Þjóðviljinn - 29.03.1967, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 29.03.1967, Blaðsíða 8
g SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Miðvifcudagur 29. marz 1967 Uppboð Eftir ákvörðun skiptaréttar Reykjavíkur fer fram opinbert uppboð á hluta þrotabús Kára B. Helga- sonar í Njálsgötu 49, hér í borg, föstudaginn 31. marz 1967, kl. 2 síðdegis. Leitað verður boða í eignina, svo sem hér segir: 1. Verzlunarpláss á 1. hæð í austurenda. 2. Ibúð á 2. hæð í austurenda. 3. Ibúð á 3. hæð í austurenda. 4. 10 herbergi í risi í tvennu lagi. í»á verður einnig leitað boða í einu lagi í áður- greinda eignarhluta. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Ritari óskast í Landspítalanum er laus staða læknaritara. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsókn- ir með upplýsingum um aldur, nám og fyrri störf, ásamt upplýsingum um, hvenær viðkomandi geti hafið störf, óskast sendar skrifstofu ríkisspítal- anna, Klapparstíg 29, fyrir 5. apríl n.k. Reykjavík, 28. marz. 1967 Skrifstofa ríkisspítalanna. m ÚTILOKAR SLÆMAN ÞEF • HINDRAR AÐ IUIATUR ÞORNI • VINNU-OG SKÓLANESTI ALLTAF SEM NÝTT Viðgerðaverkstæði. Smurstöð. Yfirförum bílinn fyrir vorið. FRIÐRIK ÓLAFSSON, vélaverkstæði. Dugguvogi 7. — Síimi 30154. BLAÐADREIFING Blaðburðarböm óskast í eftirtalin hverfi: Hverfisgötu II. — Tjamargötu — Vestur- götu — Höfðahverfi. DiMMm Látið stilla bílinn fyrir vorið Önnumst hjóla-, Ijósa- og mótorstillingar. Skiptum um kerti. platínur. Ijósasamlokur o.fl. — Örugg þjónusta. BÍLASKOÐUN OG STILLING Skúlagötu 32, simi 13100. Hafnfírðingar! Tek, ung börn i gaezlu hálfan eða allan daginn. — Upplýsingar í síma 5-17-70. Um 300 þiísund söfnuðust á öskudaginn Gísli Jónasson fyrrv. skólastjóri afhendir verðaun Reykjavíkurdeildar RKÍ fyrir merkjasölu á öskudaginn. — Frá vinstri: Gísli, Anna Ástþórsdóttir, Kjartan Jónsson og Anna Aðalsteinsdóttir. • Eins og kunnugt er lauk út- breidsluviku Rauða krossins i ár með merkjasölu á öskudag- inn, þann 8. febrúar s. 1., sem er hinn árlegi fjáröflunardag- ur félagsins um allt land- 1 Reykjavík seldust merki fyrir alls kr. 198.351.—, en RK-deild- ir utan Reykjavíkur hafa gert upp sölu fyrir rúmlega kr. 101.000.—. Fullnaðaruppgjör er þó enn ekki fyrir hendi, þar sem nokkrac deildir eiga eftir að sendai skilagrein fyrir söl- unni. Að venju veitti Reykjavíkur- deild R. K. I. þrem bömum verðlaun fyrir góða frammi- stöðu við merkjasölu í borginni. Að þessu sinni fengu þau Anna Aðalsteinsdóttir, Mið- bæjarskólanum, Anna Ástþórs- dóttir og Kjartan Jónsson, bæði í Æfingadeild Kennara- skólans, verðlaun. Gísli Jónas- son, fyrrv. skólastjóri, afhent.i börnunum bókina Þjóðsögur og sagnir, teknar saman af Torf- hildi Hólm, ásamt riti um starf Rauða krossins, og færði þeim þakkir fyrir hönd deildarinnar. Þetta er í þriðja skipti, sem þau Anna Aðalsteinsdóttir og Kjartan Jónsson hljóta verð- laun Reykjavíkurdeildar R.K.I- fyrir merkjasölu á öskudaginn. Þá vill R.K.Í. sérstaklega þakka telpnadeild Rauða kross- ins á Ólafsfirði fyrir ágæta hjálp, en telpumar söfnuðu kr. 8.000.— sem þær sendu í sjóð Blóðsöfnunar R.K.l. ★ Stjórn Rauða kross Islands færir ‘öllum þeim, sem veittu félaginu aðstoð í samþandi við útbreiðsluvikuna, alúðar þakkir. Sérstaklega þakkar félagið hin- um mörgu unglingum, víðs- vegar um landið, sem veittu félaginu ómetanlega aðstoð, svo Pg öllum þeim sem sýnt hafa Rauða kross starfinu áhuga og skilning. (Frá R.K.l.)- • Hvenær ber unglingum að greiða sem fullorðnir? • Ekki veit ég hver les svona bréf eða tekur ákvörðun um, hvort þeim sé svarað eða kast- að í ruslafötuna. Ég hef lengi hugsað . og rætt við mæður og reyndar foreldra um þetta mál og virðast flestir sammála, en ekkert hefur orðið af því, að ég né aðrir svo ég viti hafi vakið máls á því opinberlega. En er ég las öftustu síðu Þjóð- viljans í dag (18. marz), þá kviknaði aftur í mér. Þar ér frétt um ' „ungmennafargjöld" landa á milli. Og þá kem ég loksins að aðalerindinu: Hver stjórnar og ákveður hvenær, á hvaða aldri.ber ung- lingum að greiðá gjald, sém fullorðnum? í þessu er mikið ósamræmi. Alla vega man ég óumdeilanlega, að 13 ára mun vera aldurstakmark í Laugar- dalshöllinni. Ég á 4 börn á ung- lingaaldri og verður þá gjald- ið 300 kr. á venjulegan kapp- leik, en ef um útlend lið er að ræða að sjálfsögðu mikið meira. — Og þar sem foreldr- arnir eru líka gamlir og síung- ir íþrótta'unnendur' getur kvöld- ið orðið, án alls nána inngangs- eyris ca. 600—700 kr. Strætisvagnar eru eitt, sund- staðir annað (þrátt fyrir að þar eigi að greiða fullt verð, komast unglingarnir ekki að vegna kennslu nema sérstakan tíma dagsins). Böllum fá þau h'ns vegar alls ekki aðgang að. nema Breiðfirðingabúð (16 ára). Dettur engum í hug hvaða áhrif þetta ósamræmi hefur á unglingana? — Þeir kalla það óréttlæti. Gaman væri, ef blaðamaður gsefi sér tíma og hringdi til viðkomandi stofnana o.fl. og grennslaðist eftir þessu. Ég hringdi í góðkunningja minn, sem starfar í Laugardal, og hann svaraði mjög kurteis og vingjarnlega að það eina, s:m hefði verið athugað þar, væri að fella alveg hiður barna- gjaldið og haía það jafn hátt fullorðinsgjaldi „því það sem krakkarnir kaupa af gosdr.ykkj- um 'og poppkorni kemur alveg upp í mismuninn"!! Ég spurði, hver hefði sæl- gætissöluna. Og ura uppeldis- leg áhrif misræmis hafði hann aldrei heyrt, hvað þá þau börn sem ekki hefðu einu sinni efni á að fara popcoms-laus! Börnin mín fylltust rétflátri reiði við þessu svari kunningja míns og sögðu, að það væru oftast krakkar, sem sníktu flöskur af fullorðnum og seldu til að eignast peninga til sæl- gætiskaupá. Væri þetta ekki athugandi vegna fullorðna fólksins ekki síður en ungling- anna, sem nú eru endalaust notaðir, sem dæmi um ,,slæma“ æsku?!! Og eitt enh, mega kennarar reka út úr tímum börn á skóla- skyldualdri, mæðurnar kannski að vinna úti og treysta á að barnið sé í skólanum? Er þetta ekki íulllétt „aðferð“ til upp- eldis og náms? f von um áð bréfið verði alls ekki notað, nema þá sem grundvöllur, vona ég, að blað- ið athugi eit(thvað málið. Fjögra barna móðir. C3 20:00 Fréttir. 20:30 Steinaldarmennimir. Teiknimynd gerð af Hanna tig Barbera. íslenzkur texti: Dóra Hafsteinsdóttir. 20:55 Pottablóm. Páll Michelsen, garðyrkju- maður í Hveragerði, sýnir, hvernig flytja á stofublóm milli potta, klippa þau og skipta í sundur svo þau verði sem bezt búin undir sumacið. ... 21:05 Heilagur Franz frá Assisi. Myndin fjallar ura ævi bessa sérstæða , persónuleika mann- kynssögunar, lýsir æsku Franz • og tildrögum að þeim umskiptum í lífi hans, sem leiddu til þess, að hann varð einn af áköfustu boðberum kristinnar trúar. Þýðinguna gerði Guðbjartur Gunnars- son- Þulur er Eiður Guðna- son. 21:35 Suður um höfin. Skemmtiþáttur í umsjá Tage Ammendrup. 1 þættinum koma fram m. a. Iben G. Sonne, Sigvaldi Þorgilssbn og dansflokkur hans og limbó- dansararnir Baby og Henry- co Caraibeams. Kynnir er Skafti Ólafsson. 4 22:00 Á góðri stund. Léttur tónlistarþáttur fyrir ungt fólk. í þættinum koma m. a. fram Dionne Warwick, The Brothers Four og Dave Clark Five. Kynnir er Dave Clark. 22:30 Sýkn eða sekur? Bandarísk kvikmynd. Aðal- hlutverkið leikur Rhbert Ryan. Islenzkur texti: Dóra Hafsteinsdóttir. • AAinningarkort ★ Minningarkort Rauða kross íslands eru afgreidd á skrif- stofunni. Öldugötu 4. simi 14658 ob ! Reykj avíkurapó- teki. 1315 Við vinnuna. 14.40 Bríet Héðinsdóttir les sög- una „Alþýðuheimilið”, 15.00 Miðdegisútvarp. M. Miller, P. Prado, M. Gaye, The Rigtheous Brothers og W. Atwell leika og syngja. 16.00 Síðdegisútvarp. Sinfóníuhljómsveit fslands leikur Rímnadansa nr. 1-4 eftir Jón Leifs; O. Kielland stj. Sinfóníusveitin í San Francisco leikur Symphonie Fantastique op. 14 eftir Berlioz; P. Monteux stj. 17.05 Framburðarkennsla í spænsku og esperanto- 17.20 Þingfréttir. 17.40 Sögur og söngur. Ingibjörg Þorbergs og Guö- rún Guðmundsdóttir stjóma þætti fyrir yngstu hlustend- urna. 19.30 Daglegt mál. 19.35 Tækni og vísindi. Halldór Þormar dr. phil. flytur erindi. 19.55 fslenzk tónlist. a- Gamanforleifcur eftir V. Urbancic. Sinfóníuhljómsveit íslands leikur; dr. Páll ísólfe- son stj. b. Rómansa fyrir fiðlu og pianó eftir Hallgrím Helgason. Einar G. Sveinbjörnsson og Þorkell Sigurbjömssón leifca. c. Barnalagaflokkur eftÍT Magn- ús BI. Jóhrnnsson. Jane Carl- son leikur á píanó. 20.10 „Stryknínmorðið”, smá- saga eftir P. G. Wodéhouse. Ásmundur Jónsson íslenzkaði. Jón Aðils leikari les. 21-30 Sænsku söngvaramir Sig. Björling, H. Schymberg, Carl- Axel Hallgren og J. Berglund syngja lög .úr ópemm eftir Peterson-Berger, Massenet, Mozart og Wagner. 22 00 Úr ævisögu Þórðar Svein- bjarnarsbnar. Gils Guðmunds- son alþingismaður les (6). 22.20 Harmonikuþáttur. Pétur Jónsson kynnir. 22.55 Kammermúsik eftir þýzfc nútímatónskáld. a. „Bréfaskiþti’’ eftir G. Becker. b. „fhugun” eftir M. Kopelent. c- „Áköll og hróp“ eftir J. Wytténbach. Flytjendur: H. Lemser og félagar úr hljóm- sveit suðvestur-þýzka út- varpsins; E- Bour stj. • Brúðkaup • 18. febrúar voru gafin sam- an í hjónaband af séra Ólafi Skúlasyni ungfrú Iðunn Björk Ragnarsdóttir og Helgi Óttar Carlsen. (Stúdíó Guðmundar, Garðastræti 8). • Hitaveituvísur • Borgarstjóri og borg:arstjórn fá þessar vísur sendar til áminningar um marga kuldadaga Þeir munu ætla brögðunum að beita búnir okkur heitu vatni um neita eftir því nú mætti lengi leita léleg er hjá ykkur þessi hitaveita. Ykkur fast með frækleik skulum klóra fyrir vatnsskort og svo fávizkuna stóra flýtið ykkur, ekki vera að slóra, ý^ð þið fljótt við hitaveitustjóra. •

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.