Þjóðviljinn - 29.03.1967, Side 4
I
4 SÍÐA — ÞJÓÐVn-raiN — Miðvikudagur 29. marz 1967
t
Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýðii — Sósíalistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivar H- Jónsson (áb). Magnús Kjartansson#
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Siguróur V. Fridþjófsson-
Auglýsingastj.: Sigurdur T. Sigurðsson.
Framkvstj-: Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólaivörðust- 19.
Simi 17500 (5 linur) — Askriftarverð kr. 105.00 á mánuði. —
Lausasöluverð kr. 7.00.
Afturhald eða vinstrísókn
'J’víflokkakerfi er yfirlýst hugsjón Framsóknar-
flokksins, tvéir stórir flokkar báðir hæfilega
íhaldssamir, skipti fólkinu á milli sín. Og þeir
þyrftu ekki einu sinni að berjast til úrslita og
stjórna til skiptis, reynslan úr íslenzku stjórn-
málalífi sannar að Framsókn hefur kunnað mæta-
vel við sig í alræmdum helmingaskiptastjórnum
með íhaldinu; slit þeirrar stjórnarsamvinnu kost-
aði forðum dæmalaus sárindi og heitrofabrigzl af
hálfu Framsóknarflokksins. Einn þingmanna
Framsóknar, Karl Kristjánsson, hefur nú við lok
þingferils síns ymprað á breýtingu á kjördæma-
skipan landsins í það horf að landinu yrði öllu
skipt í einmenningskjördæmi og uppbótarþing-
menn engir; fyrirkomulag, sem orðið gæti til að
löggilda tvo stóra flokka og hindra eðlilega stjórn-
málaþróun. Með þessu er biðlað til íhaldsins.
gnginn skyldi ætla að frjálslyndi hafi knúið Sjálf-
stæðisflokkinn til að taka þátt í kjördæmabreyt-
ingum sem stefnt hafa í átt til aukiris réttlætis.
Þar hafa eiginhagsmunatillit ein ráðið. Og núver-
andi formaður flokksins, Bjami Benediktsson,
hefur oftar en einu sinni lýst því yfir að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi á tilteknu stigi umræðnanna
um kjördæmabreytinguna boðið Framsóknar-
flokknum samkomulag um einmenningskjördæmi
um allt land, en Framsókn hefði gugnað þegar ein-
menningskjördæmin áttu líka að verða í Reykja-
vík og annars staðar í þéttbýlinu. Þannig er ljóst
að báðir stærstu flokkar landsins hafa gælt og gæla
enn við hugmyndir um að gerbreyta stjórnar-
skránni í afturhaldsátt.
jpiokkarnir telja sennilega að þeir gætu náð ár-
angri eftir þeim leiðum vegna þess að verka-
lýðsflokkarnir og önnur þau öfl með þjóðinni sem
ættu að knýja fram frjálslynda og róttæka stjórn-
arstefnu séu klofin og sundruð. Satt er það, seint
hefur gengið að sameina vinstri rnenn á íslandi
til samstilltra átaka i þjóðmálunum. En einnig á
því sviði er að verða breyting. Það er kannski ekki
auðvelt að benda á svo sannfærandi þyki beinán
skipulagslegan árangur í því sameiningarstarfi,
þó skipulagsbreyting Alþýðubandalagsins á sl. ári
sé tvímælalaúst drjúgt spor í áttina. En breyting-
in er að verða í hugum fólks, ekki sízt í afstöðu
unga fólksins. Meðal ungs fólks í Sósíalistaflokkn-
um og Alþýðubandalaginu, í Alþýðuflokknum og
óflokksbundins, gætir vaxandi óþolinmæði og for-
dæmingar í sundrungu vinstri aflanna í landinu,'
meðal þess er vilji til að vinna saman gegn íhaldi
og afturhaldi.-í vinstri fylkingu á íslandi á heima
margt það fólk sem enn kýs Framsókn í von um
að henni takist einhvemtíma að verða sannur
vinstri flokkur. Á næstu árum getur orðið brýn
nauðsyn að vinstri menn í landinu finni leiðir
til samstarfs, ekki sízt ef afturhaldsöflin hygðust
skríða saman til óþurftarbreytinga á stjómar-
skránni og reyna að koma á tvíflokkakerfi aftur-
haldsins í landinu. — s.
Nýlega gat Þjóðviljinn þess,
að bæjarstjórn Hafnarfjarðar
hefði gert samþykkt um að
verða við áskorun frá Lands-
sambandinu gegn áfengisbölinu
um að veita ebki áfengi í sam.
kvæmum bæjarins og bæjar-
stofnana, en að þessari sam-
þykkt stóðu bæjarfulltrúar Fé-
lags óháða kjósenda, bæjarfull-
trúi Alþýðubandalagsins og
annar bæjarfulltrúi Alþýðu-
flokksins, Hörður Sófanías-
son. — Ætla hefði mátt, þegar
slík landssamtök fá framgengt
mikilvægum þætti í baráttunni
gegn áfengisbölinu í einum
stærsta kaupstað landsins, að
dagblöðin myndu geta þess, en
þau fengu í hendur umrædda
samþykkt. Alger þögn hefir
ríkt um hana í Morgunblaðinu,
Tímanum og Alþýðublaðinu, en
Þrándur í Götu gat hennar í
sínum dálkum í Vísi.
Um leið og þakka ber Þjóð-
viljanum fyrir að hafa getið
umræddrar samþykktar á á-
berandi stað, ber að harma, ef
önnur blöð sjá ekki ástæðu til
að minnast þessa, sem til góðs
fordæmis telst og horfir til
bætts siðgæðis í opinberu lífi.
Frásagnir blaða af slíkri sam-
þykkt geta vakið aðra opin-
bera aðila til umhugsunar og
ákvörðunar varðandi afstöðu
til nefndrar áskorúnar hinna
fjölmennu landssamtaka, en
henni var beint til allra sveit-
arstjóma og ríkisvaldsins. Enn-
fremur getur vitneskja al-
mennings um heilbrigt for-
dæmi opinbérra aðila á sviði
áfengismála haft hin jákyæð-
ustu áhrif og stuðlað að fækk-
un drykkjuveizla, en þangað
má vissulega oft rekja fyrstu
sporin hjá mörgum, sem orðið
hafa þrælar áfengisneyzlunnar.
Hversvegna þegir víðlesnasta
blað landsins, Morgunblaðið,
um téða samþykkt? Hversvegna
segir Alþýðublaðið ekki frá
málinu, þetta blað, sem ólatt
hefir verið að segja ýmsar
fréttir frá Hafnarfirði að und-
anförnu og oft haft sérstakan
fréttaritara á fundum bæjar-
stjórnar? Og því bregzt Tím-
inn fréttaþjónustu við lesendur
sína, en gerir mikið úr því á-
hugamáli tveggja einstaklinga í
Hafnarfirði að stofna vínbar,
og ýkir um mörg hundruð tölu
þeirra, sem ritað hafa nöfn sín
á lista, þar sem óskað er at-
kvæðagreiðslu um opnun á-
fengisútsölu í Hafnarfirði, en
sömu einstaklingar hafa for-
ustu um þá undirskriftasöfn-
un, enda beint hagsmunamál
fyrir þá að útsala verði opnuð.
Strax og búið var að sam-
þykkja afnám vínveitinga á
vegum Hafnarfjarðarbæjar.
hófu áfengisvinir þar í bæ víð-
tæka söfmm undirskrifta með-
al fólks, þar sem óskað er at-
kvæðagreiðslu um opnun á-
fengisútsölu í Hafnarfirði, en
% hluti kjósenda þarf að
óska þess, svo að skylt sé að
láta hana fara fram. Þar sem
vitað er, að sumt fólk hefur
látið tilleiðast á villandi for-
sendrun áð skrifa nöfn sín á
undirskriftalistana, bið ég
Þjóðviljann að koma eftirfar-
andi á framfæri við Hafnfirð-
inga:
Óheillamál er oftast farsæl-
ast að fella í fæðingunni. Opn-
um því ekki möguleika á því,
að atkvæðagreiðslan geti farið
fram. Þið, sem eruð á móti
vínbar og áfengisútsölu, hafið
enga ástæðu til að óska eftir
atkvæðagreiðslu. Með því eruð
þið aðeins að stofna til óþarfa
útgjalda fyrir bæinn ykkar.
Öruggast er að forðast hættuna
strax og bjóða henni ekki
hehn. Sá, sem ekki óskar at-
„Sú sem les smáletrið“ er
frú Mona Stenlund, etarfs-
fræðsluráðunautur í Uppsölum,
kölluð í síðasta hefti af frétta-
blaði Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna, „UNICEF News“.
Smáletrið var á súpudós og
skýrði frá samkeppni, sem var
í því fólgin að Ijúka við setn-
inguna: „Ef ég ýnni 20.000
krónur mundi ég . . . .“
Frú Stenlund segir, að hún
opni aldrei svo súpudós, að
henni verði ekki hugsað til
myndar, sem hún sá fyrir
nokkrum árum. Hún var af
áhættuna af óvissum urslitum.
Þeir, sem þegar kunna að hafa
án rækilegrar umhugsimar
léð nöfn sín á nefnda undir-
skriftalista, hafa ennþá tæki-
færi til að afturkalla undir-
skrift sína.
Munum þetta: Staðreyndin
er sú, að tilvist áfengisútsölu
á einum stað þýðir meiri
drykkju þar, meiri vandræði,
meira tjón, nýjar freistingar
fyrir ungmennin. Opnun yín-
búðar og vínbars er tilræði við
heill og velferð unga fólksins.
Hvaða faðir og móðir vill vís-
vitandi stuðla að slíku?
einmana, skinhoruðu barni með
stór augu, sem hélt á tóinri
skál. Undir myndinni stóð: Ein
súpuskál á dag er það eina
sem mörg böm fá að borða.
Hún lauk við setninguna
með þessum hætti: „. . . gefa
Barnahjálp Sameinuðu þjóð-
anna helming verðlaunanna
fyrir súpu handa svöngum
bamamögum og nota afgang-
inn til Bandaríkjafarar".
Hún vann samkeppnina og
hélt til Bandaríkjanna í desem-
ber s.l. Það var fjórða heim-
Framhald á 9. síðu.
Áfengismálin í Hafnarfirði
kvæðagreiðslu, tekur ekki a sig
Á. G.
§-----------------------------—-
Qafbarnahjálp SÞ verðlaunin
-w~x?—
■ . ■ '
%
BLEND
UK.AHn t l'S
Hí-;:*::
„ Hver stund með Camel
léttir Iund!“
Kveikið í einni Camel og njótið ánægjunnar
af mildu og hreinræktuðu tóbaksbragði.
BEZTA TÓBAKIÐ GEFUR BEZTA REYKINN
Ein mest selda sígarettan í heiminum.
UADE M US.A.