Þjóðviljinn - 29.03.1967, Page 1

Þjóðviljinn - 29.03.1967, Page 1
Páskahretið óvenju slœmt: Versta veðrið sem gert hefur í vetur □ Samkvæmt upplýsingum Jónasar Jakobs- sonar veðurfræðings hefur veður um páskana ekki verið jafn vont, eða verra um langt árabil. Á föstu- daginn lariga gerði hörku norðanátt með snjókomu norðanlands, en biksvörtum skafrenningi hér sunnanlands, en á skírdag hafði snjóað mikið í hægviðri. Norðanáttin hefur geisað sam- fellt síðan og lór ekki að draga úr henni fyrr en í fyrradag og í gserdag var mesti ofsinn úr henni. Frost hefur verið um allt land, 5—12 stig á láglendi, en hað er óvenjulegt um svo langan tíma í einu- Á páskadaginn sjálfan var veðrið einna verst þegar á heild- ina er litið. Þá voru víða 8—10 vindstig á landinu. 1 gærmorgun var frostið á \ • ■ ■ ■ • ■ ■ j • ■ ' JT Ofært ernú um mestan hluta landsins veana mikilla snjóa a Hjörleifur Olafsson hjá Vegamálaskrifstofunni tjáði blaðinu í gær, að greiðfært væri orðið um Þrengsli og Suðurlandsundirlendi að .Vík í Mýrdal. B Á einum stað undir Eyjafjöllum hamlar þó vatnselgur um- ferð minni bíla, en þeir geta krækt fyrir ófænma eftir öðrum vegi. Mýrdalssandur var kolófær fyrri partinn í gær. í gær- morgun átti að reyna að opna leiðina yfir sandinn, en horfið var frá því vegna skafbyls, en gera átti aðra tilraun seinni part- inn, því veður fór batnandi. landinu 6—10 stig yfirleitt, en 15 stig innst í Skagafirði , og á Hveravöllum. Þá var 8 stiga frost á Akureyri og 7 stig í Rvík. Heiðskírt var um sunnan og vest- anvert landið. Á norðurlandi voru víða él og stinningskaldi um Austurland- Jónas sagði að veðrið um pásk- ana hefði verið það versta í vet- ur, en hátíðin var einnig ó- venjulega snemma á ferðinni f Hœttuleg grýlukerti ■ Um Borgarfjörð, Snæfellsnes og Dali er fært fyrir stóra bíla. Holtavörðuheiði er kolófær, en reynt verður að opna hana í dag og leiðir úm Húnavatnssýslu. Ekkert verður átt við Öxna- dalsheiði. Annars er ófært um allt Norðurland, Austurland og norðanverða Vestfirði. ■ Um sunnanverða Vestfirði er fært innanfjarða og einnig á milli Patreksfjarðar og Bíldudals um Hálfdán. Sunnantil á Austfjörðum og á Suðausturlandi er einnig víða sæmilega fært. ★ I hretinu núna um páskana ★ hafa viöa myndazt stór grýlu- ★ kerti á þakskeggjum húsa f ★ Reykjavík eins og þessi mynd ★ sýnir vel sem ljósmynda'ri ★ Þjóðviljans tók í gær. Ættu ★ húseigendur að gæta þess að ★ brjóta grýlukertin niður áður ★ en hlýnar í veðri því mikil ★ hætta getur ella stafað af ★ þeim fyrir vegfarendur. Enn brást hitaveitan: Víða neyðarástand í gömlu hverfunum um hátíðarnar ■ Eins og ævinlega 'þegar kólnar í veðri brást hitaveit- an einnig nú um páskana og mátti fólk sitja við raf- magnsofna um hátíðarnar ef það varð ekki hreint og beint að flýja íbúðir sínar, en víða í gömlu' hverfunum var svo lengi hitalaust að vatnsleiðsl- ur frusu og hafði fólkið ekki einu sinni kalt vatn til að sjóða matinn í. Öeita vatnið fór að minnka strax síðari hluta fimmtudags- ins og á föstudag var orðið illkalt í gömlu hverfunum, þ.e. kringum Skólavörðuholtið og Landakotshæðina, en á þessum svæðum bregzt hitaveitan æv- inlega þegar eitthvað kólnar í veðri. Að þessu sinni varð vatns- leysið enn víðtækara og varð hitalaust um mikinn hluta eldri vesturbæjarins og víðar í aust- urbænum páskadagana. Á annan í páskum bilaði dæla í dælustöðinni og leiðsla sprakk í Laufásvegi og var allt heitt vatn tekið af suðvesturbæ með- an gert var við þetta í gær. Samkvæmt upplýsingum sem blaðið fékk hjá starfsmönnum Framhald á 9. táðu. Mikill ís er fyrir vestan og norðan I gær fór flugvél frá land- helgisgæzlunni í ískönnunar- flug vestur og norður fyrir land og ,sendi landhelgisgæzl- an blöðunum í gærkvöld kort það sem hér fylgir er sýnir legu íssins. Á minni mynd- inni eru skýringar með kort- inu. Fjöldi ferðamanna í hrakn- ingum í óveðrinu um páskana □ Óveðrið' um páskana gerði heldur beíur strik í reikninginn hjá fjölda manns sem að venju ætlaði að nota fríið til ferðalaga og útilífs. Lenti ferðafólkið, bæði í styttri og lengri ferðum, í hin- um mestu hrakningum. Erfiðast áttu þeir sem lagt höfðu á jökla og í óbyggðir, en fjölmargir bílar festust og tepptust líka á algengustu leiðum í ná- grenni Reykjavíkur. Fjöldi Reykvíkinga hugðist nota helgidagana til skíðaferða í nágrenni borgarinnar, enda er langt síðan nægilegur snjór hef- ur verið fyrir hendi til slíks á páskum hér á suðurlandL Voru skíðaskálar yfirleitt full- skipaðir, en einnig fóru óvenju margir í eins dags ferðir með fjölskyldur sínar til að njóta útiiverunnar. Gekk þetta vel á skírdag og föstudag, en á laug- ardag tepptust margir og kom- ust ekki aftur í bæinn fyrr en seint og síðar meir og fékk þar margur kalda gistingu í bíl sín- um. Margir leituðu þá gistingar í nærliggjandi skálum og var fólki holað niður eftir því sem föng voru á. Sagði Óli Ólason forstöðumaður Skíðaskálans í Hveradölum Þjóðviljanum að þar uppfrá hefði allt verið yf- irfullt fyrir, en á laugardag hefðu margir bætzt við, flestir á leið til Reykjavíkur úr öðr- um skálum, en ekki komizt lengra, en einnig hefði komið margt fólk til gistingar, sem ekki ætlaði sér að vera nema daginn og var það eðlilega illa útbúið, hafði ekki svefnpoka eða annað. Við höfðum ekki pláss nema á gólfinu, sagði Óli, fyrir utan nokíkur rúm sem losnuðu af því að fólkið sem hafði pantað þau komst ekki uppeftir á laugar- dag. Annars var sæmilegt veð- ur hér uppfrá og yfirleitt hægt að finna skjól og vera úti. Aðra sögu hafði fólk að segja sem dvaldist í Skálafelli. Þar var veðrið svo slæmt að ekkert' var hægt að fara út og varð skíðafólkið að hírast inni í skála alla helgina og komst . með naumindum heim annan páska- dag. Fjölmennt á Klaustri Austur á Kirkjubæjarklaustri urðu um 30 bílar tepptir vegna ófærðar frá því á annan páska- dag þar til uirt fimmleytið í gær að ýta fór á undán bilun- um yfir Mýrdalssand og var búizt við að ferðafólkið kæm- ist til Reykjavíkur seint í gær- kvöld eða í nótt, en vestan Mýr- dalssands var sæmilega fært í gær alla leið til Reykjavíkur. Þeir sem þarna voru á ferð voru fyrst og fremst Öræfafar- ar, hópar í langferðabílum á vegum Guðmundar Jónassonar og Úlfars Jacobsens og einstak- lingar á jeppum og öðrum bíl- um.' Sagði séra Sigurjón Ein- arsson á Klaustri Þjóðviljanum í gær að þar væru um 300 manns aðkomandi og byggju í Félagsheimilinu. Færi vel um fólkið, sagði Sigurjón,^ enda væri það vel klætt og rríeð all- an útbúnhð með sér. Ferðafólkið lagði af stað frá R^ykjavík á skírdagsmorgun og gekk ferðin vel austur að Klaustri, en er í Öræfin kom var þar kolvitlaust veður, gekk á með éljum og stormi, en lygndi heldur á kvöldin.. Hélt fólkið mikils til kyrru fyrir í bílunum á daginn, en á páska- dag var áætlað að snúa heim- leiðis og ekið að Skaftafelli, en snúið við þar vegna veðúrs og farið að Hofi þar sem fólkið úr langferðabílunum lét fyrir berast um nóttina. Margir á smærri bílunum voru. hins vegar búnir að fá nóg af Öræfunum óg vildu komast sem fyrst að Klaustri og lögðu af stað þangað á páska- dag. Þar var m.a. á ferð Jeppa- klúbburinn og komust jeppar ,úr þeim hópi yfir árnar en þegar kom að stærri bílunum í ferð- inni brotnaði undan þeim og lentu menn þarna í miklum hrakningum. Tók þessi ferð, sem venjulega er farin á 3-4 tímum í sæmilegri færð, nú um, 30 tíma, sagði Sigurjón. Lárus Siggeirsson fór á spil- bíl frá Klaustri til að aðstoða við að draga bílana í land. Langferðabílunum úr hópum Guðmundar og Úlfars gekk hins vegar sæmilega ferðin að Framhhld á 9. síðu. Ásmundur Sigurjónsson Aðalfundur KÍM vérður í kvöld ★ Kínversk-íslenzka menningar- félagið KfM heldur aðalfund í kvöld klukkan 8.30 að Tjarnar- götu 20. ★ Auk venjulegra aðalfundar- starfa flytur Ásmundur Sigur- jónsson fréttaritstjóri erindi um kínversk st.iór«mól.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.