur
það ekki kostað að reyna að
koma viðunandi skipulagi á sér-
kennslu afbrigðilegra barna,
sagði hann, og er víst langt í
land enn.
Hvað með skólabyggingar?
Hefur ekki þurft látlausan eft-
irrekstur til þess að fá meiri-
hlutann til að sjá nemendum
fyrir hinu algjöra lágmarki
skólahúsnæðis. Og þar verðum
við vitni að stórfelldum svik-
um og tölulegum fölsunum.
Baraaheimiiin
Hvað með barnaheimilismálin?
Allir vita í hverjum ólestri þau
eru, og hvilíku tómlæti og skiln-
ingsleysi er að mæta í þeim
efnum. Það er ekkert launung-
armál, að bamaheimili skortir
tilfinnanlega. En jafnframt eru
sum barnaheimili hér fyrir neð-
an allar hellur, og í stað þess
að vera sú heilsuiind sem þau
eiga að vera, verða þau gróðr-
arstía andlegrar veiklunar.
Æskulýðsstarfsemi
Hvað með aðstöðu unglinga
til heilbrigðs tómstunda- og fé-
lagslífs, hélt Sigurjón Bjömsson
áfram, — hvað hefur íhaldið
gert hér til að bæta úr? Fara
ekki vandamálin sífellt vaxandi?
Er um annað meira talað en
einmitt það? Hafið þið kannski,
herrar mínir og frúr í meiri-
hlutanum, einhverjar stórfelld-
ar áætlanir til úrbóta á prjón-
unum? Jú, jú, — við höfum
Æskúlýðsráð, við höfum nefndir
og guð veit hvað. Því má vissu-
lega til svara. En hvað hefur
Æskulýðsráð unnið? Ég veit
ekki betur en Æskuiýðsráð tví-
stigi og hiki, velti vöngum og
kafni í geldu ráðabruggi, þegar
um veigamikil mál ræðir.
Og enn sagði Sigurjón: — Ég
hef líka átt þess kost undan-
farið að kynnast ýmsum ncfnd-
arstörfum á vegum borgarinnar
um þessi mál og mér blöskrar
hreinlega hve hægt er að þvæla
fram og aftur endalaust um
hluti sem oft eru augljósir, mér
blöskrar hvernig farið er með
tíma manna og hversu sáralítill
afraksturinn verður.
í lok ræðu sinnar sagði Sig-
urjón Björnsson að sú væri
sannfæring sín, byggð á þeim
kynnum sem hann hefði haft af
þessum málum, að sleifarlagið.
tómlætið og skipulagsleysið í
þeim efnum sem hann hefði gert
að umtalsefni væri svo yfir-
gengilegt og ófyrirgefanlegt, að
ekki væri hægt að kveða of
fast að orði.
Lœknamólin
Framhald af 1. síðu.
um er fram komu í þættinum og
fjölluðu um málefni Slysavarð-
stofunnar og mér virðist ekkert
ofsagt í þeim efnum. Þetta skýr-
ist hinsvegar betur við að hlusta
á þáttinn og hefur mér verið
gefinn kostur á að gera það á
næstunni.
Þá spurðum við um hugsan-
lega meðhöndlun Slysavarðstof-
unnar á svonefndum hópslysum,
— en læknar hafa hvað eftir
annað að undanförnu varað við
og telja að Slysavarðstofan sé
ófær að gegna hlutverki sínu
undir slíkum kringumstæðum
með þeirri starfrækslu og að-
búnaði, sem nú er fyrir hendi.
Ég þori nú varla að gera mér
grein fyrir því neyðarástandi,
er myndi ríkja undir þeim
kringumstæðum, sagði Haukur
að lokum.
Þá náði Þjóðviljinn sambandi
við Árna Björnsson, lækni og
formann Læknafélags Reykja-
víkur og innti hann eftir áliti
hans á stöðvun þáttarins.
Mér finnst þetta bann skýra
sig bezt sjálft. Hversvegna eru
þessi mál svona viðkvæm. Þetta
bann varpar ljósi á neyðarástand,
sem ríkir hér í borginni á ýms-
má ekki þegja í hel.
um sviðum heilbrigðismála og
Við spurðum Árna um vænt-
anlegan fund Stúdentafélagsins.
— Já, — ég hef samþykkt að
verða þar annar frummælandi,
sagði Ámi að lokum.
CIA
Framhald af 3. síðu.
er frá CIA, og kennir þar svo
margra grasa að það má nærri
því fullyrða að engin meirihátt-
ar samtök eða stofnanir í „hin-
um frjálsa heimi“ hafi fariðvar-
hluta aí örlæti CIA.
Aður var vitað eða grunur lék
á að CIA veitti fé til margra
þessara stofnana. Þannig var
kunnugt að leyniþjónustan hef-
ur veitt stórfé til bandarísku
háskólanna Michigan State Uni-
versity og Massachusetts Insti-
tute of Technology. „New York
Times“ skýrði fyrst frá því í
greinaflokki sem blaðið birti
fyrir rúmu ári og varð það til
þess að MIT neitaði frekari
íjárgjöfum frá CIA. Fjárstyrk-
urinn til Michiganháskóla fór
m.a. til þess að kosta þjálfun
lögregluliðs einvaidans Ngo
Dinh, Diem í Suður-Vietnam.
Margir aðrir bandarískir há-
skólar og menntastofnanir hafa
þegið fé á laun frá CIA, og því
fé hefur aftur að nokkru leyti
verið varið til styrktar mennta-
stofnunum erlendis sem leyni-
þjónustan taldi sér hentugt að
aðstoða.
Það er auðvitað misjafnlega
mikið fé sem runnið hefur til
hinna ýmsu stofnana en aug-
ijóst virðist að stærstu fúlgurn-
ar hafa farið til að kosta ýms
alþjóðleg samtök sem hafa haft
það efst á stefnuskrá sinni að
„berjast gegn kommúnisman-
um“. í því sambandi má sér-
staklega nefna samtökin „Frjálsa
menningu", sem haft hafa und-
irdeildir í flestum vesturlöndum,
einníg á íslandi. Þannig hefur
CIA kostað útgáfu tímarita sem
koma út á vegum hinna ýmsu
deilda „Frjálsrar menningar",
svo sem „Der Monat“ í Vestur-
Þýzkalandi, „Preuves" í Frakk-
landi, „Encounter" í Bretlandi
og „Perspektiv" í Danmörku.
Af öðrum stofnunum sem þeg-
ið hafa miklar íúlgur frá leyni-
þjónustunni má sérstaklega
nefna Blaðamannafélag Banda-
ríkjanna sem aftur hefur að
verulegu leyti staðið undir
kostnaði af starfsemi Alþjóða-
sambands blaðamanna í Bruss-
el; Alþjóðasamband ungra jafn-
aðarmanna sem hefur aðsetur í
Vín, en fyrsti formaður þess var
Per Hækkerup, einh höfuðieið-
togi danskra sósíaldemókrata
og sonur hans Jan gegnir því
starfi nú; en engin alþjóðasam-
tök munu hafa fengið meira fé
frá CIA en Aiþjóðasamband
frjálsra verklýðsféiaga, en því
fé hefur aftur verið varið m.a.
til að tryggja stuðning verklýðs-
félaga í nýfrjálsu löndunum við
„vestræna samvirmu".
Hjálmur Sigurðsson vann
bikarglímu Víkverja 1967
Þriðja bikarglíma Ungmenna-
félagsins Víkverja var háð í
íþróttahúsi Jóns Þorsteinsson-
ar 18. febrúar sl. Þátttakendur
voru 9.
Handhafi bikarsins var
Gunnar R. Ingvarsson, sem
unnið hefur bikarinn tvívegis.
Bikarinn er gefinn af Sláturfé-
lagi Suðurlands. Úrslit glím-
unnar urðu þau, að hinn ungi
og efnilegi glímumaður, Hjálm-
ur Sigurðsson, bar sigur af
Reykjavíkurúr-
vaí gegn úrvali
Bandaríkjahers
Annað kvöld, (sunnudag) fer
fram í Laugardalshöllinni fyrsti
leikurinn af fimm á þessum
vetri milli Reykjavíkurúrvals
körfuknattleiksmanna og úrvals
Bandaríkjahers á Keflavíkur-
flugvelli. Á undan leiknum
keppa IR og Ármenningar til
úrslita í 1. flokki Reykjavíkur-
mótsins.
Reykjavíkurúrvalið, sem kepp-
ir við hemámsliðið, er þannig
skipað: Frá IR: Agnar Frið-
riksson, Birgir Jakobsson, Skúli
Jóhannsson og Jón Jónasson;
frá KR: Kblbeinn Pálsson,
Gunnar Gunnarsson, Hjörtur
Hansson, Einar Bollason og
Guttormur Pálsson; frá KFR:
Marinó Sveinsson.
hólmi og lagði alla keppinauta
sína nema Ingva Guðmunds-
son, en jafnir gð vinningum
urðu Gunnar R. Ingvarsson,
Ingvi Guðmundsson og Hannes
Þorkelsson allir með 6 vinn-
inga og urðu því að glíma til
úrslita um 2. og 3. verðlaun.
Úrslit urðu sem hér segir:
1. Hjálmur Sigurðss. 7 v.
2. Gunnar R. Ingvas. 6 4- 2 v.
3. Ingvi Guðmundss. 6 + 1 v.
4. Hannes Þorkelss. 6 + 0 v.
5. Ágúst Bjamason 4 v.
6. Helgi Árnason 3 ▼.
7. Gunnar Tómasson 3 v.
8. Barði Þórhallss. 1 v.
9. Magnús Ólafss. 6 v.
í hléinu milli glíma sýndu
24 drengir glímu, og þótti að
því góð skemmtun.
Daginn eftir, 19. febrúar,
sýndu Víkverjar glímu í Kefla-
vík. Þátttakendur voru 24. Að
lokinni glímusýningunni var
háð bændaglíma. Bændur voru
Ingvi Guðmundsson og Hjálmur
Sigurðsson. Glímustjóri var
Kjartan Bergmann.
Landsfíokka-
gHman 19.3.
Landsflokkaglíman fer fram
sunnudaginn 19. marz n. k. að
Hálogalandi og hefst hún kiL 5
síðdegis.
Ungmennafélagið Vfkverji oér
um framkvæmd glímunnar.
Tilkynningar um þátttöku
þurfa að berast skriflega til
Sigurðar Sigurjónssonar, Teiga-
gerði 12, Reykjavík, eigi síðar
en 12. marz n.k.
★ RáSlegginga- og upplýs-
ingaþjónusta Geðverndarfé-
lagsins hefst mánudaginn 6.
febrúar og verður framvegis
alla mánudaga kl. 4—6 e.h.
að Veltusundi 3, sími 12139.
Almennur skrifstofutími er
kl. 2—3 e.h. alla daga nema
laugardaga.
Geðvemdarfélag íslands.
Ályktanir háskólamanna
Framhald af 1(X síðu.
að sinna að gagni sérmálum
þeirra opinberu starfsmanna,
sem varið hafa mörgum dýr-
mætustu árum ævinnar ril
að búa sig undir starf sitt og
hafa af þeim sökum allt aðra
afstöðu til kjaramála en nokk-
ur annar hópur opinberra
starfsmanna.
Fundurinn bendir á, hversu
allt tal um „launajöfnuð11 verð-
ur villandi þegar á það er lit-
ið, að raunverulegar ævitekjur
þeirra manna, sem minnsthafa
lagt í sölumar til að búa sig
undir ævistarfið, verða að jafn-
aði miklu hærri en þeirra, sem
vandað hafa til ufldirbúnings-
ins.
Fundurinn lýsirþví eindregn-
um stuðningi við þá stefnu
Bandalags háskólamanna, að
samningsréttur um kjaramál
háskólamenntaðra opinberra
starfsmanna komist hið fyrsta
í hendur háskólamanna sjálfra,
svo sem fyrri ályktanir félags-
ins um þetta efni hníga að.“
(Frá Fél. ísl. fræða).
★ l
Hinn 24. febrúar síðastliðinn
var fundur haldinn í Félagi há-
skólameTmtaðra kennara. Á
fundinum var einróma samþykkt
ályktun sú, er hér fer á eftir:
„Fundurinn telur, að við und-
„Mistök
II
Framhald af 3. síðu.
dag í 85 árásarferðir til Norður-
Vietnams og er sagt að ráðizt
hafi verið á samgönguleiðir og
hergagnageymslur. Bandarísk
herskip á Tonkinflóa héldu á-
fram skothríð sinni á stöðvar á
strönd Norður-Vietnams og er
sagt að þau hafi nú í fyrsta
sinni skotið á fiugskeyta- og
radarstöðvar.
Westmoreland hershöfðingi,
yfirmaður bandaríska hersins í
Vietnam, sagði í dag að halda
yrði áfram loftárásunum á N.-
Vietnam. Þær væru ómissandi
þáttur í öllum hernaði Banda-
ríkjanna í Vietnam, sagði hann.
Þeir Bandaríkjamenn sem vildu
gera hlé á loftárásunum gerðu
sér ekki grein fyrir því hve ó-
skapiega dýrkeypt það hlé
myndi verða bandarísku her-
mönwmtnB I Vietnam.
irbúning síðustu kjarasamninga
hafi réttur og hagsmunir há-
skólam en n taðra kennara verið
fyrir borð bomir af Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja og
Landssambandi framhaldsskóila-
kennara. Af þeim sökum hafa
félagsmenn sagt sig úr ofan-
greindum samtökum, vantreysta
þeim og vilja ekki afekipti þeirra
af málefnum sínum í væntanl.
kjarasamningutn.
Fundurinn harmar þann drátt,
sem á því hefur orðið, að Banda-
lagi háskólamanna sé veittur
samningsréttur til jafns við
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja og telur það óviðunandi,
að háskólamenntaðir starfsmenn
í þjónustu ríkisins skuli enn
vera án þeirra sjálfsögðu rétt-
inda, sem slíkur samningsréttur
veitir.
Fundurinn skorar á Alþingi og
ríkisstjóm að hraða afgreiðslu
samningsréttarmálsins og láta
framkvæmdir í því ekki undir
höfuð leggjast, ef breytingar
verða gerðar á samningsréttar-
lögunum á yfirstandandi þingi.
Háskólamenntaðir kennarar
vilja ekki una við niðurstöðu
kjaradóms frá 30. nóv. 1965.
Fundurinn mótmælir því harð-
lega þeirri ætlun BSRB og lög-
gjafarvaldsins að fresta nauðsyn-
legum tilfærslum milli launafl.
um eitt ár, enda verður ekki
annað séð en tveggja ára samn-
ingstími eigi að nægja til nauð-
synlegrar undirbúningsvinnu við
starfemat og fleira.
Fundurinn lýsir því yfir, að
háskólamenntaðir kennararmunu
ekki sætta sig við, að hugmynd
BSRB um samningsréttargjald ó
alla ríkisstarfsmenn verði að
lögum“.
(Frá Fél. háskólamenntaðra
kennara).
Fjórír styrkir
til háskólanáms
í Danmörku
Dönsk stjómarvöld bjóða
fram fjóra styrki handa íslend-
ingum til háskólanáms í Dan-
mörku námsárið 1967 — ’68.
Einn styrkjanna er einkumætl-
aður kandídat eða stúdent, sem
leggur stund á danska tungu,
danskar bókmenntir eða sögu
Danmerkur, og annar ætlaður
kennara til náms við Kennara-
háskóla Danmerkur. Allir eru
styrkimir miðaðir við 8 mán-
aða námsdvöl, en til greina
kemur að skipta þeim, efhenta
þykir.
Styrkfjárhæðin nemur 892,50
d.kr. á mánuði, en að auki er
veittur sérstakur styrkur vegna
ferðakostnaðar í Danmörku,
50,00 danskar krónur. Umsókn-
um um styrki þessa skal komið
til menntamál aráðuneytisins,
Stjómarráðshúsinu við Lækjar-
torg, fyrir 25. marz n.k. Um-
sókn fylgi staðfest afrit próf-
skirteina ásamt meðmælum,
svo og heilbrigðisvottorð. Sér-
stök umsóknareyðublöð fást í
menntamálaráðuneytinu.
(Frá menntamálaráðuneytinu).
Tilkynning
frá Menntamálaráði
íslands.
1. Styrkur til vísinda- og
fræðimanna.
Umsóknir inn styrk til vís-
inda- og fræðimanna árið
1967 þurfa að hafa borizt
skrifstofu Menntamálaráðs,
Hverfisgötu 21 í Reykjavík,
íyrir 1. apríl n.k. Umsóknum
fylgi skýrsla um fræðistörf.
Þess skal og getið, hvaða
íræðistörf umsækjandi ætlar
að stunda á þessu ári.
Umsóknareyðublöð fást í skrif-
stofu Menntamálaráðs.
2. Styrkur til núttúrufræði-
rannsókna.
Umsóknir um styrk, sem
Menntamáiaráð veitir til nátt-
úrufræðirannsókna á árinu
1967, skulu v,era komnar til
ráðsins fyrir 1. apríl n.k. Um-
sóknum fylgi skýrslur um
rannsóknarstörf umsækjanda
síðastliðið ár. Þess skal og
getið, hvaða rannsóknarstörf
umsækjandi ætlar að stunda
á þessu ári.
Umsóknareyðublöð fást í skrif-
stofu Menntamálaráðs.
Reykjavík, 2. marz 1967
Menntamálaráð
íslands.
Kvöldvaka
FÉLAGS ÍSLENZKRA LEIKARA
verður endurtekin í Þjóðleikhúsinu mánu-
dagskvöld kl. 20,30.
Aðgöngumiðasala í Þjóðleikhúsinii.