Þjóðviljinn - 16.03.1967, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 16.03.1967, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVIIaJINN — Fimmtudagur 16. marz 1967. Frú Irma Weile Jónsson segir frá endurminningum sínum um: Ungverska tónskáldið og ryðjandinn ZOLTÁ ! Fyrir stuttu lézt ungverska tónskáldið Zoltán Kodály sem ásamt Béla Bartók skóp ungverska nútímatónlist, sem byggð er á fornum þjóðleg- 'um erfðum. I Söngkonan sem kynnti ýms verk Kodálys í Þýzkalandi, Danmörku, Frakklandi og mörgum fleiri löndum, frú Irma Weile Jónson, segir les- endum Þjóðviljans hér á eftir frá kynnum sín- um af Kodály og list hans. Zcfltán Kodály fæddist í Kec- skemét 16. des. 1882. Hann byrjaði ungur að fást við tón- smíðar og eitt verka hans var flutt af hljómsveit skólans sem hann gekk i í Nagyszomb- af. Um aldamótin fór Kodály til Búdapest og gekk har í Tón- listarakademíu háskólans. 1905 fór hann fyrst út um landið og . safnaði þjóðlögum með félaga- sínum Béla Bartók og tveimur árum síðar varð hann prófess- or við Tónlistarakademíuna í Búdapest. ÞaS var svo árið 1910 að verk eftir hann var fyrst flutt. á opinberum tón- leikum. En nú er mál til komið að gefa frú Irmu Weile orðið; hún kynntist tónskáldinu persónu- lega og er þaulkunnug tónlist hans. — Ég gleymi bví aldrei þeg'- ar ég heyrði fyrst getið um Kodály. Það var árið 1924 og ég var þá nemandi Ludwigs Kentner í Berlín. Kentner kom eitt sinn með nótur af „Ineks- zo“. Nafnið þýðir „sungin orð“ og er nótnaheftið 18 síðurmeð nokkrum óþekktum ungversk- um þjóðlögum sem Kodály hafði umskapað yfir í nútíma- tónlist en jafnframt varðveitt þjóðlegu einkennin. Þetta var stuttu áður en verk eftir Kodály voru frumflutt í Berlin og einleikarinn var Lud- wig Kentner. — Og við bætum því við að söngkonan var Irma Weile, hún segir þannig frá þessum fyrsfu Kodály-tónleikum í Ber- lín: — Þessi tónlist var sérstæð og óvenjuleg. Það var einhver mystik yfir henni. Sennilega hefur fjöldinn ekki skilið tón- listina en hún náði engu að síður til hjartans og fagnaðar- lætin voru gífurleg, fólk stóð uppi á stólunum og hrópaði. Ég var svo heppin að Kentn- er gerði allt sem hann gat til að koma mér inn í tónlistKod- álys. Kentner undirbjó mig undir ferð til Búdapest þar sem ég var viðstödd hátíðakon- sert í þáverandi konunglegu. akademíunni í Búdapest. Þar var Psalmus Hungaricus frum- flutt en það er nú á dögum eitt þekktasta verk Kodálys. önnur þekkt verk eftir hann eru óperan János Háry, Buda- vár Te Deum, Missa Brevis, Székler Spinnery, og Hátt flaug páfuglinn. — Á þessum tónleikum voru áheyrendur ekki eingöbgu Ung- verjar, heldur og tónlistarmenn frá fjölmörgum löndum. Við- tökumar voru afburðagóðar. svo góðar að nú er sagt að Kodálv hafi eftir þessa einu kvöldstund verið viðurkenndur sem eitt mesta tónskáld Ungverja. — Kodály var hlédrægur maður og hann kom ekki fram að loknum tónleikunum enda þótt áheyrendur hrópuðu á hann ' með miklum látum. Næsta dag hringdi ég í Kod- ály, hann hafði þá lesið grein- ar um söng minn í Berlín og vildi heyra mig syngja lög sín í friði og ró. Kodály bjó þá við Andrassy búluvarð í Búdapest ásamt konu sinni. Hún var á aðgizka tuttugu árum eldri en Hann — dáði list hans og gerði alltsem hún gat til þess að ryðja ýms- um erfiðleikum úr braut fyrir mann sinn. Síðasta myndin sem tekin var af Kodáiy. — Ég var hálf taugaóstyrk þeg- ar ég hringdi dyrabjöllunni en kona Kodálys tók á móti mér og var hin vingjarnlegasta, Þegar ég sá listamanninn í fyrsta skipti varð mér hverft við því hann var svo einkenni- lega líkur föður mínum. Kodály var mikill persónu- leiki, hann var elskulegurmað- ur, alls ekki með neitt tánn- burstabros. Kynni mín af hon- um voru þannig að mér finnst hann hafa verið einhver göf- ugasti maður sem ég hef fyr- irhitt. — Við skulum^fyrst drekka kaffi og síðan snúa okkur að vinnunni, konan mín er ágæt- ur píanóleikari og getur leikið Að leita sannleikans Leitin að sannleikanum er krókótt og einatt erfið; þó er henni ævinlega haldið á- fram sem betur fer. Hún er ekki sízt verkefni vísinda- manna og fræðimanna. Oft reka þeir sig á það að sann- leikurinn brýtur í bága við hagsmuni máttarvalda, sem reyna þá að fá leitendurna til þess að víkja af götu sann- leikans af vinskap eða öðrum hvötum. Þegar þannig skerst í odda reynir á skaphöfn manna; Giordano Bruno var brenndur; Galileo Galilei af- neitaði kenningu sinni, en er sagður hafa muldrað „Hún snýst nú samt.’’ Engir hérlendir fræðimenn hafa lýst sér sem jafn vamm- lausum sannleiksleitendum og hinir ágætu hagfræðingar Jónas H. Haralz og Jóhannes Nordal. Þegar þeir umtum- uðu efnahagskerfinu í upp- hafi viðreisnar kváðust þeir hafa sannleikann einn að leiðarljósi, ásamt lögmálum hinna æðstu vísinda. Og msrkmiðin sem þeir bentu á voru afar skýr: engin verð- bólga framar, engir styrkir og uppbætur, varanlegur og heilbrigður grundvöllur at- vinnuveganna í stað bráða- birgðaráðstafana og káks. Ekki þurfti að koma á óvart ■ ■ þótt þessir vammlausu sann- » leiksleitendur yrðu að fara í krókaleiðir að markinu; hitt ■ vaikti óneitanlega furðu að : krókamir sveigðu allir til : sömu hliðar, unz svo var ■ komið á furðu stuttum tíma : að vísindamennirpir voru : komnir í hring, stóðu í sömu : sporum og í öndverðu. Ein- : kennilegast er þó að síðan • hafa þeir unnið að þvi baki ■ brotnu að framkvæma hrika- : legri óðaverðbólgu en dæmi : fara af í landi með sæmilega • þróað hagkerfi; framlög þeirra í niðurgreiðslur, styrki og : uppbætur nema nú á annan : miljarð króna og hafa aldrei j verið hærri í sögu þjóðarinn- ■ ar; þeir hafa elt uppi bráða- birgðaráðstafanir og kák af : mikilli hugkvæmni í stað j þess að standa á hinum var- : anlega . og heilbrigða grund- velli. ■ Og hvað um hina vísinda- ■ legu samvizku? Naumast hafa þeir átt á hættu að vera brenndir; samt fer ekki einu- j sinni orð af því að þeir muldri j í niðurlægingu sinni. ■ — Austri. undir þegar þú syngur, sagði Kodály. Þegar ég hafði sungið nokkur lög sagðist Kodály vera alveg hissa á því hve vel ég skildi tónlist hans og bauð mér að koma í söngtíma hjá konusinni þrisvar í viku og æfðum við saman mörg verk hans. En brátt varð ég að fara frá Búdapest og hitti þau hjónin ekki aftur fyrr en 1931 í Míl- anó. Þar söng ég lög eftir Kodály og síðar átti ég eftir að syngja verk eftir hann i Frakkilandi, Danmörku og á íslandi — og höfðu verk hans ekki verið flutt áður opinber- lega í þessum löndum. Og vissu- lega var til fólk sem ekki kunni að meta tónlist Kodálys og spurði mig hversvegna í ósköp- unum ég væri að syngja þessa nútímatónlist! Kodály sá ég síðast í Mílanó en ég frétt.i af honum annað veifið, hann missti konu sína og var ekkjumaður í mörg ár, en svo kvæntist hann aftur kornungri stúlku sem var nem- andi hans. Hann var rúmlega áttræður þegar hann dó og með honum er fallinn í valinn einn af mestu listamönnum heims- ins. — List hans var svo þjóðleg. Ungverjaland var grundvöllur að öllum hans verkum. Svo lengi sem ungversk tónlist verð- ur til, verður list Kodálys og Béla Bartóks metin fyrir það að þeir gerðu þjóðlögin aðlista- verkum sem munu lifa með þjóðinni. List Kodálys hafði mikið uppeldislegt gildi fvrir æskuna í Ungverjalandi, hann ferðaðist mikið um landið, bæði á milli skóla og eins og Bartók safnaði hann þjóðlegum lögum meðþvi að heimsækja bændafólkið og taka upp þegar það söng þjóð- lög. Þar fundu þeir gömul og upprunaleg þjóðlög sem þeir síðan notuðu sem uppistöðu í listaverk sín. — BH. Plastmo ÞAKRENNUR OG NIDURFALLSPÍPUR RYÐGAR IKKI ÞOLIR SELTU OG SÓT, ÞARF ALDREI AÐ MÁLA MarsTradingGompanyhf u LAUGAVEG 103 _ SlMI 17373 Hús til sö/u Húsið Norðurbraut 9c, Hafnarfirði er til sölu. — Verð kr. 380.000 ef samið er strax. Upplýsingar gefa Skip og fasteignir Austurstræti 18 — Sími 21735. Toyota Crown Station Toyota' Crown Station Traustur óg ódýr Stationbíll. TRYGGIÐ YÐIJR TOYOTA. Japanska bifreiðasalan hf. Ármúla 7 — SLmi 34470. Klapparstíg 26 Sírni 19800 •K Condor Auglýsið i Þjóðviljanum Sími 17500 ■■■*■■■ !■■■■■■!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.