Þjóðviljinn - 29.03.1967, Síða 3
f
MiSvlkudagur 29. marz 1967 — ÞJÓÐVELJINN — SÍÐA J
♦
Stríðið í Vietnam
aklrei hættulegra
Ú Þant birtir nýjar tillög'ur sínar og hvetur
enn til þess að loftárásunum sé strax hætt
NEW YOEK 28/3 — Ú Þant, framkvæmdastjóri SÞ, sagði
blaðamönnum sem hann kvaddi á sinn fund í New York
í dag að aldrei hefðu horfurnar vegna stríðsins í Vietnam
verið íjafn dapurlegar og nú og aldrei meiri hætta á því
að stríðið breiddist út fyrir Vietnam.
Á fundinum birti Ú Þant
hinar nýju tillögur sínar um
leið til samningslausnar í Vi-
etnam. Hann kvaðst ekki hafa
ætlað sér að birta þaer tillög-
ur að sinni, því að heppilegast
væri að viðleitni til að koma
á samningum færi fram í kyrr-
þey, en vegna þeirra viðbragða
sem tillögurnar hefðu vakið í
vissum höfuðborgum hefði hann
talið rétt að birta þær.
Þær eru ekki mjög frá-
brugðnar fyrri tillögum hans.
Hann kvaðst hafa lagt til við
alla deiluaðila að fyrst yrði
komið á vopnahléi, það notað
til undirbúningsviðræðna, en
síðan yrði kölluð saman ný
Genfarráðstefna. Tillögur þess-
ar sendi Ú Þant hinum ýmsu
deiluaðilum 14. marz. Banda-
ríkjastjórn svaraði 18. marz að
hún væri fús að hefja viðræð-
ur við stjórn Norður-Vietnams
án nokkurra fyrirframskilyrða.
Stjórnin í Hanoi hefur hins
vegar jafnan sagt að ekki komi
til greina neinar samningavið-
ræður fyrr en loftárásunum á
Norður-Vietnam hefur verið
hætt. í gær birti fréttastofa
Norður-Vietnams tilkynningu
sem fól í _ sér að þessum nýju
tillögum Ú Þants væri hafnað.
Engir samningar kæmu til
greina, var sagt, nema með því
skilyrði að Bandaríkin hættu
árásarstríði sínu á hendur viet-
nömsku þjóðinni. Jafnframt var
tekið fram að Sameinuðu þjóð-
irnar hefðu enga heimild til
þess að hlutast til um málefni
Vietnama, enda á hvorugt vi-
etnamska ríkið aðild að þeim.
Fréttaritari brezka útvarps-
ins í New York sagði að
greinilegt hefði verið á blaða-
mannafundinum að Ú Þant
gerði sér sérstakt far um að
eyða allri tortryggni Norður-
Vietnama í hans garð. Hann ít-
rekaði hvað eftir annað á fund-
inum að frumskilyrði þess að
viðræður gætu hafizt væri að
Bandaríkjamenn hættu loft-
hernaði sínum gegn Norður-
Vietnam. Hann kvaðst enn sem
fyrr sannfærður um að við-
ræður myndu hefjast nokkrum
vikum eftir að loftárásuunum
hefði verið hætt.
Hann var spurður hvernig
hann héldi að brugðizt yrði við
tillögunum í Moskvu og Peking
og. svaraði því einu til, að
Norður-Vietnamar væru sann-
færðir um að þeir sem þá
styddu myndu aldrei svikja þá
í tryggðum.
Kínverjar reyna nú að koma
í veg fyrír sambandsslit
PEKING 28/3 — Fréttamaður
AFP í Peking hefur það eftir
austurevrópskum heimildar-
mönnum þar í borg að svo virð-
ist sem kínverska stjórnin vilji
nú komast hjá atvikum sem
gætu orðið til að spilla sambúð
Skæruhernað-
uríBolivíu
LA PAZ 28/3 — Stjórnin í
Bolivíu lýsti í gær yfir hernað-
arástandi í suðurhéruðum lands-
ins vegna skæruhernaðar sem
þar hefur geisað að undanförnu.
Barrientos forseti sagði að und-
anfarið hefðu 15 skæruliðar og
jafnmargir stjórnarhermenn fall-
ið í viðureignunv í suðaustur-
hluta landsins, en búast mætti
við því að skæruliðar hefðu
einnig búið um sig í öðrum
landshlutum.
hennar og stjórnmálatengslum
við sovétstjórnina.
Tilefni þessarar fréttar er
það að í gær umkringdu rauð-
ir varðliðar bíl sovézks sendi-
ráðsmanns og héldu honum föst-
um í sex klukkustundir, en
sagt er að kínverska lögreglan
sem áður hefur látið sams kon-
ar árekstra alveg afskiptalausa
hafi í þetta skiptið tekið í
taumana og losað sendiráðs-
manninn úr klípunni. Atvikið
sýni hins vggar að andúðin í
garð Sovétríkjanna geti hvenær
sem er valdið árekstrum.
Útvarpið í Peking skýrði frá
því í dag að í suðurfylkjum
Kína Kvangtung og Húnan hafi
brotizt út hættuleg farsótt og
kenndi útvarpið vanrækslu
„stéttaróvinarins“ um. Ekki var
sagt hvers konar 'sjúkdómur
þetta væri, en blað eitt í Hong-
kong segir þetta vera bráða
heilahimnubólgu og hafi fjöldi
manns látizt.
Toyota Crown Statíon
Toyota Crown Station
Traustur og ódýr
TRYGGIÐ YÐUR TOYOTA.
Japanska bifreiðasalan hf.
Armúla 7 — Sími 34470.
Kveikt var í Jorrey Canyon'
með sprengju, sjórinn logar
Lokaúrræðið þegar 60.000 lestir af olíu höfðu flætt
úr skipinu — Verður öll suðurströnd Englands útötuð?
150.000 gegn
Vietnamstríði
FRANKFURT 28/3 — Mót-
mælagöngur voru að venju
farnar víða í Vestur-Þýzka-
landi um páskana og segir
vesturþýzka fréttastofan
DPA að um 150.000 manns
hafi tekið þátt í göngun-
um. Það var einkum áber-
andi að þessu sinni hve
mikið var um ungt fólk í
göngunum, einnig margir
útlendingar, þ.á.m. erlend-
ir verkamenn sem hafa
vinnu í Vestuf-Þýzkalandi.
Göngurnar voru að þessu
sinni ekk.i einungis farnar
til þess að mótmæla kjarn-
orkuvígbúnaðinum, heldur
einnig * til að mótmæla
striði Bandaríkjanna í Vi-
etnam.
Slíkar mótmælagöngur
og fundir voru í fleiri
löndum um páskana. Hin
árlega páskaganga frá Al-
dermaston til Trafalgar-
torgs í London var nú helg-
uð baráttunni fyrir friði í
Vietnam.
Prentaraverkfalli
í Finnlandi lokið
HELSINKI 28/3 — Samkomulag
hefur tekizt í deilu prentara og
vinnuveitenda í Finnlandi, en
prentarar hafa verið þar í verk-
falli síðustu vikumar og hafa
engin blöð komið út. Prentarar
hefja aftur vinnu í fyrramálið.
Prentarar og aðrir bókagerðar-
menn knúðu fram mjög veruleg-
ar kjarabætur, fengu 5 prósent
kauphækkun þegar í stað, síðam
hækkar kaupið aftur um 3 prós-
ent 1. september, en um 3,5 prós-
ent að ári og aftur um 3,5 prós-
ent 1. september 1968. Jafnframt
var samið um að taka upp 5
dagai og 40 stunda vinnuviku frá
1. janúar 1968.
Þrátt fyrir þetta hagstæða
samkomulag greiddu fleiri at-
kvæði á móti því en með, en þar
sem tvo þriðju atkvæða þarf til
að fella sáttaboð var verkfallinu
aflýst-
MOSKVU 28/3 — Lifshættir
manna í Sovétríkjunum munu
gerbreytast á þessu ári þegar
sú almenna regla gengur í gildi
að aðeins verði unnið fimm daga
vikunnar, sagði formaður sov-
ézka alþýðusambandsins, Viktor
Grisjin á fundi sambandsstjórn-
arinnar í Moskvu í dag.
Hann sagði að breyting á
vinnutimanum myndi ná til 66
miljóna verkamanna og starfs-
manna. Skólar myndu áfram
starfa sex daga vikunnar, þar
•sem talið væri að það yrði of
mikið álag bæði fyrir kennara
og nemendur ef komast ætti yf-
ir sama námsefni á fimm dög-
um.
Vinnustundafjöldinn á viku
hverri verður ófram óbreyttur,
41 stund. Grisjin sagði að vinnu-
vikan væri nú styttri í Sovét-
ríkjunum en nokkurs staðar ann-
ars enda þótt vikukaupið hækk-
aði stoðugt. — Hann sagði að
2 umferðarslys
í bænum í gær
TVö slys urðu á götum Rivík-
ur í gær. Rétt fyrir hádegið
varð átta ára drengur á reið-
hjóli fyrir bíl á mótum Miklu-
brautar og Grensásvegs og
meiddist eitthvað og síðdegis
datt kona í hálku á Skólavörðu-
stíg og þurfti að flytja hana
með sjúkrabíl á Slysavarðstof-
una.
LONDON 28/3 — í dag var
varpað sprengjum á olíu-
flutningaskipið „Torrey Can-
yon“ sem fyrir páska strand-
aði á skeri undan suðvestur-
strönd Englands. — Mikil
sprenging varð í skipinu og
kviknaði í farmi þess. Skip-
ið sökk svo að nú stendur
varla nokkuð af því upp úr
sjó.
Átta Buccaneer-þotur brezka
flotans flugu yfir flakið af
„Torrey Canyon“ sem brotnað
hafði í þrjá parta. Vörpuðu þær
sprengjum á það Og strax við
fyrstu sprenginguna kviknaði í
olíunni sem í skipinu var og
flaut allt umhverfis það. Helm-
ingur af 120.000 lesta farmi
skipsins hafði þegair lekið úr því
og þekur olíubrákin hundruð fer-
kílómetra.
Þegar kviknað hafði í olíunni
vörpuðu tuttugu þotur úr brezka
flughernum banzínhylkjum á
bálið til að magna það og brátt
stóð sjórinn umhverfis strand-
staðinn í ljósum logum. Reykur
frá bálinu sást í 50 km fjarlægð.
Brezka stjómin tók ákvörðun
síðdegis í dag um að láta varpa
sprengjum á skipsflakið. Það er
fyrir utan brezka landhelgi og
þessi ákvörðun var ekki tekin
fyrr en f lengstu lög og þegar
sýnt þótti að engin von væri
um að skipið eða hluti af því
kæmist aftur á flot.
Brezkir tundurspillar eru á
verði umhverfis strandstaðinn til
að vara skip sem eiga þarna
leið um við hættunni af eldin-
um. ,
Þær 60.000 lestir af olíu'sem
lekið höfðu úr skipinu áður en
því var sökkt hafa þegar yaldið
miklu tjóni. Olían hefur bdrizt á
land á löngum kafla á suðvestur-
strönd Englands og er olíulagið
þar sumstaðar fet á þykkt. Reikn-
í flestum auðvaldslöndum væri
vinnutíminn á viku nú 44 til
48 stundir.
að hefur verið út að olíubrákin
sem nú flýtur undan slraumi á
Ermarsundi muni berast að
strönd Sussex innan tíu daga eða
svo, að ströndinni í Kent 3—1
dögum síðar og muni jafnvel
leggjast að ströndinni í Suffolk
sem er á austurströnd Englands.
Reynt hefur verið að hefta för
olíubrákarinnar með því að girða
fyrir hana, en það hefur gefizt
misjafnlegaj.
Sex miljónir punda
Skipið og farrnur þess, sem
brezka olíufélagið BP átti, voru
tryggð fyrir samtals um sex
miljónir sterlingspunda og er
þetta mesta tjón sem orðið hefur
í sögu sjávátrygginga. Ótalið er
það mikla tjón sem þegar hefur
hlotizt a<f olíunni og á eftir að
hljótast af henni. BP-féfagið tel-
RÓM 28/3 — Páll páfi sjötti gaf
á páskadag út hirðisbréf sem
birt var í dag. í bréfi sínu sem
ekki er aðeins stílað til ka-
þólskra manna hvetur' páfi alla
menn um að taka höndum sam-
an til þess að vinna gegn hungri
og fátækt í heiminum. Heims-
friðurinn og siðmenningin séu
í bráðri hættu ef þessum vá-
gestum verði ekki bægt frá dyr-
um mannkyns.
Páfi segir að hinum ríku
ur sig ekki bera neina ábyrgð á
því, og allt óvíst um hvort ..þeir
sem fyrir því verða geta fengið
nokkrar bætur. Talið er að það
geti tekið mörg ár að greiða úr
lagaflækjum sem strand „Torrey
Canyon“ hefur valdið-
Goldberg vill
losna úr starfi
NEW YORK 28/3 — Arthur
Goldberg vill láta af sfarfi sínu
sem aðalfulltrúi Bandaríkjanna
hjá Sameinuðu þjóðunum og
hyggst hann reyna að verða í
framboði til öldungadeildarinnar
fyrir Demókrata í New York
næsta ár, segir „New York
Times“.
þjóðum heims beri skylda til að
leggja af mörkum sinnar auð-
legðar til aðstoðar við hinar
fátæku þjóðir, einkum eigi að
taka til þess fé sem nú er varið
til vígbúnaðar. Vígbúnaðar-
kapphlaupið kallar páfi „óþol-
andi hneyksli" í heimi þar sem
enn ríki neyð, hungur og fá-
fræöi, og hann segir í hirðis-
bréfi síny að „hinn skefjalausi
kapítalismi" eigi nokkra sök á
því að svo er.
bernin/7
HIN FULLKOMNA SAUMAVÉL
Saumar: BLINDFALD • OVERLOCK
. TEYGJANLEGAN SAUM • ZIC-
ZAC • SKELJAKANT • SLÖNGU-
SPOR.
ÍP-| 1
m
AFBORGUNARSKILMÁLAR.
Ásbjörn Ólafsson, Grettisgötu 2
Berninabúðin, Lcekiargötu 2 - Sími 24440
Fimmdaga vinnuvika almenn
regia í Sovétríkjunum í ár
Hirðishréf frá Páli páfa um
aðstoð við fátækar þjóðir