Þjóðviljinn - 04.03.1967, Síða 10
ÞorvaldurSkúlason opnar málverkasýningu í dag
Hefmestan áhuga á því
sem ég mála á morgun
Idag verða þau mest tíðindi,
að Þorvaldur Skúlason
opnar málverkasýningu i
Bogasal Þjóðminjasafnsins. Á
tuttugu og einu málverki.
Hann hefur ekki sýnt einn
síðan 1962, þá í Listamanna-
skálanum.
— Af hverju svo langt líði
milli sýninga? Það er feikna-
lega mikið verk að búa til
eina góða mynd, það er eina
ástæðan. Kannski verða ekki
til nema svosem tíu myndir á
ári, segir Þorvaldur.
Og svo eyðileggur maður
myndir til þess að eftirmælin
verði ekki eins skelfileg.
Eigum við ekki að segja að
þessar myndir séu málaðar á
síðustu fjórum árum. Þær
eru að vísu flestar ársettar
1966, en það er byrjað á þeim
löngu fyrr mörgum hverjum.
Jú mikið rétt, afkvæmun-
um eru nöfn gefin, það er það
lýgilega við þetta. : . .
„Hvít birta“, „Þytur“, „Til-
brigði“ — í þeim anda voru
nafngiftirnar. Og ung blaða-
kona spurði, hvaða breyting-
um Þorvaldi findist hann hafa
tekið siðan 1962, þegar hann
sýndi síðast einn.
— í hreinskilni sagt þá veit
ég það ekki. Maður lifir allt-
af í þeirri von að gera eitt-
hvað sem getur gengið og það
er eiginlega öll sagan.
Kannski er það eins með
málara og foreldra, menn eiga
erfitt með að gera upp á milli
barna sinna Sum eru ef til
vill algjörlega misheppnuð
og þá getur eins verið að
manni þyki vænst um þau.
Mér er sagt að þetta geti
verið þannig.
Annars er ekki svo að skilja
að mér þyki vænt um þetta
sem hér er Ég hef mestan
áhuga á því sem ég mála á
morgun.
Það var minnzt á fjólublá-
an lit í myndunum?
— Já, mér finnst dálítið
freistandi að eiga við hann,
því hann er reyndar dálítið
andstyggilegur litur og hreint
ekki þægilegt að koma honum
fyrir í mynd án þess að það
verði spaugilegt . . .
Á þessa leið fórust Þorvaldi
orð, þegar blaðamenn sóttu
að honum.
Sýningin er opnuð í dag kl.
2 og almenningi eftir kl. 7.
Síðan er hiin opin kl. 2—10
næstu fjórtán daga.
'i
Jóhannes Norðfjörð h.f. 65 ára:
Sýning é gömlum ár-
umítilefniafþví
Wilhelm Norðfjörð með elzta úrið í eigu lslendings af þeim sean
eru á sýningunni. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Ein elzta úra- og skartgripa-
verzlun Reykjavíkur minntist I
gær 3. marz, 65 ára afmælis síns.
Það er tíra- og skartgripaverzlun
Jóh... Norðfjörð h.f. Verzlunin
var stofnsett á Sauðárlcróki og
er verzlunarléyfi stofnandans út-
gefið 3. marz 1902-
1 tilefni afmælisins 1 hefur
verzlunin sýningu á gömlum úr-
um í eigu Islendinga og úrum,
sem fengin eru frá Sviss í tilefni
af afmæli verzlunarinnar. Er
hið elzta frá Sviss smíðað 1465-
Það elzta í eigu Islendings er
smíðað 1672. Verður sýningin í
glugga og í verzluninni að Hverf-
isgötu 49 allan þennan mánuð
og eTU allir velkomnir að skoða.
Jólhannes Norðfjörð, úrsmíða-
meistari, stofnandi verzlunarinn-
ar var fæddur 7. september 1875
og lézt 17. júni, 1952- Hann nam
úrsmíði hjá Jónasi Var,söe í
Stavanger og lauk rrámi 1901.
Verzlunarleyfi fékk Jóhannes
á Sauðárkróki 3. marz, árið eftir.
Jóhannes Norðfjörð starfrækti
verzlun sína á Sauðárkróki
fyrstu tíu árin en fluttist til
Háskólamenntaiir opinberir
starfsmenn gagnrýna BSRB
Reykjavíkur 1912 og opnaði
verzlun í Bankastræti 12. Síðar
var verzlunin til húsa á ýmsum
stöðum. en þó lengst í Austur-
stræti 14 og þar muna flestir
Reykvíkingar hana.
14. maí 1959 flutti aðalverzlun-
in að Hverfisgötu 49 en útibú
var áfram um tíma í Austur-
sti-æti 14, en síðan fluttist það í
Austurstræti 18 í hús Almenna
bókafélagsins. ,
Sérstæð afmælissýning.
65 ára afmælisins minnist
verzlunin, sem fyrr segir, með
merkilegri úrasýningu- Hefur nú-
verandi eiganda verzlunarinnar,
Wilhelm Norðfjörð, tekizt að
safan saman um 20 gömlum úr-
um í eigu Islendinga. Á eiriu
þeirra er smíðaártalið 1672. Er
það í eigu Gunnars Bjarnasonar
skólastjóra Vélskólans. Hin úrin
eru frá ýmsum tímum, þó ekki
séu á þeim ártöl og gætu þau
því verið eldri- En öll eiga úrin
það sammerkt að vera hin feg-
urstu á að líta. Sum eru með
silfurslegnum hlífðarlokum. —
Yngsta úrið á sýningunni í eigu
Islendings er eitt af fyr’stu úr-
unum, sem verzlun Jóh. Norð-
fjörð seldi á Sauðárkróki fyrir
65 árum.
Eitt úranna — vasaúr — er
þannig úr garði gert að það slær
og gefur til kynna líðarídi
klukkuetund sólarhringsins þegar
ýtt er á sérstakan sláttutakka,
Sé klukkan milli 3 og 4 slær úr-
ið 3 högg, sé klukkan milii G
og 7 slær úrið 6 högg o.s-frv.
■ Eins og kunnugt er hefur Bandalag háskólamanna
sett fram kröfu um að því verði veittur samningsréttur
fyrir hönd þeirra háskólamenntaðra manna sem eru 1 þjón-
ustu hins opinbera í stað Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja sem nú fer méð samningsrétt háskólamenntaðra
manna eins og annarra ríkisstarfsmanna. Munu ýms félög
háskólamenntaðra manna telja að fyrir Kjaradómi hafi
fulltrúar BSR.B ekki haldið nægilega fast fram hlut há-
skólamanna eins og eftirfarandi tvær félagasamþykktir,
sem Þjóðviljanum hafa nýverið boriæt bera ljóst vitni um:
Félag íslenzkra fræða hélt
fund 28. febrúar 1967, þar sem
rætt var um starfsemi og hlut-
verk Bandalags háskólamanna.
Svohljóðandi ályktun var sam-
þykkt samhljóða:
„Sökum reynslu undanfarinna
ára lýsir fundur í Félagi ís-
lenzkra fræða 28. febrúar 1967
yfir vantrausti áf Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja til
Frambald á 6. siðu.
Svissnesk antique-iir.
Þá hefur verzluninni tekizt að
fá hingað til lands 13 gömul úr
frá Sviss, öll hin fegurstu- Sum
þeirra eiu gulli slegin og lögð
smelti. Um aldur þein-a allra er
ekki nákvæmlega vitað en á einu
þeirra er smíðaártalið 1465.
Sýningin mun standa út þenn-
an mánuð og eru allir velkomnir
í verzlundna til að skoða úrin.
Fjöldi vega lokaður
vegna mikilla snjóa
Margir fjallvegir eru nú ófær-
ir vegna snjóa og er ástandið
verst á Austur- og Norðurlandi
að því er Þjóðviljinn fékk að
vita hjá Vegamálaskrifstofunni í
gær.
Hellisheiði er lokuð, en fært
er um Þrengslin og um Suður-
land allt austur að Vík í Mýr-
dal, en þaðan aðeins störum bíl-
um og jeppum austur yfir Mýr-
dalssand.
Vestur á bóginn er fært öllum
bilum um Hvalfjörð, Borgar-
fjörð og Snæfellsnes, en einung-
is stórum bifreiðum yfir Bröttu-
brekku vestur í Dali. Á Vest-
fjörðum eru allir aðalvegir lok-
aðir, en fært innanfjarða.
Stórir bílar komast norður yf-
ir Holtavörðuheiði, um Húna-
vatnssýslu, Skagafjörð og yfir
Öxnadalsheiði, en leiðin frá Ak-
ureyri til Húsavíkur er lokuð.
★
Á Austurlandi eru allir fjall-
vegir lokaðir, en fært er um
Fljótsdalshérað næst Egilsstöð-
um og einnig milli Reyðarfjarð-
ar og Eskifjarðar.
2,4 miljónir kr. í sjúkrasjóBi
Verkakvennafél. Framsóknar
Aðalfundur Verkakvennafé-
félagsins Framsóknar var hald-
inn í Alþýðuhúsinu við Hverf-
isgötu þriðjudaginn 28. febrúar
s.l-
* l
Formaður félagsins Jóna Guð-
jónsdóttir flutti skýrslu stjómar-
innar og skýrði frá starfsemi fé-
lagsins á liðnu ári. Þá minntist
formaður níu félagskvenna, er
létust á liðnu starfsári, og vott-
uðu fundarkonúr þeim virðingu
sína með því að rísa úr sætum.
I félaginu voru um áramót 1668
konur.
Að skýrslu formanns lokinni
voru lesnir og skýrðir reikningar
félagsins, og nam skuldlaus eign
þess í árslok 1966 kr. 1.776.987,00,
auk sjúkrasjóðs-
Úr sjúkrasjóði voru veittar kr.
43Í.539.00 og í árslok nema eign-
ir hans um kr. 2.400-000,00.
Ákveðið var að árgjald skyldi
vera hið sama og á síðastliðnu
ári kr. 700.00-
Stjómin var sjálfkjörin, en
hana skipa: Jóna Guðjónsdóttir
formaður, Þónxnn Valdimarsdótt-
ir varaformaður, Guðbjörg Þor-
steinsdóttir ritari, Ingibjörg
BjaVnadóttir gjaldkeþ og Ingi-
björg Ömólfsdóttir fjármálarit-
ari. Meðstjómendur eru þær
Pálína Þorfirxnsdóttir og Kristín
Andrésdóttir. Ennfremur var
stjóm Sjúkrasjóðs endurkjörin,
en hana skipa Þórunn Valdi-
marsdóttir og meðstjómendur
Jóna Guðjónsdóttir og Kristín
Andrésdóttir. Samþykkt var
reglugerð fyrir Qrlofsheimila-
sjóð- Einnig var samþykkt á
fundinum að gefa til Hallveigar-
staða kr. 5.000,00.
Framhald grein-
arinnar birtist
eftir helgina
* Vegna þrengsla í blaðinu
þessa dagana dregst óhjákvæmi-
lega birting á framhaldi hinnar
mierku greinar Steindórs Árna-
sonar um togaraútgerðina fram
yfir helgina. I. hluti greinarinn-
ar birtist í blaðinu sl. miðviku-
dag, II. hlutinn daginn eftir. III.
og IV. hluti greinarinnar munu
birtast eftir helgi sem fyxr var
sagt.
Málfunáur sósíálista:
Félagsleg stefna
í áætlanagerð
Sunnudaginn 5. marz verð-
ur haldinn málfundur 1
Tjarnarbúð uppi. Fundur-
inn hefst kl. 3 síðdegis.
Guðmundur Ágústsson
hagfræðingur flytur fram-
söguerindi: — Félagsleg
stefna í áætlanagerð. —
Öllum opiö. — Æ.F.
LoftleiBir fáað nota RR-400
til Norðurlanda og Bretlands
Vegna þeirra takmarkana sem
urðu nýlega á hæðarflugi flug-
véla af gerffinni DC-6B og DC-7
leitaði flugmálastjóri fyrir hönd
Loftleiffa h.f. leyfi flugmála-
yfirvalda í Bretlandi og á Norff-
urlöndum til þess aff Loftleiffir
mættu ttota Rolls Royce flugvél-
sinar í staff DC-6B flugvélanna
unz fyrrgreindum takmörkunum
yrffi aflétt.
Flugmálastjóra bárust í gær,
þau svör að Loftleiðum h.f.
væri leyft í vissum tilfellum að
nota Rolls Royce flugvélar sín-
ar til Nórðurlanda. og Bret-
landsflugs og væri þetta heimil-
að fyrst um sirm.
Vegna þessa má gera ráð fyr-
ir að á næstunni verði áætlun-
arflugi Loftleiða milli íslands,
Bretlands og Norðurlanda haldið
að nokkx-u uppi með Rolls Riyce
ruS’, óluin félagsins.
/